Fréttablaðið - 22.03.2006, Page 58
34 22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MARS
19 20 21 22 23 24 25
Miðvikudagur
■ ■ LEIKIR
19.15 Grindavík og Keflavík mæt-
ast í undanúrslitum Iceland-Express
deildar kvenna í körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
19.50 Enska bikarkeppnin á Sýn.
Bein útsending frá leik Chelsea og
Newcastle.
22.20 Handboltakvöld á Rúv.
> ÍBV fær væna upphæð
Það er ekki aðeins Halmstad í Svíþjóð
sem græðir verulega á því að selja
stjörnuframherjann sinn Gunnar Heiðar
Þorvaldsson til Hannover í Þýskalandi.
ÍBV, félagið sem Gunnar Heiðar lék
með áður en hann fór til Svíþjóðar, fær
dágóðan skilding
í sinn vasa
með kaupum
Hannover á
leikmanninum,
eða um 10%
kaupverðsins. Talið
er víst að Hannover
sé ekki að borga
minna en 100 milljónir
fyrir Gunnar Heiðar og er
jafnvel talið að kaupverðið sé allt að
118 milljónir króna. Það þýðir að ÍBV er
að fá a.m.k. 10 milljónir í sinn hlut nú,
en þess má geta að Gunnar Heiðar var
seldur til Halmstad á sínum tíma fyrir
sex milljónir króna.
HANDBOLTI Handknattleikssamband
Evrópu, EHF, hefur lokið rannsókn
sinni á meintu svindli í leik Serba
og Króata á EM. Nokkrir leikmenn
serbneska landsliðsins stigu fram
fyrir skjöldu skömmu eftir mótið
og sögðu að þjálfari liðsins, Veselin
Vujovic, og tveir stjórnarmenn
serbneska handknattleikssam-
bandsins hefðu skipað þeim að tapa
leiknum en viðureign liðanna var í
lokaumferð milliriðilsins og Króat-
ar gátu tryggt sér undanúrslitasæti
með sigri. Króatía vann leikinn með
fjórum mörkum, 34-30, en jafnt var
í leikhléi, 16-16. Góður leikkafli í
síðari hálfleik þar sem Króatar
skoruðu fjölda marka í röð gerði út
um leikinn.
EHF segir í yfirlýsingu á heima-
síðu sinni að ekki sé ástæða til refsi-
aðgerða þar sem ekkert bendi til
þess að Serbar hafi tapað viljandi.
- hbg
Handknattleikssamband Evrópu búið að rannsaka leik Serba og Króata á EM:
Serbar sleppa með skrekkinn
ÖRUGGT MARK Króatinn Mirze Dzomba skorar hér úr víti fram hjá Arpad Sterbik í leiknum
umtalaða. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
BORÐTENNIS Guðmundur E. Step-
hensen og félagar í Malmö FF
sigruðu Halmstad í fyrsta leik lið-
anna í undanúrslitum sænsku
úrvalsdeildarinnar í borðtennis í
fyrradag. Malmö hafði nokkra
yfirburði í viðureignum leiksins
og sigraði samtals 5-1.
Guðmundur atti kappi við Kín-
verjann Huang Dawei í liði Halm-
stad og sigraði örugglega, 3-0.
Liðin eigast við að nýju í kvöld á
heimavelli Halmstad og fari svo
að Malmö sigri hefur liðið tryggt
sér sæti í úrslitum deildarinnar.
- vig
Guðmundur E. Stephensen:
Malmö byrjaði
á góðum sigri
GUÐMUNDUR STEPHENSEN Sigraði sann-
færandi í sínum leik. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Alda Leif Jónsdóttir, besta körfuknatt-
leikskona landsins, er hætt í körfubolta
í bili þar sem hún er ólétt. „Ég tek mér
pásu frá boltanum núna en legg skóna
ekkert á hilluna strax,“ sagði Alda Leif í
gær en hún spilaði sinn síðasta leik fyrir
lið sitt Den Helder þann 11. mars.
