Fréttablaðið - 24.05.2006, Síða 44
MARKAÐURINN 24. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR12
Ú T T E K T
Listahátíð í Reykjavík hefur
um langa hríð verið fastur
punktur í lífi borgarbúa. Nú
stendur sem hæst tuttugusta
hátíðin frá stofnun hennar
árið 1970 og hafa listunnend-
ur ekki haft undan að sækja
listsýningar, danssýningar og
tónleika sem eru meðal þeirra
fimmtíu listviðburða sem
hátt í sex hundruð lista-
menn bera á borð
í ár. Hafi einhverj-
ir gleymt sér – eða
ekki fengið nóg
– er enn af nógu
að taka því
hátíðinni lýkur
ekki fyrr en 2.
júní.
Tvö síð-
ustu ár,
eða frá því
að ákveð-
ið var að
Listahátíð
yrði fram-
vegis árviss
v i ð b u r ð -
ur, hefur
a t h y g l i n n i
sérs tak lega
verið beint að
einni listgrein í
einu, þótt öðrum
sé jafnframt gert
hátt undir höfði. Í ár
ræður tónlistin ríkjum
og hefur sjónum hátíð-
arinnar að miklum hluta til verið beint að
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Þjóðleikhúsinu,
Borgarleikhúsinu og öðrum þeim menning-
arstofnunum sem hafa verið kjölfestan í
Listahátíð frá því hún hóf göngu sína.
ALLTAF Á HÖTTUNUM EFTIR LISTAMÖNNUM
Margir vildu eflaust vera í sporum Þórunnar
Sigurðardóttur sem er listrænn stjórnandi
hátíðarinnar og sér um að móta dagskrá
hverrar hátíðar. Það er þó ekki hægur vandi
að velja þá hópa sem fram koma á Listahátíð
enda margir að gera merkilega hluti um víða
veröld sem helst mega ekki fara framhjá
Þórunni. Hún er á höttunum eftir spennandi
listamönnum allt árið og segir starf sitt miklu
meira en hundrað prósent. „Þegar ég er búin
að miða eitthvað áhugavert út með því að
skoða vídeó, tala við fólk, skoða heimasíður,
myndir, efni og gagnrýni, þá fer ég og sé
það til að sjá hvort það passi Listahátíð. Ég
sé helst alla erlenda hópa sem koma því þótt
vinnan fari mikið til fram á netinu snýst þetta
alltaf um persónuleg samskipti.“
MARGFELDISÁHRIF AF HVERJUM GESTI
Kostnaðurinn við Listahátíð er í kringum 120
til 130 milljónir og kemur féð að einum fjórða
hluta, nokkurn veginn jafnt, frá styrktar-
aðilum, miðasölu, ríki og borg. Þessar tölur
segja þó aðeins hálfa söguna því margir við-
burðir á hátíðinni fara ekki í gegnum bækur
Listahátíðar. Þær menningarstofnanir ríkis
og borgar sem sitja í fulltrúaráði Listahátíðar
og taka þátt í hátíðinni halda sjálfar utan um
sitt framlag. Því segir Þórunn að það láti
nærri að verðmæti hátíðarinnar sé um 250
milljónir ef á það ætti að leggja mat.
Listahátíð hefur breyst og þróast með árun-
um. Fyrst og fremst er hún mun umfangs-
meiri núna og með breyttu sniði. Áður fyrr
var hátíðin eins og regnhlíf og stofnanir lögðu
henni til verkefni sem ekki var lagt fjármagn
í. Núna leggur Listahátíðin fjármagn eða
mikla og dýra þjónustu í öll verkefni. Þar
að auki hefur hátíðin líka færst út á land og
unnið er markvisst með skólum og ferðaþjón-
ustu og talsvert er lagt í erlenda kynningu og
aðstoð við erlenda fjölmiðla.
„Velta hátíðarinnar er í fjölmörgum lögum og
því erfitt að meta kostnað og tekjur af henni.
Til að mynda stendur Listahátíðin undir
grunnútgjöldum þeirra fjölmörgu erlendu
listamanna sem koma hingað til lands en
sjálfir standa þeir iðulega undir mestum hluta
kostnaðarins við dvöl sína hér með styrkjum
frá heimalandinu. Því eru margfeldisáhrifin
af hverjum og einum þeirra gríðarleg. Allt
það fé sem við fáum frá ríki og borg kemur
til baka í kynningu á Íslandi erlendis og með
ýmsum útgjöldum erlendra ferðamanna og
listamanna hér á landi, það get ég fullyrt.“
Máli sínu til stuðnings nefnir Þórunn að bara
um síðustu helgi voru um fjögur þúsund
manns á tónleikum Listahátíðar og að um
sextíu blaðamenn frá völdum fjölmiðlum um
allan heim sækja viðburði hátíðarinnar.
SAGAN SPANNAR 36 ÁR
Listahátíð í Reykjavík fór fyrst fram sem
fyrr segir árið 1970. Heiðurinn af því átti hinn
heimsþekkti píanisti Vladimir Ashkenazy
sem hafði flúið Sovétríkin og fengið íslensk-
an ríkisborgararétt. Á þessum tíma var mjög
lítið um innflutning á erlendum listamönnum
hingað til lands. Til að endurgjalda vinar-
greiða Íslendinga aðstoðaði hann Listahátíð
með því að fá marga heimsþekkta listamenn
Tuttugasta Listahátíðin í hæstu hæðum
Þegar Listahátíð í Reykjavík lýkur þann 2. júní munu sex hundruð listamenn hvaðanæva að úr heiminum hafa
örvað skynfæri þúsunda Íslendinga undanfarnar vikur. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skoðaði glæsta sögu
Listahátíðar sem, að sögn listræns stjórnanda hátíðarinnar, einkennist af farsælu samstarfi hins opinbera og einkaaðila.