Tíminn - 01.12.1977, Side 15
Fimintudagur 1. desember 1977
15
GÍRÓ 151009
Verð kr.4.320.—
Kilja kr.3.780.—
Félagsverð inn-
bundin kr.3.500.
sæki á stundum svipaöar hug-
renningar og klerkinn sem sokkið
hafði I myrkri ofan i fjórhauginn
við Vorsabæ og stundi: j.Elsku
Drottinn, ég veit þú lætur mig
ekki deyja á þessum óttalega
stað!”
Þegar forveri Guðmundar i
embætti hætti störfum við bank-
ann i Stykkishólmi gekk hann á
vit móður náttúru og fór aö erja
jörðina á Skógarströnd. Þótt haft
sé fyrir satt að Snæfellingum líði
þrátt fyrir allt yfirleitt vel eftir
dauðann, veit ég að Guðmundur á
sér annan draum en að deyja
Snæfellingur, hann á sér þann
draum aö dagsverki loknu hér að
fá enn á ný að finna ilm úr sinni
gömlu jörð norður i Hörgárdal.
Undir þá frómu ósk hans taka
vinir hans allir og biðja honum
blessunarog þeim hjónum báðum
á þessum timamótum.
Rögnvaldur Finnbogason
Staðastaö
Þýðandinn: Þor-
geir Þorgeirsson
þvi vikingaeðli sem honum var i
blóð lagið. A þeim árum er Guð-
mundur sat jörðina, eða fram til
ársins 1972, mé segja að þar hafi
flestir hlutir verið gerðir nýir, tún
ræktuð og hús byggð frá grunni.
Vinur minn komst snemma að þvi
að ,,eigi er það gott að maðurinn
sé einsamall” og leitaði sér þeirr-
ar staðfestu :ér bezt hefur dugað
honum i lífsins argaþrasi. Hann
kvæntist 1. des. 1944 Berghildi
dóttur Bernharðs Stefánssonar
alþm. og konu hans Hrefnu Guð-
mundsdóttur. 1 öllu hans starfi
hefur hún verið hans trausti föru-
nautur, hlut hennar að öllu þvi
sem unnið var á Þúfnavöllum
meðan þau hjón sátu jörðina
þekkja allir Hörgdælir og þeir er
þangað komu og nutu gestrisni
þeirra hjóna. Son eignuðust þau
hjón árið 1954, Eið sem nú
stundar nám við Háskóla Islands.
Þvi mun jafnan svo farið að
menn bindast þeim stöðum sterk-
ustum böndum sem þeir vinna
mest og svo er um Guðmund
Eiðsson og Þúfnavelli. Þar mun
hugur hans dvelja löngum, þótt
hann jafnhliða starfi bóndans hafi
rækt önnur störf, — og fyrst farið
er að tiunda verk Guðmundar er
rétt að geta þess að á vetrum
vann hann sem aðalbókari við
Búnaðarbankann á Akureyri,
fyrst hjá tengdaföður sinum og
siðar Steingrimi mági sinum,
einnig var hann endurskoðandi
hjá KEA um 10 ára skeið. Arið*
1973 verða þáttaskil i lifi
Guðmundar og þeirra hjóna.
Hann lætur af störfum við bank-
ann á Akureyri, kveður frændur
og vini og flyzt til Hólmavikur til
að veita þar forstöðu nýju útibúi
Búnaðarbankans. Þau tvö ár sem
i hönd fóru liðu skjótt f peninga-
vafstri þvi sem starfinu fylgdi.
En hitt er mér vel kunnugt að á
þeim skamma tima eignaðist
Guðmundur margan góðan vin
þar nyrðra og ávann sér traust
allra sem honum kynntust. Þá
gerist það I sólmánuði 1975 aö
Guðmundur hefur tekið við
bankastjórn i Stykkishólmi i hinu
„lakkeraða barbarii” sem Guð-
mundur læknir kallaði svo. „mik-
il guðsblessun er þetta”, varð
mér að orði, þvi seint mun of
margt góðra manna hjá þvi
vonda fólki sem sagt er að byggi
Snæfellsnes. Hvað kom til að
Guðmund hafði borið upp á þessa
strönd? Ég þóttist vita að fám
störfum fylgdi minni sálarró
en þeim sem tengd eru peningum
og i engu starfi sé sálarheill
manna stefnt i jafnmikla tvisýnu
sem þar. Gat það verið að Guð-
mundur hefði lent i andlegri haf-
villu eftir að þessi Öryggisventill
sálarinnar — Þúfnavellir og bú-
stangið — var horfinn honum
sýn? En til hvers var að spyrja
{jessa — hvað var það sem dró
hvern dánumanninn af öðrum
vestur hingað, komst ekki sr.
