Fréttablaðið - 23.04.2006, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 23.04.2006, Blaðsíða 78
34 23. apríl 2006 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? APRÍL 20 21 22 23 24 25 26 Sunnudagur ■ ■ SJÓNVARP  11.30 Formúla-1 á Rúv. Bein útsending frá keppninni á Imola í San Marínó.  14.50 Enska bikarkeppnin á Sýn. Bein útsending frá leik Middlesbrough og West Ham í undanúrslitum keppninnar.  16.55 Spænski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Real Madrid og Malaga.  18.20 Spænski boltinn á Sýn Extra. Bein útsending frá leik Sevilla og Barcelona.  19.00 Golf á Sýn. Bein útsending frá Shell Houson open í PGA móta- röðinni í golfi.  21.40 Helgarsportið á Rúv.  22.00 NBA körfuboltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Phoenix og LA Lakers í úrslitakeppninni. FÓTBOLTI „Við erum ekkert að skoða málið eins og staðan er í dag. Ég er alls ekkert viss um að við þurfum á fleiri leikmönnum að halda,“ sagði Brynjar Jóhann- esson, framkvæmdastjóri knatt- spyrnudeildar Fram við Frétta- blaðið í gær. Jónas Grani Garðarson, leik- maður FH, hefur verið í viðræð- um við Fram en Íslandsmeistar- arnir vilja ekki leyfa honum að fara til liðs í Landsbankadeild- inni. Þá vill liðið fá háa greiðslu fyrir Jónas sem er 33 ára gamall og verður samningslaus eftir sum- arið. Þá vill FH fá háa greiðslu frá liðum, séu þeir tilbúnir að sleppa Jónasi, en mjög ólíklegt er að lið úr neðri deildum séu tilbúin að greiða þá upphæð. „Það er ljóst að við erum ekki að fara að kaupa neinn leikmann dýrum dómum,“ sagði Brynjar en vitað er af áhuga FH á Andra Fannari Ottósyni, leikmanni Fram. „Andri Fannar er alls ekki á leiðinni frá Fram. Ég veit ekki hvaða bull þetta var í fjölmiðlum í vikunni en Andri hefur engan áhuga á því að fara til FH,“ sagði Brynjar að lokum. - hþh Leikmannamál Fram: Ekkert aðhafst í máli Jónasar FRAM Eru með gríðarlega sterkt lið í 1. deildinni og væri það hreinn skandall ef liðinu kemst ekki rakleiðis aftur í Lands- bankadeildina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Eiður Smári með mígreni Eiður Smári Guðjohnsen gat ekki spilað með Chelsea gegn Liverpool í gær vegna mígrenis. Eiður Smári verður þó mættur til æfinga með Chelsea á morgun en mígrenikastið hélt honum frá stórleiknum á Old Trafford. > Vill litlar breytingar Ekkert er byrjað að ræða leikmanna- mál fyrir næsta vetur hjá körfuboltaliði Skallagríms í Borgarnesi en liðið komst í úrslit Íslandsmótsins eins og allir vita. Valur Ingimundarson, þjálfari Skalla- gríms, sagði í samtali við Fréttablaðið að hann vonaðist til þess að leikmanna- hópur sinn yrði sem minnst breyttur á næsta tímabili. Skallagrímur tefldi fram þremur erlendum leikmönnum í vetur og ætla Borgnesingar að setjast niður bráðlega og ræða leik- mannamál sín. Ársþing KKÍ er á næsta leiti og gætu orðið reglubreyt- ingar varðandi erlenda leikmenn. HANDBOLTI Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Fram hampi langþráð- um Íslandsmeistaratitli í ár en félagið vann þann titil síðast 1972. Framarar gjörsamlega keyrðu yfir HK-inga í Digranesinu í gær og unnu á endanum stórsigur; 39- 29. Það voru reyndar heimamenn sem byrjuðu leikinn betur og voru með yfirhöndina fyrstu mínúturn- ar. Um miðjan seinni hálfleikinn þá hrundi leikur þeirra síðan eins og spilaborg og gestirnir tóku öll völd á vellinum. Fram komst í fyrsta sinn yfir í leiknum 8-7 og seinni helming síðari hálfleiks skoraði liðið ellefu mörk gegn þremur mörkum heimamanna og hafði átta marka forystu í hálf- leik. Egidijus Petkevicius átti stór- leik