Tíminn - 08.04.1978, Síða 14

Tíminn - 08.04.1978, Síða 14
14 Laugardaguf 8. april 1978 — Eigum vid (ramtiö fyrir okkur i útilutningsframieiðslu málmiðnaöar að þinu áliti Fjól- mundur? — Ekki kannski útflutnings- framleiðslu ennþá. Ég held að þaö, aðstraxog varfarið að tala um útflutning um leið og minnzt var á iðnað, hafi jafnvel orðið mesti dragbiturinn á iðnaðar- uppbyggingu á íslandi. Tima- bilið f rá þvi við gengum i EFTA heíur gefið ákveðna möguleika og vissulega hefur verið gert nokkuð fyrir iðnaðinn á þeim tima. En við einblinum allt of mikið á útflutning. Það virðist svo rikt i þeim sem valdið hafa, að skapa g jaldeyri. Gjaldeyri og meiri gjaldeyri. En að spara gjaldeyri viröist enginn vilja, i raun og veru. Kemur það t.d. glöggt fram i sambandi við landbúnaðarframleiðslu. Hún er af mörgum litils metin vegna þess að hún fyrst og fremst sparar gjaldeyri. Til gamans vil ég geta þess, að eitt sinn heyrði ég tvo merkismenn fara i hár saman Ut af þessu atriði. Annar var landsbyggðarmaður og lagði að iiku að afla gjaldeyris og spara hann. Hinn var héðan úr þessari allsráðandi Reykja- vik. Hann sagði „skapa gjald- eyri en til fjandans með allan sparnað”. — En þurl'um við sem mikil innflutningsþjóð ekki meiri gjaldeyri? — Við fáum nóg af honum ef við kynnum að fara vel með hann. Þjóðin var til skamms tima sjáll'ri sér nóg. Að þvi eig- um viðað keppa á sem flestum sviðum. Við eigum að framleiða sjálf meir'a af þvi sem við þurf- um. Ég álit að okkar iðnfyrirtæki eigi aðbyggja upp fyrir islenzk- an markað og þróa þau upp til útflutningsframleiðslu. Bara pólitisk grilia — Má nota framleiöslu ál- versins til iðnaðar? — Sem málmiðnaðarmaður tók ég aldrei mark á þeirri grillu, þegar álverið var undir- búið, að nU fengjum við hráefni til að vinna úr. Við þurfum að visu hundruð tonna af áli ár- lega, en það verðum við að kaupa i plötum utanlands frá. Með álvinnslunni hérna er að- eins verið að mata valsaverkið hjá þeim Uti. Til að við gætum unnið Ur þvi, þyrfti að setja upp miklu dýrara fyrirtæki en ál- verksmiöjan er. Það stóö aldrei til að álvinnsla á tslandi væri fyrir okkar iðnað. Þvi var bara síegið fram til að vinna að íramgangi málsms. Ég var nu svo djarfur að spyrja pólitikusana, sem komu til okk- ar, hvaða tilgang það hefði að vera að segja almenningi þessa vitleysu. Þeir vissu sjálfir að þetta stæði ekki til. Auðvitað var þvi ekki svarað á neinn hátt. — Hvaða ráð gæfir þú ungum manni, sem vildi feta i fótspor þin? —Ég vildi eiginlega engum manni svo illt að feta I fótspor min, en mundi þó aldrei ráða neinum frá þvi. Ég mundi bUa hann undir erfiðleikana, mundi spyrja hvort hann treysti sér til að takast á viö þá, en jafnframt benda honum á að sigurinn er þeim afskaplega sætur, sem dug hafa i sér að takast á við þá og sigra. — Er ekki liægt að minnka þessa erfiðieika? — JU, mjög mikið, með auknu skipulagi. Á þeim 12árum sem ég hef staöið i þessu, hef ég sannfærzt um, að kröfurnar, sem gerðar eru til islenzks iðn- aðar eru ekki heilbrigðar, heldur hreinlega tilbúnir erfið- leikar. — Að gerðar séu meiri kröfur til islen/krar framleiðslu en er- lendrar? — Það er meira en að gerðar séu kröfur. Ég vil skýra þetta meö dæmi. Ég fór meÖ hljóðkút til tveggja aðila, sem voru með umboð fyrir sama bilinn. 