Fréttablaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 27
Iðjuþjálfi
Iðjuþjálfi óskast í 50% starf á endurhæfingarsviði, Landakoti,
í tímabundna stöðu til áramóta með möguleika á framleng-
ingu.
Leitað er að iðjuþjálfa sem hefur áhuga á að starfa með
öldruðum þar sem áhersla er á teymisvinnu í skemmtilegu
og lifandi vinnuumhverfi.
Iðjuþjálfar sinna sex legudeildum sem skiptast í tvær 5 daga
og eina 7 daga endurhæfingardeildir, tvær deildir fyrir heila-
bilaða og líknardeild. Einnig er 60 plássa dagdeild sem iðju-
þjálfar sinna sem og sérhæfðum verkefnum á göngudeild.
Á Landakoti fer fram mat, greining og endurhæfing aldraðra.
Umsóknir berist fyrir 9. júlí n.k. til Rósu Hauksdóttur, yfiriðju-
þjálfa, iðjuþjálfun Landakoti sími 543 9841, netfang
rosah@landspitali.is og veitir hún upplýsingar ásamt Kristínu
Kristjánsdóttur, iðjuþjálfa, sími 543 9834, netfang
kristink@landspitali.is.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár-
málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og
Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu
www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar
í störf á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali – háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.
Heilsugæslan í Fjarðabyggð
Heilbrigðisstofnun Austurlands
auglýsir lausar stöður yfirlæknis,
heilsugæslulæknis, hjúkrunarstjóra,
hjúkrunarfræðings og ljósmóður
við Heilsugæslu Fjarðabyggðar.
Heilsugæsla Fjarðabyggðar er með starfs-
stöðvar á Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðs-
firði og Stöðvarfirði, en heilsugæsluum-
dæmi þessi verða sameinuð frá og með
1. október 2006. Heilsugæslan í Neskaup-
stað verður enn um sinn rekin í tengslum
við Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað.
Í allar stöðurnar er ráðið frá og með
1. október nk.
Á starfssvæðinu búa um 3.500 manns auk
fjölda starfsmanna við byggingu álvers. Á
næstu árum mun íbúum fjölga verulega.
Gert er ráð fyrir að 4 læknar starfi við
heilsugæsluna og einn þeirra gegni stöðu
yfirlæknis. Þá er gert ráð fyrir 4 - 5 stöðum
hjúkrunarfræðinga og mun einn þeirra
gegna stöðu hjúkrunarstjóra.
Góð starfsaðstaða er á heilsugæslustöðvun-
um og í sveitarfélaginu er boðið upp á
margháttaða þjónustu.
(Sjá www.fjardabyggd.is)
Umsóknarfrestur er til 23. júlí 2006.
Umsóknir skulu berast til Einars Rafns Haraldsson-
ar, (einarrafn@hsa.is) / 861-1999, framkvæm-
darstjóra, eða Emils Sigurjónssonar, (emils@hsa.is)
/ 895 2488 rekstrarstjóra, Strandgötu 31, 735
Eskifirði, sem jafnframt veita upplýsingur um
störfin ásamt Lilju Aðalsteinsdóttur hjúkrunar-
forstjóra lilja@hsa.is) / 860 1920 og Stefáni
Þórarinssyni, lækningaforstjóra (stefanth@hsa.is) /
892 3095
Vík í Mýrdal
starfsfólk óskast
Í grunnskólanum eru um 70 nemendur í 1. -10.bekk.
Góður starfsandi og öflugt starfslið. Áhersla á mann-
rækt og umhverfi, unnið með samskipti, einstaklings-
miðað nám og skrefin sjö að Grænfánanum.
Heimasíða skólans er http://gsm.ismennt.is
Umsjónarkennari
Grunnskólann vantar umsjónarkennara.
Húsnæðisfríðindi og flutningstyrkur.
Nánari upplýsingar veita :
Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri s: 4871400, kolbrun@ismennt.is
Sveinn Pálsson sveitarstjóri s: 4871210, sveitarstjori@vik.is
Umsóknarfrestur er til 9.júlí
Dvalar- og
hjúkrunarheimili
Hjallatún er notalegt heimili með um
20 heimilismönnum í hjúkrunar- og
vistrýmum.
Hjúkrunarfræðingur
Hjallatún leitar að hjúkrunarfræðingi í 70 % stöðu og bakvaktir aðra
hvora viku. Staðan er laus frá 15. ágúst nk. eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri:
Guðlaug Guðmundsdóttir s: 487-1348 eða 864-1348. hjallatun@vik.is
Umsóknarfrestur er til 9. júlí.
Tónskólinn er til húsa með grunnskóla
Mýrdalshrepps og vinnur í nánu
samstarfi við grunnskólann. Nemendur
eru milli 20 og 30
Tónskólastjóri – tónskólakennari - organisti
Við Tónskóla Mýrdælinga er laus ein og hálf staða tónskólastjóra og
tónlistakennara. Auk þess er laus staða organista við Víkurkirkju.
Nánari upplýsingar veita:
Sveinn Pálsson sveitarstjóri s: 4871210, sveitarstjori@vik.is
Helga Halldórsdóttir, form. sóknarnefndar s: 4871210, helga.halldorsdottir@vik.is
Umsóknarfrestur er til 9. júlí
Mýrdalshreppur
www.vik.is
Mýrdalshreppur er um 500 manna sveitarfélag. Í Vík er öll almenn þjónusta svo sem
grunn- leik- og tónskóli, heilsugæsla, dvalar- og hjúkrunarheimili, íþróttahús og
sundlaug. Mikil áhersla er lögð á æskulýðs- og íþróttamál og aðstaða er góð m.a.
glæsilegur frjálsíþróttaleikvangur.
Náttúrufegurð er rómuð í Vík og nágrenni og margir möguleikar til útivistar. Vík er í
um 2 klst fjarlægð frá Reykjavík og samgöngur eru greiðar árið um kring.
Ferðaþjónusta er öflug og vaxandi í sveitarfélaginu og fjölbreyttir möguleikar eru fyrir
fólk með ferskar hugmyndir. Sveitarfélagið og stofnanir þess eru þátttakendur í
verkefni Lýðheilsustöðvar Allt hefur áhrif einkum við sjálf.
ATVINNA
SUNNUDAGUR 25. júní 2006 7