Mánudagsblaðið - 23.06.1969, Síða 1
BlaÓ fyrir alla
21. árgangur
Mánudagur 23. júní 1969
3. tölublað
UPPREISN FLUGMANNA
Fyrir 30—40 árum voru rútubílstjórar einskonar „Glamor-
boys“ í augum heimasætanna i sveitum. Þessir prúðu piltar
með kaskeitin sín og gylltu borðana, sem stjórnuðu vélknún-
um vagni, voru draumahetjur, hugdjarfir og hetjulegir. Svo
langt gekk, að ein yfirhrifin heimasæti gat barn við bílstjóra,
gat ekki feðrað það, mundi að hann bar kaskeiti, og siðan
varð stöðin að greiða með króanum næstu sextán árin. í dag
eru flugmenn, að eigin mati, álika stjörnur í þjóðfélaginu. í
bráðræði sínu, nú í vikunni, hunzuðu þeir forseta íslands,
ríkisstjórn og dómsvaldið vegna þess, að mál þeirra og krafa
um aukið kaup var sett í gerðardóm. Þessar hetjur loftstrætis-
vagnanna fengu skyndilega magapínu, tannpínu, vélindisgang
og aðra innankvilla og afsögðu að mæta í vinnu.
lláðherra kallaði forsprakkana til
viðtals og kvaðst láta mál þeirra
til sakadóms ef þeir skipuðust
ekki við umtölur. Þegar þetta er
ritað hafa flugmenn enn ekki sam-
þykkt, að landslög nái yfir þá eins
og aðra menn. Flugvirkjar stóðu
með flugmönnum og fundu ýmsa
kvilla að vélunum, næstum fleiri
en í meltingargöngum flugkapp-
ana.
Afllaust ríki
Nú, sem fyrr, hefúr það sannast,
að íslenzka ríkið heftir ekki það
mannafl að baki sér, til að geta
Er Álbert aö hætta?
Líkur eru til þess, að Albert Guðmundsson, knattspyrnu-'
kappi og sá af leiðtogum innan knattspyrnuhreyfingarinnar,
sem komið hefur henni til nokkurs vegs, hætti störfum sínum
fyrir Knatspyrnusamband íslands, en hann hefur á rösku ári
hrífið þessa íþróttagrein úr þeim öldudal, sem næstum hafði
kæft hana. Deilur Alberts og Geirs borgarstjóra höfðu ekki
verið ræddar né ,,settlaðar“ þegar blaðið fór í prentun s.l.
föstudag. Albert telur bæði leigugjald knattspyrnuvallanna, og
gjöld og reglur einstakra aðila innan knattspyrnusambandsins
þannig, að ekki sé við undandi til að hreyfingin nái eðlilegum
þroska. Borgaryfirvöldin hafa næstum daufheyrzt við öllum
óskum hans, og blaðið frétti s.l. föstudag, að enn hefðu engar
endurbætur fengizt.
Stórum batnað
Það má heita undarlegt ef ó-
gæfa knattspyrnumanna sé svo mik
il, að þeir missi nú þann starfs-
kraft, sem henni hefur svo sárlega
skort. Fyrir atbeina Alberts hefur
áhugi knattspyrnumanna, hæfni
þeirra, æfingar og skipulag stór-
lega batnað, og jafnvel svo, að
okkar menn hafa sýnt viðnáms-
þrótt og kunnáttu í keppni við at-
vinnulið útlent. Áhugi almennings
hefur og vaxið, og leikir eru betur
sóttir en áður, vegna þess að
mönnum hefur nú þótt það þess
virði að sjá leikina.
Gæfuleysi
Á mánudag og miðvikudag leika
okkar menn við Bermuda-liðið og
er talsverður áhugi á þeim leik.
íþróttamenn tjá oss, að hafi ekki
fengizt einhver lausn á deilumál-
um Alberts og borgaryfirvaldanna,
þá muni hann segja af sér störfum.
Gæfuleysi knattspyrnumanna ríður
ekki við einteyming ef Albert neyð
ist til að segja af sér. Jafnvel stutt
fjarvera hans á íþróttaþingi kom
slíku losi og rugli á knattspyrnuna
innan lands, að fádæmum þótd
sæta.
Framhald á 5. síðu.
í blaðinu í dag:
KAKALAGREIN — Frjáls verzlun — Samfarir miðaldra; —
Sigurður á Loftleiðum — Ferðamálaráð.
RITSTJÓRARABB: — Hestamenn fyrr og nú — Ýmsar at-
hugasemdir — Filipíió-Íslendingar — Flugfreyjur að
morgni dags — Ung hjón.
MYSTICUS: — Með klóm og kjafti —
ÚR EINU í ANNAÐ
FLUGMENN GERA UPPREISN —
STAÐREYNDIR um stolin skjöl — o. m. 9
haldið uppi lögum og rétti. Þótt
flugmenn séu ekki þjóðhætulegir
í nokkrum skilningi, þá getur sú
stund runnið upp, að aðrar stéttir
geri uppþot og ekki verði við neitt
ráðið. Þetta er hætuástand, sem
hið opinbera verður að gera sér
grein fyrir. Það er ekki nóg, að
setja lög þegar ekki er að baki
þeirra það vald, sem jjerir kleift að
framfylgja þeim.