í marki Fram í fyrri hálfleik og varði þrettán skot auk þess að eiga hættulegar sendingar fram völlinn. Sigfús Sigfússon, hinn stórskemmtilegi leikmaður, var tekinn úr umferð en engin bönd héldu þeim Jóhanni Einarssyni og Sergiy Serenko sem skoruðu sam- tals nítján mörk í leiknum. Þegar vörn Fram nær sér á strik þá er hún illviðráðanleg og því fengu HK-ingar að kynnast í gær. Heimamenn höfðu gefist upp snemma í seinni hálfleik og Safa- mýrarpiltar gengu á lagið, náðu mest fimmtán marka forskoti og unnu síðan á endanum með tíu marka mun. „Það tók okkur smá tíma að ná varnarleiknum í gang en eftir að það tókst var ekki spurning hvern- ig leikurinn færi. En við megum ekki byrja að fagna of fljótt þar sem við erum ekki komnir í mark. Það er spurt að leikslokum og við eigum eftir að leika gegn Víkingi/ Fjölni sem er sýnd veiði en ekki gefin. Liðið vann FH og það er alveg ljóst að við þurfum að hafa fyrir hlutunum,“ sagði Guðmund- ur Guðmundsson, þjálfari Fram. Guðmundur gat tekið undir það að Íslandsmeistarabragur væri á leik Framliðsins. „Já eigum við ekki að segja að það hafi verið sá bragur á leik liðsins í þessum leik. Strák- arnir sýndu sínar bestu hliðar og ég er alveg hæstánægður. En ég ítreka það að þetta er ekki búið, það er ekkert leiðinlegra en að byrja að fagna of fljótt og klúðra síðan hlutunum.“ Með sigri á Víkingi/Fjölni í loka- umferðinni hafa Framarar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Í fyrri viðureign þessara liða á leiktíðinni vann Fram með fjögurra marka mun en Víkingur/Fjölnir er í næst- neðsta sæti deildarinnar. HK er í sjöunda sæti deildarinnar og er liðið alls ekki öruggt með að enda í efri hlutanum. Liðið heimsækir Fylki í lokaumferðinni og verður að sigra í Árbænum til að vera öruggt með að leika í efstu deild á næstu leiktíð. elvar@frettabladid.is Framarar hænuskrefi frá Íslandsmeistaratitlinum Fram átti ekki í vandræðum með að leggja HK að velli í Digranesinu í gær og vann öruggan tíu marka sigur. Íslandsmeistarabragur var á Safamýrarliðinu. MARK Í AUGSÝN Guðjón Drengsson skorar eitt af fjórum mörkum sínum leiknum gegn HK í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON TEKINN FÖSTUM TÖKUM Jóhann Gunnar Einarsson er hér tekinn föstum tökum af varnar- mönnum HK í leiknum í gær. Jóhann skoraði tólf mörk í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Körfubolti er... Langsamlega besta íþróttin Njarðvíkurliðið er... Íslandsmeistarar 2006! Friðrik Stefánsson er... Kolruglaður Besti samherjinn er... Ómögulegt að gera þar upp á milli Verst klæddi leikmaður Njarðvíkur er... Rúnar Ingi Erlingsson Besti leikmaður allra tíma á Íslandi er... Teitur Örlygsson Besti leikmaður allra tíma er... Larry Bird Baráttan undir körfunni er... Erfið Tvö stig eða tvö fráköst? Þrjú stig OG þrjú fráköst Metallica eða U2? Metallica Er glasið hálf tómt eða vel fullt? Klárlega vel fullt þessa dagana 60 SEKÚNDUR MEÐ FRIÐRIK STEFÁNSSYNI HANDBOLTI Línur eru teknar að skýrast í DHL-deild karla í hand- bolta en aðeins ein umferð er eftir af deildinni. Liðin fjórtán munu skipta sér í tvær deildir á næsta tímabili en fjögur lið berjast enn um sæti í efri deildinni en Fram, Haukar, Valur, Fylkir og Stjarnan hafa tryggt tilverurétt sinn þar. Haukar unnu öruggan sigur á Aftureldingu en þrátt fyrir að mun- urinn hafi ekki verið meiri í lokin var sigur þeirra aldrei í hættu. „Við gáfum helst til mikið eftir í seinni í hálfleiknum en við höldum bara okkar striki. Þetta er ekki búið fyrr en lokaflautan gellur um næstu helgi, því er ekki hægt að útiloka