Tíminn - 29.03.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 29.03.1978, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 29. marz 1978 3 Járnblendiverksmiðjan: Mikiö tap fyrirs j áanlegt — eins og verð á kisiljárni er núna Eftirspurn eftir kisiljárni markast fyrst og fremst af stál- framleiðslu i heiminum, og orsök að lágu verði á kisiljárni undanfarið er langvarandi sam- dráttur i viðskiptum og hagþró- un i heiminum siðustu ár. Eins og verð á kisiljárni er i dag, er ekki von til að það verði fram- leitt með hagnaöi, og það er reyndar verulega lægra nú en gert var ráð fyrir ár ráð fyrir i áætlunum um verksmiðjuna. Efnislega fórust Jóni Sigurðs- syni, forstjóra Járnblendi- félagsins islenzka , orð á þessa leið á fundi með blaðamönnum i siðustu viku, er hann ræddi af- komu fyrirtækisins, og útlitið i markaðsmálum eins og það væri i dag. Söluverð og sölumagn væru þau atriði sem mikilvægustværu fyrir afkomu fyrirtækis sem járnblendiverksmiðjunnar. Þó svo að verð á hráefni, flutnings- kostnaður og verð á öðrum að- föngum til verksmiðjunnar væru að visu mikilvæg atriði, væri söluverð þyngst á metun- um, sagði Jón ennfremur. Þá væri talið, að verð á kisil- járni, sem fór lækkandi á sið- asta ári, verði einnig mjög lágt á þessu ári vegna hægfara vaxt- ar i stáliðnaði og þar eð efnahagsbati i iðnrikjum hefur látið á sér standa. Þegar litið er til þessa og einnig þess að von er til að verð á kisiljarni hækki hægt á næstunni, verður ekki annað séð en að sá timi, sem valinn er til að reisa verksmið j- una sé tiltölulega hentuguur og raunar ágætur miöað við þær áætlanir sem i gangi voru þegar Union Carbide var með i spil- inu., sagði Jón einnig. Og þegar Iitið er til lengri tima, verður að telja að fram- tiðarhorfur fyrirtækisins séu góðar og forsendur þessa iðnað- ar standi óhaggaöur, þrátt fyrir óhagstæöar verðlagsaðstæður i fyrstu, sagði Jón Sigurðsson aö lokum. Stakk sér í höfnina ESE— Að morgni annars páska- dags barst lögreglunni i Reykja- vik tilkynning um að ung kona hefði fleygt sér i höfnina. Konan hafði veriö I leigubil, en beöið bilstjórann að stoppa á hafnar- bakkanum, við Grófarbryggju. Leigubilstjórinn varð við ósk kon- unnar sem steig út úr bilnum og fleygði sér, eins og áður segir i höfnina. Lögreglan brá skjótt við og gat bjargað konunni upp úr sjónum með krókstjaka án þess að henni yrði meint af volkinu. EÍtki er vitað af hverju konan tók upp á þvi að kasta sér I sjóinn. Veskisþjófn- aöur i verzlun ESE—Fullorðin hjón, sem voru i verzlun á Grensásvegi, urðu fyri þvi óláni að stolið var veski af þeim, sem konan hafði lagt frá sér. I veskinu voru 50 þúsund krónur i peningum. Talið er að blaðsöludrengur, sem kom inn i verzlunina, hafi stolið veskinu, en ekki hefur hafzt upp á honum ennþá. Sólin hækkar göngu sina, vorjafndægur eru nýliðin. Menn verða ósjálf rátt léttari i spori, og flestir reyna að vera eins mikið úti og aðstæður frekast leyfa. Unga fólkið hérna á myndinni er auðsjáanlega ekki i neinum vand ræðum með að skemmta sér I góða veðrinu. — Það er alltaf gaman að vera ungur, og