Fréttablaðið - 24.05.2006, Side 85
MIÐVIKUDAGUR 24. maí 2006 33
Skóhönnuðurinn margfrægi, Man-
olo Blahnik, hannaði skóna í nýj-
ustu kvikmynd Sofiu Coppolla.
Myndin ber nafnið Marie-Antoin-
ette og er með Hollywood-leikkon-
unni Kirsten Dunst í aðalhlutverki
og er frumsýnd á Cannes-hátíð-
inni. Blahnik er meðal fremstu
skóhönnuða í veröldinni og hefur
verið í bransanum í 35 ár. Það er
ekki algengt að svo frægir hönn-
uðir taki sig til og geri skó fyrir
kvikmynd en Blahnik ákvað að
gera það í þetta skiptið vegna þess
að sagan mun hafa verið í uppá-
haldi hjá móður hans. Aðdáendur
Manolos eru ekki af verri endan-
um en það eru til dæmis leikkonan
Sarah Jessica Parker og ofurfyrir-
sætan Naomi Campell. Söngkonan
Madonna er einnig mjög hrifin af
hönnun Blahniks og mun eitt sinn
hafa sagt að skórnir hans væru
betri en kynlíf.
Hannar fyrir
Coppola
MANOLO BLAHNIK Í ÖLLU SÍNU VELDI
Blahnik með sínum mesta aðdáenda,
leikkonunni Söruh Jessicu Parker sem lék
pistlahöfundinn Carrie Bradshaw í Beðmál
í borginni.
Það er betra að velja sér einn hlut og gera hann
vel en grauta í mörgu og gera allt illa. Þessi speki
flokkast trúlega undir „þjóðráð“ og kemur úr
reynslubanka kynslóðanna. Sannleiksgildið er hægt
að prófa á veitingahúsinu „Við fjöruborðið“ sem
starfrækt hefur verið á Stokkseyri í um áratug.
Þar er einfaldur matseðill: Humar, humar og
aftur humar, og valið stendur um hvort maður vill
hesthúsa 200, 300 eða 400 grömm.
Rétt er þó að taka fram að fyrir þá sem eru á
fljótandi fæði er hægt að fá humarsúpu, grænmet-
isætur geta fengið grænmetisrétt og fiskiféndur
lambasteik.
Sú einfalda hugmynd að bjóða gestum ein-
göngu upp á mesta lostætið sem kemur upp úr
geðstirðu en gjafmildu hafinu umhverfis okkur
reyndist snjallræði; hvað getur verið betra en það
besta sem hafið hefur upp á að bjóða?
Þangað til Við fjöruborðið tók til starfa var fátítt
að fólk ætti leið til Stokkseyrar, nema þá í þeim
göfuga tilgangi að rifja upp smæð sína og hugsa
um forgengileik mannlegrar tilveru við að horfa á
brimið við ströndina. Nú er Stokkseyrarhumarinn
lofsunginn frá Hong Kong til Höfðaborgar – þótt
hann sé ýmist frá Hornafirði eða Keflavík.
Við fjöruborðið er í húsaþyrpingu sem skáldað
hefur verið saman með vaxandi aðsókn ásamt
ótrúlega endingargóðu tjaldi frá Seglagerðinni.
Hvort sem manni finnst innréttingin ljót eða falleg
eða fallega ljót endurspeglar staðurinn endalausan
margbreytileika hins íslenska stílleysis.
Vingjarnlegt viðmót mætir gestum, maturinn
er góður og þegar maður er búinn að súpa úr
kaffibollanum og klára hnallþóruna er manni farið
að þykja innréttingin notaleg; þá er maður kominn
í humar-vímu.
Vímugjafinn sjálfur er smjörsteiktur og borinn
fram í soðinu. Meðlætið er tómatsalat og „cous-
cous“. Auk þess fljóta nokkrar kartöflur í soðinu,
sennilega í þeirri trú að Íslendingar séu kartöflufíkl-
ar. Kartöflur eru samt ekki ástæðan fyrir vinsældum
staðarins heldur sú staðreynd að humarinn er
rétt matreiddur. Það eru 99 prósenta líkur á því
að humarinn þarna sé rétt steiktur. Það veit ég af
reynslu. Síðast munaði að vísu mjóu – humarinn
hefði hvorki þolað augnablikssteikingu né eitt
einasta saltkorn til viðbótar.
En það slapp. Herleg máltíð.
Aðstoðarmenn mínir drukku ýmist hvítvín eða
rauðvín hússins og létu vel af. Íslenskt kranavatn
gengur með öllum mat og bragðast vel.
Á eftir kom svo gott espresso-kaffi og heima-
bökuð púðursykursnickersogrjómahnallþóra,
tíuþúsund megakalóríur að minnsta kosti – en rétt
terta á réttum stað á réttum tíma.
300 grömm af humri 3.100 kr. Skammtur af
meðlæti 590, espresso 250 kr., hvítvínsglas vel
útilátið 700 kr. og hnallþóran 590.
Máltíð fyrir tvö samtals 9.755 kr. Ég var saddur
og sæll – og dauðfeginn að þetta skyldi þó ekki
fara yfir tíu þúsund kallinn – þá átti maður fyrir
bensíni í bæinn.
MEÐ HNÍF OG GAFFLI ÞRÁINN BERTELSSON SKRIFAR
Humarvíma og kartöflufíkn
Við fjöruborðið
Eyrarbraut 3a 825 Stokkseyri
Notalegt umhverfi Fín þjónusta Góður matur
Staðir geta mest fengið þrjú tákn í hverjum flokki.
Hljómsveitin Ska-deildin spilar á
Grandrokki í kvöld. Sveitin, sem
er hliðarverkefni pönkhljóm-
sveitarinnar Taugadeildin, spilar
bæði gömul ska-lög og eigin tón-
smíðar.
Í Ska-deildinni eru sjö tónlist-
armenn, þar af tveir blásarar.
Hölt hóra hitar upp í kvöld og
hefjast tónleikarnir klukkan
22.00.
Ska-deildin
treður upp
TAUGADEILDIN Ska-deildin er hliðarverk-
efni pönkhljómsveitarinnar Taugadeildin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A