neitt þrátt fyrir að líkurnar séu heldur betur með Fram,“ sagði Páll Ólafsson, þjálfari Hauka, við Fréttablaðið eftir leikinn. „Vonbrigðin eru vissulega til staðar hjá okkur. Við höfum þurft að treysta á aðra að undanförnu en við höfum klárað okkar verkefni. Við ætluðum okkur titilinn, það er ekkert launungarmál og ef það tekst ekki þá eru það vonbrigði,“ sagði Páll. Haukar mæta FH í lokaumferð- inni. Með sigri þar og tapi Fram gegn Víkingi/Fjölni verða Haukar Íslandsmeistarar en skriðið sem er á Safamýrarpiltum segir meira en mörg orð um möguleika Hauka á titlinum. Síðasta umferðin verður leikin um næstu helgi en allir leikirnir fara fram á sama tíma, 16.15. Þá mætast Fram og Víkingur/Fjölnir, Haukar og FH, Fylkir og HK, Valur og ÍR, KA og Selfoss, Afturelding og Stjarnan auk ÍBV og Þórsara. Það verður barist á toppi og botni í æsispennandi lokaumferðinni. - hþh Haukar treysta á Víking/Fjölni í lokaumferðinni: Vonbrigðin til staðar PEYSUTOG Arnar Péturson leikmaður Hauka lét peysutog annað veifið ekki angra sig í leiknum í gær. Arnar var markahæsti leikmaður Hauka en hann skoraði sjö mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DHL-deild karla: HK-FRAM 29-39 Mörk HK: Gunnar Jónsson 8 (7), Ólafur Ragnars- son 5, Elías Már Halldórsson 4, Tomas Eztuvtez 4, Valdimar Þórsson 2, Baldur Halldórsson 2, Brynjar Valsteinsson 2, Jón Heiðar Gunnarsson 1, Vilhelm G. Bergsveinsson 1. Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 6. Mörk Fram: Jóhann Gunnar Einarsson 12 (4), Sergey Serenko 7, Þorri Gunnarsson 6, Stefán Stefánsson 5, Guðjón Drengsson 4, Sigfús Sigfús- son 2, Björgvin Björgvinsson 1, Gunnar Harðarson 1, Haraldur Þorvarðarson 1. Varin skot: Edgevitius Petkevicius 19, Magnús Erlendsson 3. HAUKAR-AFTURELDING 28-24 Mörk Hauka: Arnar Pétursson 7, Jón Karl Björns- son 6, Kári Kristján Kristjánsson 5, Samúel Ívar Árnason 3, Andri Stefan 2, Gísli Jón Þórisson 2, Sigurbergur Sveinsson 1, Árni þór Sigtrygsson 1, Ólafur Björnsson 1. Mörk Aftureldingar: Ernir Hrafn Arnarsson 6, Vlad Trufan 4, Haukur Sigurvinsson 3, Ásgeir Jónsson 3, Hilmar Stefánsson 2, Einar Hrafnsson 2. STJARNAN-KA 21-26 Mörk Stjörnunnar: Þórólfur Nielsen 4, Björn Frið- riks 3, Gunnar Jóhannsson 3, Gílsi Björnsson 3, Kristján Kristjánsson 2, Björn Guðmundsson 2, Arnar Theodórsson 2, Bjarni Gunnarsson 2. Mörk KA: Goran Gusic 8, Ragnar Njálsson 5, Magnús Stefánsson 4, Hörður Sigórsson 3, Jónat- an Magnússon 2, Nikola Jankovic 2. ÍR-FYLKIR 34-34 Mörk ÍR: Hafsteinn Ingason 15, Tryggvi Haraldsson 7, Björgvin Hólmgeirsson 4, Ísleifur Sigurðsson 3, Ragnar Helgason 3, Andri Númason 2. Mörk Fylkis: Heimir Örn Árnason 9, Arnar Jón Agn- arsson 9, Arnar Sæþórsson 7, Ingólfur Axelsson 5, Hreinn Þór Hauksson 2, Ásbjörn Stefánsson 2. SELFOSS-ÍBV 28-35 Mörk Selfoss: Atli Kristinsson 8, Einar Örn Guð- mundsson 8, Ramunas Mikalonis 5, Davíð Ágústs- son 4, Hörður Bjarnason 3. Mörk ÍBV: Erlingur Richardsson 7, Ólafur Víðir Ólafsson 7, Sigurður Bragason 6, Ríkarð Bjarki Guðmundsson 5, Jens Elíasson 4. ÞÓR-VALUR 30-32 STAÐAN Í DEILDINNI: 1. FRAM 25 19 3 3 754:658 41 2. HAUKAR 25 20 1 4 765:676 41 3. VALUR 25 17 2 6 750:687 36 4. FYLKIR 25 15 3 7 710:634 33 5. STJARNAN 25 13 4 8 716:691 30 6. KA 25 11 3 11 694:696 25 7. HK 25 11 2 12 718:713 24 8. FH 25 10 3 12 695:700 23 9. ÍR 25 9 5 11 784:784 23 10. UMFA 25 8 4 13 639:661 20 11. ÍBV 25 9 2 14 720:767 20 12. ÞÓR A. 25 4 5 16 699:768 13 13. VÍK/FJÖL 25 6 1 18 678:767 13 14. SELFOSS 25 3 2 20 668:788 8 ÚRSLIT GÆRDAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.