Tíminn - 23.04.1978, Blaðsíða 2

Tíminn - 23.04.1978, Blaðsíða 2
2 Sunnudagur 23. april 1978 DUFGUS: KJARASAMNINGAR OG ALÞINGI í þættinum „Kastljós" í Sjónvarpinu fyrir rúmum hálfum mánuði sagði Sverrir Her- mannsson alþm. eitthvað á þá leið að Al- þingi yrði að taka að sér að leysa kjaramál- in í landinu, vinnuveitendur og launþegar hefðu sýnt að þeir væru ófærir um að leysa þau mál. Víster um það að vinnuveitendur og laun- þegar haf a ekki gert mikið að því að komast að skynsamlegum niðurstöðum né hafa þeir ástundað vinnubrögð sem líkleg hafa verið til þess að leiða gott af sér. Ég þykist vita að hvor aðilinn um sig segi að þetta sé hinum að kenna en látum það liggja milli hluta. Hitt liggur nær að skoða hvort meiri af- skipti Alþingis og þá væntanlega meirihluta Alþingis og ríkisstjórnar væru færari leið og verður þá að skoða nokkuð hver afskipti rikisvaldsins hafa verið og hvaða af leiðing- ar þau hafa haft. Þegar viðreisnarstjórnin var stofnsett árið 1960 gerði hún ýmsar breytingar á efnahagsstjórn og voru margar þeirra tímabærar. Allan sjötta áratuginn hafði verið að gerast næsta varasöm þróun í efnahagsstjórn og var svo komið árið 1960 að almennt var viðurkennt að brýna nauðsyn bæri tii úrbóta og fékk viðreisnar- stjórnin góðan starfsfrið til þess að gera nauðsynlegar breytingar jafn vel þó að ýmsar aðrar ráðstafanir fylgdu með, sem mörgum voru lítt að skapi. Allt árið 1960 og fram undir mitt ár 1961 hafðist verkalýðs- hreyfingin ekki að þrátt fyrir það að hún mótmælti harðlega ýmsum verkum stjórnarinnar. Ein var sú breyting á ef nahagsstjórn sem hér verður að taka til athugunar. Við- reisnarstjórnin lýsti því yfir að hún myndi ekki hafa afskipti af samningum á vinnu- markaðnum. Aðilar vinnumarkaðsins yrðu að semja um kaup og kjör og taka á sig af- leiðingarnar af þeim samningum. Þessi stefna var að sjálfsögðu tekin vegna þess hve afskipti ríkisvaldsins af þessum mál- um hafði reynzt óheillavænleg á árunum á undan. Þessi stefna var til þess fallin að meiri skynsemi yrði beitt i gerð kjara- samninga en tíðkazt hafði, þar sem nú gætu menn ekki samið um hvað sem var og varpað svo ábyrgðinni á ríkisvaldið að leysa vandann. Með þessi viðhorf í huga var gengiðtil kjarasamninga vorið 1961. Vinnu- málasamband samvinnufélaganna gekk til samninga eftir tiltölulega skamma deilu. Samið var um 10% launahækkun og nokkur fleiri atriði þannig að heiIdarlauna- hækkanir urðu um 12%. Þessir samningar voru raunhæf ir. Verð á útf lutningsaf urðum var 9% hærra 1961 en 1960 (Verðbólguvand- inn bls. 191) Innf lutningsverð var 2% lægra 1961 en 1960. Það var yfirlýst stefna rikis- valdsins að hafa ekki afskipti af kjara- samningum og gripa ekki inn í til þess að bjarga atvinnuvegunum ef illa tækist til með kjarasamninga. í fulivissu þess að þetta stæðist gekk Vinnumálasamband samvinnufélaganna til þessara samninga. Við þá var hægt að standa og við þá átti að standa. Þessir samningar voru ekki gerðir til einnar nætur. Gert var ráð fyrir annarri kauphækkun 4% að ári liðnu og að samning- ar stæðu að minnsta kosti út árið 1962 og fremur þó fram á mitt ár 1963. Þó voru að sjálfsögðu fyrirvarar í samningum ef aðrir aðilar vinnumarkaðsins