Fréttablaðið - 24.05.2006, Side 12
12 24. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR
BÍLASÝNING Bílaáhugamenn flykktust til
Sandpoint í Idaho í Bandaríkjunum um
helgina, þar sem fram fór sýning á fornbíl-
um með tilheyrandi skemmtunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FINNLAND Finnski lögmaðurinn
Kari Silvennoinen ætlar að fara í
mál við rússnesk yfirvöld og krefj-
ast þess að fá til baka eignarrétt
Finna á jörðum í Karjalahéraði
sem lenti innan sovésku landa-
mæranna árið 1944. „Landamærin
breyttust, ekki eignarrétturinn,“
segir hann í Helsingin Sanomat.
Silvennoinen telur að Finnar
sem áttu land á þessu svæði 1944
þegar Finnar og Sovétmenn
sömdu um vopnahlé séu enn lög-
legir eigendur. Sovétkerfið hafi
útrýmt eignarrétti en staðan sé
breytt, eignarrétturinn sé fyrir
hendi og því þurfi að höfða mál
gegn Rússum. - ghs
Jarðadeila við Rússa:
Krefst landsins
sem hvarf
Ómar Stefánsson er efsti maður á lista
framsóknarmanna í Kópavogi. Fjölskyldu-
málin almennt eru í forgangi hjá B-lista
fyrir kosningarnar. Stefnt er að því að
tryggja öllum börnum 18 mánaða og
eldri skólavist og minnka sumarlokun
niður í tvær vikur á leikskólum. „Við
viljum tryggja vist á dagheimilum fyrir 9
til 18 mánaða börn til að koma til móts
við foreldra sem eru að klára fæðing-
arorlof.“ Í öldrunarmálum vill B-listi koma á þjónustu þar
sem 75 ára og eldri geti hringt og látið vita af sér. „Fyrir 80
ára og eldri viljum við skipuleggja heimsóknir í samvinnu við
félagasamtök og svo halda áfram stuðningi og uppbyggingu
við Hrafnistu og Sunnuhlíð.“
B-listi vill bjóða upp á heildstæðar lausnir í forvarnar-
málum fyrir unglinga, í samstarfi við vinnuskólann með nýju
menningar- og ungmennahúsi.
Ómar Stefánsson B-lista:
Fjölskyldumálin í forgangi
Gunnar I. Birgisson leiðir lista sjálfstæðis-
manna í Kópavogi. D-listi leggur áherslu
á fjölskyldumál í víðum skilningi, frá
vöggu til grafar að sögn Gunnars. Stefnt
er að því að byggja vöggustofu fyrir sex
til níu mánaða börn til að koma til móts
við eftirspurn sem dagmæðrakerfið
annar ekki. „Við ætlum að lækka
leikskólagjöld og efla innra starfið.“
Á kjörtímabilinu verða byggðir tveir til
þrír nýir leikskólar og tveir nýir grunnskólar reistir. „Við viljum
auka fjárhagslegt og faglegt sjálfstæði skólanna eins og hefur
verið unnið að á kjörtímabilinu.“ Foreldraráðin hafa nú meira
vægi að sögn Gunnars. Varðandi íþróttir þá mun D-listi styrkja
iðkendur um allt að 20.000 krónur og haldið áfram með
uppbyggingu íþróttamannvirkja. „Skuldir verða lækkaðar með
lækkun á vaxtagreiðslum og fasteignagjöldum,“ segir Gunnar
sem boðar áframhaldandi aðhald í rekstri bæjarfélagsins.
Gunnar I. Birgisson D-lista:
Lækkun á leikskólagjöldum
Ólafur Þór Gunnarsson er oddviti Vinstri
grænna í Kópavogi. „Lykilatriði kosning-
anna er að þær snúast um fólk og þá
þjónustu sem bærinn er að reiða af hendi
til bæjarbúa.“ V-listi vill gera leikskóla
gjaldfrjálsa til að tryggja öllum börnum
fullan aðgang að menntastofnunum.
Forgangsverkefni hjá V-lista er að
auka fjölda hjúkrunarrýma í bæjarfé-
laginu. „Ástandið í Kópavogi er þrefalt
verra en meðaltalið á höfuðborgarsvæðinu.“ Jafnhliða því
vill V-listi haga þjónustumálum fyrir aldraða þannig að það
fái þá þjónustu sem það á rétt á þegar það þarf á henni að
halda. „Bærinn á að taka yfir öldrunarþjónustuna.“ Einnig
þarf bæjarfélagið að gera betur við starfsfólk sitt og vill V-listi
að Kópavogur segi sig út úr launanefnd sveitarfélaga og semji
sjálft við sína starfsmenn.
V-listi vill gera reglur um lóðaúthlutun gegnsæjar og koma
í veg fyrir pukur og einkavinavæðingu að sögn Ólafs.
