Tíminn - 12.02.1978, Side 8

Tíminn - 12.02.1978, Side 8
8 Sunnudagur 12. febrúar 1978 •4 Holt á Siðu ^fngólfu^Davíðsson: gamla og búið í daga 209 Holt á Siðu (tröö) Hyggjum að stórbýlinu gamla Holti á Siðu. Það stendur nú uppi á brún undir Holtsborg, en stóð áður niðri á láglendi. 1 Skaptáreldum 1783 rann hraun yfir miklar og góðar engjar og eyddi bæinn o.fl. bæi, er siðar voru fluttir upp á brúnirnar, en þar uppi er mikið graslendi og góðir hagar. Byggðist þá bú- skapurinn mjög á fjárbeitinni. Hiðmyndarlega timburhús, er á myndinni sést, byggði Árni Gislason sýslumaður árið 1873, skammt frá þeim stað þar sem torfbæirnir stóðu áður. Seinna var þakið járnklætt og er enn búið i húsinu. Til vinstri á myndinni sést skemma með timburþili, en hana er búið að rifa. Næst húsinu t.h. er hlaða, en fjós lengst t.h. Þarna i Holti sleit Jón Björns- son rithöfundur barnsskónum, en bróðir hans Siggeir hrepp- stjórihefur lengi búið á mestum hluta jarðarinnar. t brekku niður við Skaptá, skammt frá túninu, vex þyrni- rós og hefur vaxið þar frá ómunatið. Þyrnirósin myndar þétta, lága runna og ber hvit eða bleik blóm. Myndina af Holti á Siðu tók Stefán Nikulásson um 1960. önnur mynd eldri af Holti er hér einnig birt. Sjást þar langar traðir heim að bænum. 1 bók Þórarins Helgasonar, „Lárus á Klaustri” 1957, segir (á bls. 71—72): Arni Gislason sýslu- maður sat Klaustrið með miklu rikidæmi og hafði undir Holt á Siðu, annað stórbýli sýnu betra. Ráðsmennsku þar önnuðust hjónin Bergur og Ólöf. 1 kvium voru 500 ær og mjólkað Ólöf þær i bæði mál meö einni stúlku sér til hjálpar. Eftir Árna kom aö Holti Runólfur Jónsson, mikil- úðugur höfðingsbóndi og kona hans Sigurlaug Vigfúsdóttir er lengi var ljdsmóðir. Höldum héðan til Vikur i Mýrdal og litum á þriggja risa timburhús á hlöðnum grunni austan við Vikurána. Þetta eru tvö hús sambyggð. Hlutur t.h. þar sem leiðslur liggja inni, heitir Engigarður. Var upphaf- lega torfbær, byggður 1919, en timburhúsið reist 1945. Þarna bjó fyrst lengi Sigriður Runólfs- dóttir. Timburhúsið t.v. (tvö ris) heitir Hjalli, reist 1908, en endurbyggt 1933. Sennilega reist af Jóni Brynjólfssyni trésmið. Seinna bjó þar lengi Ragnhildur Einarsdóttir. 1 baksýn Hatta og Hrafnatindur. Fjórða myndin er af „drekan- um” þ.e. sambland af bil og landgöngupramma frá hernum, held ég. En drekinn dugði vel til ferðalaga um sandana og vatnaflaumana þar, t.a.m. yfir Skeiðará Myndina tók Stefán Nikulásson árið 1973. Einnig myndina af tvihýsinu Hjalla og Engigerði i Vik. Frá Vík i Mýrdal y Dreki á Breiðamerkur sandi 1973 . Fyrrnefndur dreki er furöu- legt farartæki. Hann hefur kom- ið við sögu á erlendri innrásar- strönd, flutninga og leit að gull- farmskipi á eyðisöndum Islands.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.