„Mér finnst ólíklegt að ég fari aftur
út. Mínir gömlu félagar í ÍS eru efst á
baugi þegar kemur að því að spila hér á
landi, það er líklegt að ég fari til þeirra
en ég hef reyndar ekkert farið að leiða
hugann að því,“ sagði Alda Leif sem er
mjög ánægð með dvölina í Hollandi en
þangað fór hún með unnusta sínum
og einum fremsta körfuknattleikmanni
landsins, Sigurði Þorvaldssyni, sem
verður væntanlega eftirsóttur þegar
hann kemur heim líkt og Alda Leif.
„Ég er mjög sátt við tímann minn í
Hollandi, það var gaman að prófa
þetta. Það voru öðruvísi áherslur hér
og ég held að ég hafi bætt mig sem
leikmaður,“ sagði Alda Leif sem vakti
mikla athygli með góðri frammistöðu í
Hollandi en hún var meðal annars valin
í stjörnuleik deildarinnar.
Sigurður sagði í samtali við Fréttablaðið
að hann hefði ekkert leitt hugann að því
hvar hann myndi spila þegar hann kæmi
heim og enn sem komið er
væri allt óráðið í þessum
efnum. Þó er ljóst að
mörg lið eru á höttunum
á eftir landsliðsmanninum
Sigurði, en hann var valinn
besti leikmaður Íslands-
mótsins í fyrra.
ALDA LEIF JÓNSDÓTTIR KÖRFUBOLTAKONA Í HOLLANDI: BER BARN UNDIR BELTI
Tekur sér barneignarfrí frá boltanum
Valur fer til Rúmeníu
Valsstúlkur fara til Rúmeníu í undan-
úrslitum Áskorendakeppni Evrópu og
mæta þar CS Tomis Constanta. Fyrri
leikurinn fer fram um páskahelgina,
15. eða 16. apríl í Rúmeníu, en síðari
leikurinn hér heima helgina 22. eða
23. apríl.
Iceland-Express deild karla:
KR-SNÆFELL 67-64
Stig KR: Skarphéðinn Ingason 16, Fannar Ólafs-
son 15, Melvin Scott 8, Pálmi Freyr Sigurgeirsson
8, Níels Dungal 6, Steinar Kaldal 5, Ljubodrag Bog-
ovac 4, Darri Hilmarsson 2, Brynjar Björnsson 3.
Stig Snæfells: Igor Beljanski 17, Jón Ólafur Jóns-
son 12, Lýður Vignisson 11, Nate Brown 9, Helgi
Reynir Guðmundsson 5, Slobodan Subocic 5,
Magni Hafsteinsson 4, Atli Rafn Hreinsson 1.
KR er komið áfram samanlagt 2-1.
Enska bikarkeppnin:
BIRMINGHAM-LIVERPOOL 0-7
0-1 Sami Hyypia (1.), 0-2 Peter Crouch (4.), 0-2
Peter Crouch (37.), 0-4 Fernando Morientes (58.),
0-5 John Arne Riise (70.), 0-6 Olivier Tebily (sjálfs-
mark 78.), 0-7 Djibril Cisse (89.).
Þýski handboltinn:
DELITZSCH-GUMMERSBACH 23-24
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk fyrir
Gummersbach og Róbert Gunnarsson skoraði 2.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Liverpool eru komið í und-
anúrslit ensku bikarkeppninnar eftir
7-0 sigur á Birmingham í gærkvöldi.
Innan við mínútu eftir að leikurinn
hófst hafði Sami Hyypia gefið tóninn
með góðu marki áður en Peter Crouch
stangaði boltann í netið eftir sendingu
frá Steven Gerrard.
Peter Crouch bætti þriðja markinu við
í fyrri hálfleik, Fernando Morientes
skoraði fjórða markið áður en John
Arne Riise kom Liverpool í 5-0 með
glæsilegu marki. Olivier Tebily skoraði
síðan sjálfsmark áður en Djibril Cisse
innsiglaði 7-0 stórsigur Liverpool á
Birmingham. - hþh
Enska bikarkeppnin:
Stórskotahríð
hjá Liverpool
PETER CROUCH Var sjóðheitur með Liver-
pool í gær. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Hefur
sé› DV
í dag?
flú
HAPPADRÁTTUR Í EUROVISION
Sigmar kynnir í stað
Gísla Marteins
Silvía Nótt
síðust á svið
2x10 21.3.2006 20:18 Page 1
KÖRFUBOLTI Það voru KR-ingar
sem hrepptu síðasta sætið í und-
anúrslitum Iceland Express-deild-
arinnar með því að sigra Snæfell í
rosalegum oddaleik liðanna í gær.
