Fréttablaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 59
MIÐVIKUDAGUR 22. mars 2006 35
FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Gunn-
ar Heiðar Þorvaldsson skrifaði síð-
degis í gær undir þriggja ára
samning við þýska úrvalsdeildar-
liðið Hannover 96.
Gunnar mun fara til Þýskalands
skömmu áður en HM hefst í sumar,
eða þegar leikmannamarkaðurinn
þar í landi opnast að nýju. Hann
mun fram að þeim tíma spila með
liði sínu Halmstad í sænsku úrvals-
deildinni. Kaupverðið á Gunnari
er ekki gefið upp en eftir því sem
þýskir fjölmiðlar komast næst er
talið að það sé í kringum 100-150
milljónir króna. Það er því ljóst að
Eyjamaðurinn knái er ein besta
fjárfesting sem Halmstad hefur
gert í síðari tíð, en það borgaði ÍBV
sex milljónir króna fyrir Gunnar
Heiðar í lok sumars 2004.
Gunnar Heiðar var í skýjunum
þegar Fréttablaðið ræddi við hann
í gær enda loksins búinn að ganga
frá sínum málum. „Ég er mjög
sáttur með að þetta sé komið á
hreint og ég tel að ég sé að taka
hárrétt skref,“ sagði hann. Gunnar
hefur verið orðaður við fjölmörg
lið úti um alla Evrópu á síðustu
mánuðum. Hannover var eitt af
þeim félögum sem höfðu fyrst
samband við hann eftir að hann
byrjaði að vekja athygli í Svíþjóð
fyrir góða frammistöðu með Halm-
stad.
Gunnar Heiðar sagði að þýska
liðið hefði í raun alltaf verið hans
fyrsti kostur enda hafði það sótt
stíft eftir kröftum hans. „Undir
það síðasta var þetta orðið eina
liðið sem ég vildi fara til. Þess
vegna er þetta algjör draumur
fyrir mig. Nú er bara að klára mína
leiki sem eftir eru hjá Halmstad
með sóma,“ sagði Gunnar Heiðar
en hann mun ná fyrstu níu leikjum
Halmstad í sænsku úrvalsdeild-
inni áður en hann heldur formlega
til Þýskalands.
Hannover 96 hefur verið á gríð-
arlegri uppleið í Þýskalandi á síð-
ustu árum eftir að hafa átt í mikl-
um erfiðleikum undir lok síðasta
áratugar. Eftir langa dvöl í neðri
deildunum komst liðið upp í úrvals-
deildina á ný árið 2002 og síðan þá
hefur það verið í örum vexti. Liðið
hafnaði í 10. sæti úrvalsdeildar-
innar í fyrra og er nú í því 7. og því
í harðri baráttu um Evrópusæti.
Félagið hefur tvívegis orðið þýsk-
ur meistari, árin 1938 og 1954, og
þá var það bikarmeistari árið 1992.
Liðið spilar heimaleiki sína á
hinum stórglæsilega AWD-leik-
vangi í Hannover. Hann tekur tæp-
lega 40 þúsund manns í sæti og eru
heimaleikir þess afar vel sóttir af
stuðningsmönnum liðsins.
Gunnar Heiðar verður 24 ára
gamall þann 1. apríl nk. og verður
Hannover þriðja félagið sem hann
leikur fyrir á sínum ferli. Hann lék
með ÍBV framan af sínum ferli en
fór til Halmstad sumarið 2004 og
varð markakóngur sænsku úrvals-
deildarinnar á síðustu leiktíð með
16 mörk í 23 leikjum.
vignir@frettabladid.is
Algjör draumur fyrir mig
Framherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur skrifað undir samning við þýska
úrvalsdeildarfélagið Hannover 96 og gengur formlega í raðir félagsins í sumar.
Gunnar telur sig vera að taka hárrétt skref með því að fara til Þýskalands.
GUNNAR HEIÐAR Sést
hér fagna eina landsliðs-
markinu sem hann hefur
skorað hingað til, en það
kom í 5-1 sigurleik gegn
Möltu í undankeppni
HM á síðasta ári. FRÉTTA
BLAÐIÐ/PJETUR
KÖRFUBOLTI Grindavík tekur á móti
Keflavík í kvöld í undanúrslitum
Iceland-Express deildar kvenna í
körfubolta. Liðin hafa spilað fjór-
um sinnum í vetur en Keflavík
hefur aðeins náð að sigra einu
sinni en Grindavíkurstúlkur þri-
svar. Leikirnir hafa þó alltaf verið
jafnir og spennandi og Sverrir
Þór Sverrisson þjálfari Keflavík-
urstúlkna býst við skemmtilegu
undanúrslitaeinvígi.