ekki sizt á vorin. Snj óflóöahætta í Fnjóskadal — mikil ófærð á þjóðvegum ESE— f fyrradag féllu snjóflóð bæði i Fnjóska- dal og i öxnadal. Ekki ollu flóð þessi neinu tjóni, en ástæða þótti til að vara fólk við ferðum um Fnjólskadal, þar sem snjóflóðið féll á alkunnum snjóflóðastað i Dalsmynni, á milli bæjanna Skarðs og Þverár. A þessum slóð- um hafa mörgum sinnum fallið snjófloð, eins og áður segir og þá venjulega fleira en eitt,annig að búast má við að svo vérði einnig að þessu sinni. Veður var afleitt i Suður-Þingeyjarsýslu og Eyja- fjarðarsýslu i gær og fyrradag og er öxnadál’sheiði ófær, eins og stendur. ' Mikil ófærð er á öðrum þjóð- vegum, og þá sérstaklega á Vest- fjöröum, þar sem allt hefur verið lokað að heita má frá þvi fyrir páska. ófært er til Siglufjarðar og er þar margt manna veðurteppt. Skákþingi lokið: Einvígi Hauks og Helgá um íslandsmeistaratitilinn SSt—Ekki tókst að fá hrein úrslit I elleftu og siöustu umferð Skák- þings Islands i fyrradag og þegar upp var staðið voru þeir efstir og jafnir Helgi Ólafsson og Haukur Angantýsson, með átta vinninga. Verða þeir þvi að heyja einvigi um íslandsmeistaratitilinn i ár. Ekki hefur enn verið ákveðið hve- nær einvigi þeirra herfst. Þegar siðasta umferð hófst áttu þeir Haukur og Helgi einir mögu- leika að hljóta titilinn, en Helgi hafði fyrir siðustu umferð átta vinninga en Haukur sjö og hálfan, og varð Helgi að vinna sina skák gegn Margeiri Péturssyni. Þaö tókst ekki. Margeir náði snemma undirtökum I skák þeirra og sigr- aði að lokum. Haukur tefldi viö Jóhann örn Sigurjónsson og gerðu þeir jafntefli. Næstiruröu Margeir Pétursson meö sjö vinninga og Jón L. Arnason með sex og hálfan, og skipa þessir fjórir þvi islenzka landsliðið næsta árið. í áskorendaflokki bar Harald- ur Haraldsson sigur úr býtum og hlaut átta og hálfan vinning, en næstur varð Ómar Jónsson með sjö og hálfan, og tefla þeir þvi i landsliðsflokki að ári. Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla Stjórn Málfrelsissjóðs hefur veitt Garðari Viborg ábyrgðarmanni Nýs lands 243.755 krónur tii að standa straum af málaferlum, en tólf for- göngumenn Varins lands stefndu Garðari fyrir meiðyrði. Meiðyrða- málið var höfðað vegna greina i Nýju landi er fjölluðu um undirskrifta- söfnun Varins lands. Var Garðar dæmdur til að greiða málskostnað bæði f héraðsdómi og Hæstarétti, en ummælin I Nýju landi voru ekki dæmd refsiverð, og hrundu dómarnir kröfum um miskabætur. Tvenn ummæli, er birtust I blaðinu, voru dæmd dauð og ómerk. A myndinni sést Jóhann S. Hannesson, sem sæti á I stjórn Málfrelsissjóðs, afhenda Garðari Viborg féð. Ú tvarpsskákin Nú hefur verið ieikinn 21 leikur 8. a4 Bg4 i útvarpsskák þeirra ögaard og 9. Be2 Bxf3 Jóns L. Arnasonar og birtum við 10. Bxf3 Rbd7 leikina hér I heild: 11. Bf4 Db8 12. 0-0 Bg7 Hvitt: Leif ögaard. 13. Be2 0-0 Svart: Jón L. Arnason. 14. Dc2 Dc7 1. d4 Rf6 15. Bg3 c4 2. c4 c5 16. Khl Hfe8 3. d5 e6 17. f4 Hab8 4. Rc3 exd5 18. Bh4 b5 5. cxd5 d6 19. axb5 axb5 6. Rf3 g6 20. e5 b4 7. e4 6 21. exRf6 bxRc3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.