Tíminn - 01.12.1977, Page 8
8
Fimmtudagur 1. desember 1977
Fiskiþing
A Fiskiþingi Fiskifélags Is-
lands haföi Jóhann Guðmunds-
son, formaður Framleiðslueftir-
lits sjávarafurða, framsögu um
fiskmat. Eftir hádegi störfuðu
nefndir og munu þær skila áliti á
föstudag og laugardag.
Leiðrétting
1 frétt blaðsins í gær um eggja-
skortinn misritaðist útsöluverð á
eggjakilóinu. Var sagt að það
væri nU 565 krónur,átti auðvitað
að vera 665 krónur. Er beðið vel-
virðingar á þessu.
Bandariska
sendiher raf rúin,
Dolores A.
Blake, lézt
i gær
Frú Dolores A. Blake, eigin-
kona bandariska sendiherrans á
Islandi, James J. Blake, andaðist
i gær, hinn 30. nóvember 1977,
skömmu eftir að hún kom til
Bandarikjanna til læknismeð-
ferðar. Hún lætur eftir sig eigin-
mann, fjögur börn og foreldra.
Minningabók um frú Dolores A.
Blake mun liggja frammii Sendi-
ráði Bandarikjanna að Laufás-
vegi 21 i Reýkjavik föstudaginn 2.
desember kl. 9-12 og 2-5.
Wmrnm
U ndirbúningur hafinn fyrir viöa-
mikla landbúnaðarsýningu á Selfossi
Verður ein stærsta sem haldin hefur verið hér á iandi
Sýningarstjórn Landbúnaöarsýningarinnar. Frá v. Hjalti Gestsson, Kjartan ólafsson, Einar
Þorsteinsson, Hermann Guðmundsson og Stefán Jasonarson. — Tlmamynd: Gunnar.
áþ — A næsta ári verður BUn-
aðarfélag Suðurlands 70 ára og i
tilefni afmælisins, hefurveriðá-
kveðiö að efna til umfangsmik-
illar landbúnaðarsýningar á
Selfossi i ágústmánuði á næsta
ári. Þegar hefur verið kosin
fimm manna sýningarstjórn og
er undirbúningur sýningarinnar
að hefjast af fullum krafti.
Landbúnaðarsýningar eru ár-
legur viðburður i nágrannalönd-
um okkar og þykja þýðingar-
miklar til kynningar á landbún-
aðinum. Nokkrar landbúnaðar-
sýningar hafa veriö haldnar hér
á landi en fyrsta alhliða sýning-
in var I Reykjavik 1947 á vegum
Búnaðarfélags íslands. Siðan
var mjög stór sýning á vegum
bændasamtakanna i Reykjavik
1968, sem er vafalaust stærsta
sýning sem haldin hefur veriö
hér á landi.
BUnaðarsamband Suðurlands
er samtök búnaðarfélaga I
þremur sýslum, Arnes-, Rang-
árvalla-, og Vestur-Skaftafells-
sýslu. Aðsögn Hjalta Gestsson-
ar eru 35 félög i sambandinu og
eru meðlimir um 1450. Að visu
eru ekki allir fullgildir bændur,
en bændur i fullu starfi munu
vera um 1200.
Verkefni Búnaðarsambands-
ins eru margþætt. Má t.d. nefna
djúpfrystingarstöð fyrir sæði
nautgripa og sauðfjársæðingar-
stöö I Laugardælum. Áherzla er
lögð á kynbætur og hafa þær oft
á tiðum tekizt mjög vel. A veg-
um sambandsins eru starfandi
ráðunautar og er veruleg verka-
skipting á milli þeirra.
A fundi.sem sýningarstjórnin
hélt fyrr I vikunni, kom m.a.
fram, að nauðsynlegt væri
að kynna landbúnaðinn fyrir al-
menningi, enda gætti oft veru-
legs misskilnings hjá fólki
gagnvart landbúnaði. — Til-
gangurinn með fyrirhugaöri
landbúnaðarsýningu er tviþætt-
ur, sagði Kjartan ólafsson frá
Selfossi, en hann á sæti i sýn-
ingarstjórn. — Annars vegar er
hún til að kynna t.d. tækni -i
landbúnaði og hins vegar til að
gefa fólki kostá að sjá með eigin
augum einn af undirstöðuat-
vinnuvegum þjóðarinnar.
Eins og áður kom fram, þá
verður landbúnaðarsýningin á
Selfossi, og að sögn Stefáns Jas-
onarsonar er öll aöstaða þar i
bæ til fyrirmyndar. Búnaðar-
sambandið mun fá leigöan
Gagnfræöaskólann og sam-
byggt iþróttahús, sem er i smiö-
um. Einnig verður nærliggjandi
land, tekið undir sýninguna.
Gagnfræðaskólinn með iþrótta-
húsi, er um 4000 fermetrar aö
stærð og heildarstærð land-
svæðisins er tveir og hálfur
hektari. 1 námunda við skólann
verður byggt stórt gripahús, en
ætlunin er að hafa þar sýnishorn
af öllum húsdýrum lands-
manna.
Akveðið er, að hafa sjö sýn-
ingardeildir, og munu verða
skipaðar nefndir til að sjá um
undirbúning i hverri deild.
