Fréttablaðið - 24.05.2006, Qupperneq 58
MARKAÐURINN
Mikilli aukningu er spáð í fjárhættuspili í
tengslum við heimsmeistaramótið í fótbolta
og áætlað að í sumar verði í Bretlandi einu
lagður undir einn milljarður punda, eða yfir
134 milljarðar íslenskra króna í tengslum við
heimsmeistaramótið í fótbolta. Þetta hafði
Ríkisútvarpið breska, BBC, nýverið eftir
prófessor Leighton Vaughan Williams, sem er
breskum stjórnvöldum til ráðgjafar um fjár-
hættuspil og stýrir rannsóknum á fjárhættu-
spilum við Nottingham Trent háskólann.
Hann segir að á fimm árum hafi umfang veð-
mála sem tengjast íþróttum aukist í Bretlandi
úr 7 milljörðum punda árlega í 40 milljarða.
Bróðurpartur aukningarinnar er skrifaður á
internetið þar sem veðmál þar hafa bæði auð-
veldað aðgengi að slíkri starfsemi og aukið
fjölbreytni hennar.
Nýjasta viðbótin hér á landi í tengslum við
veðmál um íslenska íþróttaviðburði er starf-
semi veðmálavefjarins Betsson.com sem
skráður er í Bretlandi, en er í eigu sænska
fjárhættuspilafyrirtækisins Cherryföretagen
AB. Fyrirtækið er skráð í Kauphöllina í
Stokkhólmi og varð síðasta sumar að fjórð-
ungi í eigu Íslendinga með kaupum Straums-
Burðaráss í því. Betsson hefur ekki farið
varhluta af aukningu í veðmálum á netinu, en
31. mars síðast liðinn voru 298 þúsund skráð-
ir notendur á vef Betsson.com samkvæmt
uppgjöri fyrsta ársfjórðungs. Aukningin er
í árshlutauppgjöri Cherry sögð nema 23 pró-
sentum frá því um áramót. Fjöldi „virkra“
notenda hefur aukist hraðar, eða um 32 pró-
sent og nam fjöldi þeirra í lok fyrsta ársfjórð-
ungs 47 þúsundum. Þannig er fjöldi virkra
notenda sagður hafa aukist um 161 prósent
milli ára.
Í byrjun síðasta mánaðar vöknuðu spurn-
ingar um lögmæti auglýsinga Betsson.com
í íslenskum fjölmiðlum og upphófst rann-
sókn yfirvalda á þeim. Fyrirtækið hefur um
nokkurt skeið boðið veðmálaþjónustu sína
á íslensku á netinu, auk þess að bjóða fólki
að veðja á ýmsa íslenska viðburði, svo sem
knattspyrnu. Fyrirtækið segir rannsóknina
ekki hafa leitt til aðgerða og heldur áfram að
auglýsa vef sinn.
Sigurður G. Guðjónsson er lögfræðingur
Betsson.com og hefur veitt fyrirtækinu ráð-
gjöf um hvað má og hvað ekki samkvæmt
íslenskum lögum. „Hér eru sérstök lög um
happdrætti, en þau taka ekki til happdrætta
eða annarrar veðmálastarfsemi sem rekin er
á netinu af löglegum fyrirtækjum erlendis,“
segir hann og telur löggjöf hér ekki geta sett
starfsemi sem rekin er á netinu stólinn fyrir
dyrnar, nema þá að aðgangur almennings
að internetinu verði heftur með einhverjum
hætti. „Þetta fyrirtæki hefur öll þau leyfi sem
til þarf til að reka happdrætti, en Betsson er
auðvitað fyrst og fremst bara heimasíða þar
sem hægt er að leiða fólk saman,“ segir hann,
en fyrirtækið hefur tekjur af þóknun sem
tekin er fyrir veðmál milli manna. Fyrirtækið
hefur, að sögn Sigurðar, enga starfsemi hér
heima heldur er viðmótið á netinu íslenskað
og sóttar upplýsingar um leiki sem hér fara
fram. „Þetta er bara heimasíða með mismun-
andi tungumálum þannig að sem flestum sé
gert kleift að spila. Betsson er búið að vera til
á ensku í mörg ár,“ segir hann og kveðst ekki
hafa upplýsingar um hversu
mikil þátttaka sé héðan í netveð-
málum fyrirtækisins.
Sigurður segir helstu álita-
mál hér á landi hafa snúið að
því hvort brotið væri í bága við
almenn hegningarlög með því að
auglýsa starfsemina. „Þau eru
frá 1940 og leggja bann við því að
hvetja menn til veðmála og fjár-
hættuspila. En með þeim aug-
lýsingum sem birtar hafa verið
hér hefur ekki nokkur maður
verið hvattur til að stunda ein
eða nein veðmál,“ segir hann og
bendir á að í skýrslu sem unnin
hafi verið fyrir dómsmálaráðuneytið árið
1999 um framtíðarskipan happdrættismála
hafi verið fjallað nokkuð um breytingar sem
tilkoma netsins hefði í för með sér í þessum
efnum og talið óvíst að til gagns yrði að leiða
í lög ákvæði um slíka starfsemi. „Þá var líka
reynt að sníða happdrættislögin sem hér voru
sett að kröfum evrópska efnahagssvæðisins.
