Fréttablaðið - 22.03.2006, Side 62
22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR38
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Ljósmyndasýning Friðriks Arnar
Hjaltested, 10.000, hefur heldur
betur slegið í gegn hjá höfuðborg-
arbúum en fullt hefur verið út úr
húsi síðustu helgar. Myndirnar
hafa nánast verið rifnar út og
hafði ljósmyndarinn ekki tölu á
hversu margar hefðu verið seldar.
„Þetta eru í kringum hundrað verk
og ég held að sjötíu hafi verið seld-
ar,“ útskýrir Friðrik en hann var
nýkominn heim úr vikuferð af
Snæfellsnesi þar sem hann er að
undirbúa „ævintýralega“ listasýn-
ingu í tilefni af hundrað ára afmæli
viðveru Jules Verne.
Friðrik var að sjálfsögðu í skýj-
unum yfir viðtökunum en opnunin
sló aðsóknarmet og annað met var
slegið á Safnanótt. Hann þakkaði
öflugu kynningarstarfi að ein-
hverju leyti vinsældirnar en bætti
við að efnistökin væru frekar víð.
„Þetta er ferðalag í tíma og rými og
það er alltaf gott að hafa sinn per-
sónulega blæ,“ segir hann og bætir
við að fólk hafi líka alltaf gaman af
því að skoða annað fólk. Verðið á
myndunum hefur einnig vakið
athygli en hver mynd kostar tíu
þúsund krónur með ramma og öllu.
„Ég vildi bara að fólk eignaðist
myndirnar mínar,“ útskýrir hann.
Aðstaða ljósmyndara hefur
stórbatnað eftir að þeir fengu sitt
eigið aðsetur í sal fyrir ofan Borg-
arbókasafnið. „Ljósmyndin hefur
aldrei verið jafn vinsæl því fólk er
með myndavélarnar út um allt og
mér fannst því tilvalið að kynna
enn frekar þessar tækifæris-
myndir,“ segir hann. - fgg
Fólk vill alltaf sjá fólk
FRIÐRIK ÖRN Ljósmyndasýning hans hefur
heldur betur slegið í gegn og er nánast
slegist um myndirnar hans.
FRÉTTABLAÐIÐ / FRIÐRIK ÖRN
LÁRÉTT
2 gaul 6 hvort 8 herma 9 borg 11
tveir eins 12 súla 14 strengur 16
borðaði 17 skjögur 18 hópur 20 fyrir
hönd 21 sóða.
LÓÐRÉTT
1 erindi 3 samtök 4 mikill ávinningur
5 þunnur vökvi 7 pedali 10 fax 13
nálægar 15 sjá eftir 16 spíra 19 tveir
eins.
LAUSN
HRÓSIÐ
...fær Baltasar Kormákur,
leikstjóri Mýrarinnar, fyrir að
hleypa lífi í Norðurmýrina en
tökur á myndinni hófust í
fyrradag.
LÁRÉTT: 2 baul, 6 ef, 8 apa, 9 róm, 11
pp, 12 stöng, 14 snæri, 16 át, 17 rið,
18 lið, 20 pr, 21 agða.
LÓÐRÉTT: 1 vers, 3 aa, 4 uppgrip, 5
lap, 7 fótstig, 10 mön, 13 nær, 15 iðra,
16 ála, 19 ðð.
Svör við spurningum á síðu 8
1. Alexander Lúkasjenko.
2. FL-Group.
3. Silkeborg.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Þrjár stúlkur, þær Tinna Lind,
Katrín og Fanney, báru sigur úr
býtum í kokkakeppni Rimaskóla
sem var haldin þriðja árið í röð í
gær. Elduðu þær léttsaltaðan
þorskhnakka með rótargrænmetis-
teningum, kryddjurtaolíu og hvít-
laukskartöflumús.
Keppnin fer fram á meðal nem-
enda í 9. og 10. bekk hjá þeim sem
hafa heimilisfræði sem valfag.
