Fréttablaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 32
[ ]
Fylgihlutir eru alltaf vinsælir
og nóg er úrvalið í búðun-
um. Blaðamaður rölti niður
Laugaveginn og fékk að vita
hvað væri heitast í verslunun-
um í dag.
Fylgihlutir eins og hálsmen, arm-
bönd, töskur, klútar og belti geta
gert kraftaverk þegar maður vill
lífga upp á útlitið. Það þarf ekki að
kaupa rándýrar gallabuxur eða
jakka þegar maður er kominn með
leið á fataskápnum. Stór hálsfesti
breytir svarta bolnum í nýjan
skvísubol og belti yfir kjólinn
lætur hann líta út sem nýjan.
Á Laugaveginum eru marg-
ar skemmtilegar búðir sem
selja skart og aðra fylgihluti.
Það er mikið úrval; Gyllt, klass-
ískt, pent og íburðarmikið. Það
þarf ekki mikið til að gleðja tísku-
hjartað og því um að gera að leyfa
glysgirninni að fá útrás.
erlabjorg@frettabladid.is
Heitustu fylgihlutirnir
Mánaeyrnalokkar. Flottir gylltir eyrnalokkar sem
eru skemmtilegir þegar þvælst er úti á sumar-
nóttum. Fást í Glamúr og kosta 750 krónur.
... og armband í
stíl 3.550 krónur.
Pilgrim hálsmen og
armband. Pilgrim er dönsk
hönnun sem hefur verið að
ryðja sér til rúms á Íslands-
markaði síðustu árin. Það
heitasta í sumar er að vera
með margar mismunandi
festar í einu þannig að það
er um að gera að byrja að
safna. Pilgrim fæst meðal
annars í Hallberu, og kostar
festin 7.100 krónur...
Sebraspöng. Þegar hárið lætur ekki
að stjórn getur verið ansi þægilegt
að setja flotta spöng í hárið. Spöngin
lífgar líka upp á og gefur manni smá
sixties-yfirbragð. Í Skarthúsinu fást alls
kyns spangir, m.a. með hauskúpum og
skræpóttu munstri. Þessi spöng kostar
350 krónur.
Gyllt armband frá ONI í
stíl við eyrnalokkana og
kostar 1.290 krónur.
Gyllta æðið. Gullið er ekkert á leiðinni
út þó það sé nú sameinað með sterkum
sumarlitum. Gylltir eyrnalokkar standa alltaf
fyrir sínu. Þessir fást í ONI og kosta 1.590
krónur.
Stór leðurtaska. Það er ekki verra að hafa
snyrtitöskuna sína, auka peysu og alls kyns
fylgihluti í töskunni sinni ef stemningin breytist
á augabragði og það þarf að fríska upp á útlitið.
Þessi taska getur borið þetta allt auk þess að vera
flott á öxlinni. Fæst í Friis Company og kostar
7.490 krónur.
Hálsfesti. Þó að fataskápurinn sé ekki fullur
af fötum í skræpóttum og sumarlegum
litum getur maður farið í sumargírinn með
því einu að skella á sig litríkri hálsfesti.
Hálsfestar fást í mörgum litum í Skarthús-
inu og kostar þessi 1.290 krónur.
Stór sólgleraugu. Því stærri sem sólgleraugun eru, því betra. Kvik-
myndastjörnuútlitið er dularfullt, kynþokkafullt og sætt - allt í senn.
Sólgleraugun sóma sér líka vel ofan á hausnum þegar sólin felur sig
bakvið skýin. Alls kyns sólgleraugu fást í Skarthúsinu og kosta þessi
990 krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Klútur með hauskúpum. Hauskúp-
urnar eru að koma inn í tískuna
með smá hörku og töffaraskap með
sér. Klútarnir eru flottir bundnir um
hálsinn, yfir hárið eða hvernig sem
manni dettur í hug. Fást í mismun-
andi stærðum og þykkt í Skarthús-
inu og kosta 690 krónur.
Belti með gylltri skreytingu. Flott teygjubelti í mittið sem hentar sér-
staklega vel við svartan kjól eða látlausan klæðnað til að gera hann
aðeins meira áberandi. Beltin hafa verið vinsæl síðustu mánuði
enda flott til að lífga upp á eða undirstrika kvenlegan vöxt. Fæst í
Glamúr á 2.500 krónur.
Tískan teygir anga sína víða Tískustraumanna gætir
ekki síður í íþróttafatnaði en öðrum fatnaði. Kylfingar geta líka verið
smart.
15% afsláttur
af öllum vörum til 5. ágúst
Töskur, ferðatöskur, seðlaveski, leðurjakkar, skart og fleira.
Gríptu tækifærið!
Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is
Fyrir börn
Kids