Fréttablaðið - 20.05.2006, Síða 69

Fréttablaðið - 20.05.2006, Síða 69
sem úthlutað var í upphafi. Það er tekið af okkur til að færa öðrum,“ segir hann og á til dæmis við byggðakvóta og tilfærslur til smá- báta. Hans skoðun er að með þessu sé eignarréttarákvæði stjórnar- skrárinnar gert marklaust. „Áður fiskuðum við fyrir um 120-130 milljónir en á síðustu vertíð veidd- um við fyrir 50 milljónir. Þetta er auðvitað gríðarleg kjaraskerðing fyrir útgerðina og sjómennina.“ Sverrir sér breyttu ástandi stað í ásókn sjómanna í að fá pláss á Súl- unni. „Þessu fylgdu miklar tekjur en það hefur gjörbreyst. Við höfum reyndar verið heppnir og ég er stundum alveg hissa á því. Við höfum verið með sömu mennina allt upp í 25-30 ár og margir hafa verið hjá okkur í 10-15 ár.“ Oftsinnis hefur Sverrir verið spurður hvers vegna hann kaupi ekki meiri aflaheimildir svo að Súlan þurfi ekki að vera bundin við bryggju í sex mánuði á ári. „Það væri sú mesta firra sem ég myndi gera. Kvótinn er svo dýr að fram- legðin yrði mínus. Þessir stóru geta keypt sér kvóta því það skiptir þá ekki öllu hvað þeir fá fyrir tonnið þegar það er vigtað heldur hvað það gefur í framlegð á endanum.“ Sest ekki í helgan stein Þegar Súlan fær nýja heimahöfn situr Sverrir eftir í Innbænum á Akureyri. Hann segir að erfitt verði að kveðja skipið en gerir það þó sáttur. Þeir Bjarni hafa líka verið lánsamir í sínum rekstri. „Þetta hefur gengið mjög vel, ég kvarta ekki,“ svarar hann þegar hann er spurður hvort hann sé ekki milljón- er. „Mesta lánið er þó að maður hefur alltaf verið við góða heilsu.“ Sverrir vill ekki gefa upp hve mikið Síldarvinnslan greiðir fyrir Súluna, það er viðskiptaleyndarmál, eins og það er kallað. „En það skiptir mig miklu máli að selja traustum aðila og það má taka það með í reikning- inn.“ Þó að Súlan fari er ekki þar með sagt að við taki iðjuleysi hjá Sverri. „Ég ætla nú að gera eitthvað enda þekki ég ekki annað en að vinna,“ segir hann. Ómögulegt er hins vegar að toga nokkuð upp úr honum um þau mál en þó er á hreinu að Sverrir Leósson verður ekki undirmaður eins né neins. „Ég hef verið minn eigin herra mestan hluta starfs- ævinnar og þekki mig nógu vel til að vita að ég get ekki orðið undir- maður. Ætli ég myndi ekki segja þeim manni að halda kjafti sem reyndi að segja mér fyrir verkum,“ segir hann og hlær. Sverrir á sér fá áhugamál önnur en útgerðina en lætur þó þjóðmálin til sín taka og skrifar annað slagið um hugðarefni sín í Moggann. Hann hefur enga sérstaka ánægju af að spila golf og vill helst ekki ferðast. Hann hefur þó gaman af að horfa á James Bond myndir og geymir safnið á skrifstofunni. Sverrir sjálfur ætlar ekki að verða eini minnisvarðinn um Súl- una þegar hún hverfur úr bænum. Hann veit sem er að sjónarsviptir verður af henni úr miðbænum og einhverju sinni sagðist hann ætla að reisa um hana minnisvarða við bryggjuna. „Ég verð að standa við það, enda reyni ég að standa við orð mín.“ Í GARÐINUM HEIMA Skrifstofur Súlunnar eru á jarðhæð íbúðarhúss Sverris í Inn- bænum á Akureyri. Þaðan er útsýni yfir Pollinn sem var svartur af síld á árum áður. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS LAGERSALA OPIÐ 11-19 Í FELLSMÚLA 28 (GAMLA WORLD CLASS HÚSINU) AÐEINS 2 DA GAR EFTIR ! 60%AFSLÁTT UR AF ÖLLU ! LAUGARDAGUR 20. maí 2006
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.