Tíminn - 22.01.1978, Síða 8

Tíminn - 22.01.1978, Síða 8
8 Sunnudagur 22. janúar 1978 Gilsbakki i Hvítársiðu um 1900 Ingólfur Davíðsson: 206 Byggt og búið í gamla daga Kaþólska kirkjan I Reykjavik 1933 Liklega menntaskólapiltar Gilsbakki i Hvitársiðu i Borgarfirði er frægur frá fornu fari. Á söguöld bjó þar Illugi svarti, annar mesti höfðingi i Borgarfirði, en Þorsteinn á Borg Egilsson. Um börn þeirra höfðingjanna, Helgu fögru á Borg og Gunnlaug ormstungu á Gilsbakka, fjallar hin fræga Gunnlaugs saga ormstungu, sem orðið hefur skáldum ærið yrkisefni og þýdd hefur verið á fjölmörg tungumál. Hátt ber Gilsbakka og er þaðan hin feg- ursta útsýn. Hefur Steingrimur Thorsteinsson skáld dáð hana mjög i Gilsbakkaljóðum. Al- kunn er og Gilsbakkaþula: „Kátt er á jólunum, koma þau senn” o. s. frv. Gilsbakki er mjög viðlend jörð enn i dag, þótt ekki sé sem fyrrum, en þá taldi Gilsbakka- kirkja sér silungsveiði nær alla á Tvi'dægru og Holtavörðuheiði, allt vestur til Snjófjalla, og fjaðra- og fuglatekju á þeim. Margir merkir klerkar hafa verið á Gilsbakka, t.d. hinn sið- asti, séra Magnús Andrésson 1881-1918. Var hann prófastur og alþingismaður. Stofnaði bind- indisfélag og lestrarfélag i prestakalli sinu. Nú er á Gils- bakka útikirkja frá Reykholti. Á myndinni af Gilsbakka um 1900 sést Magnús Andrésson prófast- ur ásamt nokkru af heimilisfólki sinu. Margir þekkja húsið Laufás við Laufásveg i Reykjavik. en það ber nafn kirkjustaðarins sögufræga Laufáss við Eyja- fjörð. Myndin sýnir Laufás i Reykjavik um aldamótin. Bisk- upinn, Þórhallur Bjarnarson, rak mikinn búskap jafnframt embætti sinu, og var nokkur ár formaður Búnaðarfélags ís- lands. Hið stóra Laufástún hvarf smám saman undirhús og götur. Enn er vænn túnblettur um- hverfis kaþólsku kirkjuna og kýrvoru þar enn á beit 1933 eins og myndin sýnir. Mikið þykir mér sú kirkja prýða Reykjavik. Frú Ragnheiður í Jónsdóttir hefur léð „myndsjármynd” reykviska sem Magnús Ölafs- son ljósmyndari hefur tekið, lik- lega um aldamótin. Fljótt á litið virðast þarna rosknir og ráð- settir Reykjavikurborgarar i sparifötunum sinum, en ætli þetta séu raunar ekki „bara” skólapiltar á ferð á einhverjum hátiðisdegi skólans? Slikir hætt- ir tíðkast enn. Kannski getur einhver gefið upplýsingar um myndina? Biskupssetrið I Laufási i Reykjavlk um 1900

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.