Mikill fjöldi nemenda velur
greinina á hverju ári og á þessari
önn eru tæplega 90 nemendur
skráðir í heimilisfræði. Í ár kepptu
nítján lið í undanúrslitunum. Tveir
til fjórir krakkar voru saman í liði
en í gær kepptu sjö stigahæstu
liðin í úrslitum um titilinn „kokka-
meistarar Rimaskóla“.
Hráefnið í réttinn mátti ekki
kosta meira en 900 krónur og höfðu
liðin eina klukkustund til að elda
og bera fram. Þess má geta að
verkefnið fékk hvatningarverð-
laun Menntaráðs á síðasta ári.
„Mér fannst þetta rosalega snið-
ugt til að hvetja þau til dáða,“ segir
Áslaug Traustadóttir heimilis-
fræðikennari um tilurð keppninn-
ar. „Það getur verið erfitt að
kveikja áhuga unglinga á ýmsum
hlutum en þetta kveikir í þeim
þannig að allir sem koma að þessu
eru alveg orðlausir. Þeir eru að
sýna mikið sjálfstæði í vinnubrögð-
um,“ segir Áslaug og er greinilega
afar stolt af nemendum sínum.
„Síðan fara þeir heim og elda mat
fyrir fjölskylduna. Þeir hafa verið
að lýsa því yfir litlir guttar að þeir
séu farnir heim að elda því þeir
hafi tekið við fiskibollugerðinni,“
segir hún og hlær.
Á meðal þess sem kokkarnir
ungu hristu fram úr erminni í gær
voru dýrindisréttir. Auk sigurrétt-
arins elduðu krakkarnir m.a. glóð-
aðan lax, gus gus og kjúklingasalat
og smálúðu með risotto. Höfðu
sumir nemendurnir æft sig að búa
til réttina allt að átta sinnum fyrir
úrslitin.
Að sögn Áslaugar sýnir þessi
upptalning hversu svakalega færir
krakkarnir séu orðnir í elda-
mennskunni. „Þegar þeir fara út í
samfélagið eru þeir algerlega jafn-
vígir fullorðnum einstaklingum í
að elda því þeir hafa svo mikið
sjálfstraust þegar þeir koma út,“
segir hún. Til að mynda var einn af
dómurunum í gær Egill M. Egils-
son sem vann keppnina fyrir
tveimur árum en starfar nú sem
kokkanemi í Perlunni.
Aðspurð segist Áslaug ekki hafa
áhyggjur af því að eldamennskan
sé að taka við af skákinni í Rima-
skóla, en hún hefur notið mikilla
vinsælda undanfarið. „Þessi keppni
verður áfram og skákin líka. Þetta
er bara svo kröftugur skóli. Þegar
við erum með fólk við stjórnvölinn
sem hefur áhuga á þessu er þetta
fljótt að smita út frá sér,“ segir hún
og vonast til að breiða keppnina út
um alla grunnskóla Reykjavíkur
með því að halda eina stóra kokka-
keppni á næsta ári.
freyr@frettabladid.is
KOKKAKEPPNI RIMASKÓLA: HALDIN ÞRIÐJA ÁRIÐ Í RÖÐ
Dýrindisréttir í fyrirrúmi
Ekki kvikmyndaver
„Ég hef ekki spáð mikið
í það. Einhvern tímann
heyrði ég hugmyndir
um að gera þetta að
kvikmyndaveri en það
er bara hlægilegt að
hafa kvikmyndaver ofan
í miðjum flugvelli. Það
er bara fíflagangur. Þeir
eiga frekar að breyta
þessu í eitthvað annað.“
Ari Alexander, kvik-
myndagerðarmaður.
Hugmyndir Hrafns
athyglisverðar
„Maður spilaði þarna
í gamla daga í flottum
klúbbum. Svo var
körfuboltahöll þarna og
tómstunda- og bowling-
salur. Heimamenn í
Reykjanesbæ verða
hreinlega að setjast
á þetta mál og reyna
að móta sjálfir hugmyndir hvað best er að gera við
fasteignir og landgæði og önnur verðmæti sem eru á
heiðinni. Mér finnst athyglisverðar hugmyndir Hrafns
Gunnlaugssonar um að setja þarna fríverslunarsvæði.“
Óttar Felix Hauksson, framkvæmdastjóri.
