Tíminn - 23.04.1978, Page 18

Tíminn - 23.04.1978, Page 18
18 Sunnudag’ur 23. april 1978 Einar Júliusson. Tlmamynd Róbert. hafði komið i hans hlut að dæma i sakamáli.en eins og alkunnugt er var Einar lögfræðingur að mennt og gegndi sýslumannsembætti um skeiö. I þessu tilviki, sem hér um ræðir var sekur maður dæmd- ur til fangelsisvistar. Svo var það einhvern tima seinna, að Einar Benediktsson var á gangi niður Skólavörðustiginn i Reykjavik. Þegar hann kom á móts við hegn- ingarhúsið, opnuðust dyr þess og maður gekk beint i veg fyrir hann. Þar var þá kominn maður- inn, sem hann hafði eitt sinn dæmt til fangelsisvistar — og var nú búinn að afplána dóm sinn. Þetta taldi skáldið að hefði ekki verið nein tilviljun. Og hann tók það skýrt fram, þegar hann sagði mér frá þessu, að ef hann hefði veriö einni, — eða þó ekki hefði veriðnema hálfri minútu fyrr eða siðar, á ferðinni — þá hefði fund- um þeirraekki borið saman, — og það einmitt á þessum stað. Nei, þetta var ekki tilviljun, sagði Ein- ar. — Heyrðir þú Einar aldrei tala um skáldskap? — Jú, þaö kom oft fyrir. Ég held, að ég hafi einna oftast heyrt hann minnast á Pétur Gaut, og mér er nær að halda, að honum hafi verið Gautur öðrum verkum hugstæöari að minnsta kosti um þetta leyti, — á þeim misserum, sem ég er með i huga. — Manst þú eftir þvi að hann færi með ljóð sin fyrir þig eða aðra? — Ég man aðeins eftir einum slikum upplestri. Einar las þá kvæðið Svartaskóla eftir sig. Það var ógleymanlegt að heyra hann hafa yfir þetta þróttmikla og kynngimagnaða kvæði með djúp- um, fallegum bassarómi. Þetta ár sem ég var á sama bæ og Einar Benediktsson, þjáðist ég um skeið af brjóstsviða. Þá skrif- aði Einar á blað ráðleggingar um það, hvernig ég ætti að lækna mig af þessum kvilla. Ég hef geymt það blaö vandlega, og á það enn. Brekkukot eða Urðarsel — Kannski við snúum okkur frá Einari skáldi Bencdiktssyni og vfkjum talinu að sjálfum þér • — Það má min vegna. Annars gætum við haldiö áfram að tala um Einar Benediktsson i allan dag, þar er af nógu að taka, en auðvitað getum við ekki talað alltaf um sama efnið. — Er það ekki rétt, að þú sért með alla fyrstu ibúum Kópavogs? — Jú, eg er með þeim fyrstu, sem festu byggð hér, en þó ekki fyrstur, aðrir voru komnir á und- an mér. Ég losnaði lika alveg við þá tilfinningu, sem sagt er að kvelji suma landkönnuði, þegar þeir sjá mannaspor á svæðum, sem þeir hugðu vera ónumin með öllu. Ég vissi vel, að ég var ekki fyrsti ibúinn i Kópavogi, þótt þar væru fáir mannabústaðir, þegar ég fluttist þangað. Ég keypti sumarbústað hér i Kopavogi og fór að byggja við hann árið 1944, þaö var byrjunin. Þá var talsvert af sumarbústöð- um hérna, og menn voru hvað af hverju aðbreytaþeim og bæta við þá, svo a hægt væri að búa i þeim allt árið . Sumarbústaðurinn, sem ég keypti er enn á sinum stað og ég bý i honum enn, þótt mörgu hafi verið breytt og miklu bætt við húsið i áranna rás. Þaö stendur vestan til i norðurbrún hálsins, og útsýnið er fallegt. Brekkan feam undan er brött, — og nóg er líka af grjótinu. Þess vegna hefði staður- inn hvort sem er getað