Mánudagsblaðið - 01.11.1971, Qupperneq 4
4
Mánudagsblaðið
Mánudagur 1. nóvember 1971
Vanþakklátt starf
Umsvifamiklir fjáraflamenn og
kaupahéðnar, eins og til dæmis
Pétur Pétursson, stórkaupmaður
með meiru, og Margrein Jón Magn
ússon, víxlari, sem tekizt hefur á
hendur það vanþakkláta verkefni
að ávaxta fé viðskiptavina sinna á
vinsælan hátt o. s. frv. löðuðust
ósjálfrátt að dr Hafþóri í bágind-
.um sínum, líkt og segullinn dregur
stálið.
Vantrú
Það er ekki heiglum hent að
ráða þær rúnir í hinni áhrifamiklu
yfirlýsingu doktorsins í Þjóðvilj-
anum, sem væntanlega eru tileink-
aðar þessum tveim ofangreindu
fjármálamönnum. Jafn örðugt er
einnig að leggja nokkurn trúnað
á, að þessi varfærnislegu orð dokt-
orsins geti átt við þá:
„Vegna dónaskapar, bótana og
ónœðis vissra ódceðis- og fjárglœfra
fugla og umboðsmanna þeirra und-
anfarin 7 ár — jafnt ncetur sem
daga — . ... en ég hefi jmist
reynt að ná rétti umbjóSenda
minna eða bjargað bágstöddum
mönnum og fvrmum undan fjár-
flógsmönnum og fjársvikurum ■..
Dr. Hafþór Guðmundsson
Framhald af 1. síðu.
og landslög við heiðraða lesendur
þessa blaðs.
Eg legg alla að jöfnu.
Það fer bezt á því að reyna að
njóta frjálsræðisins, meðan þess er
kostur, og Ieiða hjá sér málflutning
og lagaskýringar, þar til maður
neyðist til að mæta næst í rétti hjá
dómendum, sem skv. stjórnar-
skránni „skulu í embcettisverkum
sínum einungis fara eftir lögun-
unx" ....
Það er ekki hætt við að skyldu-
störfin láti í þeim efnum á sér
standa.
Ekki fyndni
Satt bezt að segja á ég mjög
erfitt með að leggja nokkurn trún-
að á-þá tilgátu sumra, að tilkynn-
ing dr. Hafþórs „til almennings og
fyrirtækja", eigi nokkuð skylt við
„humor".
A.m.k. verður varla hægt að
renna stoðum úndir það, að orða-
lagið og efnisvalið í tilkynning-
unni sé einskær fyndni, meiningar-
laus og græzkulaus og til þess eins
gerð, að létta af fólki hrattkomandi
skammdegi sdrunga.
Innheimta erfið
Eg hlýt því að taka með fullri
alvöru á þessu máli, jafnframt því,
sem ég tel sjálfsagt og nauðsynlegt
að leggja ríka áherzlu á þá stað-
reynd, að doktor Hafþór hefur um
allt að 25 ára skeið rekið lögfræði-
skrifstofu sína, jafnhliða öðrum
störfum, sem hann hefur ósjaldan
tekizt á hendur fyrir hið opinbera,
sem lögtaksfulltrúi o. fl Hafþór
Guðmundsson hefur verið mjögl
eftirsótmr lögmaður þeirra aðila,
sem þurft hafa á að halda dugleg-
um og ákveðnum lögmönnum til
að innheimta smáar og stórar fjár-
kröfur, sem skuldarar hafa eindag-
að og trássast við að greiða skuld-
areigendum.
enda oft hvorki þakkað fyrir, né
borgaður eyrir fyrir bjarganir millj-
ónaeigna .... þá tilkynnist hérmeð
hlutaðeigendum, að ég mun enga
björgunarstarfsemi reka framvegis
... o. s. frv. ..."
