Tíminn - 08.03.1978, Síða 7

Tíminn - 08.03.1978, Síða 7
Miðvikudagur 8. marz 1978 7 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsiniar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir ki. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Askriftargjald kr. 1700 á mánuði. . ... Blaðaprenth.f. Kreddur og hóf Til er fólk, sem ekki má til þess hugsa, að læknar liðsinni þvi. Það neitar að láta bólusetja sig gegn farsóttum, og þótt það sé haldið sóttnæmum sjúk- dómi, þá skal enginn hafa af þvi afskipti. Þetta fólk hefur tileinkað sér þess konar trú, að allt skuli vera i hendi guðs þess, og það er himinhrópandi synd, ef menn hlutast til um, hverju fram vindur um heilsu þess. Það væri að vantreysta guðdóminum og taka fram fyrir hendurnar á honum. Þetta fólk er frómt og einfalt i sinni trú. Það telur öllu bezt borgið með sinni aðferð. Samt á viðhorf þess fáa formælendur. Flestum virðist einboðið að stemma stigu við sjúkdómum og lækna þá, sem unnt er að lækna. Aftur á móti á hliðstæða þessarar kenningar mik- inn bakhjarl i hinum tæknivædda viðskiptaheimi. Þvi er haldið fram af miklum móði, að sé allt látið skeika að sköpuðu i fjármálalifi þjóða, og engar hömlur lagðar á ferðalag peninganna um æðar við- skiptaþjóðfélagsins, þá muni þeir, samkvæmt dularfullum lögmálum, leita þangað, er þeir eru bezt komnir, og upp renna mikil sælutið. Á fáguðu áróðursmáli heitir þetta „haftalaust hagkerfi”, og hefur að sögn sams konar náttúru og Draupnir i goðafræðinni, er af draup nýr hringur niundu hverja nótt. Þetta er trúin á stjórnleysið i þjóðfélagsmálum. Likt og fólkið, sem vitnað var til hér að ofan, stend- ur fast á þvi að hafna ónæmisaðgerðum og læknisráðum, jafnvel i lifsháska, vilja þessir stjórn- leysingjar i fjarmálaheiminum ekki neina stjórn- skipulega ihlutun, og sú alvaldsforsjón, er þeir vilja fela allt sitt ráð, sem og annarra manna, er hið hulda eðli peninganna, sem raunar nefnist fjár- magn i þeirra munni, til þess að finna beztu leiðina til sins heima. Það er mikið af þrætubókum i veröldinni, og kreddukenningar hafa riðið húsum á öllum öldum. Þetta er ein af kreddukenningum nútímans, og á heima i nautafjósinu á næsta bás við kenningarnar um alræði öreiganna. Hvorug á sér neina fótfestu i veruleikanum. Hvorug fær staðist, þegar á hólminn er komið. Happasæld hins blinda stjórnleysis er ekki til nema i hugarheimi manna, sem orðið hafa fangar kreddufræðanna. Stjórn og forsjá manna er vissulega áfátt. En samt sem áður er ekki á annað að treysta i veraldarvafstrinu en það, sem menn hafa tileinkað sér með reynslu og leit að þekkingu. Sizt af öllu væri almannahag betur borgið en áður, ef felld væri niður viðleitni til þess að beina þeim peningum, er við höfum ráð á, að verkefnum, sem þjóðin á afkomu sina undir,að ekki séu vanrækt, og er þar fyrst og fremst að nefna undirstöðuatvinnu- vegi okkar — þá, sem við fáum allt frá, er við höfum með að fara. Um Hrafna-Flóka er sagt i fornum bókum, að fén- aður hans féll, af þvi að hann gáði ekki að afla heyja vegna veiðiskaparins. Af þeirri sögu er þann lær- dóm að draga, að þjóðin verður ævinlega að gá að afla þess, sem henni er brýnast, og til þess meðal annars höfum við stjórnsýslu okkar á meðal. Eðli- lega getur menn greint á um það, hvað skuli til hvers ganga eða i hvers hlut