heitið Brekkukot eða Urðarsel, en þau nöfn eru bæði vel þekkt úr skáld- sögum Halldórs Laxness, eins og menn muna. — Manstu hversu margir Kópavogsbúar voru, t.d. fyrsta A MEÐAN TIL FJALLA. Rabbað við Einar Juhusson / Kopavogi Maður er nefndur Einar Július- son. Hann er með fyrstu land- nemum i Kópavogi og fyrsti byggingarfulltrúinn þar, enda húsasmiður að mennt. En hann kann frá mörgu fleira að segja en þróun byggöar á nesinu milli Kópavogs og Fossvogs, og hálsin- um sem gengur inn af þvi. A unga aldri kynntist Einar nafna sinum, skáldinu Einari Benediktssyni, og af þvi að sérhver vitneskja um þann snilling er okkur kærkomin, og verður áreiðanlega þvi dýr- rnætari sem lengra liður, veröur nú talinu vikið að Einari skáldi, og þvi, hvernig Einar Júliusson kynntist nafna sinum. Kynntist Einari Bene- diktssyni skáldi — Hvenær og hvernig kynntist þú nafna þinum, Einari Bene- diktssyni skáldi, Einar? — Það stafaði af þvi, að ég er uppeldissonur ólafs Þorvaldsson- ar, sem lengi var þingvörður og margir kannast við bæði af þing- varðarstarfinu og ýmsu sem hann skrifaði, þar á meöal bók um hreindýr á Islandi. Fósturforeldr- ar minir bjuggu sem leiguliðar i Herdisarvik , eignarjörö Einars skálds Benediktssonar, og þar voru þau Einar og Hlin samtiöa okkur. Einar var skemmtilegur maður og vinsæll, margir sóttust eftir félagsskap hans, og þvi held ég að næðið i Herdisarvík hafi veriðhonum nauösynlegt frá upp- hafi, hvað þá eftir að heilsuleysi og aldur fóru að sækja fastara á. — Hvaö varst þú gamall, þegar þú kynntist Einari? — Sautján ára. — Honum hefur ekki fundizt þú of ungur til þess að spjalla við þig? — Nei, öðru nær. Hann talaði mikið við mig, og um alla heima og geima. Einu sinni sagði hann við mig: ,,Þú kannt að hlusta nafni minn, það er lika list.” Einar var mikill mannvinur, al- þýðlegur og góðgjarn. Einu sinni kom hann inn til okkar I Herdis- arvik, settist þar á gamla kistu og fór að tala viö fóstru mina, sem var aö sýsla við elda- mennsku: Ég man, aö hann sagði eitthvað á þá leiö, að hann væri ekki orðinn mikils virði núna, en einu sinni haföi hann kannski verið jafngildi þyngdar sinnar i gulli Fóstr a min svaraði og sagöi, aö vel gæti það veriö rétt, en ekki viidi hún skipta á skáldinu Einari Benediktssyni og jafnstórum klumpi, þó ur skiragulli væri. Skáldið sagði ekkert, en brosti viö, og hefur trúlega þótt lofið gott, enda hefur hann áreiðanlega vitað, að af einlægni var mælt. — Þér cr þessi tími auðvitaö mjög minnisstæður? — Já en hitt finnst mér ein- kennilegra, að i endurmin'ning- unni finnst mér sá tlmi, sem ég var samtiða Einari Benedikts- syni, hafa verið miklu lengri en hann raunverulega var. Ég lærði svo margt, sá og heyrði svo margt nýstárlegt, að ég á auðvelt með að trúa þvi að samvera okk- ar Einars hafi varað um langt árabil, þótt ég viti hins vegar ef ég hugsa mig um, að I veruleikan- um stóðu kynni okkar ekki nema i eitt ár, og tæplega þó. „Lærðu latinu, nafni minn” — Mannstu einhver tiltekin um- ræðuefni ykkar nafnanna, þegar þið voruð að spjalla saman? —Ég man miklu fremur hug- blæinn sem