Fréttablaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 10
10 20. maí 2006 LAUGARDAGUR
TELPA HVÍLIST Þessi litla telpa beið þæg og
róleg eftir að faðir hennar kláraði hádegis-
verð sinn í tehúsi í Kabúl í Afganistan fyrr í
vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KOSNINGAR Fimm flokkar bjóða
fram í sveitarfélaginu Skagafirði:
Framsóknarflokkur, Frjálslyndi
flokkurinn, Samfylking, Sjálf-
stæðisflokkur og Vinstrihreyfing-
in - grænt framboð. Sömu listar
buðu fram í kosningunum fyrir
fjórum árum nema hvað S-listinn
bauð þá fram í nafni Skagafjarðar-
listans en ekki Samfylkingarinnar.
Íbúum sveitarfélagsins hefur
fækkað nokkuð frá því Sveitar-
félagið Skagafjörður varð til við
sameiningu ellefu sveitarfélaga
árið 1998 en þeim hefur þó ekki
fækkað jafnmikið og víða um land.
Íbúafjöldinn var 4.194 við samein-
inguna en 1. desember í fyrra var
íbúafjöldinn 4.110. Þar af búa lang-
flestir á Sauðárkróki.
Afkoma sveitarfélagsins, A og B
hluti, var neikvæð í fyrra og var
tæplega 130 milljóna króna halli á
rekstrinum. Skuldir sveitarfélags-
ins eru umtalsverðar og hefur
skuldastaðan sett mark sitt á fram-
Gróska í pólitíkinni í Skagafirði:
Íbúarnir ánægðir
Sveitarfélagið Skagafjörður varð til árið
1998 með sameiningu ellefu sveitarfélaga
í Skagafjarðarsýslu. Íbúafjöldinn 1. desem-
ber í fyrra var 4.110 en þar af búa flestir
á Sauðárkróki. Bæjarstjórn er skipuð níu
fulltrúum.
ÚRSLIT KOSNINGANNA 2002
Fjöldi íbúa á kjörskrá: 2.982
Fjöldi greiddra atkvæða: 2.529 (84,8%)
Fjöldi auðra og ógildra seðla: 69
Listi Framsóknarflokksins (B)
729 atkvæði - 3 fulltrúa.
Listi Sjálfstæðisflokksins (D)
865 atkvæði - 3 fulltrúa.
Listi Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs (U)
503 atkvæði - 2 fulltrúa.
Skagafjarðarlistinn (S)
225 atkvæði - 1 fulltrúa.
Listi Frjálslyndra og óháðra (F)
138 atkvæði – Engan fulltrúa
Meirihlutasamstarf er með Sjálfstæðisflokki
og Vinstrihreyfingunni grænu framboði.
Bæjarfulltrúar B-listans:
Gunnar Bragi Sveinsson
Þórdís Friðbjörnsdóttir
Einar E. Einarsson
Bæjarfulltrúar D-listans:
Gísli Gunnarsson
Bjarni Maronsson
Katrín María Andrésdóttir
Bæjarfulltrúar U-listans:
Ársæll Guðmundsson
Bjarni Jónsson
Bæjarfulltrúi S-listans:
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir
KOSNINGAR 2006
Fjöldi íbúa á kjörskrá: 2.952
Efstu menn B-listans:
1. Gunnar Bragi Sveinsson sveitarstj.fulltrúi
2. Þórdís Friðbjörnsdóttir sveitarstj.fulltrúi
3. Einar E. Einarsson sveitarstjórnarfulltrúi
4. Sigurður Árnason skrifstofumaður
5. Íris Baldvinsdóttir þroskaþjálfi
Efstu menn D-listans:
1. Bjarni Egilsson bóndi
2. Páll Dagbjartsson skólastjóri
3. Katrín M. Andrésdóttir sveitarstj.fulltrúi
4. Sigríður Björnsdóttir dýralæknir
5. Gísli Sigurðsson framkvæmdastjóri
Efstu menn F-listans:
1. Pálmi Sighvats forstöðumaður
2. Sigurjón Þórðarson alþingismaður
3. Marian Sorinel Lazar tónlistarkennari
4. Anna Guðbrandsdóttir
heilbrigðisstarfsmaður
5. Hanna Þrúður Þórðardóttir
framkvæmdastjóri
Efstu menn S-listans:
1. Gréta S. Guðmundsd. sveitarstj.fulltrúi
2. Vanda Sigurgeirsdóttir lektor
3. Guðrún Helgadóttir háskólakennari
4. Viggó Jón Einarsson útgerðarmaður