semdu um eitthvað annað. Þarna voru þvi opnaðir möguleikar til þess að vinnulaun hækkuðu ekki nema um 16% á þremur árum í batnandi viðskiptaárferði sem hefði átt að tryggja það að kaupmáttur launa yxi í hlutfalli við launahækkunina á verðbólgu. Þessir möguleikar voru ekki nýttir. Ríkisstjórnin ónýtti samningana með gengisf el lingu. Þessir einu frjálsu samningar sem gerðir hafa verið hér á landi í áratugi samningar, sem hægt var að standa við að fullu og átti að standa við að fullu, samningar sem gerðir voru af fullri ábyrgðartilfinningu bæði af hálfu verka- lýðshreyfingarinnar, þ.e.a.s. þess hluta hennar sem að samningunum stóð og vinnu- veitanda, þessir samningar voru kallaðir svikasamningar og í kjölfariðfylgdi einhver svæsnasta herferð stjórnvalda gegn sam- vinnuhreyfingunni sem dæmi eru um á þessari öld. Ef til vill gefst tækifæri til þess að fjalla nánar um það mál síðar. En i stað þess að nýta þessa möguleika til stöðvunar verðbólgunnar og kaupmáttar- aukningar launa með hóflegum kaup- hækkunum var valin önnur leið. Vinnuveit- endasamband íslands gekk ekki inn í samninga Vinnumálasambandsins heldur samþykkti nokkru hærri laun eftir mánaðarverkfall. Og í kjölfarið lækkaði rikisstjörnin gengið um 12% einum mánuði siðar til þess að taka af allan vafa um það að frjálsir samningar skyldu ekki gerðir á íslandi. Venjulega eru atvinnuvegirnir píndir lengi áður en ef nahagsráðstafanir á borð við gengislækkun eru gerðar, haustið 1966 var orðið augljóst að ekki yrði komizt hjá gengisfellingu, en það liðu 14 mánuðir þangað til það var get. Þó var sama rikis- stjórnin að völdum. Sumarið 1961 leið ekki nema einn mánuður frá kjarasamningum þangað til gengið var fellt sem af leiðing af samningunum eins og það var látið heita. í það skiptið þurfti ekki einn einasti maður að ganga á fund ríkisstjórnarinnar til þess að lýsa slæmum hag og nauðsyn þess að einhverjar ráðstafanir væru gerðar eins og jafnan hefur þurft fyrr og síðar. Enda þurfti ekki á gengislækkuninni 1961 að halda það sést bezt á þvi að í ársbyrjun 1963 hafði kaupið hækkað um 33% en ekki þurfti að gera neinar nýjar ráðstafanir i efna- hagsmálum. Þessi 33% hækkun rikis- stjórnarinnar gaf því sem næst nákvæm- lega sama kaupmátt launa og 16% hækkun Vinnumálasambandsins^gengislækkunin og verðbólgan í kjölfar hennar hirti mismun- inn. En nú hafði verðbólgan náð sér á strik aftur eins og til var stofnað og eftir að laun höfðu hækkað um 7.5% á miðju ári 1963 hefði þurft að gera efnahagsráðstafanir. Það var hins vegar ekki gert nú lá allt í einu ekkert á stjórnin lagði að visu fram frum- varp í nóvember en dró það til baka. Það var ekki fyrr en eftir 15% hækkun launa í desember að ráðstafanir voru gerðar. Síðan í júni 1961 hafa engir frjálsir samningar verið gerðir á milli atvinnurek- enda og launþega á hinum almenna vinnu- markaði. Allir samningar hafa verið meira og minna undir handarjaðri ríkisstjórna. Samningar hafa oftast verið því verri sem rikisstjórnir hafa haft af þeim meiri af- skipti að undanskildum samningunum 1975 sem voru leiddir með óvenjulegum styrk- leika. Aldrei hefur ríkisstjórn haft meiri af- skipti af samningum en febrúarsamning- unum 1974, þá