var yfir samræöunni og áhrifin af henni en einstök atriði. Samt man ég greinilega eitt, sem Einar sagði við mig, þótt mér auönaðist þvi miður ekki að fara aö ráðum hans i þvi efni. Hann ráðlagði mér eindregið að læra latinu. „Lærðu latinu, nafni minn”, sagð Einar. „Hún er und- irstaða allra rómanskra mála, og þar með lykill að rómanska heim- inum.” í þvi efni gat hann trútt um talaö, þvi að sjálfur hafði hann ungur lært bæði forn-grisku og latinu, og meira aö segja mjög vel, aö þvi er ég hygg.enda var hann hámenntaður maður og við- förull, eins og alkunnugt er. En, eins og ég sagöi áðan, þá varð þaö aldrei hlutskipti mitt að læra hina göfugu tungu latínuna. — En hvað um aðrar hliöar á skáldinu en þær sem nú voru nefndar? Varðst þú til dæmis var við þá myrkfælni og hjátrú, sem honum hefur stundum veriö brugðið um? — Einar var áreiðanlega tals- verthjátrúarfullur. Til marks um bað er m.a. saga sem hann sagöi mér sjálfur. Einu sinni sem oftar fV Jvj í r' & 'l vruV, > r, ■{ : /P v V il.ff'C-l J) Ó J. ! a ■........................i Þegar Einar skáld Benediktsson vissi, að nafni hans, Einar Július- son, þjáðist af brjóstsviða, tók hann litla stiiabók, sem hann bar jafnan & sér, reif úr henni eitt blað og skrifaði á það, hvaða meðal væri bezt við hinum hvimleiða kvilla, brjóstsviðanum. kjuA l> Q/fC'jiJtK, I/ (. ö- Y 4-r OJjJrC^ t o -C c Þessar linur hafði skáldið skrifað hinum megin á blaðið, áður en það rifiö úr stflabókinni, — og það sem hér stendur skráð, er vitaskuld ekki i neinum tengslum við sjúkleika Einars Júliussonar. Sunnudagur 23. april 1978 19 heila árið, sem þú áttir heima þar? — Nei, það man ég ekki, en sjálfsagt er hægt að fletta þvi upp, ef einhvern langar að vita það. Hins vegar man ég að það kom i minn hlut að taka hér manntal árið 1947, og þá voru rétt um tvö hundruð sálir i byggðar- laginu. — Þá hefur Kópavogur ekki verið sjálfstæður hreppur? — Fyrst i stað var hann hluti af Seltjarnarneshreppi, og þá áttu Kópavogsbúar ekki neina aðild að stjórnunarmálum hreppsins, en hreppsnefndin sat auðvitað vest- ur á Seltjarnarnesi. Ég man, að einu sinni leituðum við, Kópa- vogsbúar eftir þvi að fá skóla handa börnum okkar, en við feng- um þau svör að það væri til skóli i hreppnum, Múrarhúsaskóla! Vist var það alveg rétt og satt, en hræddur er ég um aö flestum for- eldrum þætti ónotalegt að þurfa að senda börn sin i skóla sunnan úr Kópavogi og alla leið vestur á Seltjarnarnes. — En hvernig var að komast á milli Reykjavikur og Kópavogs fyrir ykkur fullorðna fólkið, sem stunduðuð vinnu inni I Reykjavik og þurftuö að sækja þangað allar nauðsynjar? — Við notuðum Hafnarfjaröar- strætisvagnana, og svo fór hver úr, þar sem honum þótti hag- kvæmast. Ég var betur settur að þessu leyti, en margir aðrir, þvi að það er tiltölul.ega stutt að fara héðan og niður á Hafnarfjarðar- veg, nálægt þeim stað þar sem Kársnes'brautin lig|!ur núna. Fyrsti byggingarfulltrú- inn i Kópavogi — Sumarbústaðurinn, sein þú keyptir I upphafi hefur vist ekki verið stór? — Nei, ekki er nú hægt að segja það. Hann var tuttugu og fjórir fermetrar. Svo