Árni Þórarinsson að þvi að lokum
að hann hafði verið leiddur af
anda að Stórahrauni, og hvað
hafði komið vini minum Jóni
Magnússyni lögfræðingi til að
flytjast hingað vestur eða þá
Arna póstmeistara Helgasyni —
og mér sjálfum??? Vorum við
ekki allir leiddir af einhverjum
anda hingað vestur og Guðmund-
ur lika?
Eftir okkar fyrsta fund hér á
Snæfellsnesi sá ég strax að Guð-
mundur hafði engum týnt, hann
leit björtum augum til framtiðar-
innar og var engum farinn að
kynnast. En „fleira veit sá er
fleira reynir”, er haft eftir Gretti
heitnum og margur hefur mátt
reyna sannleik þeirra orða. Guö-
mundur er eflaust orðinn reynd-
ari að bankavisdómi og lifspeki
nú en þegar hann lagði af stað i
þessa för og veit hvursu ólik þau
viðskipti geta verið á hinum að-
skiljanlegu stöðum. Sú tið er
löngu liðin að þá Sighvat gamla I
Eyvindarholit og Magnús
Stephensen „sundlaði við milljón-
um”, enda milljónirnar varla
orðnar annað en náfnið tómt. En
hvað þá um öll varnarorð hinna
visu manna og fornu spekinga?
Hafa þeir ekki varað við þessa
heims auði og fylgikonu hans öf-
undinni, sem sr. Arni segir að sé
„versti afleggjari ágirndarinn-
ar”? Sjálfur Konfúsius hrökk upp
með andfælum úr fasta svefni ef
hann var snertur með fimmeyr-
ingi — hvað hefði orðið um alla
hans speki, hefði hann einn dag
orðið að standa i sporum vinar
mins Guðmundar innan við disk i
Hólminum og hvað margir víxlar
hefðu verið keyptir daginn þann?
— Það má vera að Guðmundur sé
ekki jafnbjartsýnn i dag og hann
var i sólmánuði 1975 og á hann
60 ára
Guðmundur
Ekki man ég það gjörla hvar
fundum okkar Guömundar Eiðs-
sonar bar fyrst saman. Var það á
bökkum Hofsár i Vopnafirði eða I
Búnaðarbankanum á Akureyri,
austur i Biskupahálsi eða barnum
á KEA? 1 endurminningunni svif-
ar honum fyrir á öllum þessum
stöðum i senn, og gæti hann vel
hafa verið i hverjum þessara
staða á einum og sama deginum
og finnst mér það sennilegast.
Guðmundur er einn þeirra yfir-
bragðsmiklu manna sem ekki
glutrast úr minni þótt maður
missi sjónar á þeim um skeið og
næstu fundir séu langt undan,
kemur þar hvort tveggja til — ytri
vallarsýn mannsins og innri
drengskapur.
