Tíminn - 01.04.1978, Síða 5
Laugardagur 1. april 1978
5
Textilhönnuðir sýna
í Norræna-húsinu
JG — 1 dag veröur opnuö samsýn-
ing Textilfélagsins, og er þetta
fyrsta samsýning félagsins, sem,
eins og nafniö bendir til, er
félagsskapur fólks sem fæst við
vefnað og fl. Er að sögn forráða-
manna félagsins ráðgert að halda
sýningar af þessu tagi árlega á
vegum félagsins.
Á sýningunni eru verk eftir 17
félaga Textilfélagsins, sem sýna
myndvefnað, tauþrykk, fata-
hönnun, almennan vefnað, véla-
vefnað o.fl. Tilgangur sýningar-
innar er að sýna það nýjasta sem
félagsmenn eru að vinna að.
Textilfélagið var stofnað i okto-
ber 1974 og eru félagsmenn nú
21 talsins, sem starfa að mis-
munandi greinum textillistar.
Stærsta verkefni félagsins
hingað til var undirbúningur og
umsjá Norræna Textiltrienalsins
sem fór um öll Norðurlönd og var
á Kjarvalsstöðum i janúar 1977.
Verið var að leggja siðustu
hönd á sýninguna, þegar blaða-
menn bar að garði. Mun óhætt að
fullyrða að þetta er bæði fjöl-
breytt og vönduð sýning.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 14.00-22.00 og henni lýkur
10. april.
Stjórn Textilfélagsins skipa:
Þorbjörg Þórðardóttir form., As-
rún Kristjánsdóttir ritari, Stein-
unn Pálsdóttir gjaldkeri, Ragna
Róbertsdóttir meðstjórnandi og
Guðrún Gunnarsdóttir með-
stjórnandi.
Orð og ákall
— Ný bók eftir Pál Hallbjörnsson
Ægisútgáfan hefur sent frá
sér bókina Orð og ákall eftir
Pál Hallbjörnsson með-
hjálpara i Hallgrimskirkju.
Bókin skiptist i þrjá kafla sem
heita: Viðtöl við höfund lifs-
ins, Hugleiðingar um mannlíf-
ið og Bænir. Biskupinn yfir Is-
landi herra Sigurbjörn
Einarsson fylgir bókinni úr
hlaði með nokkrum orðum og
segir þar meðal annars:
,,Það mun reynastheilnæmt
hverjum manni að slást i för
með höfundi i þeim hug-
leiðingum hans sem hér eru á
blöð komnar og fylgja honum
inn i þann helgidóm bænar og
tilbeiðslu sem andi orða hans
er vigður. Hann hefur leitað til
linda Guðsorðs og fundiö gleði
styrk og lifsfrjóvgun trúrækn-
innar, samfélagsins við Krist.
Þessu vill hann bera vitni
öörum til hvatningar og bless-
unar. Verði honum að þeirri
ósk sinni von og bæn, að orðin
á þessum siðum veki og glæði
bænaranda,styðji til hollrar
lifsafstöðu greiði Guði veg.
Svo er bókin gerð að þessu má
hún til vegar koma, ef henni
verður svo tekið sem hún á
skilið.”
Páll Hallbjörnsson
Orð og ákall er sjöunda bók
Páls Hallbjörnssonar. Hún er
479 blaðsiður sett og prentuö i
Vikurprenti h.f., en bundin i
Hólabókbandinu. Teikning-
arnar i bókinni eru eftir Pál
Guðmundsson.
Hey til sölu
Hey er til sölu að Vogatungu i Leirársveit.
Upplýsingar i sima 93-2111 að Lyngholti, i
gegnum Akranes.
Yfirlæknir Free-
portsj úkrahúss-
ins í heimsókn
höfðu áhuga á læknismeðferö
drykkjusjúkra. Hann stofnaði
Freeportsjúkrahúsið. sem marg-
ir Islendingar hafa leitað til, og
hefur helgað alla krafta sina bar-
áttunni við drykkjusýki með góö-
um árangri. Margar af þeim að-
ferðum, sem hann hefur beitt
hafa siöan verið teknar upp á öðr-
um sjúkrahúsum og stofnunum
fyrir alkoholista.
Arið 1974 var dr. Herzlin boðið
til Astraliu, þar.sem hann flutti
fyrirlestur og leiðbeindi læknum
um aðferðir við alkoholisma. Þá
hefur hann flutt gestafyrirlestra
við marga bandariska háskóla og
aðstoðað við gerð útvarps- og
sjónvarpsþátta um þennan sjúk-
dóm.
Mánudaginn 3. april kemur Dr.
Frank Herzlin, yfirlæknir Free-
portsjúkrahússins i New York i
heimsókn hingað til lands i boði
Freeportklúbbsins. Herzlin mun
dvelja hér i rúma viku, og mun
meðal annars ræöa við lækna og
ýmsa ráðamenn heilbrigðismála
hjá riki og borg. Þá mun hann
flytja fyrirlestur i Háskóla Is-
lands, kynna sér starfsemi SAA
og Vifilstaða og tala á opnum
fundi hjá AA samtökunum. Einn-
ig mun Herzlin halda sérstakan
fræðslufund fyrir alkóhólista dag-
ana 8. og 9. april.
Dr. Herzlin fékk áhuga á mál-
efnum alkoholista fyrir 15 árum
og var þá einn af mjög fáum
læknum i Bandarikjunum sem
Dr. Frank Herzlin
GERUM LEIÐ
ALMENNINGSVAGNA
GREIÐARI
Þann 1. apríl koma til framkvæmda reglur
um akstur almenningsvagna frá biðstöð.
Þá verður sett merki á afturrúðu vagna
sem aka í þéttbýli.
Merkið er áminning um að hleypa
vagninum inn í umferðina aftur.
Sýnið tillitssemi, hægið á
eða stöðvið bifreiðina
á meðan vagninn yfirgefur
biðstöðina.
Það munar aðeins sekúndum.
Hleypið vagninum inná!
UMFERÐARRÁÐ
Fyllingarefni
Húsbyggjendur
Verktakar
Húseigendur
Höfum til afgreiðslu alla virka
daga fyrsta fiokks sjávarefni til
fyllingar i grunna, brautir og
skurði, bæði harpáð og óharpað.
Efnið er ófrosið, hreint og
þjöppunareiginleikar hinir
ákjósanlegustu.
Efnið, sem engan
svíkur
BJÖRGUN H/F
Sævarhöfða 13, simi 81833.