1 ööru umboðinu fannst þeim verðið ágætt og framleiðslan snyrtileg, en viðmælandi minn vó kútinn i hendi sér og sagði: „Hann ér bara allt of þungur, það þýðir ekki að setja þetta undir bil- inn”. Siöan fór ég i hitt umboðið með sama kUtinn. Þar gerðist - r* . 'm : ....................................................................................... Málmiðja Fjólmundar Karlssonar, Stuðlaberg h/f á Hofsósi Að koma upp litlu fyrirtæki má ekki kosta heila mannsævi — framhald af viðtali við Fjólmund Karlsson á Hofsósi Fjólmundur Karlsson nákvæmlega það sama, maður- inn var ánægður með verðið og leizt ákaflega vel á kútinn, veg- ur hann i hendi sér og segir: „Það er bara allt of þunnt i þessu, hann er allt of léttur”. Itvað vildu þessir menn? Þeir vildu aðeins geta íundið aö, af þvi þetta var islenzk fram- leiðsla, hvernig sem þeir færu að þvi. Engin tilfinning var fyrir þvi, að það þyrfti að vera rétt sem þeir sögðu. Svo óheppilega vildi bara til að þeir sögÖu sitt hvor. Annar að kúturinn væri of le’ttur, hinn of þungur og kUtur- inn var upp á gramm eins og hann átti að vera. Þetta er krafa sem engin sanngirni er i og hefur ekki við neitt að styðj- ast. Það er allt i lagi að gera kröf- ur. Ég er aldrei ánægðari en þegar fundinn er raunhæfur galli á framleiðslunni hjá mér, sem ég get siðan lagað. Þá er fólk að hjálpa mér til að fram- teiða góða vöru. En það er ekki það sem var að gerast i þessu tilfeUi. Þvi miður er þessi tilhneiging nokkuð rik i mörgum islenzkum neytendum. Aö minu mati þyrfti hér að koma upp gæöamati islenzkrar framleiöslu. Eftir að gæða- stimpillinn er fenginn á hUn að verabUin að vinna sér ákveðinn sess, ef allt er raunhæft. Dreifingaraðilinn hefur brugöizt — Breytti ekki Iönkynningar- árið áliti manna á islenzkum iðnaði? — Ég held að það hafi litil áhrif haft, því miður. Iðnkynn- ingarárið var þarft og gott framtak. Viljann vantaði ekki og vel ogvirðulega var staðiðað málunum, ekki sizt að iðnaöin um sjálfum. En ég tel, að af- raksturinn sé litill. Það var að visu uppi dálitill áróður, til neytenda, fyrir sölu á islenzkri vöru, en dreifingaraðilinn varð ekki fyrirmiklum þrýstingi, það kerfi er alveg furðulega mein- gallað. Ég vil skýra þetta með smá dæmi. Eitt sinn fór ég til eins stærsta dreifingaraðilans á Is- landi í sambandi við bila, að bjóða honum framleiðslu okkar. „Við erum visir með að kaupa eitthvað af ykkur, jafnvel mikið”, sagði hann, „en þið verðiöað afgreiða til okkar eftir þvi sem við biðjum um og megið engum selja öðrum”. Ég treysti mér ekki til að leggja valdið á fyrirtækinu i hendur eins sölu- aðila, og ef hann seldi ekki, þá var það dauðadómur. Þetta hetði hann heldur aldrei sagt við erlendan aðila, sem hann skipti við. Hann ætlaði að losa sig við fjármagnsþungann af þvi að liggja með birgðir og færa hann yfirá fyrirtækið hjá okkur og siðan hindra að við gætum selt öðrum. Svona er viðhorf dreifingar- aðilans til fslenzkrar fram- leiðslu. Þetta var ekki tekið til athugunar eins og þurft hefði i sambandi við iðnkynninguna i sumar. Kannski ég segi þér lika annað dæmi. Kunningi minn er með smá framleiðslu á hlutum til heimilisnota, og seldi lengi vel til eins aðila. Siðar gerði — Það er sama eðlis og ég