Fréttablaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 60
MARKAÐURINN F Ó L K Á F E R L I 24. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR20 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Skúlagata 17 101 Reykjvavík sími : 566 88 00 e-mail : vidskiptahusid@vidskiptahusid.is www.vidskiptahusid.is Til sölu er ein áhugaverðasta húsgagna- og gjafavöruverslun landsins. Verslunin er með mikið af góðum umboðum og hefur að skipa glæsilegu vöruúrvali og faglegu starfsfólki. Fyrirtækið hefur verið vel rekið og með miklum metnaði en fyrir liggja uppgjör og áætlanir til 20008 Nánari upplýsingar gefur Jóhann Ólafsson í síma 863-6323. Til sölu rótgróið framleiðslu- og þjónustufyrirtæki í sjávarútvegi. Félagið hefur ávalt verið rekið með hagnaði enda með góða vöru og hæft starfsfólk. Fyrir liggur skýrsla um félgið fyrir fjárfesta að skoða. Nánari upplýsingar gefur Jóhann Ólafsson í síma 863-6323. Til sölu innflutnings- og sölufyrirtæki á sviði véla og tækja. Félag með mikið af góðum merkjum og víðu sviði frá iðnaði og allt til sjávarútvegs. Vaxandi félag með mikla framtíðarmöguleika. Til sölu Innflutnings- og dreifingarfyritæki í efnageiranum. Gróið félag með góða afkomu sem auðvelt er að bæta við annað. Til sölu Fiskeldisstöð tilbún til rekstar. Erum með kaupendur af félagi: með innflutning eða framleiðslu á umbúðum. með innflutning og dreifingu á efnum og olíum. með innflutning og dreifingu á tölvum og tölvubúnaði. með innflutning og dreifingu fyrir heilsugeiran. Jóhann Ólafsson Löggiltur FFS. Viðskiptahúsið Skúlagata 17 s: 566 88 00 gsm: 863-6323 vidskiptahusid@vidskiptahusid.is Fyrirtæki - Atvinnuhúsnæði - Fasteignir - Skip - Aflaheimildir Aflaverðmæti íslenskra skipa á fyrstu tveimur mánuðum árs- ins nam 10,8 milljörðum króna og dróst saman um 16 prósent eða tvo milljarða á milli ára. Töluverð aukning varð í afla- verðmæti karfa og flatfisks á sama tíma, samkvæmt upplýs- ingum Hagstofunnar. Aflaverðmæti botnfisks var svipað og í fyrra eða 7,9 millj- arðar króna sem er 3 prósentum minna en fyrir ári. Verðmæti annarra tegunda hefur einnig dregist saman. Aflaverðmæti þorsks dróst saman um 4,8 prósent og nam 4,9 milljörðum en ýsu 1,4 milljörðum króna sem er 4,6 prósentum minna en fyrir ári. Aflaverðmæti karfa jókst um 10,7 prósent á milli ára og nam 800 milljónum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Þá jókst aflaverðmæti flatfisks um 39 prósent á milli ára en það nam jafn miklu og aflaverð- mæti karfa. Loðnuvertíðin var afar dræm og dróst verðmæti uppsjávar- afla saman um 49 prósent á milli ára. Þá nam aflaverðmæti loðnu 1,7 milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins en það er 2,2 milljörð- um krónum minna en í fyrra. Þrátt fyrir það jókst verðmæti loðnuhrogna mikið en það nam rúmum 300 milljónum króna. - jab LOÐNA Loðnuverðtíðin var afar slæm og dróst aflaverðmæti loðnu saman um 2,2 millj- arða króna á milli ára. MYND/VILHELM GUNNARSSON Aflaverðmæti minna á milli ára HELGA ÓLAFS hefur tekið við stöðu upplýsingafulltrúa Alþjóðahúss. Hún hefur umsjón með kynningarmálum og viðburðum, sem og upplýsingagjöf, tengslamyndun og fræðslu fyrir innflytj- endur og innfædda auk samskipta við fjölmiðla. Helga starfaði sem ritstjóri og ráðgjafi hjá AP almannatengslum frá árinu 2003 og ritstýrði Matartímanum, tímriti um mat og vín. Áður starfaði hún hjá Frjálsri fjölmiðlun, sem verkefnisstjóri og rit- stjóri undirvefja Vísis.is og á ritstjórn og markaðsdeild DV. Helga hefur lokið BA prófi í sálarfræði og stundar nú meist- aranám í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. IRMA MATCHAVARIANI starfar í túlka- og þýðingarþjónustu Alþjóðahúss. Irma hefur starfað sem rússneskukenn- ari við Háskóla Íslands, hjá Mími- símenntun og við Menntaskólann við Hamrahlíð. Hún hefur lokið BA-prófi í íslensku og er með doktorspróf í rússneskri málfræði og bókmenntum. ÍRIS BJÖRG Kristjánsdóttir er ritstjóri Alþjóðahúss. Hún ritstýrir og hefur umsjón með tíma- riti Alþjóðahúss, Eins og FÓLK er flest, sem kemur út ársfjórðungslega, og jafnframt póst- lista og vefsíðu Alþjóðahúss. Auk þess starfar hún við íslensku- kennslu á vegum Alþjóðahúss. Íris er með BA próf í mannfræði og bók- menntafræði og hefur undanfarin miss- eri stundað meistaranám í mannfræði við Kaupmannahafnarháskóla. Íris var áður efnisstjóri Strik.is, blaðamaður Vísis.is og blaðamaður og pistlahöfund- ur hjá Tölvuheimi. LUCIANO DUTRA er þjónustufulltrúi Alþjóðahúss og sér um að veita gest- um Alþjóðahúss almennar upplýsingar um innflytjendamál á Íslandi. Luciano stundar samhliða vinnu nám í íslensku og þýðingarfræði við Háskóla Íslands. Hann er menntaður grafískur hönnuður frá Brasilíu og starfaði áður hjá Amnesty International þar í landi. Hann talar portúgölsku, íslensku og spænsku. Launavísitala Hagstofu Íslands mældist 286,4 stig í apríl og hækkaði um 0,4 prósent frá fyrri mánuði. Vísitalan hefur hækkað um 8,4 prósentustig síðastliðna tólf mánuði. Verðbólga hefur á sama tíma mælst 6,5 prósent og kaupmáttur launa því aukist um tæp tvö prósent. Fram kemur í Morgunkornum Glitnis að 8,4 prósent hækkun launa á tólf mánaða tímabili teljist afar mikið í alþjóðlegum samanburði. Hins vegar hafi framleiðnivöxtur verið hraður og unnið á móti verðbólguáhrifum aukins launakostnaðar hjá fyrir- tækjum. -jsk Laun hækka hratt Launavísitalan hækkaði um 0,4% í aprílmánuði. BYGGINGARVERKAMENN Unnið við Laugardalsvöllinn. ����������������� ��������� ����������������� ��� ��� ���� �������������� ���� ������� ���������� ������ ��������� ��� ����� �� ������� ������������������������� ������ ������������������������ ��������������������������������������������� ������ ��� ������ �� ��� ������ ������� ����� ���� ���������� ����������������� ������ �������� ���� ��������� ������������������� ���� ������ �� ����������� ������ ��� �������������������������������������������� �������� ����������������������������������� ������������ �������������������������� ������������������ ������������������ AUGL†SINGASÍMI 550 5000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.