Mánudagsblaðið - 04.08.1969, Blaðsíða 1
BlaS fyrir alla
21. árgangur
Mánudagur 4. ágúst 1969
9. tölublað
Klámblaðainnflutningurinn stóreykst
Extrablaðið birtir „ofsa“-myndir af íbróttahetju — íslenzka bannið athlægi
„Bönn“ — þetta aðalsmerki okkar hafa oft þann hátt á, að
gera þá sem þau skapa að athlægi. „Klámmynda“-bannið í
íslenzkum blöðum er gott dæmi. Blöð mega birta venjulegar
nektarmyndir tiltölulega átölulítið. öðru máli gegnir um sam-
faramyndir og enn síður um óeðlismyndir í þessum efnum.
En hvað þá um innflutning
og sölu blaða sem slíkar mynd
ir birta. Fjórða júlí birti Extra-
blaðið í Höfn heila opnu af slík
um myndum í sínu stóra broti.
Ein myndin var af einni aðal-
kempu Dana í íþróttum. Sú
mynd var tekin að neðan, lins-
unni beint í bert klof hans.
Er það satt, að ýmsir heild-
salar séu undir smásjá
vegna gjaldeyrisvið-
skipta?
Sýnilegt er að þessi þjóðhetja
er vel vaxin niður og máske
eykur það stolt Dansksins.
önnur mynd sýnir ,,hóp“-sam-
farir og er þar ekkert „klipið"
af smjörinu. Enn ein sýnir
„munnlegar" athafnir og enn
má lengi telja.
Hvar eru lögin?
Allt er þetta góð og gild vara
í bókasölum hér og selja bók-
salar hana, sem og aðra verzl-
unarvöru. Spurningin er sú:
hvar er framkvæmd laganna?
Nú erum við ekki siðfefðisríkari
en aðrir, nema síður sé. Hins-
vegar er okkur ómögulegt að sjá
hvaða tilgangi þessi innflutning
ur þjónar, ekki sízt þegar ís-
lenzkum blöðum, ef þau vildu,
er bannað að birta slíkt.
Söluaukning
Dönsku blöðin eru að verða
„heimsfræg" fyrir slíkar mynd-
ir, einkum ofangreint blað og
B.T., og er þá ekki minnzt á
„bækur" þær um þessi efni sem
seldar eru í virðulegustu bóka-
búðum Hafnar. Er þetta vissu-
lega mikil söluankning fyrir
þessi blöð, sem og myndi vera
fyrir íslenzk blöð af sama tagi,
ef til væru. Gildir þar sama lög-
mál og aðsókn að klámkvik-
myndum sænskum sem hér
blómstra í bíóunum.
Áhrifin komin í Ijós
En hvar er íslenzka eftirlit-
ið? Sjálfsagt er að flytja þennan
„litteratúr" til landsins ef þörf
þykir. En hví má aldrei koma
heiðarlega fram og annað hvort
afnema þetta bann, hreinlega
leyfa innflutninginn, eða þá
fylgja eftir og stöðva söluna.
Áhrifin eru augljós: Ofangreind
ar myndir voru teknar á svokall-
aðri „happening" skemmtun —
„þar sem aJIt getur skeð" —
kallað uppákoma í Mbl. og
Þjóðv. — og „happening" hefur
nú þegar fest Iitla rót á íslandi,
þótt aðstandendur hennar hér
hafi ekki ENN þorað;:að ganga
eins langt og Danir.
Bönn til bölvunar
Það er algjör óþarfi að reyna
að ala þjóðina upp eins og van-
Nýr Gullfoss í ,uppsiglingu'?
IVIikil leynd hjá E.í. — Stór nauðsyn á nýju skipx
Mjög sterkur orðrómur er á lofti meðal þeirra er telja sig til
þekkja, að Eimskipafélag Íslands, hafi gert ALLAR ráðstafan-
ir til að byggja 8—10 þúsund tonna farþega og fiutningaskip,
sem koma eigi í stað Gullfoss. Hafa verið til kallaðir sérfræð-
ingar á nær öllum sviðum, jafnvel hversu fjölmennt starfs-
lið þurfi í eldhúsi, veitingasölum o. s. frv.
Mikil leynd
Mikil og óskiljanleg leynd hvílir
þó yfir öllu þessu, og er blaðið
innti einn af fulltrúum félagsins
eftir þessu, þá brást hann ókunn-
uglega við og vildi ekkert segja.
A/
• • vv r
Olvinir nu mjog
athafnasamir
Undirskriítalistar til alþingismanna
en
Undanfarna viku hafa „ölvinir" þingað mjög
þeir stefna að leyfi fyrir bruggun áfengs öls og nget-
urklúbba-,,menningu“. Skrifstofa félagsins er við
Laugaveg, en einn aðalfyrirsvarsmaður er Ásgeir
Hannes Eiríksson. Félagið hefur sent frá sér greinar-
gerð um nauðsyn ölsins, sem er allmerkileg. Þá var
blaðamönnum og framámönnum í klúbbamálum boðið
á fund ölvina. Þar var ekki veit kaffi. Nú ganga undir-
skriftarlistar um borgina en síðan á að biðla um
heyrn þingmanna.
a-
Það er þó vitað að mál þetta hefur
verið ýtarlega rætt, enda mjög að-
kallandi fyrir félagið að nýtt skip
og stórt sé fengið til að gegna hlut-
verki Gullfoss.
