Tíminn - 12.02.1978, Qupperneq 14

Tíminn - 12.02.1978, Qupperneq 14
14 Sunnudagur 12. febrúar 1978 Nemendur á Hvanneyri teknir tali Ætlar að verða arkitekt Við erum stödd i bænda- skólanum á Hvanneyri. Ætlunin er aö ræða við nokkur þeirra ungmenna sem stunda nám hér og það er ung stúlka sem fyrst situr fyrir svörum. Við skulum byrja á því að spyrja hana aö nafni. — Þú heitir...? — Áslaug Traustadóttir. — Hvenær byrjaöir þú í námi þinu hér i skólanum? — I október i haust. — Og ætlar að nema búvis- indi? — Nei, mig langar til þess aö verða arkitekt og þá garðyrkju- og utanhússarkitekt. Námið hérna tekur einn vetur ég verð búfræðingur i vor en arkitekts- námiö þarf ég að stunda er- lendis. — Hvaða undirbúningsmennt- unar er krafizt til inngöngu i bændaskólann hér á Hvann- eyri? — Við þurfum að hafa lokið gagnfræðaprófi. — En hvers vegna fórst þú einmitt i skólann hérna var ekki hægt aö stunda hliöstætt nám i einhverjum öðrum skóla? — Það lá nokkurn veginn beint við að ég notfærði mér Hvanneyrarskólann þvi að faðir minn er kennari hér á staðnum. — Nú þá skal mig ekki furða þótt þú sért hér. En hvort myndir þú heldur vilja starfa i sveit eða kaupstað, eftir að þú hefur lokið námi þinu og ert orðin arkitekt? — Ég vil miklu heldur eiga heima i sveit og starfa þar. Utanhússarkitekt getur fengizt við margt fleira en skipulagn- ingu skrúðgarða það er lika verk aö vinna i sambandi við sumarbústaði og umhverfi þeirra ennfremur skógrækt og fleira. — Svo við vikjum aftur að skólanum hérna: Hvaö þurfa væntanlegir nemendur að vera gamlir til þess aö fá skólavist? — Lágmarkið er sextán ár en ég er orðin nitján ára svo ég uppfylli þetta skilyrði vel. — Hefur þú ekki unnið öll al- geng sveitastörf fyrst þú átt heima hér á Hvanneyri? — Nei, það er litið. Hins vegar hef ég unnið viö tilraunir sem gerðar eru hérna. — Hvað gerið þið þar? — Þegar um grasræktartil- raunir er aö ræða sáum við á vorin og berum á siðan eru reitirnir slegnir heyið af hverj- um bletti vigtað og tekin sýni. Mér þykir gaman að þessari vinnu, einkum vegna þess hve húnbýður upp á mikla útiveru. — Að lokum, Áslaug: Hlakkar þú til þess að starfa sem arki- tekt? Heldur þú að þaö verði gaman? — Já, það geri ég. Mér hefur alltaf þótt gaman að teikna, og ég hefði ekki lagt út á þessa braut ef eghefði ekki trúað þvi að starfið yrði skemmtilegt þegar að þvi kemur. —VS Aslaug Traustadóttir „Undarlegt að sjá alltaf auða j örð’ ’ Næst á eftir Aslaugu Trausta- dóttur var Álfheiöur Marinós- dóttir tekin tali. — Byrjaöir þú i skólanum i haust, eins og hún stalla þín, sem ég var að tala við áðan? — Já, ég kom hingað þegar skólinn hófst i október. — Þú sagöir ,,ég kom hing- aö.” Þú ert þá ekki búsett hér á Hvanneyri eins og Aslaug? — Nei, ég er norðan úr Skaga- firði nánar til tekið úr Lýtings- staðahreppnum. — Hvers vegna valdir þú þér búnaöarskóla, öðrum skólum fremur? — Ég hef gaman af búskap, og ég vildi fræðast meira um hann, sjá eitthvað nýtt og auka þekk- ingu mina á öllu, sem kemur bú- skap við. — Hefur þú gaman af skepn- um? — Já, mjög. — Þá hlýtur þú, sem Skag- firðingur, að vera hestelsk? — Þaö er rétt, ég hef ákaflega mikið yndi af hestum. — Þú hefur þó ekki komið meö hest meö þér hingað i skólann? — Nei, að visu kom ég ekki með hann með mér, en ég á von á honum. Hann kemur hingað núna á þriðjudaginn. — Mega nemendur hafa hesta sína hér hjá sér? — Já, eftir áramót má hver nemandi hafa einn hest hér, þangað til skóli er úti á vorin. — Eru það þá tamdir eða ótamdir hestar? — Flestir reyna að koma með ótamda hesta, því aö hér fer fram leiðsögn I tamningu, og svo er keppni um beztu tamninguna. Þá vilja auðvitað sem flestir vera meö, þótt eng- inn viti fyrirfram hver verður hlutskarpastur. — Þurfið þiö ekki að greiöa eitthvað fyrir dvöl hestsins og leiðbeiningu eða jafnvel aðstoö við að temja hann? — Jú, að sjálfsögðu. Það kost- ar þrjú hundruð og sextiu krón- ur á dag að hafa hestinn hér. Búið sér um hriðingu hans, en eigandinn annast hann þó að vissu marki. Viö erum skyldug til þess að koma i húsin tvisvar til þrisvar i viku, til þess að sjá um hestinn, og svo skiptumst viö á að moka hesthúsin. Það moka alltaf tveir og tveir i einu hvern dag. — Er þetta taminn hestur, sem þú ert að fá hingað suður? — Nei, alveg ótaminn. — Ætlar þú að temja hann sjálf? — Ég ætla aö reyna það, — ef ég ræð þá viö hann. — Hvað er hann gamall? — Hann verður sex vetra i vor. Hann er rauöstjörnóttur og glófextur, og mér hefur dottið i huga að skirahann Teista. Samt ætla ég ekki að slá neinu föstu með nafnið, fyrr en hann kemur suður, þaðeroröið svolangtsið- an ég hef séð hann. — Þú sagðir áðan, „ef ég ræð við hann.” Grunar þig, að hann muni verða baldinn i tamningu? — Ég veit það ekki. Hann er ákaflega styggur, enhrekklaus. Hann er alveg alinn upp i stóði, og hefur ekki verið haföur á húsi. — Næst langar mig að spyr ja um sjálfa þig. Hvað ætlar þú aö taka þér fyrir hendur, þegar þú hefur lokiö búfræðiprófi? — Það er óráðið. kannski læri ég eitthvað meira, ég veit það ekki, þó þykir mér það líklegt. — Hvort myndir þú heldur vilja eiga heima i sveit eða kaupstað? — Miklu heldur i sveit, — ég liki þvi ekki saman. — Hvernig likar þér á Hvann- eyri? — Agætlega, hér er mjög gott að vera, og ég uni hag minum prýðisvel hér. — Hverjar eru helztu náms- greinarnar hérna? — A líffræðisviði eruþaðaöal- lega lfffræði og efnafræöi. Svo eru hagfræöi, vinnufræði, verk- færafræði og vélfræði. Þá má nefna búfjárfræði, heyverkun og ræktun, og yfirleitt allt, sem snertir almenn bústörf. Aftur á móti eru ekki kennd nein tungu- mál. — Þú sagðist una þér vel hér, en finnst þér samt ekki um- hverfið hér næsta ólíkt þvf sem þú ert vön i heimahögum þfn- um? — Égkannmjög vel við fjalla- Álfheiður Marinósdóttir hringinn hérna, — en ég sakna snjósins. Mér finnst einhvern veginn undarlegt að sjá alltaf auða jörð á hverjum degi um háveturinn, það er svo ólikt þvi sem ég á að venjast að heiman. Hér er lika vindasamara og minna skjól en heima hjá mér. Yfirleitt er flestöðru vlsi hér, en þó kann ég vel við umhverfiö, og þaðer áreiðanlega fallegthérna á sumrin. -VS. ViH búa í heima- högum sínum Þegar rætt hafði veriö drjúga stund við námsmeyjar i Hvanneyrarskóla, var rööin komin aö karlþjóðinni, enda er mikill meirihluti nemenda enn karlkyns, þótt reyndar sé ekki neitt þvi til fyrirstöðu, að stúlk- ur stundi búnaðarnám. Hér verður rætt við ungan mann, sem heitir Björn Birkisson, og viö skulum byrja á þvi aðfor- vitnast um uppruna hans. — Ert þú úr sveit, Björn? — Já, ég er vestan af Vest- fjörðum, nánar tiltekið frá Birkihlið i Súgandafiröi. — Finnst þér ekki ólikt um að litast hér og vestur á fjörðum? — Jú, landslagið er allt ann- að, og auk þess miklu snjó- léttara hér en þar. — Ég þóttist skilja þaö á nafninu Birkihlið, sem þú nefndir áðan, aö þar sé um sveitabæ aö ræða. — Já, það er rétt, Birkihlíð er bóndabær, og ég er bóndasonur. — Og þú ert þá hér, af þvi að þú ætlar að halda áfram i stétt- inni? — Já, ég geri ráð fyrir þvi aö verða bóndi. — Ert þú ekki i framhalds- deildinni hérna? — Jú, og hún er i raun og veru beint framhald bændadeildar að þvi leyti, að það eru að mestu leyti sömu námsgreinarnar, , sem kenndar eru, en fariö miklu dýpra i hverja grein, ef ég má komast þannig að orði. Námið i framhaldsdeild tekur þrjá vetur, og nú má segja, aö ég sé staddur á miðri leið, þar sem ég er búinn að vera hálfan annan vetur af fyrirhuguðum náms- tima. — Þú sagðir, að framhalds- deildin væri að sumu leyti beint framhald bændadeildar. Er það þá svo að skilja, að maður, sem hefur lokiö búfræöinámi í bændadeildinni geti gengiö beint inn i framhaldsdeild á næsta hausti? — Nei, ekki nema hann eigi þá að baki annað nám. Inntöku- skilyrði I bændadeild er gagn- fræðapróf, en sá sem vill setjast i framhaldsdeildina þarf annaö hvort að hafa lokið stúdents- prófi eða prófi úr raungreina- deild tækniskóla. Þessarar menntunar þarf hann að afla sér, eftir að hann hefur lokið búfræðiprófi, áður en hann setzt I framhaldsdeildina, nema að hann hafi verið búinn að ljúka þvi námi einhvern tima áöur. — Nú langar mig að vera persónulegur viö þig: Hvaöa námsgreinar þykir þér skemmtilegastar? — Það er nú dálltið blandað. Mér þykir gaman aö öllum greinum, sem snerta búfjárrækt á einhvern hátt, og sömuleiöis greinum um byggingar og tækni. Við erum núna aö læra byggingafræði, en það er stutt á veg komið, við vorum að byrja á þessu eftir áramótin. — Lærið þið þá um stein- steypu og annað slikt? — Þaö mun veröa fariö yfir öll helztu atriði, sem varöa byggingar i sveitum, við kynn- um okkur lög og reglugerðir um þau efni, og svo helztu atriöi sem varða sjálfa byggingar- tæknina. Það er hverjum bónda nauðsyn að kunna einhver skil á slikum hlutum, svo að menn standi ekki alveg eins og^ glópar, ef þeir þurfa að byggja eða endurbæta hús á jörðum sinum. — Það kom fram hjá skag firzku dömunni, sem ég var aö tala við áðan, að hún væri að fá hest sinn hingað innan fárra daga. Ert þú kannski lika með hest hérna? — Nei, ég á ekki hest hér, enda er ekki neinn hestur heima hjá mér, og hefur ekki verið siðast liöin tuttugu ár. Annars er búskapurinn heima blandað- ur, bæði sauðfé og kýr. — Er ekki óþægilegt fyrir fjárbónda að vera hestlaus? — Nei, ekki eins og hagar til heima hjá mér. Afréttarlönd eru engin; og auk þess svo fjöll- ótt, að maður verður alltaf að smala gangandi, og þaö væri aöeins trafali að þvi að vera með hest með sér. — Þú sagöist áðan gera ráð fyrir þvi að verða bóndi. Ætlar þú þá að snúa þér að þvi strax, eftir að þú hefur lokiö námi þinu? — Já, ég býst við því. Ég hygg, að bóndastaðan verði að öllu saman lögðu fjölbreyttasta og skemmtilegasta starfiö, sem ég á völ á, og auk þess vil ég ógjarna yfirgefa æskustöövar Björn Birkisson mínar. Mig langar til þess aö halda áfram að eiga heima i sveit minni. — Þú kvfðir þá ekkert fyrir þvi að verða bóndi, þótt sumir kollegar minir hafi skrifað i heldur óvinsamlegum tón um þá stétt á siöustu árum? — Nei, siður en svo. Ég hlakka þvert á móti til. —VS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.