koma. Það geta menn deilt um að ósekju, svo fremi sem sviptingum um krónur og aura- er ekki stefnt út i þá ófæru, að til stjórnleysisástands horfi. Þeir, sem ekki vilja láta kylfu ráða kasti um, hvernig peningum er varið, mega til dæmis ekki gleyma sér i svo harðvitugri launabaráttu, að ekki komist annað að. Það væri sama og gá ekki að afla heyjanna vegna veiði- skaparins. —JH. Politiken um víkinga og fornkonunga: Víkingaborgirnar eru enn mikil gáta Vitneskja um sögu Dana á tímum Gorms gamla harla gloppótt Vlkingaborgin Fyrkat — aöofan eins og þar er umhorfs nú eftiruppgröftinn — aö neöan eins og menn hugsa sér, aö ímannvirkin hafi veriö. Miklir fornleifafundir i Danmörku, þar á meöal grafir Gorms konungs hins gamla og Þyri drottningar, að talið er, hafa leitt af sér allmiklar umræöur um danska fornöld, vitneskju manna um hana, og þó öllu fremur, hversu gloppótt sú vitneskja er. Menn spyrja sjálfa sig, velta vöngum yfir þeim heimildum, sem tiltæk- ar eru, en draga ekki allir af þeim sömu ályktanir. Hvers vegna reistu norrænir vikingar sum mestu borgar- virki, sem til hafa verið i Evrópu á þeirra tið? er spurt. Hvað knúði þá til þess að koma sér upp slíkum borgum, þar sem' svigrúm var fyrir * heilar hersveitir — borgum, sem á þeirri tið hljóta að hafa verið taldar óvinnandi? I Danmörku hafa þrjár slik- ar vikingaborgir, Þrælaborg, Aggersborg og Fyrkat, verið grafnar upp, en hin fjórða var þar, sem nú eru Óðinsvé. Fyrir svo sem þrjátiu árum þóttust fornleifafræðingar nokkurn veginn vissir um, að þessar borgir hefðu verið þjálfunarstöðvar og vetrarathvarf vikinga, sem höfðu sett sér það markmið að hertaka England. Enn er talið, að þetta hafi verið herbæki- stöðvar. Vikingarnir voru miklir vigamenn, þrautæfðir menn, sem lutu öruggri stjórn, segir dr. Olaf Olsen, sem unn- ið hefur að rannsóknum á þessum gömlu borgarvirkjum siðan hann var ungur stúdent. Hvað er sjálfsagðara en þeir reistu sér slik virki til fram- búðar? Elsa Roesdal magister, sem rannsakað hefur allt, sem fannst i Fyrkat, telur aftur á móti, að borgirnar hafi verið stjórnstöðvar og þar hafi verið varðveittir miklir fjármunir. Hún vekur athygli á þvi hve margt þess, sem fannst, minni fyrst og fremst á daglegt lif voldugra manna, en fátt, er bendi til hernaðar. Hún telur, að frá Fyrkat hafi stóru svæði á Jótlandi verið stjórnað. Dr. Olaf Olsen telur þrennt koma til greina: Að borgirnar hafi verið landvarnarstöðvar, ef óvinir hygðu á innrás, setu- liðsstöðvar til þess að berja 1 niður uppreisn heima fyrir eða bækistöðvar og vetraraðsetur vikinga, sem lágu i hernaði á sumrin. Húsin i Fyrkat hafa verið afar stór, og dr. Olaf Olsen dregur i efa, að þau hafi verið reist handa alþýðu manna á flótta undan aðvifandi her- sveitum. Hann dregur einnig i efa, að þetta hafi verið mið- stöðvar landstjórnar, þar eð þar hefðu þá átt að vera mjög fjölmennar sveitir að stað- aldri. t Fyrkat hefðu það sennilega verið um fjögur hundruð manns, i Þrælaborg allt að átta hundruð og ef til vill tvö þúsund i Aggersborg. Vikingakonungarnir eru ekki taldir hafa haft með sér svo fjölmennar sveitir að stað- aldri. Þeir höfðu yfirleitt ekki efni á að halda uppi nema fá- mennri hirð. Það mælir aftur gegn þvi, að þetta hafi verið bækistöðvar og æfingastöðvar vikinga, að þessar borgir eru taldar hafa verið