Fréttablaðið - 24.05.2006, Page 91
MIÐVIKUDAGUR 24. maí 2006 39
mið. 24. maí kl. 19:15
mið. 24. maí kl. 20:00
fim. 25. maí kl. 16:00
fim. 25. maí kl. 19:15
fim. 25. maí kl. 20:00
KR - Fylkir
Grindavík - Keflavík
Víkingur - Breiðablik
ÍBV - Valur
FH - ÍA
þri. 30. maí kl. 19:15
þri. 30. maí kl. 19:15
þri. 30. maí kl. 19:15
þri. 30. maí kl. 19:15
Fylkir - Valur
Breiðablik - FH
KR - Keflavík
Þór/KA - Stjarnan
3. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA
3. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA
410 4000 | landsbanki.is
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
28
58
05
/2
00
6
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
28
58
05
/2
00
6
Tryggðu þér miða á betra verði á
landsbankadeildin.is eða ksi.is
1. deild karla:
VALUR - ÞÓR/KA 6-0
1-0 Katrín Jónsdóttir (3.), 2-0 Margrét Lára Við-
arsdóttir (17.), 3-0 Margrét Lára Viðarsdóttir (28.),
4-0 Margrét Lára Viðarsdóttir (37.), 5-0 Tatjana
Matilier (66.), 6-0 Katrín Jónsdóttir (83.).
STJARNAN-KR 2-1
1-0 Helga Jóhannesdóttir (18.), 1-1 Katrín Ómars-
dóttir (53.), 2-1 Björk Gunnarsdóttir (89.).
KEFLAVÍK-BREIÐABLIK 1-3
FH-FYLKIR 0-3
STAÐAN
1. VALUR 2 2 0 0 12-0 6
2. BREIÐABLIK 2 2 0 0 7-1 6
3. FYLKIR 2 1 0 1 3-2 3
4. KEFLAVÍK 2 1 0 1 3-3 3
5. ÞÓR/KA 2 1 0 1 4-7 3
6. STJARNAN 2 1 0 1 2-7 3
7. KR 2 0 0 2 1-6 0
8. FH 2 0 0 2 1-7 0
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HANDBOLTI Kiel tryggði sér þýska
meistaratitilinn í handbolta í tólfta
sinn frá upphafi, en þá sigraði
liðið Lemgo á heimavelli sínum
örugglega, 37-29. Það var reyndar
ekki sigurinn sem tryggði Kiel
endanlega sigur í deildinni því
skömmu áður hafði Flensburg
tapað nokkuð óvænt fyrir Kroneu-
Östrigen, 26-24, og misst þannig af
síðasta möguleikanum til að ná
Kiel að stigum. Það hefði þó engu
máli skipt þar sem Kiel sigraði í
sínum leik, eins og áður segir.
Ásgeir Örn Hallgrímsson kom
lítið við sögu hjá Lemgo í leiknum
og náði ekki að setja mark sitt á
leikinn og Logi Geirsson sat allan
tímann á varamannabekknum þar
sem hann hefur átt við veikindi að
stríða og þótti engin ástæða til að
taka óþarfa áhættu með hans
heilsu.
Kiel hefur hlotið 60 stig eftir 32
leiki og hefur sjö stiga forystu á
Gummersbach þegar flest liðin í
deildinni eiga tvo leiki eftir
óleikna. Flensburg er í þriðja sæti
með 52 stig en Magdeburg og
Lemgo koma næst, bæði með 48
stig. Þessi fimm lið hafa mikla
yfirburði í deildinni en næst
kemur Nordhorn með 34 stig.
- vig
Þýski handboltinn:
Kiel meistari í
tólfta sinn
FÓTBOLTI Valsstúlkur áttu ekki í
miklum erfiðleikum með að leggja
Þór/KA af velli á heimavelli sínum
í Laugardal í gær. Eins og við var
að búast voru yfirburðir Vals mikl-
ir og hefði sigurinn vel getað orðið
nokkuð stærri.
