Fréttablaðið - 30.03.2006, Síða 59
FIMMTUDAGUR 30. mars 2006 59
Iceland Express-deild kvk:
HAUKAR-ÍS 91-77
Stig Hauka: Megan Mahoney 28, Helena Sverr-
isdóttir 25, Pálina Gunnlaugsdóttir 10, Kristrún
Sigurjónsdóttir 10, Ösp Jóhannsdóttir 8, Hanna
Hálfdánardóttir 7, Sigrún Ámundadóttir 3.
Stig ÍS: Maria Conlon 23, Signý Hermannsdóttir
22, Helga Þorvaldsdóttir 9, Stella Kristjánsdóttir
6, Þórunn Bjarnadóttir 6, Hanna Kjartansdóttir 6,
Hafdís Helgadóttir 4, Helga Jónasdóttir 1.
Haukar unnu einvígið, 2-1.
Meistaradeildin:
LYON-AC MILAN 0-0
INTER-VILLARREAL 2-1
0-1 Diego Forlan (1.), 1-1 Adriano (7.), 2-1 Obaf-
emi Martins (54.).
Enska úrvalsdeildin:
MAN. UTD-WEST HAM 1-0
1-0 Ruud Van Nistelrooy (45.).
Enska 1. deildin:
QPR-STOKE 1-2
Hannes Sigurðsson skoraði sigurmarkið fyrir
Stoke á 79. mínútu en þetta var fyrsta mark hans
fyrir félagið.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Markús Máni Michaelsson hefur
sagt upp samningi sínum við þýska
úrvalsdeildarfélagið Dusseldorf
en samningurinn átti ekki að renna
út fyrr en sumarið 2007. Hann
mun þó klára tímabilið með lið-
inu.
Markús Máni hefur verið í her-
búðum félagsins í tvö ár er hann
yfirgaf herbúðir Vals og fór til
Þýskalands. - hbg
Markús Máni Michaelsson:
Hættur hjá
Dusseldorf
FÓTBOLTI Hollenski markahrókur-
inn Ruud Van Nistelrooy var í
byrjunarliði Man. Utd í fyrsta
skipti í langan tíma í gær þegar
United tók á móti West Ham í
ensku úrvalsdeildinni.
Sir Alex Ferguson, stjóra Man.
Utd, er vandi á höndum eftir leik-
inn því Nistelrooy skoraði í endur-
komu sinni eina mark leiksins og
Fergie þarf því að velja á milli
tveggja framherja sem skora í
hverjum leik því Louis Saha hefur
verið sjóðheitur síðustu vikur.
United tryggði stöðu sína enn
frekar í öðru sæti deildarinnar
með sigrinum og bíður nú eftir því
að Chelsea nisstígi sig. - hbg
Man. Utd lagði West Ham:
Nistelrooy sá
um Hamrana
KOMINN AFTUR Ruud Van Nistelrooy var
vel fagnað þegar hann skoraði sigurmark
United í gær eftir langa fjarveru á bekk
United. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Haukastúlkur komu
gríðarlega ákveðnar til leiks og
tóku strax góða forystu. Ekkert
gekk upp hjá ÍS og eftir fimm mín-
útna leik höfðu Haukar þegar náð
tíu stiga forystu sem varð að sex-
tán stigum eftir fyrsta leikhlutann
þar sem ÍS náði aðeins að skora
átta stig. Það kann ekki góðri
lukku að st
Stúdínur bættu leik sinn lítil-
lega í öðrum leikhluta þar sem
munaði mestu um baráttu og dugn-
að hjá Mariu Conlon sem skoraði
þrettán stig í fyrri hálfleik og
sýndi öðrum leikmönnum gott for-
dæmi með áræðni sinni. Hauka-
stúlkur bættu hins vegar enn í og
afgreiddu nánast leikinn. Þær
höfðu 53-30 yfir í hálfleik og ekk-
ert benti til þess að ÍS kæmist inn
í leikinn.
Stúdínur léku betur í þriðja
leikhluta þegar þær spiluðu stífa
vörn og skotin tóku að rata rétta
leið. Þær voru þó aldrei nálægt
því að gera atlögu að góðu forskoti
Hauka sem var tuttugu stig fyrir
síðasta leikhlutann, 66-46. Þrátt
fyrir að slaka á undir lokin var
sigur Hauka aldrei í hættu en þær
fóru að lokum með 91-77 sigur af
hólmi.
Málið var einfalt á Ásvöllum í
gær, Haukar voru einfaldlega
betri aðilinn og áttu sigurinn fylli-
lega verðskuldaðan. Megan
Mahoney og Helena Sverrisdóttir
voru sterkustu leikmenn Hauka
og stúdínur áttu fá svör við stór-
leik þeirra. Það var ekki um auð-
ugan garð að gresja í sóknarleik
stúdína en Maria Conlon tók af
skarið þegar á þurfti líkt og Signý
Hermannsdóttir.
„Við vorum ekki sáttar við síð-
ustu tvo leiki og ákváðum að taka
okkur á og sýna hvað í okkur bjó í
þessum leik. Við vorum staðráðn-
ar í að bæta leik okkar og það tókst
ágætlega. Við spiluðum skelfilega
í öðrum leiknum þar sem við töp-
uðum en aðalmálið var vissulega
að klára einvígið. Ég hef fulla trú
á því að við getum farið alla leið,“
sagði hin unga en gífurlega efni-
lega Helena Sverrisdóttir, leik-
maður Hauka, sem hafði átt erfitt
uppdráttar í fyrstu leikjunum en
blómstraði í gær. - hþh
Það verða Haukar mæta sem Keflavík í úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfu:
Haukar of stór biti fyrir ÍS
HELENA STERK Helena Sverrisdóttir hristi af sér slenið í gær og átti stórleik þegar mest á
reyndi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN