Tíminn - 29.03.1978, Síða 9

Tíminn - 29.03.1978, Síða 9
MiOvikudagur 29. marz 1978 9 Samkoma herstöðvaand stæðinga á fimmtudag Samtök herstöOvaandstæðinga efna til samkomu I Háskólabiói á fimmtudagskvöldiO, og mun hún hefjast kiukkan nfu. VerOur til hennar vandaO meO söng, tónleik- um, bókmenntalestri, leiksýningu og ræOuhöldum. Aöalræöumaöur kvöldsins veröur Tryggvi Glslason, skóla- meistari á Akureyri, én ávörp munu flytja Helgi Guömundsson og Þórhildur Þorleifsdóttir. Gunnar Stefánsson les úr verk- um Snorra Hjartarsonar og kafla úr íslandsklukkunni flytja Jón Hjartarson, Baldvin Halldórsson og Hjalti Rögnvaldsson. Þursa- flokkurinn, sem skipaöur er þeim Agli Ólafssyni, Þóröi Arnasyni, Tómasi Tómassyni, Asgeiri Óskarssyni og Rúnari Vilbergs- syni, leikur nokkur lög og kvintett úr Tónlistarskólanum, skipaöur Ólafi Flosasyni, Rúnari Vilbergs- syni, Þorkeli Jóelssyni, Frey Sigurjónssyni og Birni Leifssyni, leikur einnig. Leikþáttinn Land til sölu eftir Tryggvi Gíslason skólameistari Flosa Ólafsson flytja Flosi, Sig- uröur Skúlason, Kristbjörg Kjeld og Helga Jónsdóttir. Loks mun Árni Björnsson stjórna fjöldasöng, undirleikari Elías Davíösson, en kynnir verö- ur Bergljót Kristjánsdóttir. MIR Fyrirlestrar um Sovétrikin I lok marzmánaöar og byrjun april gengst MIR, Menningar- tengsl Islands og Ráöstjórnar- ríkjanna, fyrir erindaflutningi fyrir almenning i MlR-salnum, Laugarvegi 178. Fyrsta erindiö veröur flutt fimmtudagskvöldiö 30. mars kl. 20.30. Þá ræöir Vladimlr K. Vlassof verslunarfulltrúi um viö- skipti íslands og Sovétrikjanna. Laugardaginn 1. april kl. 15 ræöir Mikhail M. Bobrof, sovéskur iþróttaþjálfari sem starfar hér á landi nú, um likamsrækt i Sovét- rikjunum og undirbúning Olympiuleikanna i Moskvu 1980. Fimmtudaginn 6. april kl. 20.30 spjallar Ólafur Ag. Ornólfss. loft- skeytamaöur um Siberiu fyrr og nú og laugardaginn 8. aprll kl. 15 ræöir Ragnar Björnsson organisti og hljómsveitarstjóri um tón- leikaferöirsinar til Sovétrikjanna og kynni af sovésku tónlistarlifi. Laugardaginn 15. april kl. 15 flytur svo dr. jur. Alexander M. Jakovléf lokaerindiö og fjallar þaö um hina nýju stjórnarskrá Sovétrikjanna. Dr. Jakoléf kemur hingaö til lands i boöi MIR frá Danmörku þar sem hann flytur fyrirlestra. Fyrirlestrarnir i MlR-salnum eru öilum opnir. Kvikmyndir veröa sýndar meö hverjum fyrir- lestri. (Frá MIR). Uppdubbun Skagastrandar- verksmidjuimar hafin JJ-Skagaströnd. Vinna er þegar hafin viö endurreisn verksmiöj- unnar á Skagaströnd, sem upp var komiö fyrir þrjátlu árum, en aldrei notuö til sildarbræöslu nema stutta sumartlma allra fyrstu árin. Eins og frá hefur ver-; iö sagt á aö breyta henni I full- komna loönubræöslu. Um þessar mundir er verið að gera viö hús, sem verksmiðjunni heyra til, bæði ibúöir og matar- bragga, og gera þau svo úr garöi, aö unnt sé aö taka þau I notkun siösumars. Einnig er verið aö fjarlægja gömluvélarnar i verksmiöjunni og flytja burt ýmislegt, sem þar hefur veriö geymt. Mun áætlaö, aö setning nýrra loönubræöslu- véla, sem verða af þeirri gerö, er nú er nýjust og fullkomnust, geti hafizt i byrjun júnimánaðar, enda fyrirhugaö, aö verksmiöjan geti eftir þessa gagngeröu búningsbót farið aö taka á móti loönu til bræöslu i byrjun ágústmánaöar. Þess vegna má vænta þess, svo fremi sem sumarloöna veiöist fyrir Norðurlandi aö einhverju ráöi, aö mikiö veröi um aö vera á Skagaströnd siösumars. Annars er atvinna góö nú, þótt eitthvaö slakni á nú um páskana og þann tima, er þorskveiðibanniö veröur i gildi. Vaknið og syngið í Kópavogi: Ókeypis leiksýníng á 20 ára af mæli Vegna 20 ára afmælis Leikfélags Kópavogs hefur þaö ákveöiö aö kynna starfsemi sina meö þvl aö bjóöa fólki, á meöan húsrúm leyf- ir, á sýningu þess á „Vakniö og syngiö” eftir Clifford Odets, næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 20.301 Félagsheimili Kópavogs (Kópavogsbió). Húsiö veröur opnaö kl. 20. Gestum gefst kostur á veitingum I hléi i veitingastofu hússins. Þar veröa myndir úr fyrrisýningum félagsins tilsýnis. Mikil gróska er nú i starfsemi félagsins og má taka þaö til marks aö Leikfélag Kópavogs sýnir um þetta leyti þrjú leikrit. Þaö er einsdæmi, að áhugafélag sé meö svo margar sýningar i gangi á sama tima. Barnaleikrit- ið „Snædrottningin” hefur verið sýnt viö mjög góöa aðsókn siðan um miöjan nóvembersl. og verða enn nokkrar sýningar á þessu vinsæla barnaleikriti. „Jónsen sálugi” hefur skemmt áhorfend- um undanfarið. Framvegis mun gamanleikurinn „Jónsen sálugi” veröa sýndur á miönætursýning- um á föstudögum, jafnframt þvi aö vera sýndur á venjulegum kvöldsýningum. Leikritið „Vakn- iö og syngið”, sem sýnt veröur á fimmtudagskvöld, var frumsýnt fyrri þessum mánuöi. „Vakniö og syngiö” hefur vakið talsveröa at- hygli ogoröiö umdeilt. Leikstjóri er Haukur J. Gunnargson og leik- mynd gerði Björn Björnsson. Næsta sýning á „Vaknið og syng- iö” veröur mánudaginn 3. april. Miöasala Leikfélags Kópavogs er opin daglega frá kl. 18, simi 41985. Leikfélag Kópavogs býður alla velkomna n.k. fimmtudagskvöld i Kópavogsbió. Guörlöur Guöbjörnsdóttir, Svanhildur Jóhannesdóttir og Leifur tvars- son I hlutverkum móöurinnar, dótturinnar og afans I Vakniö og syngiö. Heimili Sigtúni — Símar 3-67-70 8- 8-63-40 Fundur um atvinnu- mál í Hveragerði Framsóknarfélag Hveragerö- is efndi til almenns fundar um atvinnumál, mánudaginn 20. febrúar s.l. i Hótel Hveragerði og var hann fjölsóttur. Frummælendur voru Þor- steinn Bjarnason gjaldkeri VerkalýðsfélagsHveragerðis og nágrennis og Þórarinn Sigur- jónsson alþingismaður. Á fundinn var sérstaklega boðið sveitarstjórnarmönnum og atvinnumálanefnd Hvera- geröis. Formaöur félagsins, Garðar Hannesson, setti fund- inn og stýrði honum, en fundar- gjörð ritaöi Pálina Snorradóttir kennari. Þorsteinn Bjarnason geröi grein fyrir atvinnuástandinu á félagssvæði verkalýösfélagsins. Kom fram, aö einungis I garö- yrkju heföi oröiö fólksfækkun. Jafnframt benti hann á, að 26 heimilisfeöur sækja vinnu utan Hverageröis. Þorsteinn benti á nauðsyn þess, aö hinn miklu jarðvarmi sem hér er, veröi nýttur meö stórfelldum fram- kvæmdum byggöarlaginu til heilla. Loks hvatti hann Hver- gerðinga til aö nota tækifæriö i næstu hreppsnefndarkosningum til að gefa „sofandi hrepps- nefndarmönnum” fri frá störf- um. Þórarinn Sigurjónsson ræddi um nauösyn iönaöaruppbygg- ingar I Hveragerði. Taldi hann flest benda til að hér (i Hvera- gerði) rlsi ylræktarver i fram- tiðinni, að loknum athugunum og æskilegum undirbúningi. Þá ræddi hannum gang mála i sambandi viö byggingu og rekstur sykurverksmiðju, en 1975 flutti hann tillögu á Alþingi um að reisa þessa verksmiðju hérlendis. Gjaldeyrissparnaður þá var áætlaöur 150 5 200 milljónir árlega. Starfsmenn þyrfti ca. 60. Samkvæmt nýjum athugunum sem gerðar hafa verið I Finnlandi, er áætlaö aö til þess að hreinsa 25 þúsund tonn af melaxa þurfi 130 þúsund tonn af gufu. Kostnaöur viö hreinsunina væri 250 milljónir meðoliu, en 20 milijónir úr bor- holum beim sem þegarerufyrir hendi *i Hverageröi. Þá sagöi Þórarinn, aö finnskir sérfræö- ingar væru væntanlegir hingaö til lands vegna þessa máls, en kom hefur til tals að Finnar eigi hlut i fyrirtækinu. Sagði hann aö unniö væri af fullum krafti i málinu, og aö ekki væri talin hætta á mengun frá þessari verksmiöju. Aðrir sem til máls tóku voru: Þorsteinn Garöarsson sveitar- stjóri i Þorlákshöfn, Sigurður Jónsson hafnarstjóri, Bjarni Kristinsson, Páll Þorgeirsson, Auður Guðbrandsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Guömundur S. Wiium, Þórður Snæbjörnsson, Kjartan Björnsson, Hafsteinn Kristinssonoddviti i Hveragerði og Garðar Hannesson. Siðan svaraði Þórarinn framkomnum fyrirspurnum. I lok fundarins var eftirfarandi ályktun sam- þykkt: Alyktun Almennur fundur um atvinnu- mál haldinn I Hveragerði mánu- dagÍRn 20. febrúar 1978, skorar á hreppsnefnd Hverageröis- hrepps og þingmenn Suður- landskjördæmis, að hefja nú þegar undirbúning þess, að sykurverksmiðju þeirri sem rætt hefur veriö um aö byggja á tslandi, veröi valinn staður hér I Hveragerði, ef rannsóknir sýna aö rekstur sllks fyrirtækis sé þjóðhagslega hagkvæmur. Minnir fundurinn á þann mikla jarðvarma sem hér er fyrir hendi, svo og þær borholur sem rikiö hefur þegar látið bora á þessu svæði. Vorlaukar í póstkröfu 3.500 kr. pokinn. — í pokanum eru 5 mismunandi tegundi af laukum: Dahlíur, anemónur, begóníur, bóndarósir og gladíólur. Blómavai — Sigtúni — Reykjavík Undirrit. óskar eftir að fá sendan í póstkröfu --------poka af vorlaukum. Nafn

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.