Tíminn - 12.02.1978, Side 33

Tíminn - 12.02.1978, Side 33
Sunnudagur 12. febrúar 1978 33 og tækjum til landbúnaðarins i samanburði við aðrar at- vinnugreinar. 11. Augljóst er að þær efnahags- ráðstafanir sem um er rætt i tillögum formannsins og meiri hluta verðbólgunefndar muni ekki leysa nema að litlu leyti söluvandamál landbúnaðarins á þessu ári. Þvi mun þurfa viðbótarráðstafanir fyrir landbúnaðinn svo hlutur bænda haldist i ekki lakara hlutfalli við aðrar stéttir en verið hefur. En vegna þess hve kjör bænda hafa verið knöpp að undanförnu þyrfti hlutur bænda að batna hlut- fallslega miðað við aðra i þjóðfélaginu og skorar stjórn Stéttarsambands bænda á rik- isstjórnina að gera ráðstafan- ir i þá veru i samráði við stjórn Stéttarsambands bænda. Samþykkt á fundi stjórnar Stéttarsambands bænda 7. febrú- ar 1978. f.h. Stéttarsambands bænda Gunnar Guðbjartsson Arnarflug margfaldar farþegafj ölda HEI— A siðasta ári voru farþeg- ar á vegum Arnarflugs 80.360. Er það gifurleg aukning þvi árið áður en þá voru farþegar 17.515. Fyrstu átta mánuði ársins var ein þota af gerðinni Boeing 720 i ferðum á vegum félagsins en í september s.l. var önnur þota sömu gerðar tekin i notkun. Fastráðnir starfsmenn Arnar- flugs voru i ársbyrjun 12 að tölu en voru orðnir 52 f árslok. Eins og fram kemur i ofan- sögðu jukust verkefni Arnarflugs að miklum mun á þessu öðru starfsári félagsins. A vegum is- lenzkra ferðaskrifstofa og félaga- samtaka voru farþegar fluttir til Kanada, Norðurlanda,Bretlands, trlands, Þýzkalands, Austurrikis, Spánar, Portúgals, Grikklands og Kanarieyja. Þá voru vélar félags- ins i tiðum ferðum fyrir erlend flugfélög. íslandsferðir frá Kaupmannahöfn íslendingafélagið i Kaupmanna- höfn og námsmannafélagið þar hyggst gangast fyrir flugferðum lieim til islands á þessu ári. En þar er um að ræða páskaferð og sumarferðir. Páskaferðin er háð þvi, að þátt- takendur verði eigi færri en sex- tiu, og er höfð tilhögun, sem greiðir fyrir þvi, að fólk á félags- svæðinu, er á heima utan Kaup- mannahafnar, geti tekið þátt i hennifyrir sama gjald og aðrir. A hinn bóginn er þátttakan bundin við aðild að öðru hvoru félaginu. Um sumarferðir verður liklega hægt aðveija um venjulegar flug- ferðir um flestar helgar i júni og júli', eða þátttöku i ferðum með leiguflugvélum, sem liklega fara frá Kaupmannahöfn 10. júni og 22. júli. Er þá miðað við, að fyrri hópurinn komi aftur til Kaup- mannahafnar 3. spetember, en hinn siðari hafi miklu skemmri viðdvöl og snúi til Danmerkur 13. ágúst. Fargjöld i þessum ferðum verður lægra en þau, sem tengj- ast venjulegu flugi, en aftur á móti eru ferðirnar bundnar við ákveðna daga. Samningum um þessar ferðir er þó ekki, að fullu lokið. 0 Sérálit dæmin lýsa og um er að velja i þessu efni, mætti nefna svo: 1) Samdráttarleið,en i henni felst fyrst og fremst það að beita f jármála- og lánamálatækjum hins opinbera i aðhaldsátt og til beinnar verðlækkunar án afskipta af gerðum kjara- samningum. 2) Launastöðvunarleið, sem treystir fyrst og fremst á launastöðvun til þess að draga úr verðbólgu og þar með úr kostnaðarhækkun hjá atvinnu- vegunum. 3) Gengislækkunarleið, sem treystir fyrst og fremst á það að lækka gengið verulega i einu skrefi til þess að tryggja rekstrargrundvöll útflutnings- atvinnuvega og jafnvægi i ut- anrikisverzlun, en á niðurfell- ingu verðbóta á laun til þess að hamla gegn verðbólgu auk strangra aðhaldsráðstafana á sviði lánamála. 4) Málamiðlunarleið,sem treyst- ir á nokkra gengislækkun og takmörkun verðbóta auk fjár- mála- og peningamálaráðstaf- ana. í öllum leiðunum fjórum er ein- hver gengislækkun þegar i stað talin nauðsynleg. Dæmin sýna gengislækkun frá skráðu gengi 3. febrúar 1978 frá 8% til 10% upp i 20%, i þeim felst einnig nokkur skerðing kaupmáttar frá þvi, sem að er stefnt með gildandi kjara- samningum, minnst i samdrátt- ar/niðurfærsluleiðinni, en mest i launastöðvunar- og gengislækk- unarleíðunum. 1 málamiðlunar- ieiðinni er að þvi stefnt aðhalda i aðalatriðum þeim kaupmætti, sem var aðmeðaltali á árinu 1977. Telja verður, að brýn þörf sé fyrir ákveðnar aðgerðir i efna- hagsmálum þegar i stað, og jafn- vramt sé mikilvægt, að við lausn á hinum aðsteðjandi efnahags- vanda séufarnar leiðir, sem leggi grundvöll að bættri efnahags- stefnu á næstu árum. 1 aðalatrið- um er um tvær leiðir að velja: 1. Að fylgja þeirri meginhug- mynd sem sett er fram i Dæmi 2 i þriðja kafla skýrslunnar og lýsa mætti sem samdráttar- og niðurfærsluleið gegn verð- bólgu, að afstaðinni óhjákvæmilegri gengislækkun um nálægt 10% þegar i' stað, en gerðir kjarasamningar haldist óbreyttir. 2. Að fylgja þeirri meginhug- mynd, sem sett er fram i Dæmi 5 i þriðja kafla skýrslunnar og lýsa mætti sem málamiðlunar- leiðgegn verðbólgu, að afstað- inni um það bil 15% gegngis- lækkun þegar i stað, samhliða nokkurri skerðingu verðbóta- ákvæða gildandi kjarasamn- inga auk hliðarráðstafana á sviði rikisfjármála og lána- mála. Eins og nú er ástatt i efnahags- málum verður að álita, að sú meginhugmynd, sem fólgin er i málamiðlunarleiðinni, sem lýst er i fimmta dæminu (nánar til- tekiðDæmi 5b) ilokagrein þriðja kafla sé skárri kostur, þegar tekið ertillittil sem flestra markmiða i efnahagsmálum. 1 þessu felst fýrst og fremst ábending um að- alatriði nauðsynlegra aðgerða en ekki um framkvæmd þeirra i einstökum greinum. í þessu efrii skiptir miklu máli, að ekki sé gengið iengra i mildandi ráðstöf- unum á sviði rikisfjármála en raunverulegur grundvöllur er fyrir. Enn ein nýjung frá Tækniskólanum Nýjasti árangur af viðleitni Tækniskóla islands til að svara þörfum þjóðfélagsins fyrir margs konar tæknimenntun er braut- skráning 5 byggingatækna, þann 20. des. s.l. segir i fréttatil- kynningu frá skólanum. Hugmyndin er að bygginga- tæknarnir muni einkum starfa sem byggingastjórar, verk- stjórar, eftirlitsmenn, verktakar, sölumenn og innkaupastjórar, og i minna mæli sem aðstoðarmenn á rannsóknastofum og sem starfsmenn á verkfræðistofum eða við landmælingar. Næst hefst kennsla á þessari námsbraut i haust. Sama dag voru brautskráðir 7 raftæknar og eru þeir þar með orðnir 44 frá skólanum i 6 ár- göngum. Hafa þeir viða haslað sér völl og menntunin reynzt hin nytsamasta. Loks voru brautskráðir 12 byggingatæknifræðingar og eru þeir þar með orðnir 118 frá skól- anum i 7 árgöngum. Nám tæknanna tekur 2 1/2 ár eftir sveinspróf, en tæknifræðinga 5 1/2 ár. Menntun meinatækna er þó með öðrum hætti og tekur 2 ár eftir stúdentspróf. í haust var tekið upp svokallaö áfangakerfi i Tækniskólanum og hefur það gefizt mjög vel. Fjöldi nemenda á haustönn var nálega 300. 12 byggingatæknifræðingar er brautskráðust nýlega: Talið frá vinstri: fremri röð: Sveinn Karlsson, óiafur Stefánsson, Stefán Finnsson, Steingrfmur Hauksson, Stefán Veturliðason, aftari röð: Sveinn Krist- jansson, Hermann Hermannsson, Ingólfur Margeirsson, GIsli Gunnlaugsson, Baldur Bjartmannsson, Haukur Helgason og Atli Jóhann Hauksson. JMW MíL mmm 'i _ ~ - Mynd af 6 raftæknum (einn vantar), talið frá vinstri: fremri röð, Björn Ingvarsson, Sigmar Guðbjörnsson, Ágúst Jónsson, aftari röö: Stefán Arngrimsson, Kristinn Kristinsson, Magnús Björnsson, Guðmund Þor- leifsson vantar á myndina Hinir 5 nýbrautskráðu byggingatæknar, taiið frá vinstri: Gestur Björnsson, Jón Guömundsson, Bjarni Snæbjörnsson, Sigurbjörn Þokelsson og Karl Ragnarsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.