„Ég býst við því að það verði
framhald á þeirri miklu spennu
sem hefur einkennt leiki þessara
liða í vetur. Það lið sem hungrar
meira í að komast áfram, það
vinnur einvígið og ég trúi ekki
öðru en að hungrið í okkar her-
búðum sé mikið þar sem við erum
ekki fullkomlega sátt við vetur-
inn. Við ætluðum okkur betri hluti
á tímabilinu. Nú er komið að síð-
ustu keppninni í vetur sem jafn-
framt er sú stærsta. Verkefnið
okkar þar er að mæta Grindavík
og vissulega ætlum við okkur
sigur þar,“ sagði Sverrir við
Fréttablaðið í gær.
„Við þekkjum Grindavíkurlið-
ið vel og spiluðum við þær í síð-
ustu umferð Íslandsmótsins þar
sem við töpuðum. Í þeim leik var
það slæm skotnýting sem varð
okkur algjörlega að falli en ef hún
væri eins og hún á að sér að vera
þá værum við sjálfsagt að byrja á
heimavelli núna en fyrst og
fremst hugsa ég bara um mitt lið.
Það skiptir miklum sköpum að
koma tilbúnar til leiks og við þurf-
um að spila ákveðið gegn Grinda-
vík, ef við gerum það þá eigum
við mjög góða möguleika,“ sagði
Sverrir sem hræðist ekki Tamöru
Stocks, nýju bandarísku stúlkuna
í Grindavíkurliðinu en hún hefur
meðal annars spilað í WNBA
körfuboltanum og hefur sýnt að
hún er frábær leikmaður.
„Að sjálfsögðu reynum við að
láta hana hafa fyrir hlutunum,
hún er orðin þeim mjög mikilvæg
þar sem hún er eini hávaxni leik-
maðurinn í liðinu og leikur þeirra
byggist mikið upp á því að finna
hana inni í teignum. Við hjálp-
umst að með að stoppa hana,“
sagði Sverrir.
Auk þess að þjálfa stúlkurnar
spilar Sverrir með karlaliði
Keflavíkur. „Það gengur ágæt-
lega að sameina þetta. Stundum
verður maður þreyttur andlega
en auðvitað er þetta mjög gaman
og ég valdi mér þetta sjálfur.
Stefnan fyrir tímabilið var að
vinna tvöfalt og hún hefur ekkert
breyst,“ sagði Sverrir að lokum.
- hþh
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur, sem mætir Grindavík í kvöld:
Hungrið mun ráða ríkjum
SVERRIR ÞÓR SVERRISSON Býst við stór-
skemmtilegu úrslitaeinvígi gegn Grindavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Ein af goðsögnum enska
landsliðsins sem varð heimsmeist-
ari árið 1966, Bobby Charlton,
telur að enska landsliðið geti fetað
í fótspor gamla liðsins og tryggt
sér heimsmeistaratitilinn í ár.
„Ég vil ekki koma með neinar
sleggjur en já, ég held að við séum
með nógu gott lið til að hampa titl-
inum. Ég vil ekki setja of mikla
pressu á þá enda hafa margir
þeirra átt mjög langt og strangt
tímabil. En þetta er gott tækifæri
til að skrá nafn sitt í sögubækurn-
ar,“ sagði Charlton í gær.
„Allir leikmenn vilja verða
heimsmeistarar, en til þess þurfa
þeir að vinna þetta mót. Það er
spennandi sumar framundan,“
bætti Charlton við. - hþh
Bobby Charlton:
England getur
unnið HM
BOBBY CHARLTON Vill ekki setja of mikla
pressu á leikmenn enska landsliðsins.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
FÓTBOLTI Frank Rijkaard, stjóri
Barcelona, segir að honum gangi
ekkert að fá sænska framherjann
Henrik Larsson til að skipta um
skoðun en Larsson hefur ákveðið
að hætta hjá spænsku risunum í
sumar. Larsson er 34 ára gamall
og ætlar sér að ljúka ferlinum hjá
Helsingborg í heimalandi sínu.
„Allir hjá félaginu, allt frá
þjálfurum og leikmönnum til
stjórnarmanna, hafa reynt að telja
honum trú um að fara ekki í sumar.
En hann hefur gert upp hug sinn
og við virðum það,“ sagði Rijka-
ard.