hef alltaf sagt um alla pólitik og ég vil ekki bita á hana yfiríeitt. Sjálfstæðismennirir æpa frelsi, frelsi. Siðanstjórna þeir landinu og hvað gerist þá, segjum ’68 og ’69. Þeir gátu ekki stjórnað haftalaust og þá settu þeir bara höft. Höftin eiga nefnilega rétt á sér, þegar þarf að beita þeim, og það oftar en gert er. Að minum dómi er með höftin eins og með lögin okkar. Við hrópum frelsi, frelsi, en til þess að hafa frelsi, setjum við lög. En lögin eru i raun ekkert annað en haft á einstaklinginn. Við setjum höft til að hafa frelsi. Við eigum aðhafa stjórn á hlutunum, bæði innflutningi og öðru til þess að lifa góðu lifi i landinu, en ekki láta hræða okkur með ópunum- frelsi, frelsi, höft, höft. Það er bara pólitisk froða og grýla að minum dómi. Þaðkom lika á daginn að það var ekki pólitiska frelsið þeirra sem réði i landinu, heldur allt annað. Það voru viðskiptin út á við og önnur slik öfl sem réðu I raun og veru. Þegar það ekki dugði, þá dugði þeirra sjálf- stæðismennska ekki heldur. Þetta þarf ekki að segja fólki, það skilur það orðið. — Eru stjórnmálamennirnir þá ekki nógu stefnufastir? — Það eru fleiri en stjórn- málamennirnir, sem hafa furðulegar hugmyndir. Ég heyrði t.d. nýlega f verkalýðs foringja i útvarpinu. Hann tal- aði m.a. um að það þyrfti að virkja fólkið til baráttu. Eru ekki þessir menn að snúa hlut- unum við? Ég hefi hingað til litið svo á, að það væri fólkið sem ætti að virkja foringjana. Ef þú kýst þér einhvern til að fara með þin mál, hlýtur þú að ætlast til að hann vinni þeim málum brautargengi, sem þú ert hlynnt, ekki öfugt. annar pöntun hjá honum. Er sá athugaði verðið fannst honum það of lágt og fór fram á að það yrði hækkað. Það samþykkti framleiðandinn ekki og urðu siðan ekki frekari viðskipti þeirra á milli. Hér er prósentuálag og það er keppzt við að kaupa inn sem dýrast. Frelsi, frelsi — höft, höft — Kinnst þér þá að taka ætti upp frjálsa álagningu? — Við erum með verðlags- eftirlit i landinu. Við eigum að hafa það áfram og taka upp há- marksverð. Það er hægt að setja hámarksverð á meirihlut- ann af öllum vörum. Þá gætu kaupmenn farið að beita fram- takinu, og færu þá kannski frek- ar að kaupa góðar og ódýrar is- lenzkar framleiðsluvörur. Þaðer ekki frjáls álagning, að' minum dómi, sem koma skal, heldur hámarksverð. A þvi er mikill munur. — En nú eru allir að tala um aukið frelsi á flestum sviðum? Stórmannleg og göfug hugmynd — Hvað vilt þú svo að lokum segja mér i sambandi við þessi verðlaun sem þú blauzt, Fjól- mundur? — Mér þykir mjög vænt um þessa viðurkenningu, en verður um leið hugsað til þeirra mörgu sem hefðu átt verðlaunin skilið. Þetta er fyrsti visirinn að því að ég finniþaðeinhversmetið, sem ég hef verið að vinna að, og það er nauðsyn hverjum manni að fá verk sin viðurkennd. Hugmyndin sem liggur að baki stofnunar þessa sjóðs, er stórmannleg og göfug. Égtel að málum væri betur komið i þjóð- félaginu ef svipuð hugsun rikti viðar. Fjöldi Islendinga er enn- þá reiðubúinn til að fórna sér fyrir hugsjónir sinar, sæju þeir eitthvert vit i þvi, en að öllu óbreyttu guggna margir. Þvi vona ég, að hugsjónin, sem liggur að baki þessarar sjóðsstofnunar, megi Ufa sem lengst. Hofsós

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.