Tíminn - 08.03.1978, Page 1

Tíminn - 08.03.1978, Page 1
aBMBaaaBBBawwataag^ Hvernig kom Hauk- ur Heiðar f jármunun- um til Sviss? Hæstiréttur staðfestir fram- lengingu gæzluvarðhalds ESE — í gær staðfesti Hæstirétt- ur úrskurð Sakadóms i máli ákæruvaldsins á hendur Hauki Heiðari fyrrum deildarstjóra ábyrgðardeildar Landsbanka Is- lands. Sakadómur hafði fram- lengt gæzluvarðhald Hauks um 15 daga en þvi vildi réttargæzlu- maður hans ekki una og kærði úr- skurðinn til Hæstaréttar. I kröf- um réttargæzlumannsins var far- ið fram á að úrskurðurinn yrði úr gildi felldur, auk þess sem Saka- dómur og Rannsóknarlögregla rikisins yrðu vitt fyrir ranga málsmeðferð og rannsóknarað- ferðir. Af hálfu rikissaksóknara var þess aðallega krafizt að gæzluvarðhald varnaraöila yrði framlengt til 22. marz en til vara að hinn kærði úrskurður stæði óbreyttur. I dómi Hæstaréttar kemur fram að aöalkrafa rikis- saksóknara kæmi ekki tii álita þar sem krafa hans kom ekki fram fyrr en 6. marz, en hann fékk vitneskju um hinn kærða úr- skurð 3. marz. Að öðru leyti segir að hinn kærði úrskurður skuli standa óbreyttur, þar sem sýnt sé að Haukur Heiðar hafi ekki gert grein fyrir þvi á hvern hátt hann kom fjármunum, þeim sem hann dró undan til Sviss. rjKKi lætur Ægir konungur alltaf svona blfðlega við tslandsstrendur. Og oft hafa sjómennirnir okkar lentf hörðum átökum viðhann. Samter það nú svo aðflestir sækja áfram sjóinn, þó lent hafi i svaðil- förum og oft lífsháska. Þegar þeir verða svo loks að hætta fyrir aldurssakir, verður þeim mörgum tiðförult niður i flæðarmálið að horfa á sibreytileika sjávarins og finna sjávarloftið leika f vitum sér. — Timamynd Róbert. Hitaveitubilunin á Suðureyri — tekst að ná dælunni upp í dag? ESE —Eins og greint hefur veriö frá i fréttum bilaði hitaveitan á Ný skipulagsstofnun fyrir höfuðborgarsvæðið? SST — Núum nokkurtskeið hefur verið til umræðu hjá mörgum bæjarstjórnum og sveitarfélög- um á höfuðborgarsvæðinu ný skipulagsstofnun fyrir höfuð- borgarsvæðið. Þessi nýja stofnun hefur ma.verið nokkuð rædd í borgarstjórn Reykjavikur. Ef samningar umræddra sveitar- félaga um slika stofnun takast, er liklegt að Þróunarstofnun Reykjavikurborgar verði lögð niður, og svo kynni að fara að þessi sameiginlega skipulags- stofnun sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu tæki til starfa um næstu áramót. Ólafur B. Thors borgarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar Reykjavikurborgar sagði i sam- tali við Timann, að hugmynd um slika skipulagsstofnun hefði fyrst komið fram fyrir tveimur — þremur árum, þegar i undirbún- ingi var stofnun samtaka sveitar- félaga á Reykjavikursvæðinu. Skipulagsmál og sameiginlegir hagsmunir þessara sveitarfélaga voru að sjálfsögðu ofarlega á baugi i þeim viðræðum og varð til þess, að hugmyndir um sérstaka skipulagsstofnun fyrir svæðið eru komin á það stig sem nú er, sagði Ólafur. Raunar væri ljóst og hefði lengi verið, að vinna þyrfti að mörgum skipulagsþáttum sameiginlega á svæðinu, og sum atriði, eins og t.d. umferðarmál, væru illleysan- leg án góðrar samvinnu viðkom- andi sveitarfélaga. Reykjavik hefur nokkra sérstöðu hvað varð- ar þessa fyrirhuguðu skipulags- stofnun. Starfandi væri Þróunar- stofnun Reykjavikurborgar, sem hefði sinu hlutverki að gegna i skipulagningu borgarinnar. Hún heflii á að skipa sérhæfðu og reyndu starfsliði, sem yrði vart gripið upp annars staðar, og ef ný skipulagsstofnun tæki til starfa, væri fullvist að starfsmenn Þró- unarstofnunar kæmu til með að starfa við hana, og Þróunarstofn- un Reykjavikur þá úr sögunni. Ólafur sagði að i stuttu máli mætti segja að hlutverk þessarar nýju stofnunar yrði tviþætt. Annars vegar samræmt aðal- skipulag og hins vegar svæða- skipulag á svæðinu frá mörkum Kjósarhrepps að norðan að mörk- um Hafnarfjarðar að sunnan, en þeir aðilar sem kæmu til meö að taka þátt i þessu samstarfi eru: Reykjavik, Seltjarnarnes, Kópa- vogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellssveitarhreppur, Bessa- staðahreppur og Kjósarhreppur. Aðspurður um, hvort allir fyrr- greindir aðilar væru fúsir