Tíminn - 17.02.1978, Side 1

Tíminn - 17.02.1978, Side 1
GISTING MORGUNVERÐUR AUOARÁRSTÍG 18 SIMI 2 88 66 Endurskoðun vísitölu- kerfisins — segir Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra ESE — Vegna þeirrar ákvörð- unar rikisstjórnarinnar, að fella niður 3. grein frumvarpsins um aðgerðir i efnahagsmálum, hafði Timinn samband við Ólaf Jóhannesson dómsmála- ráðherra og bað hann um að segja álit sitt á þessari aðgerð. Ólafur Jóhannesson sagði, að á rikisstjórnarfundi i gær- morgun hefði verið ákveðið að fella niður 3. grein frum- varpsins-,, og áttiég minn þátt i þvi, að svo var gert” — Það er min skoðun, sagði Ólafur, að taka eigi óbeina skatta út úr visitölu likt og beina skatta. Ég hef rökstutt þá skoðun mina áður og sé ekki ástæðu til þess að endurtaka það Hins vegar skiptir það ekki öllu máli hvort slikt ákvæði, sem ekki á að koma til fram- kvæmda fyrr en löngu eftir kosningar, sé sett i lög nú, þvi að um framkvæmd þess fer vita- skuld eftir vilja þess meirihluta sem stendur að rikisstjórn eftir kosningar. Sumir hafa viljað eigna mér sérstaklega þessa 3. gr., en ég mun nú ekki þiggja nein höfundarlaun fyrir hana. Mér þætti ekki óliklegt að einhverjir aðrir teldu sig eiga einhvern þátt i henni, en um það sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða á þessu stigi. Astæðan fyrir þvi að 3ja gr. er felld niður, er sú að það hafa komið fram andmæli frá laun- Ólafur Jóhannesson þegasamtökunum, og eins og ég hef áður sagt, þá skiptir ekki beint máli i sambandi við þann efnahagsvanda sem við er að etja, hvort hún er felld niður eða 'ekki. Að þessu leyti er vel hægt að ganga til móts við óskir laun- þegasamtakanna, enda eru auðvitað ýmsir aðrir þættir visi- tölukerfisins sem þurfa endur- skoðunar við, og er þvi ekki óheppilegt að ráðrúm gefist til að taka þau mál heildstætt til athugunar i samráði við aðila vinnumarkaðarins. Frumvarp um efnahagsmál: 3. grein felld niður Geir Hallgrlmsson flytur yfirlýsingu sfna á Alþingi I gær. Rikisstjórnin hefur I samráði við meirihluta fjárhags- og við- skiptanefndar, lagt til að 3. gr. . frumvarps um efnahagsmál verði felld burt. Vill rikisstjórnin með þvi sýna að hún er reiðubúin til samráðs við aðila vinnumarkað- arins, um framtiðarskipan þessa mikilvæga þáttar i ákvörðun launa. Kom þetta fram i yfirlýsingu forsætisráðherra i byrjun fundar I efri deild alþingis i gær, en yfir- lýsingin var að öðru leyti svo- hljóðandi: „Miklar umræður hafa spunn- izt um 3. gr. i frumvarpi rikis- stjórnarinnar um ráðstafanir I efnahagsmálum, en þar er lagt til að frá og með 1. janúar 1979 skuli óbeinir skattar ekki hafa áhrif á verðbótavisitölu eða verðbótaá- kvæði i kjarasamningum. Full- trúar launþegasamtaka hafa af ýmsum ástæðum lýst ákveðinni andstöðu sinni við þetta ákvæði. Skoðun og rök rfkisstjórnarinn- ar fyrir þessari tillögu eru skýr og þarf ekki að endurtaka þau. Nú Núverandi visitöluákvæði hafa óæskileg áhrif á stefnuna i skatta- málum, auk þeirrar hættu á vixl- hækkun kaupgjalds og verðlags, sem þau fela I sér. Það er athygl- isvert, að nær allir, sem til máls hafa tekið i umræðu um þetta mál, telja visitölukerfið mein- galiað. Rikisstjórnin telur þvi rétt að taka verðbótaákvæði i kjara- samningum til allsherjarendur- skoðunar og þar með visitölu- grundvöllinn ogvil.vinna að þessu máli i samráði við samtökin á vinnumarkaðinum, þannig að ný skipan geti komið til fram- kvæmda frá upphafi næsta árs.” Verkfail hlaðamanna hófst á miðnætti SJ— A miðnætti siðastliðna nótt hófst verkfall blaðamanna, og er þetta þvi siðasta tölublað Timans að sinni. Verkfallið nær til Alþýðublaðsins, Dagblaðsins, Morgunblaðsins, Timans, Visis, Þjóðviljans, Vikunnar, Æskunn- ar, Dags, Norðurlands, Alþýðu- mannsins, Islendings og blaða Frjáls framtaks. öll vinna félagsmanna i Blaðamannafélaginu við hvers kyns fjölmiðlun er óheimil i verkfallinu án tillits til starfs- heitis félagsmanna. í Bí eru blaðamenn handrita- og próf- arkalesarar, umbrotsmenn og útlitsteiknarar. öllum er ó- heimilt að ganga i störf félags- manna i verkfallinu. Litið miðaði miðaði i sam- komulagsátt á samningafundi blaðamanna og útgefenda hjá sáttasemjara i gær. Bragi Guð- mundsson úr stjórn B1 sagði i gær, að útgefendur hefðu fyrir fáum dögum boðið 6,5% kaup- hækkun. Blaðamenn hefðu aftur sýnt vilja til að ræða málið á ýmsum grundvelli og boði ekki minni tilslökun frá kröfum sin- um en næmi tilboði útgefenda um launahækkun. Einar Ágústsson: Andvígur 3ju grein frá upphafi ESE — Ég hef verið andvigur 3ju grein frumvarpsins frá upphafi, sagði Einar Agústsson utanrikis- ráðherra, þegar hann var spurður álits á niðurfeliingu umræddrar greinar úr frumvarpi rikisstjórn- arinnar um aðgerðir i efnahags- málum. Einar Agústsson Björn Jónsson og Kristján Thorlacíus: Kj araskerðinguna verður að stöðva ESE —Timinn hafði samband viö Björn Jónsáon formann ASÍ og Kristján Thorlacius formann BSRB og innti þá eftir þvi, hvort . niðurfelling 3ju greinar frum- varpsins um aðgerðir I efnahags- málum, myndi koma til að breyta afstöðu launþegasamtakanna. Björn Jónsson sagði að þetta breytti engu um afstöðu ASl til efnahagsfrumvarpsins, þetta væribara smásigur. ,,Við munum halda áfram baráttunni gegn þeirri kjaraskerðingu sem stefnt er gegn launþegum. Það atriði að fella 3ju grein út úr fraum- varpinu, skiptir engu höfuðmáli. Hún hefði hvort eð er ekki komið til framkvæmda fyrr en eftir aö núverandi samningstimabili lýkur”, sagði Björn. Kristján Thorlacius, sagði að það skipti engu máli á þessu stigi hvort 3ja greinin væri felld niður. „Höfuðmálið er það, að kjara- skerðingin, sem stefnt er gegn launþegum i landinu, verði stöðvuö. Það er aöalatriðið aö dómi BSRB, að kjaraskerðingin og riftun samninga veröi stöðvuð”, sagði Kristján. Árekstur á Hverfisgötu ætlað að skjótast yfir götuna, en misreiknað hraða sendibifreið- arinnar og þvi hafi farið sem raun varð. Slys urðu ekki telj- andi á mönnum, aðeins smá- skrámur, en a.m.k. Fiat-bif- reiðin er allmikið skemmd. ESE — Allharður árekstur varð a mótum Hverfisgötu og Smiðjustigs um kl. 15.30 i gær- dag. Þar var ekið litilli Fiat-bif- reið i veg fyrir sendibifreið frá Pósti og sima, sem var á leið inn Hverfisgötu. Talið er að öku- maður Fiat-bifreiðarinnar hafi

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.