Tíminn - 01.12.1977, Síða 4
4
Fimmtudagur 1. desember 1977
„Ef ég hefði ekki vitað
það/ að Guð er til/ mundi ég
hafatrúaðá hestana mina"/
sagði eyfirzki bóndinn Frið-
rik i Kálfagerði/ og skáld-
jöfurinn Einar Benedikts-
son sagði: //Göfugra dýr en
góðan islenzkan hest getur
náttúranekki leitt fram".—
Þannig hafa tilfinningar Is-
lendinga til hestsins ávallt
verið og eru enn og sér þess
víða merki. I riki hestsins
undirstrikar sterklega orð
þessara manna. Þar eru
leiddir fram fræðimenn og
skáld/ sem vitna um sam-
skipti hestsins/ mannsins og
landsins/ og víða er vitnað
til ummæla erlendra ferða-
manna. Bókin mun halda at-
hygli hestamannsins
óskíptri, eins og hófatakið eða jóreykurinn, hún mun ylja og
vekja minningar, hún er óþrjótandi fróðleiksbrunnur
hverjum hestamanni, heillandi óður til islands og íslenzka
hestsins.
Japönumfellur
vel við ísl.
hrefnukjöt
áþ- SiðastliöiB sumar fékk
Sjávarafurðadeild SIS japanska
sérfræðinga hingað til lands til að
kenna nokkrum framleiðendum
að skera hrefnu, flokka og frysta
kjötið fyrir Japansmarkaö.
Það kemur fram i Sambands-
fréttum, að litið magn var flutt út
itilraunaskynihaustið 1976og féll
það kaupendum vel i geð. Siðast-
liðið sumar var þessari tilraun
haldið áfram og segja má að
magnið hafiaðeins takmarkazt af
naumum veiðikvóta. Af hálfu
framleiðenda virðist áhugi
fyrir framhaldi á þessum við-
skiptum. Nú er rengið flutt út til
manneldis en áður nýttist það litt
eða ekki.
Ný bók frá Skuggsjá
Hér er góðurandi
— eftir Kormák Sigurðsson
F.I. — Hér er góöur andiheitir ný
bók eftir Kormák Sigurðsson og
er hún um mikilvægi fagurra
hugsana og gildi hins góða. 1 bók-
innu eru frásagnir og viðtöl um
sálfarir, hugboð, gagnmerka
drauma og önnur dulræn efni,
ásamt spjalli við völvuna Þor-
björgu Þórðardóttur.
Kaflaheiti i fyrri hluta eru m.a.
Lagt af stað, Guðsmenn og
geislabaugar, Dulskyggna konan.
t þeim siðari: Rabbað við Lúther
i Austurbæjarskólanum, Draum-
ar og veruleiki, Litið inn á Hrafn-
istu og Morgunrabb viö módel-
smið.
Hér er góður andi er gefin út
hjá Skuggsjá og hún er 150 blað-
siður að stærð.
prtr'-r
bílabrautin
Einn fremsti dansflokkur, Norðurlanda
Maria VVolska I hlutverki Sölku
Völku.
félagar islenzka dansflokksins
hafa forkaupsrétt að aðgöngu-
miðum á miðvikudag en bent skal
á enn að sýningar flokksins eru
sitt hvort kvöldið.
er sú bílabraut, sem hvað mestum vinsældum
hefur náð. Meginástæðan er sú að
endalaust er hægt að stækka brautina
sjálfa og hægt er að kaupa
aukahluti til stækkunar
og endurnýjunnar.
hátíð stúdenta
SSt-Stúdentar eru með 1. des.-
hátið sina i Háskólabiói i' dag,
fullveldisdaginn eins og venja
hefur verið. Dagskráin i dag
verður helguð kvenfrelsisbarátt-
unni samkvæmtniðurstöðu 1. des.
nefndar. Hdtiðin hefst kl. 14.