Væla út nýjan her
„Það er spurning hvort
við gætum ekki bara
fengið nýjan her. Björn
Bjarnason gæti vælt
út her einhvers staðar,
kannski kínverskan her.
Annars verður þá bara
að rífa þetta.“
Elísabet Jökulsdóttir,
rithöfundur.
ÞRÍR SPURÐIR MÁLEFNI VARNARLIÐSINS HAFA VERIÐ Í BRENNIDEPLI
Hvað á að gera við eignirnar sem herinn skilur eftir sig?
FRÉTTIR AF FÓLKI
Össur Skarphéðinsson er með öll sverð á lofti í sínum nýjasta pistli
en Gillzenegger, alþingismaðurinn
Guðjón Hjörleifsson og Geir H. Haarde
fá allir á baukinn hjá formanninum
fyrrverandi. Össur upplýsir að eflaust
dreymi flesta alþingismenn um að líta
út eins og Gillzenegger enda sé hann
ungur maður og fallegur. Nefnir Össur
meðal annars að kraftajötunninn vaxi á
sér bringuna, sé fallega sólstofubrúnn
og með flottar strípur. Hann grunar
Guðjón Hjörleifsson, alþingismanninn
knáa úr Vestmannaeyjum, um að vaxa á
sér bringuna enda sé hann sá eini sem
er með strípur. „...en er ekki viss um
hvort hann lítur á sig sem hnakka,“ skrif-
ar Össur. Mestu háðsglóðsurnar fær hins
vegar formaður Sjálfstæðisflokksins,
Geir H. Haarde, sem lét ansi skrautlega
samlíkingu falla á fundi „innvígðra
og innmúraðra í Valhöll,“ samkvæmt
heimildum Össurar. Þegar utanríkis-
ráðherrann var spurður út í brotthvarf
hersins svaraði Geir af sinni stakri snilld.
„Maður fær ekki alltaf það sem maður
vill. Og þá verður maður að vinna úr
því sem maður þá fær í staðinn. Maður
getur ekki alltaf farið með sætustu
stelpuna heim af ballinu en stundum
kannski eitthvað sem gerir sama gagn,“
skrifar Össur og beinir í framhaldinu
orðum sínum til vefsíðunnar tíkin.is.
„Hvað ætli vinkonur mínar
í Tíkunum segi um þetta
framlag formannsins síns
til umræðunnar um stöðu
konunnar í Sjálfstæðis-
flokknum sem stundum
geisar eins og eldgos á
síðum þeirra?“
Íslendingar eru síð-astir á svið í undankeppni Eurovision
söngvakeppninnar sem fram fer í Grikk-
landi um miðjan maí. Heimildarmaður
Fréttablaðsins sagði þetta vera ágætt en
best væri þó að vera um miðja röðina.
„Það er sannað að það að vera númer
tvö er verst. Fólk er oft ekki sest niður
við sjónvarpstækin í upphafi og í lokin
eru margir hverjir orðnir leiðir á lögun-
um,“ sagði hann í samtali við Frétta-
blaðið. „Allt veltur þetta þó náttúrlega
á gæðum lagsins.“ Þess má svo geta
að myndbandið við lag Silvíu Nætur,
Til hamingju Ísland, verður frumsýnt í
Kastljósþætti RÚV föstudaginn
24.mars en
margir bíða
spenntir
eftir að sjá
útkomuna
enda hefur
leikstjórinn
lofað því
að það
verði engu
líkt. - fgg
opið alla laugardaga 10-14
TÚNFISKUR
SKÖTUSELUR
ÞORSKHNAKKAR
HÖRPUSKEL
Á FULLRI FERÐ Sigurvegararnir í kokkakeppninni á fullri ferð í Rimaskóla í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM