Tíminn - 04.02.1978, Page 8

Tíminn - 04.02.1978, Page 8
8 Laugardagur 4. febrúar 1978 Hlutafélög og samvinnustarf A undanförnum árum hefir þaö þráfaldlega heyrzt, aö sam- vinnuhreyfingin sé á alvarleg- um villigötum. 1 þvi efni hefir sérstaklega veriö bent á hluta- félög, samstarfsfélög og dóttur- fyrirtæki, sem samvinnurekstri eru nátengd. Árásirnar hafa einkanlega beinzt gegn Sam- bandinu og hafa þær stundum veriö óvægilegar og litt spöruö stóryröi. Segja má aö sam- bandsmenn geti aö nokkru leyti sjálfum sérum kennt. Þeir hafa ekki sinnt þvi aö svara ásökun- um sem skyldi og varla gefiö þær upplýsingar, sem fyrir hendi eru og greinilega sýna, hve tilefnislaus og fjarstæöu- kennd þessi ádeila á samvinnu- hreyfinguna er. Þetta er rifjaö upp i tilefni af grein, sem Finnur Torfi StefánssonskrifaöiiVísi23. jan. s.l. og sem áöur hefir veriö vitn- aö til. Ummæli hans eru röng og villandi. Annaö eins og raunar margfalt verra hefir þó sést á siöum dagblaöanna um þetta efni á liönum árum. Þaö ætli þvi aö geta veriö gagnlegt aö koma á framfæri nokkurri fræöslu og upplýsing- um um hiö svokallaða „hlutafé- lagabrask SIS” og samstarfs- fyrirtæki þess. Blettur á samvinnu- hreyfingunni Þegar hiti hleypur i þjóð- málaumræðu, þegar kosningar nálgast, er stundum gripiö til stórra oröa og raunar oftar en þá. Það hefir til dæmis komið fyrir, að Þjóöviljinn hefir efnt til hressilegra árása á forystu samvinnustarfs og notaö hluta- félagaeign og afskipti Sam- bandsins sem púöur i byssuna. Málflutningurinn hefir einfald- lega byggzt á þvi, aö öll afskipti af hlutafélögum séu af því illa. Onnur blöö hafa labbað sömu slóö og litt hirt um að fara rétt með staöreyndir eöa leita gagn- legra upplýsinga. Ef máliö er svona einfalt hefir Sambandið nýlega rétt einu sinni brotiö af sér. Raunar ekki syndgaö einu sinni, heldur tvis- var á skömmum tima. Þaö virö- istþvi á sannast núsem fyrr, aö „ein syndin býöur annari heim.” Hvaða nýju óhreinindablettir hafa nú fallið á skjöld sam- vinnumanna, sem hér virðist eiga að gangast viö? JU, samtök þeirra hafa eignazt nýtt hlutafé- lag og hafið náin samskipti við annaö. Ætla mætti aö stjórn og forystuliö Sambandsins verði tekiö til bæna á næsta Sam- bandsfundi vegna þessarar villigöngu og fráviks af réttri leið. Hvernig er vigstaðan hjá „Sambands-herrunum”? Ætli þeir liggi nU loks ekki vel viö höggi? Skoöum það atriði li'tiö eitt nánar. Prjónastofan „DYNGJA” hf. á Egilsstöðum Byggöaþróun seinustu ára kallar á margvislegar breyting- ar atvinnuhátta. Hverageröi, Selfoss, Hella, Hvolsvöllur og Egilsstaðir eru glögg dæmi þvi til staöfestingar. A öllum þess- um stöðum hafa heimamenn reynt aö efna til ýmiskonar at- vinnurekstrar. A ýmsu hefir gengiö sem vonlegt er. Allt hefir þurft aö byggja upp frá grunni. Aflareynslu, læra af mistökum og velja starfinu rekstrarform. Margar leiðir hafa verið farnar. Einkarekstur eöa lausleg sam- tök heimamanna hafa fengizt við hin smærri verkefni en hin stærri leyst með samstarfi sveitarfélaga og annarra fast- mótaöra samtaka héraösbúa og þá efnt til hlutafélagsmyndunar um verke&iiö. Litt hefir veriö kallaö eftir og sjaldan hefir boö- izt forysta eöa stuöningur frá heildsölum eöa svokölluöum peningafurstum, á þessu sviöi. Prjónastofan „DYNGJA” er hlutafélag, sem heimamenn á Egilsstöðum efndu til. Þaö er ekkert launungamál aö rekstur félagsins átti viö margvislega örðugleika að etja. Áhugi var nægur til staðar, en þekking og reynsla ekki. Þegar á bjátaöi var leitaö til samvinnumanna. Þeir höföu staöiö i ullariönaöi i marga áratugi. Þeir voru lik- legir til aö geta.vilja og rétta hjálparhönd enda þótt engin von væri um að gull og grænir skóg- ar yrðu sótt til Egilsstaöa meö