Tíminn - 18.11.1977, Síða 9
Föstudagur 18. nóvember 1977
9
Nýr sjúkrabíll
í Reykjavík
Keykjavikurdeild Rauða kross
tslands afhcnti Slökkviliði
Reykjavíkur til afnota nýja
sjúkrabifreiö af Chevrolet-gerð.
Er þetta annar bfllinn á þessu ári
sem Reykjavikurdeildin afhend-
ir. Bifreiðin er mjög vel tækjum
búin. Bilnum, sem var afhentur
fyrr á árinu, hefur verið ekið tæpa
75.000 km, en meðaltal útkalla i
sjúkraflutninga eru 30 útköll á
sólarhring. Slökkvilið Reykjavik-
ur hefur nú fjóra bila til afnota.
Myndin er tekin er Ragnheiður
Guðmundsdóttir læknir afhendir
bflinn Gunnari Sigurðssyni vara-
slökkvistjóra.
Samtök grásleppu-
hrognaframleiðenda
Laugardaginn 12. nóvember sl.
voru stofnuð i Íteykjavík samtök
grásleppuhrognaframleiðenda
hér á landi. Samkvæmt lögum
samtakanna starfa þau sem
almennt hagsmunafélag fram-
leiðenda grásleppuhrogna og
skulu gæta réttar félagsmanna
sinna i hvivetna. Skal félagið
beita sér fyrir öflun nýrra mark-
aða, vinna að vöruvöndun og
stuðla að hverju þvi máli, sem
verða má framleiðslu félags-
manna til framfara og eflingar.
Félagið annast eða semur um
sölu á framleiðslu félagsmanna
sinna, þeirra er þess óska. Þá
mun félagið útvega viðskipta-
mönnum sinum umbúðir, salt og
aðrar nauðsynjar til framleiðsl-
unnar.
Ennfremur mun félagið koma
fram sem fulltrúi félagsmanna
við verðákvarðanir.
Félagar geta orðið allir fram-
leiðendur grásleppuhrogna og út-
gerðarmenn, sem gera út á grá-
sleppu, enda ráði hver þessara
aðila yfir að minnsta kosti 10
tunnum af grásleppuhrognum.
Þeir félagsmenn sem óska eftir
sölu i gegnum félagið, skulu til-
kynna það magn, sem þeir vilja
selja, til félagsstjórnar fyrir 15.
febrúar ár hvert.
1 stjórn félagsins voru kosnir:
Björn Guðjónsson, Reykjavik,
Guðbrandur Kristvinsson,
Ströndum, Guðmundur Hólm-
geirsson, Húsavik, Henning Hen-
riksen, Siglufirði, Karl Agústs-
son, Raufarhöfn, Rögnvaldur
Einarsson, Akranesi, og Sigur-
steinn Húbertsson, Hafnarfirði. 1
varastjórn voru kosnir: Helgi
Kristjánsson, Reykjavik, Haf-
steinn Guðmundsson, Flatey,
Auðunn Benediktsson, Kópaskeri,
Skarphéðinn Árnason, Akranesi,
Jón Marteinsson, Vogum, Ragnar
Hermannsson, Húsavik og Birgir
Guðjónsson, Kópavogi.
Á stofnfundinum var eftirfar-
andi samþykkt gerð með sam-
hljóða atkvæðum:
„Stofnfundur samtaka grá-
sleppuhrognaframleiðenda hald-
inn I Reykjavik 12. nóvember
1977, mótmælir harðlega þeirri
sérstöku skattlagningu sem
framleiðendur grásleppuhrogna
hafa orðið að búa við undanfarin
fimm ár með töku 6% útflutnings-
skatts af framleiðslu þeirra sem
látinn hefur verið renna að mestu
til óskyldra aðila i þjóðfélaginu.
Þess er krafizt að skattlagning
þessi verði þegar i stað lögð niður
i lok gildistimans, sem upphaf-
lega var ákveðinn i árslok 1977.
Þá er skorað á hlutaðeigandi
stjórnvöld að gera nú þegar sund-
urliðaða grein fyrir ráðstöfun
þeirra næstum 150 millj. króna,
sem framleiðendur grásleppu-
hrogna hafa greitt i Þróunarsjóð
lagmetisiðnaðarins undanfarin 5
ár, og jafnframt bent á það sann-
girnismál að réttum eigendum
þessa fjár verði skilað þvi til
baka.”
Frá heilbrigðis-
eftirliti ríkisins
Af gefnu tilefni tilkynnist,
að símanúmer okkar er
81844
og heimilisfang
Síðumúli 13
28*EGjegílJ[jJ
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla
ndunnið sett
I: fra
GLIT
GLÆSILEG
GJÖF
Sparið $ 70.000 á ári við
mjölframleiðslu úr
20 tonnum af fiski á klst.
Með Rosenblads mótþrýstisoðkjarna-
tæki fyrir soðvatnið er unnt að minnka
olíukostnaðinn í fiskmjölsverksmiðju
yðar allverulega.
Við fiskmjölsframleiðsluna eru sjóðarinn
og þurrkarinn olíufrekastir. Rosenblads
mótþrýstisoðkjarnatækið vinnur við það
hátt hitastig, að gufan frá verksmiðjunni
hefur nægilega háan þrýsting til að vera
nýtanleg sem vinnslugufa.
Með því að nýta mótþrýstingsgufuna frá
þurrkaranum hverfur þörfin fyrir
stöðuga aðfærslu nýrrargufu til
sjóðarans.
Við vinnslu 20 tonna af fiski á klst.
sparast þannig um 700 m3 af brennsluolíu
á ári miðað við 2.500 vinnslustundir.
Miðað við að olíuverðið sé um $ 100/m3
gerir þetta árlegan sparnað nálægt
$70.000.
Sendið eftir frekari upplýsingum.
Þá fáið þér að vita meira um það. hvernig mótþrýstisoðkjarnatækið
getur hjálpað yður að spara orku, á sama hátt og viðskiptavinir
okkar gera nú þegar í ca 40 verksmiðjum.
OC ROSENBLADS
ALFA-LAVAL GROUP
Fack, S-10052 STOCKHOLM, Sverige.
Umboð á Islandi:
Landssmiðjan
Sölvhólsgötu
101 Reykjavík
Sími: (91)20680(10 línur)
Telex: 2207 GWORKS IS
| □ Vinsamlegast sendið oss eintak af upp-
lýsingabæklingi yðar um soðkjarnaaðferðina
ásamt tilvísunarlista yðar.
J □ Vinsamlegast hafið samband við oss.
| Nafn_______________________________________
r
i
| Heimilisfang
j^Simi________
Fyrirtæki