komnar upp, áður en Sveinn tjúguskegg hófst fyrir alvöru handa um að leggja England undir sig, auk þess sem fátt muna af enskum upp- runa hefur fundizt þar. Hafi vikingar hafzt þarna við að vetrarlagi, ætti að vera þar mergð slikra muna, er þeir hafa haft heim með sér. — Það er gat i sögu Dana á þvi skeiði, er Gormur og Þyri voru uppi, segir dr. Olaf Olsen. En sjálfur er hann sannfærður um, að beinaleifar þær, sem fundust undir kirkj- unni i Jellinge, heyri þeim til. En það verður aldrei sannað, svo að óyggjandi sé. Við verð- um að láta okkur nægja, að það, sem við vitum, bendir til þess, að svo sé. — Við vitum talsvert meira um timann fyrir og eftir daga Gorms, segir dr. Olaf Olsen enn fremur. Með kristninni komu til sögu munkar, prestar og biskupar, sem skrifuðu sitt- hvað, er miðlaði vitneskju. Vikinganna og konunga þeirra, eða kannski réttara sagt höfðingja þeirra, getur aftur á móti alloft i sögu ann- arra landa, og þó einkum margra fyrstu vikingaferð- anna á niundu öld. En þegar þeim, sem til varnar voru i þessum löndum, tókst að stemma stigu við framrás vik- ingasveitanna, hurfu þeir lika úr sögum og sögnum. Þá hafa þeir sennilega leitað austur á bóginn, en meðal slavenskra þjóða voru slikir atburðir ekki færðir i letur, svo að fátt er vitað um vikingana, sem héldu i Austurveg. Við vitum það aðeins með órækri vissu af fornminjum, sem fundizt hafa, að vikingarnir hafa rek- ið þar verzlun og sennilega einnig farið ránshendi um byggðir. Ókunnugt er, hver var faðir Gorms hins gamla, þótt marg- ar kenningar séu um það. Við vitum ekki heldur, hvenær valdatimi hans hófst né hve- nær hann féll frá. Gert er ráð fyrir þvi, segir dr. Olaf Olsen, að hann hafi verið konungur á Jótlandi og Fjóni, og sonur hans, Haraldur blátönn, hafi lagt undir sig aðra hluti Dan- merkur, ásamt Noregi. Það lætur hann sjálfur segja á rúnasteininum mikla i Jell- inge. Um völd og stöðu konungs i Danmörku er fátt vitað á þessu skeiði. Konungur var að sjálfsögðu þjóðhöfðingi, æðstur manna i riki sinu, en hann hefur ef til vill ekki verið auðugastur. Að visu átti hann sjálfur jarðir, auk þeirra jarða, sem fylgdu konungs- stólnum, og af þessum jarð- eignum hafði hann mestar tekjur sinar. Auk þess var þegnum hans skylt að veita konungi og fylgdarliði hans alla umönnun á sinn kostnað, er hann ferðaðist um riki siit, og konungar voru á þeim tim- um oft á faralds fæti. Konunginum þjónaði sfðan margt stórmenna og höfð- ingja, er áttu miklar lendur, og landi sinu hefur konungur vafalitið stjórnað i samráði við þá. — A seinni árum hefur margt uppgötvazt um vik- ingaöldina, segir dr. ' Olaf Olsen. Fjöldi muna hefur fundizt, og uppgröftur hefur farið fram á bæjum, sem þá voru komnir til sögu. Ripar, Arósar og Heiðabær voru fjöl- setnir bæir þegar á vikinga- öld. Fundizt hafa höfðingja- setur, vikingaskip og mikil mannvirki, og nokkur borg- virki vikinga hafa verið könn- uð. En þetta állt til samans er ekki annað en tjöldin á leik- sviði dansks þjóðlifs á þeim tima. Um sjálfan leikinn á sviðinu, mannlifið og þau lög- mál, er það laut, vitum við ekki mikið. Þó að við teljum okkur nú hafa leifar beina þeirra Gorms og Þyri, vitum við jafnlitið og áður um það, hvað þau höfðust að um sina daga, segir Olaf Olsen að lok- um.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.