Tíminn - 08.03.1978, Side 10
10
Miðvikudagur 8. marz 1978
VORKAU PSTEFN AN
ÍSLENZK FÖT ,78
SólpUseraO samkvæmispils og tilheyrandi blússa frá Skinfaxa h.f.
Timamynd: Róbert.
Stuttur jakki og pils frá Dúk h.f.
Blússan og fóöriö i jakkanum og
pilsinu er úr sama efni.
Þrflitur baösloppur frá Ceres h.f.
Kaupstefnan Islensk föt ’78,
átjánda fatakaupstefnan i röð-
inni var haldin i Reykjavik dag-
ana 1.-3. marz og þar sýndu
islenzkir fataframleiðendur
fjölbreyttan fatnað. Við opnun
kaupstefnunnar ræddi Kristinn
Guðjónsson varaformaður Fél-
ags islenzkra iðnrekenda um
stöðu islenzks fataiðnaðar,
vandann sem að honum steðjar
vegna lækkandi tolla á innflutt-
um fatnaði og versnandi sam-
keppnisaðstöðu. Sem dæmi um
fyrirs jáanlegan vanda inn-
lendrar fataframleiðslu nefndi
Kristinn að 1. janúar 1980 verða
tollar af innfluttum fatnaði
felldir niður samkvæmt EFTA
aðild og samningi við EBE. 1
nágrannalöndum okkar nýtur
fataiðnaður mikilla rikisstyrkja
og i Noregi nema þessir styrkir
2 1/2 til 3% af veltu fyrirtækja i
iðngreininni.
Islenzkir fataframleiðendur
eiga því undir högg að sækja og
helztu tillögur til úrbóta eru að
lagt verði sérstakt jöfnunar-
gjald á innfluttar vörur til að
styrkja siðan islenzkan iðnað.
Asókn erlendra framleiðenda á
hinn þrönga islenzka markað
eykst stöðugt, en segja má að
innflutningur fata sé sóun á
gjaldeyri og innflutningur á
vinnuafli. Islenzkur fram-
leiðsluiðnaður heldur einnig
niðri vöruverði vegna sam-
keppni sem hann veitir erlendri
framleiðslu. Islenzkir fatafram-
leiðendur krefjast sömu sta'rfs-
aðstöðu og aðrir atvinnuvegir
og þeir útlendingar sem hingað
flytja vöru slna.
A Vorkaupstefnu fatafram-
leiðenda voru daglegar tizku-
sýningar þar sem gaf að lita
sýnishorn af Islenzkri fram-
leiðslu, sem hvergi virðist
standa að baki innfluttra fata.
SKJ.
Peysa á unga herra frá Les
prjóni.
Röndóttur baösloppur frá Ceres
h.f. innanundir er módeliö f nátt-
serk frá sama fyrirtæki.
Kvenpeysa i norskum stfl, og köflótt karlmannspeysa frá Prjóna-
stofunni Iöunni. Tfmamynd: Róbert.
Stór, sfö og við tizkupeysa á ung-
ar dömur frá Iðunni Tfmamynd:
Róbert.
Regngalli frá Sjóklæöageröinni
h.f. Framleiösla Sjóklæöageröar-
innar er seld undir vörumerkinu
66 N, og hefur notiö mikilla vin-
sælda þar sem hún hefur veriö
sýnd erlendis.