Tíminn - 07.06.1978, Qupperneq 8

Tíminn - 07.06.1978, Qupperneq 8
8 Miðvikudagur 7. júni 1978 Aðalfundur Samvinnutryggingafélaganna: Heildariðgjöld 3.026.3 millj. heildartjón kr. 2.250.9 millj. 1977 Aðalfundir Samvinnutrygginga g.t. Liftryggingafélagsins And- vöku og Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga h.f. voru haldnir að Bifröst i Borgarfirði fimmtudaginn 1. júni s.l. Fundinn sátu 23 fulltrúar viðs vegar af landinu auk stjórnar félaganna, framkvæmdastjóra og nokkurra starfsmanna. Fundarstjóri var kjörinn Jón Einarsson Borgarnesi en fundar- ritarar Bragi Lárusson, Bjarni Pétursson og Sigurður Þ. Guð- mundsson. Erlendur Einarsson. stjórnar- formaður, flutti skýrslu stjórnar- innar en Hallgrimur Sigurðsson, framkvæmdastjóri skýrði reikninga Samvinnutrygginga og Jón Rafn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri, reikninga Lif- tryggingafélagsins Andvöku og reikninga Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga h.f. Samvinnutryggingar I reikningum Samvinnutrygg- inga g.t. kom fram að iðgjöld árs- ins hjá félaginu námu kr. 2.259.2 millj. á árinu 1977 og höfðu aukizt um kr. 548.1 millj. eða 32%. Tjónagreiðslur námu kr. 1.647.8 millj., en voru kr. 1.290.6 millj. árið 1976 eða hækkun um kr. 357.2 millj. eða 27.7%. Nettó bóta- og iðgjaldasjóðir Samvinnutrygginga voru i árslok 1977 kr. 1.528 millj., en voru kr. 1100 millj. árið áður. Rekstur félagsins gekk vel á ár- inu 1977. Frumtryggingadeildir skiluðu afgangi samtals kr. 82.7 millj. og tekjur af óreglulegri starfsemi námu samtals kr. 17.6 millj. Samtals kr. 100.3 millj. Hins vegar varð nokkuð tap á endurtryggingum eða samtals aö upphæð kr. 20.6 millj. móti kr. 60.1 millj. tapi árið áður. Niður- staða á rekstrarreikningi varö þvi hagnaður aö upphæð kr. 79.7 millj. Á fundinum kom m.a. fram að Samvinnutryggingar lækkuöu á árinu 1977 iðgjöld á heimilis- og húseigendatryggingum. Þá veitti félagið um 700 viðskiptavinum sem tryggt hafa bifreiðar sinar i 10 eða 20 ár án tjóna ókeypis iö- gjald á árinu 1977. Er hér um verulegan afslátt að ræða eða samtals um kr. 28 millj. Þá hefðu Samvinnutryggingar ennfremur endurgreitt vegna ársins 1976 um 22 millj. sem tekjuafgang til þeirra sem skyldutryggðu bif- reiðir sinar hjá félaginu. Samtals hefur félagið þannig sparað viðskiptavinum sinum um kr. 50 millj. i iðgjöldúm á árinu 1977. Bent var á að Samvinnutrygg- ingar hafa frá þvi þær voru stofnaðar fyrir rúmlega 30 árum endurgreitt tekjuafgang þeim sem tryggt hafa hjá félaginu kr. 118.604.236 á verðgildi hvers árs. Jafngildir þessi upphæð umreikn- uð með verðlagsvisitölu i nóvem- ber 1977 hvorki meira né minna en kr. 1.231.000.000. Líftryggingafélagið And- vaka Iðgjöld ársins 1977 námu kr. 126.8 millj. á móti kr. 84.1 millj. árið áður og hafa þvi aukizt um kr. 42.7 millj. eða 50.8%. Tjóna- hlutfall var mjög hagstætt á árinu 1977. Heildarlíftryggingastofn félagsins nam i byrjun ársins 1977 samtals kr. 10.128 millj., en i árs- lok 1977 var hann kr. 13.600 millj. og hefur þvi aukizt um kr. 3.472 millj. eða um 34.3%. Rekstrarafgangur nam kr. 15.8 millj. og voru lagðar i bónussjóð Andvöku kr. 9.4 millj. Eigin sjóðir félagsins, þ.e. tryggingasjóður að frádregnum hluta endurtryggjenda, áhættu- sjóður, varasjóöur og eigiö óráðstafað fé námu i árslok 1977 kr. 111.435.642 á móti kr. 89.712.259 i árslok 1976. Endurtryggingafélag Samvinnutrygginga h.f. Iðgjöld ársins námu kr. 640.3 millj. á móti kr. 636.1 millj. árið 1976, og nemur aukningin 0.7%. Siðustu árin hefur félagið sagt upp allmörgum samningum, sér- staklega i sjó- og flugvélatrygg- ingum vegna óhagstæðrar af- komu i þessum greinum undan- farin ár. Eigin sjóðir félagsins þ.e. áhættusjóður, innborgaö hlutafé og óráðstafað eigið fé námu i árs- lok kr. 52.1 millj. á móti kr. 49.4 millj. i lok ársins 1976. Rekstrarafgangur félagsins varð kr. 4.7 millj. á árinu 1977 móti kr. 6.8 millj. 