Há laun
Flugmenn eru sennilega ein bezt
launaða stétt þjóðarinnar, en mán-
aðarkaup þeirra er upp í kr. 70
þúsund, en niður í 35 þúsund.
starfið er ekki erfitt og menntun
þeirra hvergi nærri eins mikil og
víða hjá öðrum stéttum. Félagið í
heild hefur krafizt allt að 100%
launahækkunar og miðað þar við
flugmenn ríkustu flugfélaga eða
þeirra, sem hættuflug stunda.
Milljóna tjón
Flugfélögin Íiafa komið, að ein-
hverju Ieyti til móts við kröfurnar,
þótt þau telji sér ófært að sinna
þeim óskaplegu kröfum sem flug-
menn setja fram. Árangurinn er sá.
að flug lagðist niður, ferðamanna-
hópar voru reknir af landi burt,
ferðamenn sem hingað áttu að
koma sátu um kyrrt. Af þessu bráð-
ræði hefur orðið milljónatjón fyrir
þjóðina.
Ofsi
Vel kann svo að vera, að flug-
menn þurfi einhverja leiðrétdngu
mála sinna en aðfarir þeirra eru
neðar öllu velsæmi. Stjórn félags-
ins virðist hafa brotið lög landsins
og að engu er metið allt það, sem
þjóðin sjálf hefur gert til að búa
flugmönnum í hag. Útilokað er, að
íslenzku flugfélögin greiði þeim
sama kaup og tíðkast hjá ríkustu
félögum, en vissulega hefði gerðar-
dómur komizt að einhverju sam-
komulagi ef ekki ofsi og ósvífni
hefði ráðið aðgerðum félagsins.
Atvinnugrundvöllur
Forustumenn flugmanna kunna
að hafa þá afstöðu, að hagur félaga
Framhald á 3. síðu.
Er það satt, að mikil
vandræði séu í sjón-
varpinu vegna stjórnar
Jóns Þórarinssonar —
og horfi til nokkurra
vandræða þar?
yyTT1]
Blaó fynr alla
vill minna útsölumenn blaðs-
ins á það, að það kostar kr.
20,00 í útsölu og jafnframt er
bannað að lána það til aflestr-
ar á útsölustöðum.
17. júní unglingahneykslið
~ HvaS gerir hiS opinbera? -
Það var Ijótt um að litast á lýðveldishátíðinni. Eftir Þing-
vallageimið virðist æskan ekki hafa haft annað fyrir höndum
en að endurtaka fyliríið og skepnuskapinn. Er nú svo langt
gengið, að jafnvel útlendingar, sem hér voru staddir þennan
hát'ðisdag neita með öllu að koma hingað aftur. Æskan,
skólafólkið, setti aðallega svip sinn á kvöldið, dauðadrukkin
ungmenni, ekki síður stúlkur, fylltu hvern krók og kima, og
voru eins og dýr fyrir fótum manna á aðalgötum höfuðborgar-
innar.
Agalaus og auðug
Æskan hefur löngum afsakað sig
með því,að hún fengi ekki skilning
hjá eldri kynslóðinni. Brennivíns-
drykkja sín væri útrás vegna at-
hafnaleysis og kenna mætti öllum
um nema henni sjálfri fyrir það
ástand sem nú er ríkjandi í þesurn
málum. Sannleikurinn er sá, að
æskan á ein alla sök á þessu, aga-
laus og með fullar hendur f jár. Það
er tilgangslaust að almenningur af-
saki þessa hegðun öllu lengur. Ó-
þarfi er elnnig að ætlast til, að
hver krakki, sem drekkur sig fullan
Leikfélagi Mónudagsblaðsins
SUMARFÖT
á almannafæri geti skellt skuldinnt
á athafnaleysi éða aðrar utanaðkom
andi ástæður.
Þjóðarskömm
Víða á 25 ára afmæli lýðveldis-
ins sáust unglingar daúðadrukknir
æpandi og organdi og blöðin hafa
bent á sum svívirðileg athæfi, sem
þessir krakkar frömdu undir áhrif-
um áfengis. Jafnvel blómsveigur
Jóns Sigurðssonar var tættur í
sundur, gamalmenni voru hrökt og
í alla staði sýndu þessi „börn" svo
ferlega framkomu að þjóðarskömm
er að.
14 ára — dauðadrukkin
Ríkisvaldið hefur nú ærið verk-
efni. Það verður að taka enn harð-
ar en nokkru sinni fyrr á þessum
þokkapiltum og stúlkum. Kven-
fólkið er ekki betra en karlmenn-
irnir og í einu sundinu lá ein stúlka
um 14 ára dauöadrukkin í götunni.
en yfir henni stóðu æskumennirnir
glottandi yfir að hafa komið henni
í þetta ástand. Þeir voru, að vísu
fullorðnir, allt að 15 ára aldri.
Sjónvarpið — Þjóðlygi
Hér hefði sjónvarpið getað gert
mikið gagn. Úr því varð þó ekki.
Sjónvarpið hefði getað myndað ó-
sómann og birt hann á skerrni sín-
um umbúðalaust. Eins og fyrr, þá
varð ekki af því, heldur voru birtar
myndir af „betri" atburðum, ræðu-
höldnm og öðru því vanalega sem
við höfum reynt og séð í 25 ár. Það
er óþarfi fyrir sjónvarpsyfirvöldin
að reyna að „spila niður" þessar
fréttir af æskunni. Það er ekki ann-
að en að flýja þær staðreyndir sein
- Framhald á 5. síðu.