Fréttablaðið - 23.04.2006, Blaðsíða 77

Fréttablaðið - 23.04.2006, Blaðsíða 77
[UMFJÖLLUN] TÓNLIST Mig minnir að það hafi verið fyrir um rúmu ári sem The Vines til- kynntu að þeir myndu þurfa að breyta starfsháttum sínum allveru- lega ef þeir ætluðu sér að geta hald- ið áfram. Söngvarinn Craig Nicholls greindist með Aspergers-heilkenni. Þetta gerir hann meðal annars ofur- næman fyrir öllum hljóðum og ljós- um auk þess sem hann á helmingi erfiðara en venjulegt fólk með að eiga eðlileg samskipti við aðra. Þetta þýðir að The Vines getur ekki farið í löng tónleikaferðalög eða tamið sér þann lífsstíl sem rokk- stjörnur eiga víst að gera. Í kjölfar- ið hætti annar gítarleikarinn og sveitin er núna tríó. Craig syngur um þetta ástand sitt í laginu Futuretarded, mjög Nirvana-skotið lag, sem verður sér- staklega eftirminnilegt vegna text- ans. Þeir virðast þó geta hljóðritað plötur ennþá, og þriðja plata þeirra Vision Valley er orðin að veruleika. Það virðist líka sem Craig hafi lokað sig inni með Bítlasafninu sínu eftir að hann greindist með ein- kennin. Því eftir frekar klisjulegt, og nokkuð pirrandi, opnunarlag færist platan nær bítlalegum mel- ódíum. Sveitin leyfir sér að vera hægari almennt en áður. Kannski vegna þess að það hefur hægst tölu- vert á tilveru þeirra upp á síðkast- ið. Kannski vegna þess að Craig hefur verið meira á bláu nótunum frá því að hann lærði að hann er ekki alveg eins og allir aðrir. Við hin höfum að minnsta kosti skýr- ingu á öllum þessum undarlegu köstum í myndböndunum, sem við héldum að væru bara rokkstjörnu- stælar. Það er svo sem ekkert sérstakt við The Vines, en af einhverjum ástæðum kann ég sæmilega við þessa sveit. Hún er ein af þeim sem maður hefur svo sem ekkert á móti. Maður skiptir ekki um stöð þegar lög hennar koma í útvarpi eða sjón- varpi, en maður sækist heldur aldrei eftir því að heyra tónlist þeirra. Að sama skapi get ég svo sem mælt með þessari nýju plötu þeirra fyrir þá rokkara sem hafa gaman af Bítlunum og Nirvana og vilja heyra ágætis blöndu af áhrif- um þeirra. En ég mun líklegast aldrei hlusta á þessa plötu aftur frá byrjun til enda. Birgir Örn Steinarsson Siglt inn á rólegri mið THE VINES: VISION VALLEY NIÐURSTAÐA: Þriðja breiðskífa The Vines, og þeirra fyrsta sem tríó, er hin sæmilegasta plata. Öllu meira um ballöður en áður og Bítlaáhrifin leyna sér ekki. Leikkonan Kim Basinger er furðu lostin yfir vaxandi vinsældum lýtaaðgerða en að sama skapi þykir henni eðlilegt að fólk geri það sem það geti til þess að líða vel. „Mér finnst að allir megi gera hvað sem þeir vilja ef það lætur þeim líða betur. Sama hvað það er sem fólk gerir. Það er mikilvægt að líða vel með sjálfan sig og hafa sjálfstraustið í lagi,“ sagði hún. „Hins vegar finnst mér rosalegt hvað lýtaaðgerðir eru vinsælar, það eru allir að fara í skurðaðgerð- ir. Ég held hins vegar að mörgum líði betur eftir slíkar aðgerðir og það réttlætir að sjálfsögðu allt.“ Hissa á lýta- aðgerðum Hollywood-stjarnan, Angelina Jolie, hefur samþykkt að leika ofurkonuna Löru Croft í þriðju Tomb Raider kvikmyndinni. Angelina þarf að vera snögg að koma sér í gott form eftir barns- burðinn fyrir kvikmynd- ina og er hún nú þegar farin að leggja drög að æfingaprógramminu. Angelina, sem er komin átta mánuði á leið, dvel- ur þessa dagana á búgarði í Namíbíu, en þar hefur hún hugsað sér að fæða sitt fyrsta barn, en eins og flestir vita er það enginn annar en stórleikarinn Brad Pitt sem er faðirinn. Angelina í nýrri mynd ANGELINA JOLIE KIM BASINGER 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.