Ólafur Þ. Gunnarsson V-lista:
Taki yfir öldrunarþjónustu
Guðríður Arnardóttir jarðfræðingur leiðir
lista Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Höfuðáhersla er lögð á velferðarmál
og þá sérstaklega málefni aldraðra og
skólamál að sögn Guðríðar. „Við ætlum
að veita meira fé til skólanna og til
dæmis stofna þróunarsjóð grunnskóla
sem veittir verða úr styrkir til kennara
til að vinna að þróunarverkefnum
fyrir skólana.“ S-listi vill tryggja öruggt
starfsmannahald í leikskólum og hafa þá opna allt sumarið
svo foreldrar geti valið sér frí.
Yfirlýst stefna S-lista er að færa alla þjónustu við aldraða
til bæjarfélagsins. „Við viljum byrja á því að efla heimaþjón-
ustuna.“ S-listi vill jafnframt stofna öldungaráð skipað eldri
borgurum sem verður bæjarstjórn til ráðgjafar um málefni
aldraðra. „Við viljum efla lista- og menningarstarf og stefnum
að byggingu sviðslistahúss sem mun nýtast menningarlífi
bæjarins.“
Guðríður Arnardóttir S-lista:
Efla heimaþjónustuna
KOSNINGAR Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur hafa setið
óslitið í meirihluta bæjarstjórn-
ar í Kópavogi seinustu 16 árin. Á
kjörtímabilinu sem er að klárast
hefur Samfylking setið ein í
minnihluta og Vinstri hreyfingin
- grænt framboð býður nú fram í
fyrsta skipti í bæjarfélaginu.
Að sögn Gunnars og Ómars,
oddvita meirihlutaflokkanna,
hefur samstarfið verið farsælt
og gengið vel. Ör uppbygging
hefur verið í Kópavogi og hefur
kjósendum fjölgað um 10,1 pró-
sent frá seinustu sveitarstjórnar-
kosningum. Vel hefur gengið að
láta þjónustustig halda í við upp-
bygginguna að mati Gunnars og
Ómars.
Guðríður, oddviti Samfylking-
ar, segir að með hraðri uppbygg-
ingu bæjarfélagsins sé Kópavogur
orðinn miðpunktur höfuðborgar-
svæðisins og miðstöð verslunar
og þjónustu. Að sögn Guðríðar
hefur rödd minnihlutans ekki
náð í gegn í bæjarstjórn á kjör-
tímabilinu. Gagnrýnir hún að
þjónusta við eldri borgara hafi
ekki náð að haldast í hendur við
uppbyggingu seinustu ára.
Vinstri hreyfingin - grænt
framboð leggur áherslu á að gera
stjórnsýslu bæjarfélagsins gegn-
særri en hún er í dag.
- sdg
KÓPAVOGUR Kópavogsbær er annað stærsta sveitarfélag landsins með 26.847 íbúa.
Kópavogsbær
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR
2006
Rúmlega tíu prósenta fjölgun íbúa á kjörskrá frá seinustu kosningum:
Miðja höfuðborgarsvæðisins
������������������������������������������������������
�� ��������������������������������������������������������������
������ ������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
�������������������������������
��������������������������������������������
������������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������������������
1.890.000,- Beinskipt - 1.6 lítra
Nýr, fallegri og miklu
betri Opel.
Þinn daglegi
skammtur af gleði
Mánaðargreiðsla 23.061,-*
���������������� �������������������� ���� �����������������
MANNRÉTTINDI „Það má segja að
þema skýrslunnar sé tvöfeldni
eða hræsni áhrifamestu ríkis-
stjórnanna,“ segir Jóhanna K.
Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri
Íslandsdeildar Amnesty Inter-
national.
„Til dæmis hefur grundvallar-
gildum verið fórnað og horft fram
hjá alvarlegum mannréttinda-
brotum í skjóli stríðsins gegn
hryðjuverkum. Svo eru 88 prósent
allra vopna sem seld eru til þróun-
arlandanna keypt frá ríkjunum
fimm sem eiga sæti í öryggisdeild
Sameinuðu þjóðanna; Kína,
Frakklandi, Rússlandi, Bretlandi
og Bandaríkjunum.“
Einnig segir Jóhanna mjög
gagnrýnisvert að á meðan 2,2
milljónir manna hafa þurft að
flýja heimili sín í Darfur og nær
300 þúsund dáið vegna hungurs,
sjúkdóma eða verið drepin þar
skuli ekki einn friðargæsluliði frá
Sameinuðu þjóðunum hafa verið
sendur þangað enn.
„En það jákvæða er að hugar-
far almennings hefur breyst
þannig að fólk fer fram á gagnsæi
og hefur síður umburðarlyndi
gagnvart mannréttindabrotum,“
segir Jóhanna. „Þetta sést einnig
á því að nú eru 6.500 félagar í
Íslandsdeildinni og hafa aldrei
verið fleiri.“ - jse
Hræsni áhrifamestu ríkisstjórna heims er þema nýrrar ársskýrslu Amnesty:
Þeir stóru tvöfaldir í roðinu
JÓHANN K. EYJÓLFSDÓTTIR Framkvæmda-
stjóri Íslandsdeildar Amnesty Internation-
al kynnti ársskýrslu hreyfingarinnar á
blaðamannafundi í gær. Hún einkennist af
hræsnaraskap áhrifamestu ríkisstjórnanna,
segir hún.