Rætur Guðmundar Eiðssonar
standa i norðlenzkum jarðvegi,
nánar til tekð i Hörgárdal. A
Þúfnavöllum var hann borinn i
þennan heim á jólaföstu 1917,
fyrir réttum 60 árum. Sá bær var
mér fyrrum kunnur fyrir það eitt
að hann tengdist sögunni af
djáknanum á Myrká, en eftir að
fundum okkar Guðmundar bar
saman er sá bær i lffrænni tengsí-
um við hugskot mitt en meðan
hann var knýttur við Myrkár-
djáknann sem skolazt hafði upp á
Þúfnavallanes örendur eins og
segir i þeirri annars frábæru
sögu. — Guðmundur er sonur
hjónanna Láru Friðbjarnardóttur
frá Staðartungu i Hörgárdal og
Eiðs Guðmundssonar á Þúfna-
völlum, sem öllum Eyfirðingum
eru kunn. Guðmundur óx upp á
Þúfnavöllum með foreldrum sin-
um og þótti bráðgerr i uppvexti
og kominn á sig vel eins og segir
um afbragðsmenn ýmsa i göml-
um bókum. Um hann mætti raun-
ar hafa lýsingu Sturlungu á
kunnum Snæfellingi er óx upp á
Staðastað, Þorgilsi skarða, með
smávægilegum tilbrigðum. Hann
var snemma vænn maður yfirlits,
herðimikill og gjörvilegur, dökk-
ur á hár og brúnamikill, bjartur á
hörund, eygður manna bezt.mið-
mjór (framan af), þykkt hár og
fór vel, Snemma þótti hann
hraustur og harðgerr, fastheitinn
og ör I að efna — einkum það sem
hann hét góðu. Og þótt Guðmund-
ur hafi ekki hlotið skarð það i vör
sem Þorgils dró nafn af og var
honum lýti, hlaut Guðmundur
skarð I höku, sem þótt hefur til
fegurðurðarauka fremur en hitt
þeim er ber. En þar eð Guðmund-
ur þótti eigi siður andlega vel á
sig kominn en likamlega var hann
sendur til að nema nýt fræði við
fótskör þeirra meistara er bezt
hafa dugað Norðlendingum á
þessi öld og lauk hann með sóma
prófi frá Gagnfræðaskólanum á
Akureyri vorið 1937. 1 augum
þeirrar kynslóðar sem aöeins
þekkir Island eftirstriðasáranna
þykir það kannski ekki mikil
mennt að hafa farið i „gaggó” og
lokið þaðan prófi, en mér er það
mjög til efs að öllum þorra þeirra
sem nú ljúka stúdentsprófi frá
súpergaggó sem menntaskólinn
er orðinn nýtist betur skólanámið
en Guðmundi og hans samtiöar-
mönnum nýttist sitt gamla gagn-
fræðapróf. Engar sögur fara af
þvi að Guðmund hafi þurft að
berja til bókar, enda hóf hann sitt
gagnfræðanám á þeim aldri þeg-
ar búið er að jaga alla náttúrlega
menntunarlöngun út af flestum
islenzkum unglingum I dag með
valdboðinni menningarneyzlu.
En engar sögur fara heldur svo
mér séu kunnar af sérstöku ljúf-
lyndi hans við skólabræöur sina
eða undirdánugheit við lærifeöur
og þaðan af siður skirlifri fram-
göngu við hið veikara kyn. Ekki
er mér heldur örgrannt um að
hann hafi bergt á fleiri brunnum
en vizkubrunninum einum á þess-
um árum, þó held ég það hafi frá
upphafi farið vel á með honum og
Bakkusi gamla og hvorugur þurft
að fyrirverða sig fyrir hinn. Hitt
er kunnara en frá þurfi að segja,
að margur er maðurinn bráð-
skapaður við öl og lýstur þá
margur annan á kjamma og nös.
En æskan er sjúkdómur sem
læknast fljótt og bernskuleikjum
lýkur fyrr en varir. Árið 1938 er
gengið I garð og Guðmundur
hefur byrjað búskap á Þúfnavöll-
um. Næstu árin gengur hann að
jarðabótum og nýbyggingum með
William Heinesen
TURNINN Á
Turninn á heimsenda er nýjasta skáldsaga
Williams Heinesens, saga sem hann hefur haft I
smiöum um tuttugu ára skeiö. Hér birtist heims-
mynd þeirra daga þegar jörðin var enn ekki orðin
hnöttótt, en hafði upphaf og enda og dýrlegur turn
trónaði yst á veraldarnöfinni. Siðan raskast þessi
heimsmynd smám saman, hrynur og hverfur, nema
i endurminningu sögumanns sem horfir til baka á
löngu liðinn tíma, til fjarlægra veralda.
Þorgeir Þorgeirsson er fyrir löngu orðinn mjög
handgenginn verkum og skáldskaparheimi
Williams Heinesens enda mun öllum bera saman
um að þetta snilidarverk hafi hlotið þann islenzka
búning sem þvi er samboðinn. Þessi bók er fyrsta
bindið I ritsafni þeirra sagna eftir William Heinesen
sem enn hafa ekki komið út á fslensku.
Mál og menning
HEIMSENDA
Eiðsson