Það kynni enda að brjóta í bága við réttar-
reglur um frelsi til fjármagnsflutning og til
atvinnustarfsemi ef fyrirtæki sem stundar
löglega starfsemi í einu Evrópulandi mætti
ekki auglýsa þá starfsemi sína hér með því
einu að kynna heimasíðu sína. Starfsemin er
lögleg og fer fram innan evrópska efnahags-
svæðisins og móðurfyrirtækið meira að segja
skráð í Kauphöllina í Stokkhólmi.“
Vangaveltur eru uppi um hvort veðmála-
starfsemi á borð við þá sem Betsson.com
rekur ýti ekki undir spilafíkn, en Sigurður
segir umgjörð starfseminnar með þeim hætti
að hún sé á margan hátt betri fyrir þá sem
þannig eru veikir fyrir. „Bæði er það þannig
þegar greitt er fyrir með kreditkorti að
þeir geta einir spilað sem eiga slíkt kort
og á þeim eru jú líka yfirleitt heimildir um
hámarksúttektir,“ segir hann og telur þannig
bæði loku fyrir það skotið að fólk sem ekki
hafi aldur til taki þátt í fjárhættuspilinu og
að farið sé offari í spilamennskunni. „Að
því leyti er þetta betra en peningavélarnar
íslensku þar sem engin takmörk eru á hversu
miklu er hægt að eyða af peningum.“ Hann
telur enga lausn að banna fólki sem ræður
við fíknir sínar að fá útrás fyrir þær af þeim
sökum einum að einhver hópur ráði ekki við
sig. Þá segir fyrirtækið að hjá því, líkt og
öðrum ábyrgum netveðmálamiðlurum, hafi
verið komið upp tækni sem gangi út á að
greina áhættuhegðun og stöðva hana eins
fljótt og hægt er, auk þess sem boðið sé
upp á fræðslu og hjálp fyrir þá sem eigi við
vandamál að stríða. Þannig er Betsson.com í
samstarfi við The Global Gambling Guidance
Group sem leiðbeinir fyrirtækjum og ein-
staklingum um hvernig eigi að stunda ábyrga
spilamennsku.
Starfsemi Betsson.com
hefur í för með sér töluverða
nýbreytni þar sem hún hefur í
för með sér stóraukið aðgengi að
fjölmörgum tegundum veðmála-
leikja á íslensku. Þar á meðal er
póker, sem er í stöðugum vexti
og hefur á síðustu árum orðið
gríðarlega vinsæll á netinu,
auk annarra spilavítisleikja svo
sem sýndarspilakassa og rúll-
ettuborða. Jafnframt er boðið
upp á hefðbundin veðmál og
getraunir tengd íþróttaviðburð-
um og öðrum viðburðum á borð
við tónlistarkeppnir og kosningar. Þannig
voru í gangi umfangsmikil veðmál um úrslit
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
sem er nýafstaðin og þóttust spekingar geta
ráðið nokkuð í hvert gengi lags Silvíu Nætur
yrði í keppninni af hlutföllum þeim sem buð-
ust í veðmálum um hana hjá Betsson.com.
Í nágrannalöndunum hefur þróunin verið
sú að veðmálafyrirtæki á borð við Betsson
hafa sprottið upp og boðið betri kjör heldur en
þeir sem fyrir voru á markaðnum. Í flestum
tilfellum eru þeir sem fyrir voru veðmála- og
talnaleikir sem starfað hafa undir opinberum
leyfum viðkomandi landa. Betsson.com segir
vinningshlutfall þannig töluvert hærra hjá
sér því að spilavítinu undanskildu sér fyrir-
tækið ekki veðbanki heldur vefmiðlari sem
stilli upp veðmálum og taki síðan aðeins fjög-
urra prósenta þóknun af vinningum.
A U R A S Á L I N
24. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR18 F Y R I R T Æ K I
U M F J Ö L L U N N E F N D A R
U M N E T I Ð
Í skýrslu til dómsmálaráðherra sem nefnd um fram-
tíðarskipan happdrættismála skilaði í febrúar 1999 er
að því vikið að með tilkomu internetsins hafi aukist
möguleikar á þátttöku í ýmsum erlendum leikjum og
spilum. „Auðvelt er að nálgast slíka leiki á hefðbundn-
um leitarvefjum með því að slá inn viðeigandi leitarorð,
til dæmis orðið „lotteri.“ Þátttaka fer jafnan fram í
gegnum reikningsnúmer og leggst vinningur inn á
sama númer. Ekkert eftirlit er með þátttöku Íslendinga
í erlendum happdrættum gegnum Netið. Ætla verður
hins vegar að hlutaðeigandi happdrætti starfi í sam-
ræmi við lög í viðkomandi landi. Hér á landi eru engar
sérreglur til um þátttöku í happdrættum í gegnum Netið
og er Ísland að því leyti á sama báti og mörg önnur
lönd,“ segir í skýrslunni og talið að vafi kynni að leika
á um með hvaða hætti gildandi lagareglum yrði beitt
um happdrætti á netinu. „Reyndar má velta því fyrir
sér, hvort yfirleitt sé ástæða til að reyna að setja reglur
um þessa starfsemi á Netinu fremur en aðra starfsemi
þar. Færa má fyrir því rök, að slík reglusetning kynni að
draga úr eðlilegri tækni- og framþróun á þessu sviði
sem öðrum. Auk þess er tækniþróunin orðin svo ör, að
erfitt er að ímynda sér hvernig löggjöf á að fylgja henni
svo vel sé. Ekki er ólíklegt að tæknin leiti í farveg fram
hjá hamlandi eða úreltri löggjöf, sem sett kynni að vera
um þessa starfsemi.“
SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON
Sigurður, lögmaður Betsson á
Íslandi, er fyrirtækinu til ráð-
gjafar um hvað má og ekki má í
auglýsingamálum.
