Tíminn - 01.12.1977, Page 3
Fimmtudagur 1. desember 1977
3
Iceland Froducts:
Salan 46,9 mill-
jónir dollara
fyrstu 9 mánuðina
■mh
Fiskréttaverksmiöja Iceland Products Inc. I Harrisburg I Bandarlkjunum.
Starfsfólki sagt upp
vegna hráefnisskorts
í frystihúsinu á Stokkseyri
GV — Fastráðnu starfsfólki i
frystihúsinu á Stokkseyri var sagt
upp i gær með viku fyrirvara og i
þvi sambandi hafði Timinn tal af
Ásgrimi Pálssyni framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins. Hann sagði
að þetta væru 20 manns og að
fastráðningarsamningum hefði
verið sagt upp vegna hráefna-
skorts.
— Það er mjög viða sem þetta
er tiðkað þegar ekki fæst hráefni
og við eigum við árstiðabundinn
hráefnaskort að striöa og er þetta
ekkert óalgengt. — Það liggur i
hlutarins eðli þegar hráefni fæst
ekki þá er ekki hægt aö vinna. Ég
veittilþessað á Akranesi er þetta
gert 10-20 sinnum á hverju sumri.
Páll Bjarnason verkstjdri sagði
isamtali viðblaöið i gær, að þetta
væri varúðarráðstöfun og ef hrá-
efni væri komið i tæka tið, héldi
vinna áfram eins og ekkert hefði i
skorizt.
áþ — Fyrstu niu mánuöi yfir-
standandi árs jókst sala Iceland
Products f dollurum um 26% miö-
að viö sama tímabil fyrra árs.
Saian greinist sem hér segir i
milljónum dollara:
9mán 9mán Breyting
Fisk-
réttir 16.8 22.6 aukn: 35%
Flök 15.5 20.3 aukn: 31%
Annað 4.8 4.0 samdr: 17%
Samt. 37.1m/$46.9m/$aukn: 26%
Að magni er salan svipuð og ár-
ið áður, og er þvi ljóst að rekja
má aukninguna til verðhækkana.
Það sem af er þessu ári hefur
eftirspurn Iceland Products eftir
flökum, einkum þorskflökum,
verið miklum mun meiri en unnt
hefur verið að anna, og þó er
framleiðsluaukning i þorskflök-
um yfir 40% i októberlok.
Það kemur fram i sambands-
fréttum að söluaukning hjá Ice-
land Products hefði orðið mun
meiri, ef hægt hefði veriö að hafa
til reiðu öll þau fiskflök, sem við-
skiptavinir fyrirtækisins vildu
kaupa. Allt árið 1976 varð velta
Iceland Products 45,5 milljónir
dollara, og vantar þvi ekki mikiö
upp á, að veltu alls fyrra árs sé
náð i lok september 1977.
Frá þvi i janúar á s.l. ári og
fram til september á yfirstand-
andi ári hefur þorskur í blokkum
hækkað úr 60 sentum i 105 sent,
ýsa hefur hækkað um sömu upp-
hæð og ufsi úr 38sentum i 65sent.
Miðað er við blokkapakkningar
og cif verð.
A sama tima hefur verðþróun i
flökum verið heldur lægri. Þorsk-
ur hefur hækkað úr 94 sentum i
114 og steinbitur úr 96 i 114 sent.
Seiðamagnið
í rækjuafla eykst í
slæmum veðrum
GV- Þaö hefur veriö mikiö seiöamagn I öxarfiröi en rækjan
hefur haldiö sig I torfum aöskilin frá seiöunum þegar sjórinn er
stilltur og þvf hefur sjómönnum veriö óhætt hingaö til aö draga
trolliö I gegnum rækjutorfuna sagöi Guöni Þorsteinsson fiski-
fræöingur I viötali viö Timann I gær, en eins og kunnugt er hefur
þurft aö gripa til þess ráös aö loka rækjusvæöinu á öxarfiröi I
eina viku.
Eftir slæm veður eins og hafa verið núna undanfarið á þessum
slóðum eykst seiðamagnið svo i hverju togi að þurft hefur að loka
svæðinu samkvæmt þeim viðmiðunarreglum sem hafa verið
settar.
Guðni sagði aö það hefði litla þýðingu að skipta svæðinu niður
þvi aö þetta geti snúizt við á svo stuttum tima. Þvl væri tekiö til
þess að loka svæðinu öllu I einu. Svæðið veröur kannað eftir
helgi.
SKAGASTRÖND:
Hálft hundrað at-
vinnulaus vegna
stöðvunar Arnars HU
áþ----Eins og mönnum er eflaust hann á Akureyri. A afla togarans
ifersku minni.brann Arnar HU 1, byggist starfsemi frystihússins á
þar sem verið var aö gera viö Skagaströnd og nú eru forráöa-
Þingverkamanna-
sambandsins
á morgun
8. þing Verkamannasambands
islands veröur haldiö að Hótel
Loftleiðum dagana 2.-4. desem-
ber n.k. Hefst þinghaldið kl. 14 á
morgun föstudaginn 2. desember
i Verkamannasambandi is-
lands eru nú 46 verkalýösfélög
með samtais um 20 þúsund
félagsmeml.
Rétt til þingsetu eiga um 110
fulltrúar.
Formaöur sambandsins er
Guömundur J. Guömundsson.
Skagstrendingar eru aö þreifa fyrir sér um aö fá afla af öðrum togurum
meöan skip þeirra er I viögerö á Akureyri.