þvi aö sinna kalli heimamanna. Sambandsstjórn gerði sér grein fyrir vandanum. Hún skildi jafnhliöa þörfina og það mun hafa veriö mat hennar, aö yfirtaka á hlutafélaginu „DYNGJA” væri hvorki brot á anda eða eöli samvinnunnar. Að baki ákvöröunar stjórnarinnar lá ekki draumur um auö og völd, heldur vibleitni til að efla og styrkja fólkiö i þessu byggöar- lagi. Ætli þaö megi ekki kallast sanngjarnt aö framangreindar upplýsingar séu skobaöar áöur en dómur er felldur. „LANDSÝN” hf. 1 dag telst það til almennra mannréttinda aö fólki gefist kostur á nokkru sumarleyfi. Ætlazt er til þess, aö hvildar- tima þessum sé variö til likams- og sálubóta, gjarna meö því að hreyfa sig nokkuð Ur stað, skoöa og kynnast umhverfi sinu og ná- grönnum i öðrum löndum. Efnt hefir verið til margvislegrar fyrirgreiðslustarfsemi tengda hinum svonefndu feröamálum. Verkalýðsfélögin og starfs- mannahópar hafa staöiö fyrir byggingu orlofsheimila. Ekki hefir verið þar við látið sitja. Ferðalög eru skipulögö og leitað leiða til þess aö gefa mönnum kost traustrar ferðaþjónustu. Til þessa hafa ferðaskrifstofur verib stofnaöar. Fjöldasamtök hafa sannarlega veriö meö i spilinu. Samvinnumenn efndu til SAMVINNUFERÐA, sem er hlutafélag, til að sinna þessu verkefni. Starfseminni varð ekki fundinn eölilegur staður innan samviinuhreyfingarinnar og þvi var hlutafélagsformiö viðhaft. Stofnendur voru Sam- bandið og samstarfsfyrirtæki þess, ellefu kaupfélög, þrjú starfsmannafélög, Stéttarsam- band bænda og samvinnufélagið HREYFILL. Þvi er trúað, aö SamvinnuAerðir eigi eftir að gegna þýöingarmiklu hlutverki á sinu sviði. Ekki fyrst og fremst með þvi, aö safna pen- ingum i kornhlöðu, heldur meö hinu, aö veita góöa þjónustu. Með áþekkum hætti efndu verkalýðsfélögin til og stóöu aö ferðaskrifstofu. HUn er i hluta- félagsformi og heitir „LAND- SÝN”. Og nú hefir það gerzt, að samvinnuhreyfingin hefir enn einu sinni aukið „hlutafélaga- umsvif” sin. Hún er oröin all- stór aðili aö hlutafélaginu „LANDSÝN”. Verkalýös- hreyfingin hefir margsinnis staðfest það i raun, aö hún notar hlutafélagsformið i rdrstri þeg- ar það á við. Sama er um sam- vinnuhreyfinguna aö segja. Fullyrða má að hvorug þessara fjöldasamtaka þurfi aö bera hallan haus útaf þessum mál- um. Þrennskonar hlutafé- lög Rétt er aö gera sér grein fyrir þvi, að hlutafélagaformið lýtur sérstakri löggjöf. Hlutafélögum er markaður sérstakur rammi i þjóðfélagi okkar. Aður fyrr var titt, að einstaklingar eða sam- tök fárra fjáraflamanna notuðu þetta form við áhættusaman rekstur og mjög tiðkast enn, aö stofnuö eru svokölluö „fjöl- skylduhlutafélög” til aö njóta verndar og hlunninda hluta- félagaformsins. Þessi félög eiga að færa gróðann til eigendanna, en firra þá eöa takmarka mjög tap-hættu þeirra. t ööru lagi má nefna þau hlutafélög sem samvinnu- hreyfingin hefir efnt til vegna sérstakra verkefna, sem erfitt var aö leysa innan samvinnu- formsins. Þau mætti gjarna kalla SAMVINNUHLUTAFÉ- LÖG. Þessi hlutafélög á sam- vinnuhreyfingin i raun og veru ein, og hagnaður, sem myndast Framhald á bls. 19. hf. er á Egilsstööum Prjónastofan „Dyngja SINPÓNÍU- TÓNLEIKAR Efnisskrá: Mozart: Brottnámiö úr kvennabúrinu, forleikur Beethoven: Fiðlukonsert i D- dúr op. 61. Elgar: Enigma, tilbrigði op. 36. Attundu tónleikum Sinfóniuhljómsveitarinnar, sem haldnir voru 26. janúar i Há- skólabiói, stjórnaði Bretinn Steuart Bedford. Tónleikarnir voru óvenju glæsilegir, og má vafa laust þakka það stjórnand- anum að talsverðu leyti — hann kann aö vinna, eins og einn hljómsveitarmanna sagði. Ein- leikari i fiðlukonsert Beet- hovens var Norðmaðurinn Arve Tellefsen (f. 1936), sem leikur á Guarnerius-fiölu frá 1739, auk þess sem hann er hinn