EINHENTIR BANDÍTAR Spilakassar sem þeir hér að ofan hafa löngum verið nefndir einhentir bandítar vegna þess að
forðum daga voru þeir settir í gang með því að toga í stöng á hlið þeirra. Núna hafa tekið við snertiskjár og svo sýndarspila-
kassar á netinu líkt og hjá Betsson.com. NORDICPHOTOS/AFP
Stórsókn í fjárhættuspil á netinu
Fjöldi notenda fjárhættuspilavefjarins Betsson.com hefur margfaldast á einu
ári. Fyrirtækið er að hluta í eigu íslendinga og hefur í rúmt ár boðið upp á veð-
mál tengd íþróttaviðburðum hér. Óli Kristján Ármannsson kynnti sér fyrirtækið.
Kæru lesendur,
í kjölfar ítrekaðrar kröfu les-
anda Aurasálarinnar hef ég,
Aurasálin, ákveðið að láta til
leiðast og svara kalli samfélags-
ins með því að gefa kost á mér
í borgarstjórnarkosningunum í
vor. Aurasálin hefur notið gæfu
í lífinu og vill með þessari fórn
launa samfélaginu sem hefur
alið hana.
Það er auðvitað ekkert grín fyrir
Aurasálina að taka að sér störf
í þágu samborgara sinna. Hún
fórnar miklu og ætlast þó ekki
til neins í staðinn (nema hvað
hún mun hugsanlega úthluta
sér góðri lóð sem sæmir borg-
arstjóra - en annað ekki, nema
hvað launin verða sennilega
hækkuð í takt við það sem
gerist í bankageiranum - en
annars er þetta fórnfúst og
algjörlega óeigingjarnt af hálfu
Aurasálarinnar).
Stefnumál Aurasálarinnar er ein-
falt. Hún ætlar að lækna sam-
félagið af þeirri gervimennsku
sem tröllríður öllu um þessar
mundir. Peningahyggjunni er
sagt stríð á hendur, stórgróði
verður gerður upptækur, hluta-
bréfaviðskipti og annað brask
verður ekki leyft - öll viðskipti
skulu háð mati óvilhallra aðila á
verðmæti og síðast en ekki síst
verður gert stórátak í atvinnu-
málum.
Eftir áratuga stjórnleysi í borginni
er sú staða uppi að frumatvinnu-
vegirnir eiga mjög undir högg
að sækja. Sjávarútvegurinn,
undirstaða lífsgæða í land-
inu, verður hafinn til nýrrar
virðingar með stofnun nýrrar
bæjarútgerðar með tuttugu
togurum af glæsilegustu sort
og byggingu fimm nýrra frysti-
húsa. Landbúnaður, sem áður
blómstraði í Reykjavík, verður
endurreistur. Korpúlfsstaðir
verða aftur gerðir að mjólkurbúi
og fólk sem stundar heimaslátr-
un í Reykjavík fær sérstakar
skattaívilnanir.
Laugarnar í Laugardal verða aftur
nýttar til fataþvottar. Þar geta
hundruð kvenna fengið vinnu
við að þvo þvott borgarbúa.
Þvottavélar, uppvöskunarvélar
og önnur tæki sem stela vinnu af
fólki verða bannaðar. Með auk-
inni vinnu við frumatvinnuveg-
ina skapast meiri hagvöxtur - og
þess vegna verður handflakað í
frystihúsunum, handsáð í akrana
og þvotturinn handþveginn.
Í Reykjavík Aurasálarinnar verður
næga atvinnu að fá fyrir vinnu-
fúsar hendur og hagvöxtur því
framúrskarandi. Hamingjusamir
verkamenn ganga hnarreistir til
göfugra verka og koma sveittir
og þreyttir heim að kvöldi eftir
heiðarlega dagvinnu. Enginn
mun aka Cayenne jeppum því
allir spara með því að taka
strætó og lest.
Aurasálin skorar á lesendur sína
að ljá henni atkvæði sitt á laug-
ardaginn. „Aftur til fortíðar -
framtíðin er liðin tíð. X-Aur.“
Aurasálin í framboð