breytti ég honum og bætti við hann, og gerði hann að sextíu fermetra húsi. Þar bjó ég siðan með átta manna fjöl- skyldu, og þar að auki lét ég hreppnum I té skrifstofu bygging- arfulltrúa á heimili minu. — Þú ert fyrsti byggingafull- trúinn i Kópavogi? — Já ég lærði húsasmiöar, og bar að auki hef ég rétt til að teikna hús. Húsateikningar voru lengi aðalatvinna min, en annars var svo i pottinn búiö hér i Kópa- vogi fyrst f stað, að starf bygging- arfulltrúa var I raun og veru ólaunað. Samkvæmt lögum var þóknun min fimmtán aurar á hvern teningsmetar i húsum, sem ég „skipulagði — þaðerað segja mældi útlóðir og valdi húsunum stað, sem oft var mikið vanda- verk, þvi að Kópavogur var allur óskipulagður og landmælingar ekki orðnar eins fullkomnar og núna.Þessir fimmtán aurar á hvern tenirtgsmeter skiluðu mer sem sagt fjörutiu og fimm krón- um i aðra hönd fyrir hvert meðal stórt hús, — sem er næstum ekki neitt, jafnvel þótt miðaö sé viö verðgildi peninga á fyrstu árum minum i þessu starfi, hvað þá eins og siðar varð. Það eru þvi ekki miklar ýkjur þótt ég segi að starf byggingarfulltrúa i Kópa- vogi hafi veri ólaunað framan af árum. — Svo þróuðust málin smám saman I þá átt, að Kopavogur losnaði úr tengslum við Seltjarn- arneshrepp og geröist að lokum sjálfstætt bæjarfélag. — Já. Fyrir rösklega þrem ára- tugum var stofnaður gagnmerk- ur fél.skapur hér i Kópavogi, sem hét Framfarafélag Kópavogs. i það gengu mjög margir, þótt til væru þeir sem litu félagið horn- auga. Þaö voru einkum menn sem vilja hafa lág gjöld og lítil umsvif. I hreppsnefndarkosningum, sem mig minnir að færu fram] sumarið 1946, bauö Framfarafé- lag Kópívogs, fram sérstakan lista, og svo fór, að það fékk kjörna þrjá menn af fimm i hreppsnefnd Seltjarnarness- hrepps. Þar með var það séð að Kópavogur hlyti að verða sjálf- stætt sveitarfélag og síðan þarf ekki að rekja söguna þvi að hún mun flestum kunn. Kom niður á forna hleðslu — Lentuð þið, frumbyggjar Kópavogs ekki i vandræöum með ýmsa sjálfsagða hluti eins og til dæmis drykkjarvatn, frárennsli og annað slikt? — Vist voru lifnaðarhættirnir frumstæðir fyrst i stað. Vatn var hér ekkert, og þess vegna ekki heldur neitt skolpræsi. Rafmagn þarf auðvitað ekki aö nefna. Um mig er það að segja, að ég byrjaði á þvi að ganga frá rotþró og koma upp salerni. En litið gagn var að þeim útbúnaði, ef ekki var neitt vatn fyrir hendi. Þann vanda leysti ég með þvi að grafa brunn skammt frá sumar- bústaðnum, sem e'g var nú að gera að ibúðarhúsi. — Var ekki erfitt að finna not- hæft brunnstæði hér i Kópavogi innan um allt þetta stórgrýti, þar sem hver vatnsdropi hripar niður á milli ótal Grettistaka? — Jú vist er landið ekki glæsi- legt til þeirra hluta, svona yfir aö lita, en ég beitti gamalli og góðri aðferö til þess að finna brunn: Ég notaði brjdstvit mitt. — Og þar hefur vatn verið fyrir, sem þú leitaðir? — Já og ekki aðeins það, heldur kom ég lika niður á hringmynd- aða hleðslu, auðsjáanlega geröa af manna höndum. Hún var á tveggja metra dýpi, sat á hinni svokölluðu isaldarklöpp sem er hér undir og langt frá