5. Sólveig Olga Sigurðardóttir
skipulagsráðgjafi
Efstu menn V-listans:
1. Bjarni Jónsson fiskifræðingur
2. Gísli Árnason framhaldsskólakennari
3. Sigurlaug Kr. Konráðsdóttir kennari
4. Svanhildur Harpa Kristinsdóttir
stuðningsfulltrúi
5. Valgerður Inga Kjartansdóttir bóndi
Skagafjörður
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR
2006
SKAGAFJÖRÐUR
Gréta S. Guðmundsdóttir S-lista:
Brýnast að
efla atvinnulífið
Gréta Sjöfn
Guðmundsdóttir
verkefnisstjóri leiðir
lista Samfylking-
arinnar en hún
skipaði annað sæti
Skagafjarðarlistans
í síðustu kosning-
um og kom inn í
sveitarstjórn fyrir
tveimur árum. Hún
segir Samfylking-
una leggja fram lista skipaðan kraftmikl-
um einstaklingum sem leggja áherslu á
að koma á samvinnu og samstarfi innan
sveitarstjórnar. „Efling atvinnulífsins er
tvímælalaust það sem brýnast er að fara
í. Samvinna og samstarf sveitarstjórnar
við atvinnulífið, stofnanir og stjórnvöld
er forsenda þess að vel takist til við að
byggja upp öflugra atvinnulíf og þar
með auka tekjur sveitarsjóðs.“ Velferð
fjölskyldnanna eru einnig ofarlega á
blaði hjá Samfylkingunni. „Taka þarf á
húsnæðismálum grunn- og leikskóla og
gera þarf gangskör í umhverfismálum en
þau hafa ekki verið í forgangi undanfarin
ár,“ segir Gréta.
Gunnar Bragi
Sveinsson
sveitarstjórnar-
fulltrúi er efstur
á lista Fram-
sóknarflokksins.
Hann segir
breytinga þörf í
sveitarfélaginu;
stjórna verði
af ábyrgð og
hlusta á íbúa
og starfsfólk sveitarfélagins. „Taka
þarf verulega á í atvinnumálum,
fjölga störfum, gera þau fjölbreyttari
og koma á samkeppni um vinnuafl.
Öflugt atvinnulíf er lykillinn að því að
geta farið í framkvæmdir sem ekki
mega bíða lengur.”
Gunnar segir framsóknarmenn
ætla að lækka leikskólagjöld og koma
öllu grunnskólastarfi á einn stað. „Við
viljum byggja við Árskóla og stækka
leikskólann Furukot. Allt kostar þetta
mikla peninga en ef við ætlum að
snúa frá fólksfækkun þá verðum við
að standast samkeppnina um fólkið,”
segir Gunnar.
Gunnar B. Sveinsson B-lista:
Áhersla á atvinnu-
og skólamál
Pálmi Sighvats
forstöðumaður
skipar efsta sæti
á lista Frjálslynda
flokksins. Hann
segir baráttumál
F-listans fyrst og
síðast snúast um
atvinnumál og
ábyrgð og fram-
sýni í fjármálum.
„Við leggjum
áherslu á að nýta stór og smá tækifæri
í ferðaþjónustu. Hagnýta hestinn í
þágu byggðarlagsins og þau landgæði
og náttúruauðlindir sem Skagafjörður
hefur upp á að bjóða. Handfæraveiðar
viljum við gefa frjálsar í Skagafirði en
það myndi gera lífið skemmtilegra og
bæta hag héraðsins.”
Pálmi segir F-listann slá fyrir-
vara vegna kosningaloforða hinna
listanna. „Þrátt fyrir bágan fjárhag hafa
framboðin boðað óheft eyðslufyllerí
og yfirtrompa hvert annað með ævin-
týralegum hugmyndum um stórauknar
framkvæmdir. F-listinn ætlar að afla
meira en eytt er,” segir Pálmi.
Pálmi Sighvats F-lista:
Við ætlum að afla
meira en eytt er
Bjarni Egilsson
bóndi leiðir
lista Sjálfstæð-
isflokksins
en hann var í
fimmta sæti
D-listans í
kosningunum
fyrir fjórum
árum. Hann
segir ábyrga
fjármálastjórn höfuðmarkmið
sjálfstæðismanna. „Á þessu kjörtíma-
bili hafa menn lagt sig fram um að
ná betri tökum á fjármálastjórninni.
