Tíminn - 06.01.1978, Qupperneq 5

Tíminn - 06.01.1978, Qupperneq 5
Föstudagur 6. janúar 1978 5 á víðavangi Samvinnuverkefni Talsverðar umræður hafa að undanförnu orðið um þær hugmyndir, sem fram hafa koinið um það að rikið hætti rekstri Landssmiðjunnar og nokkurra fleiri fyrirtækja sem eru i opinberri eigu. Það hefur verið stefnumark núverandi rikisstjórnar, að kanna mögu- leika á þvf að rikið léti af ýms- um rekstri sent ætla iná að jafn vel eða betur yrði fyrir kontiö i höndum annarra að- ilja. Viðþvier ekkertað segja, þótt Sjálfstæðismenn kunni að tengja þessar umræður við handapat sitt sem þeir kalla „báknið burt”, en Framsókn- armenn lita þessi mál öðrum augum. Það er afstaða Framsókn- arflokksins, að rlkisvaldiö eigi yfirleitt ekki að hafa at- vinnurekstur með höndum, nema i undantekninga rtilfell- um, svo sent ef unt einokunar- aðstöðu er að ræða eða nauð- synlegan rekstur annan sem aðrir aðiljar treystast ekki að taka að sér. A árun „viðreisnarstjórnar- innar” gerðist það að rikið tók að sér nokkur fyrirtæki, ekki sizt af atvinnusjónarmiðum, og má þar nefna Alafoss og Slippstöðina á Akureyri. Það er ekki i samræmi við yfir- lýsta stefnu Framsóknar- flokksins, að rikið hafi rekstur þessara fyrirtækja með hönd- unt til laugframa, enda þótt til þessa ráðs hafi verið gripið vegna timabundinna vand- kvæða. En hverjir eru þeir kostir sem þá korna til greina? Aug- Ijóslega er þaö ekki á dagskrá að láta einfaldlega loka Landsssmiöjunni, fyrirtæki sem gengur vel, lætur i té nauðsynlega þjónustu og skil- ar aröi. Slikt væri vitaskuld fásinna. Vafalitið munu marg- ir Sjálfstæöismenn æskja þess Landssmiðjan að fyrirtækiö veröi selt einka- aðiljum sem siðan taki rekst- urinn að sér með hlutafélags- formi. Út af fyrir sig verður ckki sagt að slik ráðabreytni sé nein goðgá, en annar kostur og miklu betri liggur fyrir og liann ber að velja. Hér er nefnilega kjörið tæki- færi til að efla samvinnufram- tak og raunverulegt atvinnu- lýðræði, nteð þvi að starfs- menn þeirra fyrirtækja, sem hér um ræðir, taki að sér rekstur þeirra með samvinnu- sniði. Það á ekki að vera hlut- verk rikisins að hlaða undir einhverja f jármálafursta, heldur efla og styrkja framtak ftílksins. A siðustu árum hafa verið miklar umræður um aukin áhrif launþeganna á rekstur fyrirtækjanna, og þau fyrirtæki i opinberri eigu, sem eðlilegra er að aðrir reki, eru alveg kjörinn vettvangur til þess að brjóta isinn. Það er siðan annað mál með hverjum hætti rikið lætur þessifyrirtæki ihendur starfs- fólksins, hvort það gerist i á- föngum meöan fundnar eru beztu og lýðræðislegustu stjórnunaraðferðir eftir þvi sem hentar i hverju tilfelli, eða i eitt skipti fyrir öll. Nú þegar er komin gtíð reynsla á frámleiðslusam- vinnu hér á landi, og hún er eindregin hvatning til þess að lengra verði haldið á þeirri braut. Félagshyggjunienn eiga á þessu sviði mikiö verk að vinna. Þeir geta verið hægrimönnum santmála um að draga úr beinum afskiptum rikisvalds ins af atvinnu- rekstrinum, en siðan skilur leiðir. Hægrimenn vilja ganga götu kapitalismans, en félags- hyggjumenn fara leið sam- vinnustefnunnar til lausnar viðfangsefnum af þessu tagi. JS Háskólinn: Skipulagsmynd og byggingaáætlun fram til 1986 Fyrir skipulagsnefnd Reykja- vikurborgar hefur legiö hugmynd og uppdrættir aö heildarskipulagi bygginga á lóö háskólans sunnan Tjarnarinnar i Reykjavik. Tillög- ur þessar samþykkti háskólaráö snemma á slöastliönu ári, en höf- undur þeirra var hinn heimsfrægi finnski arkitekt Alvar Aalto, og lauk hann vinnslu þeirra áöur en hann lézt áriö 1976. Auk tillagna um heildarskipu- lagningu bygginga á lóö háskól- ans hefur háskólaráö samþykkt ályktun um forgangsrööun bygg- inga á lóöinni, og á fundi ráösins í nóvember sl. var gengiö frá byggingaáætlun allt til ársins 1986. 1 byggingaáætlun háskólaráös kemur fram að ekki er gert ráö fyrir framlagi ríkissjóös umfram fjármagn Happdrættis Háskóla tslands næstu þrjú árin. En frá og meö 1981 veröur aftur á móti ekki komizt hjá þvi aö gera ráö fyrir viöbótarframlagi úr rikissjóöi ef takast á að framkvæma áætlun- ina. Skipulagshugmynd Alvars Aalto. JS — Skipulagsnefnd- Reykjavik- urborgar mun fjalla um skipulag háskólasvæðisins I næsta mánuöi. Svo sem kunnugt er býr Háskóli Islands viö mikil þrengsli og hef- ur orðið aö leigja húsnæöi vfös vegar um borgina á siöustu árum til þess aö geta veitt námsmönn- um þá kennslu og aöstööu aöra sem nauösynleg er. Jafnframt hafa rannsóknarstofnanir háskól- ans dreifzt um borgina og veldur þetta talsverðum óþægindum. Stofnanir Hásktílans hafa dreifzt viðs vegar um borg- ina vegna húsnæðisskorts á háskólaltíðinni. Myndirnar sýna .leiguhúsnæði við Grensásveg og Sigtún. Ljtísm.: Gunnar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.