til sam- starfe af þessu tagi, sagði Ólafur, að útlit væri fyrir að svo yrði og flestir væru þessu hlynntir, þótt sum bæjarfélög hefðu enn ekki látið álit sitt i ljós á þvi. Ef allir aðilar lýsa sig fúsa til þessa samstarfs er næsta skrefið að vinna að samningsdrögum, sagði Ólafur B. Thors að lokum. • — Dómsmálaráðuneytið tekur allar ákvarðanir um fullnustu refsidóma sjá nánar um þetta og aðrar skipulagsbreytingar á siðu 8 I blaðinu i dag. Tryggjum gæði is- lenzkrar ullarvöru Miklar umræður hafa orðið um iblöndun islenzkrar ullar með ó- dýrri ull frá Nýja-Sjálandi og það að hvit ull hafi verið lituð tii aö likja eftir sauðalitunum. Heimilisiðnaðarfélag tslands hefur lengi verið i fararbroddi hvað varðar vöndun islenzkrar ullarvöru, og birtist greinargerð frá félaginu um islenzkan ullariðnað á bls. 9 i blaðinu. Tjón Kisiliðjunnar vegna náttúru- hamfaranna i Bjarnarflagi: Talið geta numið um 450—600 miUj. kr. — áformað að byggja nýja hráefnisþró Eins og kunnugt er hefur Kisil- iðjan h.f. átt við verulega erfið- leika að striða frá þvi i april 1977 vegna náttúruhamfara i Bjarnar- flagi en þá gerðist það m.a. að hráefnisþrær f y rirtækisins skemmdust verulega. Ljóst er að beint tjón fyrir- tækisins af völdum náttúrunam- faranna i Mývatnssveit er orðið umtalsverten gera má ráð fyrir að þegar öll kurl eru komin til grafar og með hliðsjón af þeim valkostum sem fyrir hendi eru til að tryggja hráefnisöflun geti tjón fyrirtækisins numið um 450-600 milljónum króna og er þá ekki tekið með i reikninginn það tjón sem fyrirtækið fær bætt frá Við- lagatryggingu Islands h.f. vegna skemmda á vélbúnaði og fasteignum né heldur tjón vegna tapaðrar sölu. Vegna þeirra framleiðsluerfið- Suðureyri við Súgandafjörö, s.l. sunnudag. Bilunin er talin vera i dælu i borholu, á um 100 metra dýpi, eða þá að öxull, sem liggur að mótor við dæluna, er brunninn fastur við legur. I gær hafði ekki verið komizt fyrir bil unina, en þá var kominn á stað- inn, auk sérfræðings úr Reykja- vik krani, sem strandferðaskipið Esja sótti gagngert til Bolungar- vikur, en með honum átti að freista þess að ná öxlinum og dæl- unni upp. 1 samtali við Kristján Pálsson sveitarstjóra á Suðureyri i gær komfram, aðþá hafði tekiztað ná um 40 af þeim 100 metrum, sem um er að ræða upp úr holunni og góðar horfur voru á að takast mundi að ljúka þvi verki i dag. Kristján sagði ennfremur að menn gerðu sér góðar vonir um, ef um smávægilega bilun væri aö ræða, að ljúka mætti viögerð á einum degi þannig að hitaveitan yrði i siðasta lagi komin i gagnið á föstudag, en ef hinsvegar er um meiriháttar bilun að ræða þá er ekki gott að segja hvenær viðgerð lýkur. Kristján sagði að lokum, aö öll hús á Suðureyri nytu nú hitunar af einhverju tagi. Oliukyndingu eða rafmagnskyndingu hefur nú verið komið á i öllum húsum á Suðureyri, nema i 10 húsum, en þau eru nú kynt upp með raf- magnsofnum, sem fengnir voru frá Isafiröi. Þá hjálpaði það mjög að veöur er nú ágætt og hlýtt i veðri. leika sem orðið hafa samfara náttúruhamförunum, hefur Kisil- iðjan ekki getað staðið við sölu- áætlanir og er tjón fyrirtækisins af þeim sökum umtalsvert, þar sem markaöur fyrir framleiðslu þess er góður um þessar mundir. Fyrirtækið hefur haft til athug- unar hvernig bregðast skuli við þeim vanda sem viö er að glima einkum varðandi það hvernig tryggja skuli hráefnisöflun til frambúðar. Hefur einna helzt komið til álita að byggja nýja hráefnisþró i ca. 1,5 km fjarlægð frá verksmiðjunni. Ernú unniö að gerð kostnaðaráætlunar um þessa framkvæmd. Ef viðhlitandi lausn fæst á gufu- og hráefnis- málum fyrirtækisins er vonazt til að starfsemi þess verði komin i eðlilegt horf siðari hluta þessa árs. —SST Alvarlegt útlit í loðnu- frystingu: Ný ganga vestur gæti bjargað miklu SST — Samkvæmt þeim sýn- um sem ég hef fengið siðustu daga virðist flest benda til þess að stutt sé i að loðnan i þessari fyrstu göngu fari að hrygna sem þýðir að ekki veröur hægt að frysta hana sagði Jakob Jakobsson fiski- fræðingur i samtali viö Tim- ______Framhald á bls. 13.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.