Fréttablaðið - 22.03.2006, Page 48
22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í
smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
AFMÆLI
Magnús Tumi Magn-
ússon myndlistar-
maður er 49 ára.
Helga Jónsdóttir
borgarritari er 53 ára.
Páll Hersteinsson
prófessor í spendýra-
fræði er 55 ára.
Júlíus Sólnes verk-
fræðingur er 69 ára.
ANDLÁT
Áslaug Guðríður Magnúsdóttir,
áður til heimilis á Bjarnastíg 5,
Reykjavík, lést á dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Grund sunnudag-
inn 19. mars.
Helgi Sveinsson, Hornbrekku,
Ólafsfirði, áður til heimilis á
Ólafsvegi 11, lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri að morgni
laugardagsins 18. mars.
JARÐARFARIR
13.00 Ásrún Þórhallsdóttir,
Sléttahrauni 23, Hafnar-
firði, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju.
14.00 Árni Kristinsson, síðast til
heimilis á dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, verður
jarðsunginn frá Akranes-
kirkju.
15.00 Gísli Hauksteinn Guðjóns-
son verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
Rúnar Brynjólfsson, Hólabraut
19, Hafnarfirði, lést á Landspítal-
anum við Hringbraut föstudaginn
17. mars.
Sigurbjörn Stefánsson bóndi,
Nesjum, lést á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja sunnudaginn 19.
mars.
Haukur Kristófersson er látinn.
Guðmundur Ágúst Jónsson
símsmíðameistari, Bankastræti 14,
Reykjavík, lést á Landspítalanum
við Hringbraut mánudaginn 20.
mars.
Jónína Björg Bjarnadóttir, áður
til heimilis í Barmahlíð 55, lést á
elli- og hjúkrunarheimilinu Sóltúni
föstudaginn 17. mars.
Guðríður Pálsdóttir, Seljahlíð,
áður til heimilis í Drápuhlíð 19,
lést laugardaginn 18. mars.
Ólafur Aðalsteinn Jónsson
tollvörður, Asparfelli 10, Reykjavík,
lést á Landspítala Fossvogi laugar-
daginn 18. mars.
Í dag halda Borgnesingar upp á að sjö-
tíu og fimm ár eru liðin frá stofnun
verkalýðsfélags bæjarlagsins. Sveinn
G. Hálfdánarson, formaður Verkalýðs-
félags Borgarness, er að vonum
ánægður með afmælið.
„Okkur finnst þetta tvímælalaust
vera merkileg tímamót,“ segir hann.
„Þetta félag hefur ekki látið sér neitt
óviðkomandi, verið með þeim öflugri í
samfélaginu og hefur haft getu til að
skipta sér af einu og öðru,“ bætir hann
við fullur baráttuanda eins og forystu-
manni verkalýðsfélags sæmir. Verk-
efni félagsins hafa verið af ýmsum
toga í gegn um árin og breyst mjög frá
stofnuninni eins og gefur að skilja.
„Félagið beitti sér meðal annars fyrir
því að verkafólk fengi úthlutuðum
kartöflugörðum og stuðlaði að því að
menn gætu verið með sína kú heima,“
segir Sveinn, sem bætir svo við að tím-
arnir hafi að sjálfsögðu breyst. Þrjátíu
og níu stóðu að stofnun Verkalýðsfé-
lagsins fyrir 75 árum og voru það allt
karlmenn. „Fljótlega fóru konur að
koma inn í félagið og strax á fyrsta
starfsárinu voru þær orðnar nokkrar.
Um síðustu áramót voru félagarnir
svo orðnir 1299 og eru um það bil jafn
margar konur og karlar.“
Afmælið eru ekki einu tímamótin
sem félagið stendur á því von er á
miklum breytingum nú í vor. „Við
stöndum í sameiningarviðræðum við
tvö önnur félög og verður afgreitt á
aðalfundum félaganna þriggja.“ Það
eru Verkalýðsfélagið Hörður, sem
starfar sunnan Skarðsheiðar, og Verka-
lýðsfélagið Valur í Dalasýslu sem ætla
að taka sig saman með Verkalýðsfé-
lagi Borgarfjarðar og Hörður sér þetta
sem fyrsta skrefið af mörgum í átt að
sameiningum verkalýðsfélagana í
gamla Vesturlandskjördæminu. Það
sé að minnsta kosti hans draumur.
„Kannski er þetta því síðasta stóraf-
mæli sem Verkalýðsfélag Borgarness
á undir því nafni því búast má við
nafnabreytingu við sameininguna,“
segir hann. Hann segir að viss eftirsjá
sé eftir nafninu sem nú hefur 75 ára
sögu en að forgangsröðunin liggi ann-
ars staðar. „Það er alltaf viðkvæmt að
fella niður svona gömul og gróin nöfn
en við teljum það enga fyrirstöðu.
Meginmálið er að búa til öflugra
félag.“
Í stað hátíðarhalda ætlar Verka-
lýðsfélagið að styrkja gott málefni
með peningagjöf. „Við ætlum að nota
tækifærið og láta gott af okkur leiða í
okkar ágæta samfélagi,“ segir Sveinn,
sem vildi ekki gefa Fréttablaðinu upp
hverjir muni hljóta styrkinn enda
skuli allir bíða spenntir þangað til í
kvöld þegar það verður tilkynnt.