sat hálf ríkisstjórnin á Loft- leiðahótelinu vikum saman. Aldrei hafa verið gerðir jafn fráleitir samningar. Ekki er við ráðherrana sem sátu á Loftleiða- hótelinu að sakast persónulega, þeir vissu nákvæmlega hvað var að ske en þeir réðu ekki við það. Það var formið á samninga- viðræðunum, sem var rangt. Það voru af- skipti ríkisstjórnarinnar af samninga- málunum, sem voru röng. Ráðherrarnir sjálfir vissu svo vel hvað gerðist á Loft- leiðahótelinu/að þeir gátu setzt niður í Stjórnarráðinu strax að samningum lokn- um til þess að rifta þeim. Af þessu hygg ég að sjá megi að tillaga Sverris Hermannssonar um að Alþingi taki að sér samningamálin sé ekki vænleg til árangurs. Jafnframt má benda á þá samninga sem ríkisstjórnir hafa gert við sina eigin starfsmenn án íhlutunar þeirra vondu manna aðila vinnumarkaðarins. Ekki held ég að árangur ríkisstjórna í þeim samningum verði talinn til neinnar fyrir- myndar. Ætla má því að það skynsamleg- asta sem Alþingi og ríkisstjórn gerði væri ekki að sækjast eftir meiri afskiptum af gerð kjarasamninga þvert á móti væri væn- legast að þeir aðilar lýstu því yfir að þeir hefðu engin afskipti af þeim málum og stæðu við þá afstöðu. Hefur Alþingi tima til þess að sinna kjarasamningum? Það er ástæða til að spyrja um það. Alþingi virtist ekki hafa tíma til þess að gera einföldustu breytingar á kosningalögunum nú í vetur, breytingar sem þó allir virtust vera sammála um sl. haust. Skýrt hefur verið frá þvi að fyrir- hugað sé að taka upp staðgreiðslukerfi skatta um næstu áramót. Nú hefur einn al- þingismaður skýrt f rá því að það muni vera óf ramkvæmanlegt vegna tímaskorts. Hvernig ætlar tímaskortur Alþingis að leika skattaf rumvarpið sem upphaflega var ráðgert að yrði í gildi á þessu ári? Árum saman hefur Alþingi skort tíma til að endurskoða vinnulöggjöfina en slík endur- skoðun gæti átt stóran þátt í því að gera kjarasamninga skynsamlegri. Alþingi hefur ekki einu sinni haft tíma til að móta laun'astef nu, sem þykirþóvera nauðsynlegt með öllum nálægum þjóðum og er vissulega brýntef skynsamleg markmið eiga að nást. Nei sannarlega er ekki á Alþingi bætandi. Það þarf meira að segja að leggja frá sér ýmis verkefni sem minna máli skipta en stjórn landsins svo sem alls konar útdeil- ingu veraldlegra gæða sem margir al- þingismenn telja að geti aukið þeim vin- sældir. Kjaramál á íslandi er orðinn mikill f rum- skógur og mörgu þarf að breyta og bæta. Hlutverk Alþingis er að vinna að því að um- bætur verði gerðar. Ekki með því að annast kjarasammningana sjálft, það gerði illt verra/heldur með því að gera vinnulög- gjöf ina þannig úr garði að auðveldara sé að ná fram skynsamlegum endurbótum, skapameira jafnrétti milli samningsaðila. Og einnig með því að setja sér markmið í kjaramálum. Markmið sem væri sá rammi ,sem f rjálsir aðilar vinnumarkaðarins f ylltu upp á ábyrgan hátt. Þeir yrðu síðan að bera ábyrgð á gerðum sínum fyrir umbjóðend- um sínum og þjóðfélaginu í heild. Það er löngu orðið óhæft að gerðir séu algjörlega ábyrgðarlausir kjarasamningar i trausti þess að ríkisstjórnir rifti þeim jafnharðan eins og nú hef ur gerzt 23 sinnum á 22 árum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.