Skuldir hafa lækkað og handbært
fé aukist. Við leggjum áherslu á
atvinnumálin með það að markmiði
að auka fjölbreytni, hækka launastigið
og fjölga íbúum.“ Málefni leik- og
grunnskóla eru einnig á meðal for-
gangsverkefna hjá sjálfstæðismönn-
um. „Það felur í sér mikið hagræði að
ljúka uppbyggingu Árskóla og byggja
við leikskólann Furukot. Viðhald á
Hofsósi, og viðbrögð vegna fjölgun-
ar íbúa á Hólum, eru líka í forgangi
hjá okkur. Við leggjum áherslu á
forvarnir og ætlum að finna lausnir á
tómstundamálum unglinga og eldri
borgara,“ segir Bjarni.
Bjarni Egilsson D-lista:
Ábyrg fjármál
og íbúafjölgun
Bjarni Jónsson
fiskifræðingur
leiðir lista VG
en hann skipaði
annað sæti
listans síðast.
Hann segir
stjórn og rekstur
sveitarfélagsins
hafa batnað
til muna á
kjörtímabilinu. „Framkvæmt hefur verið
fyrir um 700 milljónir króna og þjón-
usta við íbúana aukin og bætt.”
Bjarni segir baráttu fyrir virkjun
og álveri hafa tekið of mikið rými í
starfi Samfylkingar, Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokks. „Það hefur dregið úr
slagkrafti okkar varðandi uppbyggingu
fjölbreytts atvinnulífs og fjölskyldu-
væns samfélags í Skagafirði.”
Vinstri græn leggja áherslu á að
styrkja byggð um allt héraðið. „Við
viljum halda áfram að byggja Skaga-
fjörð upp sem öfluga miðstöð mennta,
rannsókna og nýsköpunar. Kynna
þarf héraðið með markvissum hætti
og laða að fleiri fyrirtæki og íbúa. Við
höfum hreinar línur og það er hægt
að treysta því sem við segjum,” segir
Bjarni.
Bjarni Jónsson V-lista:
Of mikil áhersla
á álver og virkjunWASHINGTON, AP Allt bendir enn til
þess að Michael Hayden taki við
yfirmennsku bandarísku leyni-
þjónustunnar
CIA þegar Port-
er Goss lætur af
embætti 26. maí
næstkomandi.
Hayden sat
fyrir svörum í
gær hjá öld-
ungadeild
Bandaríkja-
þings, sem þarf
að staðfesta til-
nefningu hans í embættið. Þing-
mennirnir spurðu hann ítrekað út
í umdeildar hleranir sem hann
hafði haft umsjón með þegar hann
var yfirmaður bandaríska Þjóðar-
öryggisráðsins.
Hayden reyndi þó að beina
athyglinni meira að framtíðar-
verkefnum CIA og sagði óþarfi að
velta sér sífellt upp úr fortíðar-
mistökum. - gb
Verðandi forstjóri CIA:
Segir hleranir
vera löglegar
MICHAEL HAYDEN
Vesturlandsvegur
V
ag
nh
ö
f›
i
Vesturlandsvegur
Húsgagna-
höllin
Tangarhöf›i
Bíldshöf›i
H
ö
f›
ab
ak
ki
kvæmdir á vegum sveitarfélagsins
á undanförnum árum. Engu að
síður eru íbúarnir ánægðir með
sitt heimahérað og í nýlegri könnun
IMG Gallup, sem unnin var fyrir
sveitarfélagið, kom í ljós að níu af
hverjum tíu Skagfirðingum voru
ánægðir með að búa í Skagafirði.
Fasteignaverð hefur farið nokk-
uð hækkandi að undanförnu, sér-
staklega á Sauðárkróki, og sveitar-
félagið seldi félagslegar eignir
fyrir um 250 milljónir króna á yfir-
standandi kjörtímabili. - kk
Landamæragirðing gagnrýnd
Utanríkisráðherrar landa Mið-Ameríku
gagnrýndu á fundi þeirra á fimmtudag
harðlega ákvörðun Bandaríkjaþings um
að reisa 600 kílómetra langa girðingu
á landamærum Mexíkó og Bandaríkj-
anna til að stemma stigu við straumi
ólöglegra innflytjenda til Bandaríkj-
anna. Ráðherrar Mexíkó, Gvatemala,
Hondúras, Níkaragva og Kostaríka sögðu
girðingu ekki leysa vandann.
MIÐ-AMERÍKA
NFS Í BEINNI
Á VISIR.IS
35.000 gestir vikulega
sem dvelja í u.þ.b. eina klst. hver.
Auglýsingasími 550 5000.