„Þetta er mjög stórt á okkar mæli-
kvarða og miðað við stærð okkar
félags teljum við það vera mjög vel
gert,“ segir Sveinn leyndardómsfull-
ur.
VERKALÝÐSFÉLAG BORGARNESS: 75 ÁRA Í DAG
Síðasta afmælið undir nafni
Verkalýðsfélags Borgarness
SVEINN G. HÁLFDÁNARSON Formaður Verkalýðsfélags Borgarness sem hyggst sameinast tveimur öðrum félögum undir öðru nafni í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
MERKISATBURÐIR
1622 Opechancanough leiðtogi
Powhatan-indíána leiðir
árás á Jamestown land-
nemabyggðina með þeim
afleiðingum að 347 látast
og Powhatan-stríðið hefst.
1867 Borgarnes við Brákarpoll
verður löggiltur verslunar-
staður.
1894 Íþróttafélag áhugamanna
í Montreal vinnur fyrsta
Stanley-bikarinn í íshokkí.
1924 Ríkisstjórn Jóns Magnús-
sonar tekur við völdum en
hún situr þangað til í júlí
1926.
1972 Í ljós kemur að Geirfugla-
drangur, vestur af Eldey,
hafði sokkið í sjóinn en
drangurinn er grunnlínu-
punktur landhelginnar.
JOHANN WOLFGANG VON
GOETHE (1749-1832) LÉST
ÞENNAN DAG
„Rétt svar er eins og
blíðlegur koss.“
Rithöfundurinn Goethe er einn
frægasti rithöfundur fyrr og síðar.
Þennan dag árið 1945 var arabíska ríkjabandalagið
stofnað í Kaíró. Stofnmeðlimir voru Egyptaland,
Sýrland, Líbanon, Írak, Transjórdanína, Sádí-Arabía
og Jemen. Tilgangur ríkjabandalagsins var að stuðla
að styrkri samvinnu milli landanna í arabaheiminum
í efnahags-, menningar- og félagsmálum. Þrjátíu
árum eftir stofnunina voru ellefu ríki búin að bætast
við, allt frá Komoros til Barein.
Frá upphafi skipti arabíska ríkjabandalagið löndin
miklu máli en ekki er þó hægt að segja að logn-
molla hafi ríkt innan ríkjabandalagsins. Árum saman
var bandalagið sakað um að stíga of fast niður í
samskiptum sínum við Ísrael. Árið 1976 var Frelsis-
samtökum Palestínu leyfð innganga að bandalaginu
í tráss við óskir Jórdana um að fá áfram að fara með
málefni hertekinnar Palestínu. Egyptaland var síðan
rekið úr bandalaginu árið 1979 þegar landið samdi
frið við Ísrael og var útskúfað þaðan í tíu ár.
Innrás Íraks í Kúvæt olli líka miklum vandræðum
innan bandalagsins enda bæði ríkin meðlimir í því.
Klofnaði ríkjabandalagði í tvennt yfir ósætti yfir því
hvort leyfa ætti erlendum herjum að nýta landsvæði
í Sádí-Arabíu.
ÞENNAN DAG > 22. MARS 1945
Arabaríkin stofna bandalag
Á dögunum afhenti Lions-
klúbburinn Engey Barna- og
unglingageðdeild LSH gjafa-
styrk upp á tvö hundruð þús-
und krónur. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem Engey hefur
veitt BUGL ríkulega styrki
sem hafa komið deildinni að
góðum notum. Að þessu
sinni verða peningarnir not-
aðir í tónlistarmeðferð sem
hefur verið starfandi á
deildinni.
Myndin er tekin við
afhendingu styrksins og má
þar sjá konur úr Lions-
klúbbnum Engey ásamt
Hrefnu Hrefnu Ólafsdóttur
félagsráðgjafa og Steinunni
Gunnlaugsdóttur hjúkrun-
arfræðingi.
Engey veitir BUGL styrk
Engey gaf BUGL veglega peningagjöf á dögunum.
BRÚÐUR BRENNDAR Spánverjar
í Valencia-borg skemmta sér vel
þessa vikuna og kveikja í brúðum
og skjóta flugeldum á loft á árlegu
Fallas-hátíðinni. Hátíðin er haldin til
heiðurs heilögum Jósep.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÆDDUST ÞENNAN DAG
Reese Witherspoon
leikkona fæddist árið
1976.
Andrew Lloyd Webb-
er tónskáld fæddist
árið 1948.
Phyllis McGinley
ljóðskáld fæddist
árið 1905.
Anthony Van Dyck
flæmskur málari
fæddist árið 1599.
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
Rúnar Brynjólfsson
Hólabraut 19, Hafnarfirði,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
17. mars. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju
þriðjudaginn 28. mars kl. 15.00.
Dóra Pétursdóttir
Pálína Margrét Rúnarsdóttir
Guðrún Brynja Rúnarsdóttir