Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 22.12.1969, Side 1

Mánudagsblaðið - 22.12.1969, Side 1
Bl&Sfyrir alla 21. árgangur. Mánudagur 22. desember 1969 26. tölublað. — Jólamyndir kvikmyndahúsanna — Sophia Loren Laugarásbíó: „GREIFYNJAN FRÁ HONG KONG“ Leikstjóri: Chaplin. Javnvel alvön kvikmyndastjarna eins og Sophia Loren er tauga- óstyrk, þegar hún. þyrjar í nýrri kvekmynd — ekki sízt þegar höf- undur og leikstjóri er gama.ll snill- ingur eins og Charlie Chaplin. En taugaóstyrks gætir ekki í myndinni, því að leikur Loren og Marlons Brandos, sem leikur aðal- hlutverk á móti henni, er með slík um ágætum, að bæði hafa hlotið mikið lof kvikmyndahúsgagnrýn- enda um allan heim. Efni myndarinnar er í stuttu máli, að amerískur auðkýfingur (Brando), sem gerður hefttr verið sendiherra í Arabaríki, er á Ieið heim til Bandaríkjanna og kemur skip hans við í Hong Kong. Þar skemmtir hann sér um nótt með stúlku, sem er af rússneskri aðals- ætt, landflótta eftir byltinguna. Stúlkan (Loren) vinnur fyrir sér með því að dansa við gesti í nætur- klúbb. en eftir að þau hafa skemmt sér saman, reynir hún að gerast laumufarþegi í klefa auðkýfingsins, til að komast til Bandaríkjanna. En upp um hana kemst, þegar nokkuð er komið áleiðis og upphefst þá mikill vandi með broslegum til- brigðum. „Greifynja frá Hong Kong" er fyrsta litmyndin, sem snillingurinn Chaplin gerir, og þetta er raunar fyrsta myndin, sem hann hefir gert á tólf ára tímabili. En hún sýnir, að honum hefir ekkert farið aftur, þótt aldurinn sé farin að færast yfir hann. Raunar hefir hann ekki látið nægja að semja kvikmynda- handritið og stjórna töku myndar- innar, heldur hefir hann og samið alla tónlist í henni og útsett lögin sjálfur. Myndin gerist að miklu leyti á stóru farþegaskipi, sem er í áætl- unarferðum á Kyrrahafi, og gerir það hana sérstaklega skemmtilega frá sjónarmiði íslenzkra kvikmynda húsgesta. Tónabíó: „HVE INDÆLT ÞAÐ ER“ — Tónabíó sýnir nú á jólunum, eina af þessum gamanmyndum, sem aðeins eru ætlaðar til hláturs og kátínu, en eru blessunarlega lausar við allan „þjóðfélagsboð- Við þekkjum þau bceði Debbie Reynolds og James Garner, hið mikla kvennagull. — Myndin sýnir atriði úr „Hve ind.œlt: það er" — skap". Á frummálinu nefnist hún „How Sweet it is" en bíóið kallar hana einfaldlega — og réttilega — „Hve indælt það er". — Söguefnið er um ljósmyndara, Grif, kvæntan, sem oft er að heim- an (James Garner) og frá eigin- konunni (Debbie Reynolds) — henni til sárrar óánægju. Sonurinn þeirra er ástfanginn, vinkona hans að fara til Evrópu í mánuð. en síðan verður úr að allur hópur- inn slæst í Evrópuferðina. Auðvit- að koma við sögu kvennabósar og fleira gaman sem ekki má segja frá. — Myndin er sérlega skemmtileg. ■ Hvítt-og'.svart Austurbæjarbíó: KOFI TÓMASAR FRÆNDA Uncle Tom’s Gabin, hin heims- kunna skáldsaga Harriets Stowe, í kvikmyndarformi, er gleði Austurbæjarbíós til vískra kvikmyndahúsgesta,. en efn- ið er flestum mönnum kunnugt. Þrælahaldstímabil Bandaríkjanna hefur oft verið bæði mynda- söguefni ýmissa höfunda ög er þar ýmist lýst hraksmánarlegri afstöðu til þræla eða mannkærleika ein- stakra fjölskyldna til þessara tví- fættu vinnudýra sinna, karla kvenna. Sagan er skrifuð löngu fyrir brölt „svarta aflsins" og hinna ýmsu félagsstofnana, sem nú kenna sig við villidýr Afríku, enda fjallar myndin aðeins um tíma, sem sagður er blettur á sögu Ameríku, en þær fullyrðingar orka jafnan tvímælis ef miðað er við aðstæður fyrir hundrað árum eða u. þ. b. og ís- lenzkir bændur voru hnepptir í „frjálsan þrældóm" vegna skulda eða annars vanhags. Þó er hér um mjög góða og á- hugaverða mynd að ræða- Þetta er auðvitað ekki annað en „róman án allra tengsla við réttlætis- eða jafnréttisbaráttu, en aðeins sögð á venjulegan hátt og oft mjög áhrifa ríkan. Fjölskyldumál Shelbyanna eru margslungin og inn í þau spila ýmsir strengir, sem verða mjög á- hrifaríkir á hvíta tjaldinu. Væntan- 'lega munu þeir' verða margir, sem sér ferð í bíóið á 2. dag jóla meðammyndin er sýnd. •' Hafnarbíó: ÞREFALDUR KVENNABÓSI Hafnarbíó býður upp á ameríska gamanmynd — Þrefaldur kvenna- bósi — með okkar, gamla vini, Jerry Lewis — í fimm hlutyerkum, en aðalmótleikari hans er engin önnur en Janet Leigh, læknir — geðlæknir! Eftir að Jerry vinnur 10 þús. dollara verðlaun og þykist nú geta gifzt ástmeý sinni, kemur bobb í bátinn, því hún hefur þrjá sjúklinga, ungar domur, allar svikn ár í tryggðum, sem þarfnast hjálp- ár,'enda hatást þær út í allt karl- kyns. Nú. kemur -að því að Jerry verð- ur að.leysa.vandamálið og er bezt að láta áhorfendur athuga það sjálfa-á-sýningunni. Marqueride: Viby og Morten Grundtúald ' Nýja Bíó: PABBI VINNUR ELDHÚSSTÖRFIN“ Danskar gamanmyndir ‘ voru einu sinni vinsælustu gamanmynd- ir hérlendis og Nýja Bíó sýnir nú um hátíðirnar, eina ágætis gaman- mynd með sumum beztu gaman- og skapgerðarleikurum Dana; „Pabbi vinur eldhússtörfin" fjallar um hjón, börn, ærar og óstýrilát- ar töntur, en þó býsna ólíkar, heim- ilisvini og heimilishald. Herbert og Britten (Morten Grundwald og Ghita Nþrby) eru hamingjusöm, Herbert kennari og smáskáld, Britte vinnur í hálsbindaverksm., sem er í eigu tantanna tveggja (B. Madsen og M. Viby), en vegna hvítrar músar.kemst allt í uppnám og spinnast af.því ýmsar spaugi- legar sitúa,sjónir,. m.a. er Herbert boðin forstjórastaða í bindafram- leiðslunni, • en Britte verður að hætta störfum til að passa börnin og músina hvím. Óhæt er að fullyrða, að hér sé á ferð.ein af skemmtilegri gaman. myndum bíóanna og enginn imn sjá eftir að skoða hana að loknut* krásum og óffylli hátíðisdaganna Framhald á 7. síðy Blað 2

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.