Launajöfnunarstefnan rædd í Verðlagsnefnd:
Alþýðusambandið
og vinnuveitendur
JS — Samkvæmt heimildum
sem blaöiö hefur aflað sér urðu
miklar umræöur á fundi Verð-
lagsnefndar i gærmorgun, þeg-
ar fjallaö var um hækkanir á
veröi útseldrar vinnu nú um
mánaöamótin vegna þeirra
kauphækkana sem veröa frá og
meö desemberbyrjun.
Gera má ráö fyrir þvi, að kaup
sveina hækki að jafnaðium sem
næst 13% nú i desember. Um
það varað ræða i Verðlagsnefnd
hvort meistarar skyldu fá 10%
hækkun álagningar jafnframt.
Menn minnast þess, að i hin-
um almennu kjarasamningum
sl. vor var kveðið á um það að
2.5% yrðu tekin í svo kallaöar
sérkröfur einstakra félaga og
landssambanda. Iðnaðarmenn -
sömdu hins vegar sin i millum
flestir um það að brjóta gegn
þeirri launajöfnunarstefnu sem
á móti
i þessu fólst, og tóku sér allt að
10% i sérkröfurnar. M.a. átti
þetta við um rafverktaka og
málm- og skipaiðnaðinn.
Hefur verið höfðað mál gegn
meisturum i þessum greinum
vegna þess að þeir hækkuðu
taxta sina vegna útseldrar
vinnu i samræmi við þessa sér-
samninga.
Afturá móti fylgdu bygginga-
menn ákvörðunum Verðlags-
nefndar, sem hún hafði tekið i
kjölfar almennu kjarasamning-
anna.
í júli sl. var fjallað um þessi
mál i Verðlagsnefnd og var þá
samþykkt meö atkvæðum laun-
þegafulltrúa og oddamanns, að
samningar iðnaðarmanna inn-
byröis, sem brytu i bág við al-
mennu kjarasamningana,
skyldu ekkiganga út i verðlagið
aðþvi er snerti umframhækkun
fram yfir það sem leiddi af al-
mennu samningunum, heldur
skyldu meistarar taka þá við-
bótarhækkun á sig sjálfir.
I gærmorgun bar þessi mál
aftur á góma i Verðlagsnefnd.
Kom þar fram tillaga um að
byggingamenn fengju nokkra
leiðréttingu vegna þess að þeir
hafa fylgt launajöfnunarstefnu
almennu kjarasamninganna frá
i vor.
Er þessi tillaga hafði komið
fram gerðust þau einkennilegu
tiðindi, samkvæmt upplýsing-
um blaðsins, að fulltrúi laun-
þega, Snorri Jónsson, varafor-
seti Alþýðusambandsins, og
Baldur Guðlaugsson, fulltrúi
vinnuveitenda, sameinuðust um
að gera tillögu um það, aö leiö-
réttingin skyldi gilda um alla
útselda vinnu iönmeistara.
Lögðu þeir mikla áherzlu á þaö
að málið yrði afgreitt um hæl,
enda vitað að almenningur og
einkum láglaunafólkið una þvi
illa, að launajöfnunarstefnunni
verði kastað fyrir róða.
Urðu miklar umræður og deil-
ur um þessa tillögugerö á fundi
Verðlagsnefndarinnar. Ekki
tókst þó samfélagi Alþýðusam-
bandsins og Vinnuveitendasam-
bandsins að reka málið i gegn
áður en rönd yrði við þvi reist,
þvi að formaður nefndarinnar
mun hafa frestað málinu og slit-
ið fundi.
menn þess að athuga hvort hægt
muni vera aö fá afla togara i ná-
grannabyggöum til vinnslu. Rétt
um 50 manns er atvinnulaus
vegna stöðvunar Arnars HU. Tal-
iö er liklegt aö viðgerö á togaran-
um Ijúki um mánaöamótin janú-
ar-febrúar.
— Engin kvennanna sem unnu i
frystihúsinu hafa fengiö nokkra
vinnu annars staðar sagöi Lárus
Guðmundsson sveitarstjóri i
samtali viö blaðið. — Hluti karl-
mannanna hefur hins vegar verið
aö mála og vinna að endurbótum i
frystihúsinu. Einn linubátur legg-
ur upp hjá frystihúsinu en það
hefur litið að segja enda hafa
gæftir verið stirðar.
Þegar hefur verið athugað með
að fá hingað fiskfarma af öðrum
togurum sagði Lárus og að eink-
um hefðikomið til greina að leita
til Siglufjaröar, Sauðárkróks eöa
útgerðarstaða á Vestfjörðum.
Viðrannsókn á skemmdum um
borð i Arnari HU kom í ljós að
þær voru mun meiri en gert var
ráð fyrir i upphafi. Fyrst var
haldið að einungis þyrfti að gera
við eldhús og borðstofu en siöar
þurfti að rifa innréttingar úr öll-
um hásetaklefunum. Þá þurfti að
skipta um fjóra fermétra i hlið
togarans. Ekkert hefur komið i
ljós um eldsupptök. Um tveir
mánuðir munu liða þar til viðgerð
lýkur.
Bóndi
höfuð-
kúpu
brotnar
GG-Stóra-Hofi. — Fyrir nokkrum
dögum varö þaö slys hér i sveit-
inni aö bóndinn I Stóru-Mástungu,
Höröur Bjarnason, höfuökúpu-
brotnaöi. Var liann fluttur I
Borgarspitalann í Reykjavik og
er hann nú á batavegi.
Slysið varð er hann var að elt-
ast við geldneyti á túninu i Stóru-
Mástungu ásamt fleira fólki.
Höfðu geldneytin gengið úti á
heiðum i sumar og voru óstýrilát
og ekki mannvön.
í eltingaleiknum réöst ein kvig-
an á Hörð og varpaði honum á
höfuðið á freðna jörðina með
þeim afleiðingum, sem áður get-