Úrslitin réðust ekki fyrr en á síð-
ustu sekúndum leiksins en Nate
Brown, Bandaríkjamaðurinn í liði
Snæfells, brenndi af tveimur víta-
skotum þegar 13 sekúndur voru
eftir í stöðunni 63-61 fyrir KR.
Vítaskotin voru dýrkeypt því KR-
ingar náðu fjögurra stiga forystu
þegar fjórar sekúndur voru eftir
og uppskáru að lokum þriggja
stiga sigur, 67-64. Skarphéðinn
Ingason var með stáltaugar og
nýtti fjögur vítaskot á lokasek-
úndunum og tryggði Vesturbæing-
um dramatískan sigur.
Það var augljóst að mikill
taugatitringur var í leikmönnum
beggja liða í upphafi – kannski
skiljanlega þar sem allt tímabilið
var undir í þessum eina leik. Snæ-
fellingar voru tiltölulega fljótir að
hrista af sér skrekkinn á meðan
heimamenn voru engan veginn að
höndla álagið fyrir framan fjöl-
marga áhorfendur sem troðfylltu
DHL-höllina í Vesturbænum.
Hittnin var afleit hjá báðum
liðum í 1. leikhluta en gríðarleg
barátta Snæfells í fráköstunum
átti stærstan þátt í að liðið náði
undirtökunum snemma leiks.
Gestirnir spiluðu grimma vörn og
fyrir vikið var sóknarleikur KR
skelfilega ráðleysislegur. Til
marks um það hitti liðið aðeins úr
einu skoti af 12 í 1. leikhluta en að
honum loknum var staðan 12-17,
gestunum í vil, og komu 10 stig
KR úr vítaskotum.
Í 2. leikhluta lenti Snæfell fljót-
lega í villuvandræðum og neydd-
ist Bárður Eyþórsson til að hvíla
lykilmenn á borð við Igor Belj-
anski, sem fékk sína 2. villu, og
Ingvald Magna Hafsteinsson, sem
fékk sína þriðju villu í upphafi 2.
leikhluta. Eftir að Jón Ólafur
Jónsson, sem hafði farið á kostum
framan af í fjarveru Beljanski og
Magna, komst einnig í villuvand-
ræði jafnaðist leikurinn út og
heimamenn tóku að saxa jafnt og
þétt á forskot Snæfells, sem mest
taldi 11 stig í upphafi 2. leikhluta.
Í hálfleik var forysta Snæfells
komin niður í aðeins tvö stig, 33-
35.
Það voru aðeins þrjár mínútur
liðnar af síðari hálfleik þegar
Magni fékk sína 4. villu og var að
sjálfsögðu tekinn af velli. Við það
riðlaðist leikur Snæfells nokkuð
en að sama skapi jókst sjálfs-
traust leikmanna KR. En seiglan í
liði Snæfells var engu lík og þrátt
fyrir að á móti blési gáfust leik-
menn liðsins aldrei upp. Þegar
síðasti leikhluti hófst var staðan
50-49, KR í vil.
Heimamenn byrjuðu síðasta
leikhluta vel og náðu fimm stiga
forskoti með þriggja-stiga körfu
Brynjars Björnssonar. Snæfell-
ingar börðust áfram en söknuðu
Magna greinilega sárlega. Þegar
þarna var komið var þreytan aug-
ljóslega farin að segja til sín hjá
gestunum, enda þeir búnir að
spila á mun færri leikmönnum en
KR. Samt sem áður náðu heima-
menn ekki að hrista Snæfellinga
af sér og náðu þeir alltaf að halda
forskotinu í lágmarki. Eins og
áður segir voru það taugarnar
sem réðu úrslitum í blálokin og
svo fór að þær voru sterkari hjá
heimamönnum þegar mest lá við.
- vig
KR-ingar í undanúrslit
KR varð fjórða og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Iceland Ex-
press-deildarinnar eftir nauman sigur á Snæfelli í spennuþrungnum leik í gær.
FANNAR ÓLAFSSON Maðurinn á bak við sigur KR í gær en hann spilaði frábæra vörn í leikn-
um og skoraði flest sín stig á afar mikilvægum augnablikum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL