Tíminn - 23.04.1978, Síða 8

Tíminn - 23.04.1978, Síða 8
8 Sunnudagur 23. april 1978 Nonnahús á Akureyn 15. ágúst 1971. W——*■ 'I III ^ Ingólfur Daviðsson: Byggt og búið 24 í 16. nóvember 1977 voru liðin 20 ár frá stofnun Nonnasafns á Akureyri. Var það gert á aldar- afmæli Nonna (Jóns Sveinsson- ar). Húsið mun vera 120 — 130 ára gamalt, reist af Pdli Magnússyni frá Kjarna á árun- um 1850-1859,og var fyrst kallað Pálshús. Hefur haldizt óbreytt að mestu, nema tvær suðurstof- ur, en þar voru áður tvö her- bergi. Davið Sigurðsson smiður, er lengi átti húsið, hafði hér smiðaverkstæði, en leigði út hinn hluta hússins. Var búið i þvi til 1942. Skálinn var endur- byggður 1962 i sama formi og áður, en var fyrr geymsla. Foreldrar Nonna, hjónin Sigriður Jónsdóttir og Sveinn Þórarinsson, keyptu húsið 1865 og fluttu i það 1865 og f lutti i það gamla frá Möðruvöllum i Hörgárdal. Nonni átti heima i húsinu tæp 5 ár. Arið 1870 sigldi hann til Dan- merkur; tafðist þar vegna striðsins milli Frakka og Þjóðverja, en hélt siðan til Frakklands i boði fransks greifa, er boðizt hafði til að kosta tvo islenzka drengi til náms i Frakklandi. Hinn dreng- urinn var Gunnar Einars- sson frá Nesi i Höfðahverfi við Eyjafjörð. Nú hefur Nonnasafn verið op- iðá sumrin i 20 ár, sfðusta árin daglega. Annaðist Kolbeinn Kristinsson fræðimaður vörzlu þess fyrstu 5 árin, en siðan Stefania Armannsdóttir. Zonta- konur þó um helgar. Aðsókn er góð og vaxandi. Sl. 15 ár hefur Zontaklúbburinn kynnt Nonna daga og verk hans i barnaskólum Akureyrar og viðar. Zonta- klúbbur Akureyrar var frum- kvöðull að stofnun safnsins og hefur séð um rekstur þess. Er aldarfjörðungur siðan klúbbur- inn eignaðist húsið en þá var fiagnheiður O. Björnsson for- maður. En formaður Nonna- nefndar er Þórhildur Stein- grimsdóttir. Fyrrverandi eig- endur, þau hjónin Sigriður Daviðsdóttir og Zophonias Árnason, gáfu Zontaklúbbnum húsið árið 1952, og eftir lagfær- ingu var það opnað sem minja- safn á aldarafmæli Nonna 19. nóv. 1957. Ýmsir aðilar studdu Zontasystur að málum. Á myndinni sér i gamla kart- öflugarða i brekkunni fyrir of- . A mótum Aðalstrætis t.v. og Hafnarstrætis t.h. á Akureyri Reynitré. 12/8. 1976. an, en fyrir neðan er fjaran. Þarna hafa Nonni og Manni leikið sér. Skammter héðan i stórt timb- urhús er stendur á uppfyllingu á mótum Aðalstrætis og Hafnar- strætis —Hafnarstrætis. Hafn- arstræti 2?(held ég). Ef svo er þá byggðu þeir „eldri bræður” Magnús og Friðrik Kristjáns- synir húsið árið 1892 sem verzlunarhús. Þetta er myndar- legt hús vafið trjágróðri og dá- Iitið skreytt tréskurði. Litum á mynd sem Hallgrim- ur Tryggvason tók árið 1971 af hinu fágætlega fagra húsi, „Verzlunin Eyjafjörður” Hafn- arstræti 86 Akureyri. Húsið byggði árið 1903 Ólafur G. Eyjólfsson, tengdasonur Magnúsar á Grund (e.t.v. með aðstoð Magnúsar).) Ólafur flutti til Reykjavikur 1905 og gerðist skólastjóri Verzlunar- skólans. Húsið var reist úr völd- um viði og prýddi það bæði út- skurður og skrautmálning hið ytra. Sum loft inni voru einnig skrautmáluð. Myndinsýnir suð- urgafl hússins. Lengst bjó og verzlaði i húsinu Kristján Arna- son, þ.e. rúmlega hálfaöld, 1909 til eitthvað fram yfir 1960. Kristján hafði verið búðarmað- ur hjá Magnúsi Sigurðssyni á Grund 1902-1909, og jafnframt organleikari i Grundarkirkju. Þegar kirkjan var reist málaði Kristján turninn, þvi að málar- anum varðsvimagjarntsvo hátt uppi. Kristján var i fyrstu verzl- unarstjóri Magnúsar, en tók brátt við verzluninni og rak hana fyrir eigin reikning sem eigandi hennar og hússins. Var „Verzlunin Eyjafjörður” mjög vinsæl. Ég á fallegar minningar úr þessu húsi, er ég gisti þar sem stráklingur hjá föðursystur minni, önnu Sigurðardóttur saumakonu, en hún bjó nokkur ár i húsinu ásamt fósturmóður sinni, og nöfnu Daviðsdóttur frá Glerá. Þetta kvöld heyrði ég pianó- leik i fyrsta sinn og varð mjög hrifinn. Mun Kristján hafa leikið á hljóðfærið, en sungið var með. Tónlistin heyrðist gegnum þilið. í þessu húsi ólst upp Arni Kristjánsson pianöleikari, en fæddur var hann á Grund. Um skeið mun húsið hafa verið bankaeign, en siðar i eigu viku- blaðsins Dagur. verzlunin Eyjafjöröur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.