þvi að nein merki hennar sæjust á yfirborði jarðar. — Þetta bendir til forn:ar mannvistar i Kópavogi? — Það tel ég vist. Ég tilkynnti þennan fund til Fornleifafélags- ins en hleðsian hefur ekki enn verið rannsökuð. — En þú hefur ekki hreyft neitt við þvi sem þú fannst þarna? — Nei hleðslan er óhreyfð á sin- um stað, og eki neinum vand- kvæðum bundið aö rannsaka hana, þótt dálitlum jarövegi hafi verið ýtt yfir gamla brunninn minn, sem nú hefur verið lagður niður fyrir iöngu. — Reyndir þú ekki að gizka á til hverra nota þetta mannvirki hefði veriö á sinni tið? — Nei, slikt er ekki á færi leik- manna. Hleðslan er of litil um sig til þess að hafa verið stekkur, fjárbyrgi og annað þess háttar. Mérdatthelztihug,að þarna hafi verið brunnur I fyrndinni, — og þá hef ég ekki heldur verið fyrsti maðurinn, sem lét sér detta i hug, eða fann á sér, að þarna væri vatn undir. — Hvað sem þvi liður, þá hefur þessi brunnur þinn dugað þér vél — og trúlega hefur sama vatns- bólið svalað þorsta einhverra löngu horfinna og gleymdra manna, sem unnu og urðu þyrstir á þessum sömu slóðum fyrir óra- löngu. — Ekki er það óliklegt. En um brunn minn er þaö að segja, að hann dugði alltaf, nema i mestu þurrkum og mestu vetrarfrost- um. Þá þornaði hann og þá þurfti ég að sækja vatn til Reykjavikur. — Var þaö ekki erfitt og óþægi- legt? — Jú en annars var ég miklu betur settur i þvi efni en flestir aðrir Kópavogsbúar á þessum ár- um. Nokkrir kunningjar minir unnu I frystihúsi i Reykjavík. Þeir áttu ráð á tankbil, fylltu hann af vatni og færöu mér, en ég hellti þvi i brunninn, og komst þannig hjá þvi að nota tunnur, en i þeim hefðivatniö auðvitað fúlnað miklu fyrr en i brunninum. Aftur á móti lagði ég vatnsleiðslu upp á loft i húsinu minu, kom þar fyrir tunnu og dældi vatni i hana af þvi að vatnsleiðslan úr brunninum dró ekki þangað upp. Dæluna, sem ég notaði til þess arna, á ég enn, og geymi hana sem minja- grip. Þaðer gott að vera stundum minntur á þá daga, þegar lifið var þægindasnauðara og frumstæð- ara en núna — þótt enn hafi reyndar flestir viö nóg vandamál að glima. „Ef til vill er mér leið- beint” — Þú sagðir áðan, að ef þú hefð- ir hitt á aö grafa niður á fornt vatnsból, þegar þú þér brunn, þá hefðir þú ekki veriö fyrsti maðurinn sem lét sér detta i hug, eðafánná sér, aö þar væri vatn. Hvað áttir þú við með þessu? — Ég hefði kennski ekki átt að fara aö gefa þetta í skyn, en sann- leikurinn er sá, að ég finn oft ýmislegt á mér, sem ég get ekki sannað á stundinni, en reynist engu að siður rétt. — Getur þú nefnt mér einhver frekari dæmi um þetta en brunn- inn góða, sem þú fannst með eölisávisun þinni? — Ja, hvort ég get. Þegar ég var ungur drengur henti mig einu sinni það óhapp aö týna vandaðri hárgreiðu, sem ég átti, og það þótti mér mikiö mein, þvi að þá höfðu börn minni auraráð, en nú, og gátu ekki alltaf bætt sér slikan skaða með þvi að hlaupa út i næstu búð. Nóttina eftir að greið- an týndist, dreymdi mig að til min kæmi kona sem sagði við mig, að sér væri vel kunnugt um að ég hefði týnt greiðunni minni, en hún vissi lika hvar hún væri