prýðileg- asti fiðlari. Forleikurinn aö Brottnáminu úr kvennabúrinu þótti mér meö bezta „Mozart” sem hér heyrist — strengirnir hafa spilað léttar og hreinna nú á siöustu tvennum eöa þrennum tónleikum en oft- ast áöur. Mozart samdi annars þessa óperu 26 ára að aldri, og höfundur tónskrár hefur þetta eftir Carl Maria von Weber, sem uppfæröi óperuna: „Þetta frábærlega fjöruga og innblásna verk er mér sérlega kært sem listamanni. Mér virðist sem ég sjái þar hverja persónuna af annarri á þvi hamingjuskeiöi æskunnar, sem enginn endur- heimtir, þar sem allir eru lausir viö áhyggjur og andstreymi vegna þess að orsakirnar hafa verið fjarlægðar. Mér finnst einnig að Mozart hafi náð fuil- um tónlistarþroska með þessu verki sinu. Nú á hann aðeins eftir að vekja athygli heimsins á sér. Óperurnar Figaro og Giovanni fá menn til að búast við miklu meira af honum — en þó hann vildi,mundi hann aldrei geta samiö annaö Brottnám”. Hector Berlioz skrifaöi hins vegar um þessa óperu (Á travers Chants): „..Tónlistin i þessari óperu er hversdagsleg, máttlaus og ófrumleg. Hljóm- sveitarparturinn lætur litiö yfir sér, og er þægilegur, en tilbreyt- ingasnauður og barnalegur...”. Mér sýnist raunar á sumum kol- legum Berlioz hér i bænum, að þeirséu svipaðrar skoðunar um hinn forna jöfur, hvaö sem valda kann. tónlist Fiðlukonsertinn þykir hið mesta snilldarverk hjá tón- skáldinu, bæði sem tónlist, og sem fiðluverk. Enda segir tón- leikaskráin, að Franz Clement, sem frumflutti konsertinn svo illa æföan, að hann „varð að leika sumt af blaðinu, en annaö af fingrum fram”, hafi ekki þurft að heilla áheyrendur með neinum aukabrellum, sem hann þó átti til eins og á þessum sömu hljómleikum, er hann lék heila fantasiu, og hélt fiðlunni á hvolfi! Arve Tellefsen hafði heldur ekki i frammi neinar aukabrellur, heldur lék fagur- lega. Kunnáttumanneskja sagði mér, aö kadensurnar væru eftir . Kreisler, en hljómplötuupptak- an með honum og Barbirolli þótti löngum frábær, þótt gömul væri. Hins vegar munu vera til kadensur eftir Beethoven sjálf- an, sem af heinhverjum ástæö- um heyrast aldrei á fiðlutón- leikum, en munu vera til á hljómplötu með pianó-útsetn- ingu konsertsins. Siðast á efnisskránni voru Enigma-tilbrigöi Edwards Elgar (1857-1934), bráö- skemmtilegt verk og prýðilega flutt. Þvi miður flúðu margir tónleikagestir i hléinu — höfðu komið til þess eins aö heyra fiðlukonsertinn — en tilbrigðin voru bara miklu skemmtilegri. Þarna mátti lika heyra marga bráðfallega einleikskafla i hljómsveitinni: t.d. léku hornin af miklu öryggi, sem ekki hend- ir alltaf, og hafa þótt slik brögö að þessu gegnum tiöina, aö sjálfur Wagner skrifaöi um lærða ritgerð. I gamla daga mátti oft heyra hornleikara Sin- fóniuhljómsveitarinnar „klikka” með eftirminnilegum hætti, svo lúðraþeytararnir i baksætunum veltust um af hlátri, orðnir leiðir eftir að hafa talið 500 tiðindalausa takta. Raunar henti slikt atvik á dög- unum, svo minnti á gamla daga: undirritaður dottaði augnablik undir Chopin- pianókonsert, þar sem afreks- maður i fingrafimi var að gera ævintýralega hluti i skölunum, en hrökk upp með andfælum þegar hornin „klikkuöu” með óvenjulegum tilþrifum, svo ókunnugir heldu að konsertnum hefði lokið óvænt. En slikt skeð- ur ekki oft núorðið, enda i sjálfu sér smámál, og fremur heimil- islegt en hitt og yfir höfuð virð- ist hljómsveitin vera i miklu formi um þessar mundir. Með þessum tónleikum lauk fyrra misseri vetrarins — hið siðara hefst með 9. hljómleikun- um hinn 9. febrúar, þar sem m.a. verður fluttur Gamanfor- leikur eftir Victor Urbancic, og Gunnár Kvaran leikur einleik i knéfiðlukonsert Schumanns. 1.2. Sigurður Steinþórsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.