Larsson hefur skorað eitt mark
í leik í síðustu fimm leikjum hjá
Barcelona og er kominn með níu
mörk á tímabilinu þrátt fyrir að
vera sárasjaldan í byrjunarliðinu.
- hþh
Frank Rijkaard:
Larsson neitar
að vera áfram
HENRIK LARSSON Hættir hjá Barcelona fyrir
Helsingborg. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Glenn Roeder, stjóri New-
castle, hefur greint frá því að um
þrjár vikur séu þangað til Michael
Owen geti farið að spila knatt-
spyrnu á nýjan leik. Owen fót-
brotnaði í desember og um tíma
var óttast að hann myndi missa af
HM í sumar.
„Michael er enn frá vegna
meiðsla líkt og Kieron Dyer og
Steven Carr. En ég er fullviss um
það að þeir verði allir komnir
aftur á fullt eftir þrjár vikur,“
sagði Roeder. Dyer hefur verið frá
keppni frá því í febrúar líkt og
Carr og verða þeir kærkomin við-
bót fyrir Newcastle sem er í tólfta
sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
- hþh
Glenn Roeder:
Þrjár vikur í
Michael Owen
FÓTBOLTI Lionel Messi á bræðrum
sínum og Ronaldinho mikið að
þakka fyrir velgengni sína á
knattspyrnuvellinum. Hann hefur
greint frá því að óbilandi keppn-
isskap sitt sé frá bræðrum hans
komið en Ronaldinho hafi aftur á
móti tekið hann upp á arma sína
þegar hann kom fyrst til Barce-
lona.
„Ég hef hatað það að tapa frá
því að ég var ungur. Ef ég lék mér
við bræður mína Matías og Maxi
þá enduðum við nánast alltaf á
því að slást. Ef ég tapaði þá hlógu
þeir að mér og kýldu mig þangað
til ég fór að gráta. Þeir kenndu
mér því að hata það að tapa með
bræðraást sinni,“ sagði Argent-
ínumaðurinn.
Messi segir að hann eigi Ron-
aldinho mikið að þakka en Arg-
entínumaðurinn og Brasilíumað-
urinn hafa myndað eitt mest
spennandi sóknarlínu í heimi
ásamt Samuel Eto´o.
„Ronnie hefur verið mér ómet-
anlegur. Ég var mjög ungur þegar
ég kom fyrst inn í búningsher-
bergið hjá Barcelona en hann
bauð mig strax velkominn. Hann
studdi mig mikið og fylgdist með
framgangi mínum. Ég lít mjög
mikið upp til hans,“ sagði hin 18
ára gamla stórstjarna að lokum.
- hþh
Argentínska unglingsstirnið Lionel Messi um velgengni sína hjá spænska stórliðinu Barcelona:
Ronaldinho tók mig upp á sína arma
FORMÚLA Keppnisliðin Ferrari,
McLaren og BMW þurfa að breyta
afturvæng bíla sinna fyrir næsta
kappakstur í formúlunni sem fram
fer í Ástralíu og þarf Ferrari einn-
ig að breyta framvæng sínum.
Þetta ákvað Alþjóða aksturs-
íþróttasambandið á fundi sínum í
gær eftir að hafa farið yfir kvörtun
annarra liða eftir kappaksturinn í
Malasíu um síðustu helgi.
Talið er að vængirnir á bílum
Ferrari og McLaren þurfi á mikl-
um breytingum að halda til að
verða löglegir en að umbæturnar
sem þurfi á væng BMW séu smá-
vægilegar. - vig
Ferrari, McLaren og BMW:
Gert að breyta
vængjunum
FÓTBOLTI Massimo Moratti, eigandi
Inter Milan, hefur opnað fyrir að
hollenski framherjinn Ruud van
Nistelrooy komi til liðsins og sér
Moratti hann fyrir sér sem hinn
fullkomna framherja með Adria-
no. Auk þess hefur Thierry Henry
verið orðaður við Inter en Moratti
segir að hann sé ekki á leiðinni til
félagsins.
„Henry er leikmaður sem ég
dýrka að horfa á. En munurinn á
Henry og Van Nistelrooy er sá að
ég veit að Nistelrooy er ekki
ánægður í Manchester. En Nistel-
rooy er mjög góður framherji,“
sagði Moratti í gær.
- hþh
Massimo Moratti:
Nistelrooy er
góður kostur
RONALDINHO OG LIONEL MESSI Bestu félagar innan sem utan vallar. NORDICPHOTOS/AFP
MICHEAL OWEN Á góðum batavegi.
NORDICPHOTOS/AFP