Ræðumenn á hátiðinni verða
Bjarnfriður Leósdóttir verkakona
og Silja Aðalsteinsdóttir kennari.
Inn I dagskrána flétta stúdentar
svo ýmsu efni, lesið verður upp og
stuttir leikþættir fluttir. Þá
syngur Olga Guðrún og einnig kór
Alþýðumenningar og hljómsveit-
in Eik leikur.
Að dagskrá lokinni verður opið
hús i Félagsstofnun stúdenta og
þar verður boðið kaffi og með þvi
og létt efni flutt. — l.-des. nefnd
efnir svo til dansleiks i kvöld i
Sigtúniog byrjar hann kl. 21. Þar
leikur hljómsveitin Eik fyrir
dansi og Megas kemur fram.
Sýnir Sölku Völku
í Þjóðleikhúsinu
FI. — Finnski dansflokkurinn
Raatikko sem vakið hefur vax-
andi athygli siöustu ár og spáð er
stórum frama, vcrður gestur
Þjóðl cikliússi ns næstkomandi
þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld. Mun flokkurinn sýna hér
tvö verk byggð á frægum skáld-
sögum. Erhér um aö ræða Valda-
laust fólk, leikdans byggðan á
skáldsögu Vainö Linna Undir Pól-
stjörnunni og ballett um Söæku
Völku Halldórs Laxness. Fyrri
sýningin Valdalaust fólk er um
ein og hálf klukkustund og byrjar
á þeim óvanalega tima 19:30.
Ballettinn um Sölku Völku verður
aftur á móti sýndur siöara kvöld-
ið. Hann tekur rúmar tvær
stundir og byrjar kl. 20.00.
Raatikko dansflokkurinn hefur
mest sýnt i heimalandi sinu og
annars staðar á Norðurlöndum,
en eftir öllum sólarmerkjum að
dæma á hann eftir að ferðast um
öll lönd heims. Tilboð streyma til
flokksins og gagnrýnendur hafa
hlaðið lofi á sýningar hans að
undanförnu, ekki sizt þær sem hér
verða dansaðar.
Norrænir gagnrýnendur sögðu
ma. um Sölku Völku að sýningin
einkennist af ferskleika og krafti,
hraða og öryggi. Raatikko væri
einstæður dansflokkur. (blöð i
Tampere) Sviar segja Raatikko-
sýningar þær beztu sem sézt hafa
á sviði listdansins i þeirra heima-
landi og svo mætti lengi telja.
Aðaldansahöfundur sýning-
anna er ein úr flokknum: Marjo
Kuusela, tónlist við bæöi verkin
er eftir Kari Rydman en helzti
dansari flokksins er Maria
VVolska hún dansar bæði Sölku
Völku og Elmu aðalkvenhlut-
verkið i Valdalausu fólki. í
Raatikko-flokknum eru auk þess
eftirtaldir dansarar: Marjo Kuu-
sela, Tommi Kitti, Reijo Tuomi,
Marita Strömberg, Tuula Hyyry-
láinen, Aarne Mántyla, Pertti
Vir&nen og Oili Aaltonen.
Valdalaust fólk gerist i
Tavastalandi i Finnlandi i stríð-
inu 1918 og er ástarsögu ungra
elskenda fléttað inn i striðs-
hörmungar og stéttaátök. Um
efni Sölku Völki er óþarfi að fjöl-
yrða svo þekkt sem það er.
Raatikko dansflokkurinn kem-
ur hingaö á vegum Þjóðleikhúss-
ins með styrk frá Norræna
menningarsjóðnum. Styrktar-
Kvenfrelsisbaráttan
efst á blaði á 1. des.
Hægt er að búa til líkingar
af öllum helztu
bílabrautum heims.
Um 15 mismundandi gerðir
bíla er hægt að kaupa
staka auk margra
skemmtilegra
aukahluta.
Bjarnfriöur Leosdóttir
Silja Aðalsteinsdóttir