Ærin verkefni
Þá er og augljóst, að þessi nýja
áætlun og framkvæmd hlýtur að
vera bein afleiðing í sambandi við
hina nýju ferðaskrifstofu sem fé-
lagið stofnaði á dögunum. Þarf
ekki að fjölyrða um það, að Gull-
foss er algjörlega ófullnægjandi nú,
og að ærin verkefni bíða hins nýja
skips.
Gert er ráð fyrir, að skipið geti
vel þjónað í t.d. Miðjarðarhafinu
á vissum tímum árs bæði íslenzk-
um og erlendum farþegum, einkum
þó, að þangað er aðeins nokkurra
stunda flug í þotum héðan.
Góður fjárhagur
Ef dæma á eftir yfirlýsingum að-
alfunda, þá er nú fjárhagur félags-
ins allgóður, arðsútborgun aukizt,
og því ætlandi,’að eitthvert fé sé
handbært til kaupa á nýju skipi.
Sannleikurinn er sá, að farþega-
skipafloti landsins hefur dregizt
gífurlega aftur úr og yrði E.í. þakk-
að ef það hæfist handa og bætti úr,
eins og orðrómur- vill hafa það.
þroska hvítvoðunga, sem ekkert
má sjá eða heyra. Reynslan hef-
ur afsannað allar slíkar kenn-
ingar og tilraunir. Bönn — ef
þeim er ekki framfylgt — gera
aðeins bölvun, — samanber ald-
urstakmörk, vínbönn o. s. frv.
Æskan hlær
Hér er eitt verkefni sem kven
félögin og siðprýðiskvennasam-
tök gætu gert gagn ef alvara
lægi að baki hjá hinu opinbera.
En þar sem fyrr — hjá báðum
aðilum — er ekkert ánnað ríkj-
andi en skinhelgi, hræsni og yfir
drepsskapur. Og æskan hlær og
fyrirlítur þessi samtök, hið opin-
bera og fer sínu fram viss um
það, að ekkert vald reynir að
hindra „eðlilegan" framgang.
Lögregluyfirvöldin sofa og sum-
uf þykir nú bezt, að sá svefn
væri sem lengstur.
Reiðir frídögum
hins opinbera
Mikil reiði ríkir meðal kaup-
manna og annarra er þurfa að
sækja undir hið opinbera
að skrifstofufólki er gefið 1
—2 daga frí til skemmtiferða.
Er þá skrifstofum lokað. Þessí
háttur hins opinbera er óþol-
andi og vafasamur. Hvaða
leyfi hefur opinber skrifstofa
til að læsa dyrum sínum og
gefa fólkinu almennt frí? Allt
fær það sumarleyfi og ekkert
vit í að gefa því frí í miðri viku,
eða á föstudegi svo þessir
hópar — á fullum launum —
geti flækzt út á land í sekmmti
ferðir.
Þessi siður er eftiröpun ein-
staklingsfyrirtækja, sem þetta
gerðu á góðærisdögunum. En
hér skiptir allt öðru máli. Einka
fyrirtæki ráða sjáif hvort þau
vilja missa dags ,>business“,
en sú regla gildir alls ekki í
sambandi við opinber fyrir-
tæki eða stofnanir.
Ef fólkið á þessum skrifstof
um vill skemmta sér og ferð-
ast saman, þá er þvi ekki nein
vorkunn að fara um helgar
eins og aðrir. Að leggja niður
alla starfsemi, þótt ekki sé
nema um dagstund að ræða,
er helber ósvífni, sem alls ekki
á að liðast.
Opinber fyrirgreiðsla er
ekki svo góð, að hún hafi nokk
ur efni á að leggja niður þjón-
ustu daglangt.
Leikfang Mánudagsblaðsins
Raunir dr. Gylfa hlaðast upp
Heita má, að hvert einasta mál,
sem Gylfi Þ. Gíslason, ráðherra,
hefur komið nærri síðustu mánuði
hafi orkað tvímælis enda hafa blöð-
in óspart hamrað á óförum hans.
Háskólamálið og afstaða Gylfa hafa
verið gagnrýnd harðlega, fógeta-
innsetning nemanda í skólann var
þögguð niður í ofboði, skipan ráð-
herra í nýja stöðu hefur sætt á-
sökunum sem herfileg misnotkun
valds í sambandi við-sína nánustu,
og byggingamál menntaskólans
hafa nú enn verið til umræðu. Rétti
lega eða ranglega hefur ráðherra
orðið fyrir miklu aðkasti, og ekki
gert eins hreint fyrir sínum dyr-
um og krefjast má. Það er því ekki
ofsögum sagt, að raunir dr. Gylfa
eru ærnar, en benda má Iíka á, að
hann og flokkur hans hafa Iengi
sloppið, en íhaldið h|otið allar á-
kúrur. Má vera að nú breytist.
t