„Þá tilkynnist........“
Þessi sýnishorn úr margræddri
tilkynningu dr. Hafþórs sýnist mér
vera dæmigerð fyrir suma helztu
viðskiptamenn hans, og raunar
hann sjálfan, máske fyrst og síðast,
þegar þess er gætt, að meginmál
er það eitt' — að bjarganir milljóna
eigna undan fjárglæfrafuglum —
fjárplógsmönnum — fjársvikurum
og bágstöddum mönnum og firm-
um — valda því, að „þá tilkynnist
hér með hlutaðeigendum, að ég
mun enga björgunarstarfsemi reka
framvegis... "
Guði sé lof kunna einhverjir að
segja, en mörgum hlýtur að leika
talsverð forvitni á því að fá að vita
hversvegna „oft hvorki þakkað fyr-
ir né obrgaður eyrir fyrir bjarganir
milljónaeigna" .... eins og segir
í himnihrópi doktorsins í Þjóðvilj-
anum.
Til dæmis vil ég nefna í þessu
sambandi, að fyrir nokkrum árum
fannst mér sem ég sæi í enda hvar
fátækur og vinafár skjólstæðingur
minn í sakamáli væri eftir dóminn
reiðubúinn til að fljúga hraðbyri
á Guðs síns fund, þegar þar að
kæmi, en hins vegar þóttist ég jafn-
viss um að vængirnir á dómaranum
yrðu full stuttir og snoðnir, svo
hann myndi eigi flögra Iangt í senn
á leið sinni til Himnaríkis.
Hvað er að ske?
Hvaða fjárplógsmenn og fjársvik
arar hafa ofsótt bjargvættinn dr.
Hafþór í „hvíldarlausu amstri" hans
árum saman, bæði kostnaðarsöm-
um ferðum erlendis og hcettulegum
ferðum hérlendis, við að bjarga oft
milljónaeignum einhverra bág-
staddra manna og firma? í hvaða
tilgangi er þessi tilkynning doktors
Hafþórs birt í Þjóðviljanum? Eg
mun freista þess að fá þetta og
fleira upplýst.
Eg mun að þessu sinni ekki orð-
Iengja frekar. i bið afsökunar á
því, hve litlu ^5 hefi enn gert skil,
af marghátmðum og þróttmiklum
yfirlýsingum doktors Hafþórs í um-
ræddri auglýsingu hans, því ég
hefi ekki gert meir, en rétt reka
nefið í gættina hjá honum
Flótti og ófriður
Mér hefur ekki unnizt tími til
að skyggna.st um í forðabúri hans,
sem mest geyma ómælda fjármuni
að því er virðist, — auk líkams-
árása, slysfara, árása og ásókna,
sem neyddu doktorinn til að leggja
á flótta um óravegu — frá Skóla-
vörðuholti og alla leið upp í Máva-
hlíð (vinsamlegast hringið á gylltu
bjölluna). Þá greinir frá nauðungar
sölu skrifstofuhúsnæðis doktorsins,
svokölluðu viðreisnarhruni (í
miðju), hótunum nótt sem dag, af-
sögn bankagjaldkerans á millisam-
bandi símans (hjá þeim sem svar-
aði, þegar Hafþór var fjarverandi),
röskun á svefnfriði millisambands-
og heimilisins, viðskiptamanna-
hruni og lokun skrifstofunnar (sem
þó er enn opin milli kl. 4—5 nema
laugardaga) ....
Vissir sýslunarmenn (ónafn-
greindir), valda-aðilar (væntanlega
einkennisfatalausir) og Lögmanna-
félagið eru vændir um rógburð,
réttlausa framkomu og óvinsam-
lega afstöðu til doktorsins, sem m.
a. er talið hafa valdið slysatjóni og
byrirbyggt björgunarstarfsemi Haf-
þórs í framtíð og nútíð.
Sannarlega þarf að gera þessum
þáttum skil síðar.
Vel á minnzt — hefur Lögmanna
félagið engan trúnaðarlækni — eða
heimilislækni?
Guðlaugur Einarsson.
ADVORUN
um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila á
söluskatti.
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavik og heimild
í lögum nr. 10, 22. marz 1960, verður atvinnurekstur
þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem enn skulda
söluskatt frá fyrri tíma, stöðvaður, þar til þau hafa
gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum, ásamt
áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja
komast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar
til tollstjóraskrifstofunnar við Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn t Reykjavík.
21. október 1971.
Sigurjón Sigurðsson.