Búfjárræktardeild. Þar verð-
ursýnteitteintak af hverju hús-
dýri islenzkra bænda. Jarðrækt-
ardeild.l þessari deild verða öll
þau tæki sem nauðsynleg eru i
landbúnaðinum. Heimilisiðnað-
ardeild. Hér verða það einkum
kvenfélögin i sýslunum sem sjá
um Utvegun sýningargripa.
Bygginga- og bútæknideild. BU-
vélar og t.d. innréttingar i
gripahúsum. Garðyrkjudeild. 1
henni má sj'á t.d. blóm, ávexti
og annað það sem garðyrkju-
bændur framleiða. Þróunar-
deild.Þar verður lögð áherzla á
að kynna sögu landbúnaðarins.
Ekki hefur verið ákveðið hve
langt aftur i timann verður far-
ið. Afurðadeild. Hér munu
mjólkurbú og kjötiðnaðarfyrir-
tæki sýna framleiðslu sina.
BUnaðarsambandið hefur efnt
til ritgerðarsamkeppni i tengsl-
um við landbúnaðarsýninguna
og nær hún til allra grunnskóla á
Suðurlandi, sem eru um 30 tals-
ins. Ritgerðarefni eru þrjú, og
verða verðlaun veittfyrir beztu
ritgerðina i hverjum flokki á
sýningunni. Sýningarstjórn hef-
ur i hyggju að efna til fleiri sam-
keppna míííi bama og ungíinga,
en frá þvi verður greint siðar,
þegar ákvörðun hefur verið tek-
in.
Kosin hefur verið fimm
manna sýningarstjórn og eiga
sæti i henni Stefán Jasonarson,
' Vorsabæ, Hermann Guðmunds-
son Blesastöðum, Hjalti Gests-
son Selfossi, Kjartan ólafsson
Selfossi og Einar Þorsteinsson
Sólheimahjáleigu, sem er for-
maður. Einnig hefur verið á-
kveðið að koma á fót sýningar-
ráði. Þar eiga sæti fulltrúar frá
helztu stofnunum og fyrirtækj-
um sem hafa samskipti við
landbúnaðinn og eiga alls 19 að-
ilar sæti i ráðinu.
Frá landbúnaðarsýningu á Seifossi 1958.
F.I. — Félagiö Ýr, sem er fjöl-
skyldufélag landhclgisgæzlu-
manna, hefur nú látið gera vegg-
skjöld i tilefni af 200 milna út-
færslu landhelginnar. Vegg-
skjöldurinn erteiknaður af Eiriki
Smith listmálara og unninn á
þýzkt postulin i leirmunagerðinni
Gler og postulin i Kópavogi.
A skildinum er mynd af merki
Landhelgisgæzlunnar ásamt
myndum af fjórum varðskip-
anna og einni flugvél.
Fyrst skal frægan telja
„gamla” Ægi, Þór og Óðinn eins
og þau skip voru er útfærslan ’68
og ’72 var gerð.
Einnig er i skildinum mynd af
öðru systurskipanna „nýja”
Ægi og Tý. Þá er mynd af flug-
vélinni Syn.
Fjórar félagskonur munu sjá
um dreifingu og sölu á veggskild-
inum. Þær Elin Skeggjadóttir,
Álfhólsvegi 39, simi: 41830, Edda
Þorvarðsdóttir, Vesturbergi 100,
simi: 72763, Jóna M. Guðmunds-
dóttir Stórateigi 8, Mosfellsveit,
simi: 66400, Gyða Vigfúsdóttir
Hjallabraut 3, Hafnarfirði 52399.
Skriflegar umsóknir má einnig
leggja inn i póshólf 5015, Reykja-
vik.
Fyrsta eintak plattans var að
sjálfsögðu afhent forstjóra Land-
helgisgæzlunnar Pétri Sigurðs-
syni.
Samþykkt var sem lög frá
neðri deild Alþingis 1 gær
frumvarp um frestun gildis
töku nýs fasteignamats. Átti
hið nýja fasteignamat að taka
gildi i dag, 1. desember en
samkvæmt lögunum er gildis-
tökunni frestað til 31. þessa
mánaðar.
Rjúpnaveiðar
Jónas Árnason (Abl) mælti i
gær fyrir frumvarpi til laga
um breyting á lögum um
fuglaveiðar og fuglafriðun. Er
i frumvarpinu lagt til að
rjúpnaveiðar hefjist ekki fyrr
en 15. nóvember en standi svo
til 22. janúar i staðinn fyrir 22.
desember. Friðjón Þórðarson
(S) taldi gæta nokkurs tvi-
skinnungs i frumvarpinu ef
þvi væri ætlað að hafa
friðunargildi. Einkum væri
um að ræða tilfærslu á veiði-
timanum.
Leiklistarlög
I efri deild Alþingis mælti
Helgi F. Seljan (Abl) fyrir eig-
in frumvarpi til breytinga á
leiklistarlögum. Sagðist hann
ekki vera fyllilega sáttur við
túlkun ráðuneytisins á lögun-
um og væri frumvarpið flutt til
að veita öðrum atvinnuleik-
húsum lagalegan rétt til fjár-
stuðnings en sérstaklega eru
talin upp' i núverandi leik-
listarlögum, þ.e.a.s. Leikfélög
Reykjavikur og Akureyrar.
Nýtt þingmál
t gær var lögð fram á Al-
þingi tillaga til þingsályktunar
um samræmt framhalds-
skólanám á Norðurlandi
vestra. Flutningsmaður er
Ragnar Arnalds (Abl).
Veggskjöldur til minningar
um útfærslu landhelginnar