niður komin. og það skyldi hún nú segja mér. Siðan sagði hún mér náifvæmlega hvar greiðan lægi, og hvaöa hlutir væru þar hjá henni. Þegar ég vaknaði um morguninn, mundi ég drauminn, klæddi mig i skyndi og fór á staðinn, sem mér hafði verið visað til. Og ekki stóð á þvi: Þarna lá greiðan min og allir þeir hlutir, sem konan hafði sagt að væru þar. Og þá var ég bæði glaður og þakklátur. — Hefur þessi ágæta kona leið- beint þér upp frá þessu? — Ekki veit ég það, ég hef aldrei séð hana eða heyrt siðan. Hitt er vist, að siðan hefur mér oft gengið vel að finna týnda hluti. Til dæmis um það er eftirfarandi saga: Ég var sjúklmgur á Vifilstöðum i þrjú ár, núna ekki alls fyrir löngu. Þá gerðist það eitt sumarið sem ég var þar, að kunningja minn þar á staðnum henti það óhapp að týna bíllyklunum sin- um. Honum þótti þetta vont, eins og eðlilegt var, enda þurfti hann innan skamms að fara til Reykja- vikur i nauðsynlegum erindum. „Heldur þúekkiað lyklarnir séu inni I bílnum eða rétt hjá honum”, sagði ég. Nei, ekki hélt hann það, en þó varð úr, að ég færi með hon- um þangaö sem billinn stóð, skammt fyrir utan sjúkrahúsið. Eigandinn fór nú að leita inni i bilnum, en ég gekk eins og i hálf- gerðri leiðslu út á grasflöt, þarna rétt hjá. Flötin var vel sprottin og grasið talsvert háít, enda sá ég ekkert þar. Allt i einu rak ég hendina niður i grasið og dró þar upp lyklana, eins og sjónhverf- ingamaður, sem er a leika listir sinar fyrir trúgjörnum áhorfend- um. Það var eins og mér væru þessar hreyfingar ósjálfráöar, bæði að ganga út á flötina og eins •hitt að reka hendina niður i gras- ið, einmitt á þessum bletti, þótt ég sæi ekki nein merki til þess aö lyklarnir gætu verið þar. En svohefur þetta oftverið. Ef til vill er mér leiðbeint. Ég veit það ekki, en það er engu likara en að svo sé. Þorsteinn Valdimarsson og Steinn Steinarr — Nú ert þú búinn aö eiga hér’ heima i nærri hálfan fjórða ára- tug. Séö þú ekkert eftir þvi að hafa flutt úr sjálfri Reykavik og setzt að á þessum grýtta hálsi, þar sein margur mannabústaöur- inn gæti vcl heitið Urðarsel? — Nei ég sé ekki eftir þvi að hafa gerzt einn af landnemum Kópavogs. Það er fallegt að horfa að heiman frá mér niður yfir Fossvogsdal og norð-vestur um Framhald á bls. 35 Svona leit hann út, sumarbústaðurinn, sem Einar Júliusson keypti. A myndinni sést, að Einar er búinn að byggja kjallarann, og reykháfur- inn, sem fenginn var i gömlurn og ónýtum skipsskrokk, stendur I loft upp, einn sér. Kópavogur er næst-fjölmennasti bær á lslandi. Reykjavik ein telur fleiri Ibúa. En þar, eins og annars staðar, áttu frumbyggjarnir við margvislega örðugleika að etja. Þó mun þeim flestum, ef ekki öllum, vera hið sama i hug og Einari Júliussyni, að þeir iörizt þess sizt af öllu að hafa setzt aö I Kópavogi, enda er bæjarstæði þar með afbrigðum fagurt. , iV liraK //-* Herdiarvik. t þessum bæ bjuggu Einar Benediktsson og Hlin Johnson I tvibýli við ólaf Þorvaldsson og fjölskyldu hans á meðan verið var aö byggja hús Einars Benediktssonar I Herdisarvik

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.