Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.04.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 23.04.2006, Qupperneq 4
4 23. apríl 2006 SUNNUDAGUR SKOÐANAKÖNNUN Vinstri grænir, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn bæta allir við sig fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Allir stjórnmálaflokkar hafa nú kynnt stefnuskrá sína fyrir kom- andi borgarstjórnarkosningar og má segja að kosningabaráttan hafi fyrst hafist nú eftir páska. Sjálfstæðisflokkurinn mælist enn stærsti flokkurinn og sögðust 47,2 prósent þeirra sem tóku afstöðu ætla að kjósa þann flokk. Í síðustu könnun blaðsins, sem gerð var 25. mars, var fylgi Sjálfstæðis- flokksins 53,8 prósent og hefur fylgið því dalað um 6,6 prósentu- stig. Fylgi flokksins dalar meira hjá körlum en konum, en 49 pró- sent karla segjast nú myndu kjósa flokkinn, en var 56,2 prósent. 45 prósent kvenna segjast nú myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Ef þetta yrðu úrslit kosninga myndi Sjálfstæðisflokkur ná meirihluta í borginni með átta borgarfulltrúum. Samkvæmt því myndi Sif Sigfúsdóttir verða kjör- in sem borgarfulltrúi, en ekki Bolli Thoroddssen, sem samkvæmt könnun blaðsins í mars hefði þá náð inn. Samfylking er annar stærsti flokkurinn í borginni samkvæmt þessari könnun, með fylgi 30,9 pró- senta þeirra sem tóku afstöðu. Fylgi flokksins dalar um 2,4 pró- sentustig frá síðustu könnun blaðs- ins, þegar það var 33,3 prósent. Það dugar Samfylkingu til að fá fimm fulltrúa kjörna í borgar- stjórn. Oddný Sturludóttir yrði því síðasti maður inn í borgarstjórn fyrir Samfylkinguna. Vinstri grænir bæta flestum prósentustigum við sig og fá nú stuðning 10,8 prósenta þeirra sem hafa gert upp við sig hvaða flokk þeir vilja kjósa. Í síðustu könnun blaðsins var flokkurinn með 6,2 prósenta stuðning. Fylgi flokksins hefur því aukist um 4,6 prósentu- stig milli kannana. Samkvæmt þessari könnun eru vinstri grænir öruggir inn með einn fulltrúa, Svandísi Svavars- dóttur, en jafnt er milli annars manns vinstri grænna og fyrsta manns Framsóknarflokksins. Fimmtándi borgarfulltrúinn yrði því annað hvort Árni Þór Sigurðs- son eða Björn Ingi Hrafnsson. Framsóknarflokkur tæplega tvöfaldar fylgi sitt frá síðustu könnun blaðsins og mælist fylgi hans nú 5,4 prósent. Í síðustu könnun sögðust þrjú prósent myndu kjósa flokkinn og hefur fylgi við flokkinn því aukist um 2,4 prósentustig milli kannana. Sam- kvæmt þessu er möguleiki að Framsókn nái inn sínum fyrsta manni, Birni Inga Hrafnssyni, en ómögulegt er að segja hvort sætið falli til Framsóknar eða vinstri grænna. Fleiri konur velja Fram- sóknarflokkinn nú en karlar. Fjög- ur prósent kvenna segjast nú myndu kjósa flokkinn, en í síðustu könnun voru það 0,6 prósent. 6,7 prósent karla segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn nú, en í síð- ustu könnun voru það 4,8 prósent. Frjálslyndi flokkurinn bætir við sig tæplega tveimur prósentum milli kannana og mælist nú með stuðning 5,1 prósents þeirra sem tóku afstöðu. Í síðustu könnun mældist flokkurinn með 3,5 pró- sent. Frjálslyndi flokkurinn er því aftur orðinn minnsti flokkurinn í Reykjavík, eftir að hafa hoppað upp fyrir Framsóknarflokkinn í síðustu könnun blaðsins. Ólafur F. Magnússon myndi því ekki ná kjöri sem borgarfulltrúi sam- kvæmt þessari skoðanakönnun. Hringt var í 600 Reykvíkinga þann 22. apríl og skiptust svarendur jafnt á milli kynja. Spurt var; Hvaða lista myndir þú kjósa ef boðað yrði til borgarstjórnarkosn- inga nú? 61,5 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar, sem er nánast sama svarhlutfall og í síðustu könnun þegar 61,8 prósent aðspurðra tóku afstöðu. svanborg@frettabladid.is2 x10 Sykurskerta Kókómjólkin inniheldur helmingi minni viðbættan sykur og fitu en hefðbundin Kókómjólk og orkuinni- haldið er fjórðungi lægra. Yfir 80% af mjólkursykrinum hafa verið klofin og hentar drykkurinn því flestum þeim sem hafa mjólkursykursóþol. Sykurskert Kókómjólk er helmingi léttari! Nýjung! Hraðakstur á Reykjanesbraut Tveir ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut á föstudagskvöldið. Annar ók á 144 kílómetra hraða og hinn á 132 kílómetra hraða. Annar var tekinn fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut aðfarar- nótt laugardags og var sá mældur á 124 kílómetra hraða. Tvær bílveltur Tveir bílar ultu í Vestur- Húnavatnssýslu í gær en mikið krap var á vegi, éljagangur og skafrenningur. Fyrri bíllinn valt um klukkan tíu nálægt bæn- um Gröf en hinn skammt utan við bæinn Enniskot í Húnaþingi vestra. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi urðu engin slys á fólki og bílarnir voru lítið skemmdir. Fjórir teknir fyrir hraðakstur Lögreglan á Akureyri tók einn ökumann fyrir ölvunarakstur rétt fyrir hádegi á laugardag. Einnig voru fjórir teknir fyrir of hraðan akstur, tveir innanbæjar og tveir utanbæjar. Einn ökumannanna keyrði á 90 kílómetra hraða innanbæjar þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukkustund. Innbrot á Höfn Tveir menn brutust inn í bát við höfnina á Höfn í Horna- firði að morgni laugardags og stálu sex björgunargöllum. Mennirnir brutu rúðu í stýrishúsi bátsins til að komast inn. Málið er ekki upplýst að fullu en talið er að mennirnir hafi verið ölvaðir. Þeir gáfu lögreglunni á Höfn þá skýringu að þeir hefðu ætlað fá sér sundsprett í höfninni í göllunum. LÖGREGLUFRÉTTIR ÍRAN, AP Erindreki Írans hjá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni, IAEA, sagði í gær að stjórnvöld í Íran og Rússlandi hefðu náð „grundvallarsamkomulagi“ um að efna til samvinnu um auðgun úrans innan landamæra Rússlands. Íranska ríkissjónvarpið hafði eftir Ali Asghar Soltanieh, full- trúa Írans hjá IAEA, að slíku sam- komulagi hefði verið náð. Aðeins væri eftir að útkljá tæknileg, lagaleg og fjárhagsleg útfærslu- atriði. Soltanieh lét þessi ummæli falla þar sem hann var staddur á orkumálaráðstefnu í Moskvu. - aa Íran og Rússland: Semja um auðgun úrans NEW YORK, AP Olíuverð á heims- markaði náði nýjum hæðum í vikulok, og endaði í rúmlega 75 Bandaríkjadölum fatið er við- skiptum lauk í New York á föstu- dag. Heimsmarkaðsverð er nú um 40 prósentum hærra en fyrir ári. Það hækkaði um 8,4 prósent í vik- unni, sem er mesta hækkun á einni viku frá því um miðjan júní í fyrra, þegar hækkunin var 9 prósent. Að sögn markaðsrýna eru jafn- vel líkur á að verð hækki enn frekar á næstunni vegna áhyggna manna af því að deila um kjarn- orkuáætlun Írana muni trufla olíu- útflutning frá Íran. - aa Heimsmarkaðsverð á olíu: Hækkaði enn í lok vikunnar Bandaríkjadalur 77,73 78,11 Sterlingspund 138,4 139,08 Evra 95,79 96,33 Dönsk króna 12,836 12,912 Norsk króna 12,228 12,3 Sænsk króna 10,294 10,354 Japansk jen 0,6629 0,6667 SDR 113,05 113,73 GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 21.4.2006 HEIMILD: Seðlabanki Íslands Gengisvísitala krónunnar 133,4757 HVAÐA LISTA MYNDIR ÞÚ KJÓSA EF GENGIÐ YRÐI TIL BORGARSTJÓRNARKOSNINGA NÚ? 8,8% 8,0% 6,2% 29,7% 30,8% 30,9% 53,5% 52,7% 53,8% 29. ágúst 2005 21. janúar 2006 25. mars 2006 22. apríl 2006 4,8% 5,4% 3,0% 5,4% 47,2% 2,2% 2,8% 3,5% 5,1% 33,3% 10,8% Fylgi stóru flokkanna dalar Fylgi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar dalar samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Aðrir flokkar bæta við sig. Fyrsti maður Framsóknar og annar maður vinstri grænna eru hnífjafnir inn í borgarstjórn. Þó að fylgi Sjálfstæðisflokks dali um tæp sjö prósentustig nær flokkurinn átta borgarfulltrúum. NEPAL, AP Tugþúsundum mótmæl- enda lenti ítrekað saman við óeirðalögreglu í Katmandú, höfuð- borg Nepals, í gær, er mótmæl- endur reyndu að komast upp að hliðum hallar Gyanendra konungs. Tugir manna særðust alvarlega í átökunum, að því er starfsmenn Rauða krossins greindu frá. Átökin áttu sér stað daginn eftir að konungurinn reyndi að leysa þann hnút sem stjórnmál landsins eru komin í með því að heita því að endurreisa fjölflokka- lýðræði í landinu og bjóða stjórn- arandstöðuflokkunum að tilnefna nýjan forsætisráðherra. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar og upp- reisnarmenn maóista höfnuðu hins vegar öllum tilboðum kon- ungsins og kröfðust afsagnar hans. „Niður með Gyanendra! Út með Gyanendra, út, út! hrópuðu mótmælendur í kór á götum Kat- mandú. Útgöngubann sem kon- ungurinn fyrirskipaði í höfuðborg- inni var virt að vettugi. - aa BARIÐ Á MÓTMÆLENDUM Óeirðalögregla lætur höggin dynja á mótmælendum í grennd við konungshöllina í Katmandú í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Tugþúsundir mótmælenda sóttu að höllu Nepalkonungs í Katmandú: Gyanendra hrópaður niður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.