Aðstæður voru erfiðar á Val-
bjarnarvellinum í gærkvöldi,
strekkingsvindur og mjög kalt, en
á móti vindinum í fyrri hálfleik
gerðu Valsstúlkur út um leikinn
með fjórum mörkum, þar af þrem-
ur frá Margréti Láru. Norðan-
stúlkur sýndu ágæt tilþrif á köfl-
um en hinir ungu leikmenn liðsins
máttu síns lítils gegn þrautreynd-
um leikmönnum Vals. Í síðari hálf-
leik bætti Tatjana Matiler við
fimmta marki Vals og Katrín Jóns-
dóttir því sjötta, og jafnframt sínu
öðru marki í leiknum. Lokatölur
urðu 6-0 og sitja Valsstúlkur á
toppnum eftir tvo fyrstu leiki
sumarsins. - egm
Landsbankadeild kvenna:
Auðvelt hjá Val
gegn Þór/KA
GLATT Á HJALLA Valstúlkum leiðist ekki að
fagna mörkunum sínum og á því var engin
undantekning í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Strekkingsvindur gerði
leikmönnum erfitt fyrir á Stjörnu-
velli í gærkvöldi og meira að segja
gekk illa að taka spyrnur í föstum
leikaðferðum vegna duglegs
blásturs Kára. Þetta kom niður á
gæðum leiksins en leikmönnum
gekk illa að halda boltanum niðri,
og þar með innan sinna liða.
Stjörnustúlkur komust yfir á
átjándu mínútu þegar Helga
Jóhannesdóttir skoraði gott mark
með skalla eftir aukaspyrnu. Bæði
lið höfðu skapað hættur upp við
mark andstæðinganna en hvorugt
liðanna náði almennilegum tökum
á leiknum. Stjörnustúlkar voru
ítrekað dæmdar rangstæðar en
gestunum úr Vesturbænum gekk
illa að skapa sér færi. Stjörnu-
stúlkur spiluðu undan vindi í fyrri
hálfleik og eftir hann höfðu þær
1-0 yfir. KR-stúlkur sóttu í sig
veðrið undan vindinum í síðari
hálfleik og uppskáru snemma
jöfnunarmark þegar Sandra Sig-
urðardóttir missti fyrirgjöf Katr-
ínar Ómarsdóttur klaufalega í
netið. Olga Færseth skaut í slána
og gestirnir sóttu án afláts undan
vindinum en komu boltanum ekki
inn fyrir línuna.
Það voru aftur á móti Stjörnu-
stúlkur sem stálu sigrinum á loka-
sekúndum leiksins þegar Björk
Gunnarsdóttir slapp ein inn fyrir
vörn KR, fór í kringum Sigrúnu
Ingólfsdóttur markmann og lagði
boltann snyrtilega í stöngina og
inn.
„Ég lít ekki svo á að við höfum
stolið sigrinum en við getum
orðað það sem svo að ég vildi ekki
vera KR-ingur núna,“ sagði glað-
beittur fyrirliði Stjörnunnar,
Harpa Þorsteinsdóttir, eftir leik-
inn en gestirnir lágu eftir vegna
svekkelsis við markið og loka-
flautuna. „Það voru mjög erfiðar
aðstæður hérna og það lið sem
var undan vindinum sótti nánast
allan tímann, leikurinn var því
mjög kaflaskiptur eftir hálfleikj-
um. En það var rosalega sætt að
taka þetta,“ sagði Harpa að
lokum. - hþh
KR byrjar mjög illa í Landsbankadeild kvenna:
Stjörnusigur í miklu hávaðaroki
FÖGNUÐUR Leikmenn Stjörnunnar fagna
hér Helgu Jóhannesdóttur eftir að hún
hafði komið Stjörnunni í 1-0 í Garðabæn-
um í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN