Tíminn - 17.02.1978, Blaðsíða 17

Tíminn - 17.02.1978, Blaðsíða 17
Föstudagur 17. febrúar 1978 17 Arnað heilla 19.11. 77 voru gefin saman i Bii- staðarkirkju af sr. Lárusi Hall- dórssyni Sigurlaug Vilhjálms- dóttir og Ágúst Einarsson heimili Flúðaseli 12, R. (Ljósm.st. Gunn- ars Ingimars. Suðurveri) 15.10. 77 voru gefin saman i hjónaband af sr. Guðmundi Þor- steinssyni Auður Hugrún Jóns- dóttir og Richard Þ. Úlfarsson heimili Efstasundi 75, R. (Ljósm.st. Gunnars Ingimars. Suðurveri) „ Gama/dags " hurðir Nýjar hurðir með gamaldags útliti Breytum gömlu hurðunum I „gamaldags” með fullningum að yðar óskum. Munstur og viðartiki 42 tegundir. Sýnishorn á staðnum. B runas: EGILSTÖÐUM FDRMCD SF Skipholl 25 - Reykjavik - Simi 24499 Safnnr. 2M7 - 2057 Ný sending væntan/eg Verð — miðað við gengi i dag: Fólksbíll kr. 881.000 Station kr. 950.000 TRABANT/WARTBU RG UMBOÐIÐ Vonar/andi við Sogaveg Símar 8-45-10 & 8-45-11 Om Arnljótsson bankaútibústj óri F. 31. október 1936 D. 11. febrúar 1978 Þannll. febrúar sl varð örn Arn- ljótsson bankaútibústjóri bráð- kvaddur á heimili sinu i Ólafsvik. örn var fæddur i Reykjavik 31. október 1936, sonur hjónanna Agústu Figved og Arnljótar Daviðssonar. örn var elztur þriggja sona þeirra hjóna. Kynni okkar Arnar hófust er við vorum saman við nám i Samvinnu- skólanum, en þaðan brautskráð- ist hann árið 1955. Sama haust byrjaði örn að starfa hjá út- gerðarfyrirtækinu Garður h/f I Sandgerði, og starfaði hann þar, unz hann byrjaði að vinna hjá Landsbanka Islands. Fyrstu ár sin starfaði örn i Veðbréfadeild, varð siðar deildarstjóri i vixla- deild Landsbankans að Lauga- vegi 77. Arið 1972 var Erni falið að gegna timabundnum störfum sparisjóðsstjóra við Eyrarspari- sjóð á Patreksfirði. Næst tekur Örn við störfum útibústjóra Landsbankans á Keflavikurflug- velli, og var hann þar til ársins 1975. Það sama ár stofnsetur Landsbankinn útibú á Snæfells- nesi, og árið eftir eru opnuð útibú i ólafsvik og á Hellissandi. Eins og hér að framan greinir, þá fól Landsbankinn Erni mikil trúnaðarstörf. Ráðning Arnar sem fyrsta bankastjóra Lands- bankans á Snæfellsnesi sýnir að stjórn bankans hlýtur að hafa borið mikið traust til hans með þvi að fela honum að gegna jafn vandasömu starfi, sem er banka stjóri nýrra útibúa. Árið 196) kvæntist örn eftirlifandi konu sinni Höllu Gísladóttur, dóttur hjónanna Gisla Guðmundssonar og Hallfriðar Jónsdóttur. Byrjuðu Halla og örn búskap sinn á Baldursgötu i Reykjavik, en fluttu siðan til Hafnarfjarðar. A meðan örn var við Landsbank- ann á Keflavikurflugvelli bjuggu þau þar, þar til þau fluttu til Ólafsvikur. Eins og hjá jafn ágætu fólki og Höllu og Erni þá varð hjónaband þeirra mjög far- sælt. Þau eignuðust þrjú börn sem eru: Arnljótur fæddur 1961, Gisli fæddur 1965 og Agústa fædd 1969. Að eiga að lýsa Erni I stuttri minningargrein er mér æði tor- sótt, en segja verð ég að örn var með meiri mannkostamönnum sem ég hef kynnzt á lifsleiðinni, og er það mér mjög sárt að sjá á eftir Erni i blóma lifsins, og er ég enn varla búinn að átta mig á þvl að hann sé okkur horfinn héðan. örn hafði alveg einstaklega glað- væra lund, varð mjög vinmargur og vinsæll, ekkiveit ég til að hann hafi nokkru sinni eignast óvildar- menn. Var hann æði glöggur á manngerð og sérkenni fólks, kom oft auga á hið broslega i fari okk- ar mannanna og gat verið hnytt- inn igóðlátlegum athugasemdum um menn og atburði. Eins og ég gat um áður hófst kunningsskapur okkar Arnar er við vorum samtiða i Samvinnu- skólanum, siðaneru liðin 23ár,og varð þessi kunningsskapur okkar að vináttu. Margar ljúfar minn- ingar um ánægjulegar samveru- stundir koma upp i hugann þegar ég kveð örn, og vil ég biðja hinn hæsta höfuðsmið er öllu ræður að vera með Erni og ættingjum hans, sem eiga um svo sárt að binda. Við hjónin og móðir min send- um Höllu, börnunum, foreldrum og tengdaforeldrum hins látna innilegar samúðarkveðjur I sorg þeirra. Það er alltaf huggun i harmiað geta minnztgóðs drengs sem örn Arnljótsson var. Hi ólfur Halldórsson t Kiwanishreyfingin er ung, en hefur náðaðfesta ræturviða. Hér var fyrsti Kiwanisklúbburinn stofnaður 1964. I raun höfum við Kiwanismenn reynt að vinna að okkar markmiðum með því að leggja góðum málum lið og með þvi að stofna til kynna á milli manna. Þau kynni hafa siðan oft- ast leitt til náinnar vináttu. Sérhver félagsskapur byggir á einstaklingnum. Kiwanishreyf- ingin hefur átt því láni að fagna, að eiga góða og heilsteypta ein- staklinga sem sina félaga. Hún er hvorki sterkari né veikari, en hver og einn félagi innan hennar vébanda. Einn okkar góðu Kiwanis- bræðra var örn Arnljótsson, út- bússtjóri Landsbankans I Ólafs- vik. Hann varungureinsogokkar félagsskapur, fullur eldmóðs og orku, ávallt reiðubúinn til að leggja sitt að mörkum i öllum störfum. örn var skarpur I hugs- un og hispurslaus að setja fram sinar skoðanir. Á stundum naut hann þess að yfirskyggja allt og alla meðsinnimikluglettni.1 óll- um orðum hans fylgdi samt undiralda. I okkar félagsskap var hann metinn af öllum sem hinn einlægi góði vinur sem öllum þótti vænt um. Sæti hans stendur nú autt. örn lézt skyndilega 11. þ.m. að heimilinu sinu i ólafsvik. Slikur er fallvaltleiki lifsins. Rétt 41 árs gamall fjölskyldufaðir, vinur og félagi hverfur yfir landamæri lifs og dauða á einni morgunstund. „Dauðinn má svo með sanni, samlikjast þykir mér. Slyngum þeim sláttumanni, sem slær allt sem fyrir er. Grösin og jurtir giænar, glóandi blómstrið fritt, reyr, stör og rósir vænar, reiknar hi ni; jafn fánýtt.” Við skiljum ekki, en við eigum el ki annarskosta en að hli'ta. Við Kiwanisbræður minnumst og þökkum félaga okkar Erni Arn- ljótssyni. Hans skarð verður vandfyllt. Þar sem hann gekk, fór drengur góð ír. Við sendun hans góðu konu Höllu, foreld um, tengdaforeldr- um, börnum cg öðrum ættingjum, innilegar samúðarkveðjur. Megi minningin um örn Arnljótsson vera okkur öllum huggun harmi gegn. Eldborgarfélagar. Styrkir til háskólanáms á ttaliu ttölsk stjórnvöid hafa tilkynnt að þau bjóði fram i iöndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu fimm styrki til háskóia- náms á ítaliu háskólaárið 1978-79. — Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma i hlut Islendinga. — Styrkir þessir eru ein- göngu ætlaðir til framhaldsnáms við háskóla og eru veittir til 12mánaða námsdvalar. Styrkfjárhæðin er 240.000 lirur á mánuði auk þess sem ferðakostnaður er greiddur að nokkru. Umsækjendur skulu hafa góða þekkingu á frönsku eða ensku,eigi vera eldri en 35 ára og skulu hafa lokið háskóla- prófi áður en styrktimabil hefst. Þeir ganga að öðru jöfnu fyrir um styrkveitingu sem hafa kunnáttu i italskri tungu. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamála- ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik fyrir 23. þ.m. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 13. febrúar 1978. Bændur - Eigum nú fyrirliggjandi loftræstiviftur frá Fenton Byrn i stærðum frá 15-20 tommur með afköstum frá 2600 til 8000 rúmmetrum á klst. Þessar viftur eru með rakaþéttum mótor og viftuspaða er þolir mjög vel amoniak- sýrur gripahúsa. Dynjandi sí: Skeifunni 3H Reykjavik Simar 8-26-70 & 8-26-71

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.