1976. Heildariðgjöld ársins hjá öllum félögunum námu þvi samtals kr. 3.026.3 millj. á móti kr. 2.431.3 millj. og hafa þvi aukizt um kr. 595.0 millj. eöa 24.5%. Heildartjón ársins námu aftur á móti samtals kr. 2.250.9 millj. móti kr. 1.879.3 millj. — hækkun kr. 371.6 millj. eöa 19.8%. Fjöldi mála er varöa félögin og starfsemi þeirra voru rædd á fundinum og margar tillögur bornar fram og afgreiddar. A siðasta aðalfundi var m.a. sam- þykkt tillaga frá stjórn félaganna um að heimila einum fulltrúa frá starfsmannafélagi félaganna setu á stjórnarfundum. Kosning þessa fulltrúa i stjórn fór fram 25. nóvember 1977. Endurkjörnir i stjórn félagsins voru þeir Erlendur Einarsson forstjóri, Reykjavik, formaöur, Ingólfur Ólafsson kaupfélags- stjóri, Kópavogi og Ragnar Guð- leifsson kennari Keflavik. Aðrir i stjórn eru Karvel ögmundsson framkvæmdastjóri, Ytri-Njarð- vik og Valur Arnþórsson kaup- félagsstjóri Akureyri. Fulltrúi starfsmanna i stjórn er Þórir E. Gunnarsson fulltrúi, Reykjavik. Frá héraðsskólanum að IMúpi Starfrækt verður viðskiptabraut og heilsugæziubraut á framhaldsskólastigi n.k. vetur. Upplýsingar gefur Skólastjórinn i sima (94) 8222. Reykjaneskjördæmi Fundur verður i fulltrúaráði kjördæmis- sambandsins, fimmtudaginn 8. júni kl. 20.30 i iðnaðarmannahúsinu Linnetstig 4, Hafnarfirði. Miðstjórnarmenn, formenn flokksfélaga og fulltrúaráða og kosningastjórar flokks- ins i kjördæminu mæti á fundinn. Stjórn KFR. Aðalfundur Sölusambands islenzkra fiskframleiðenda verður haldinn i hliðarsal Hótel Sögu fimmtudaginn 8. júni n.k. og hefst kl. 10 árdegis. Dagskrá samkvæmt félagslögum Lagabreytingar. Stjórn Sölusambands íslenzkra fiskfram- leiðenda Vorblómið 5. árgangur I vor kom út 15. árgangur af Vorblóminu, barnariti Unglingareglu IO.G.T. Er þaö selt á degi Unglingareglunnar i byrjun mai. Þetta er barnabók og efni hennar sögur, leikrit og kvæði, auk þess sem þar hefur verið minnzt nokkurra merkismanna (karla og kvenna) sem unnið hafa fyrir Unglingarcgluna. í ritnefnd Vorblómsins hafa verið öll þessi ár sömu mennirn- ir: Ingimar H. Jóhannesson, Ólafur F. Hjartar og Sigurður Gunnarsson. En efnisval og útgáfa hefur að langmestu leyti hvilt á Sigurði Gunnarssyni sem annazt hefur þetta ritmeð mik- illi samvizkusemi. Tilgangurinn með útgáfu Vorblómsins var að gefa út hollt lesefni fyrir börn. Birta i þvi siðrænar sögur, sem stundum höfðu bindindistoðskap og leik- rit til lestrar á heimilum og til nota á fundum i barnastúkun- um. En aldrei hafa þær átt eins miklu hlutverki að gegna og nú, þegar reykingar og jafnvel drykkjuskapur er farið að fær- ast til barnanna, vegna óheppi- legs fordæmis hinna fuliorðnu og þeirrar lausungar sem ein- kennir þjóðfélagið. 1 þessum 15 árgöngum Vorblómsins er mikið af góöu lesefni handa börnum, svo vel hefur val á þvi tekizt. Ritið er einnig myndskreytt og smekk- lega útgefið. En það sem einkennir það eru margar ágæt- ar bindindissögur sem vekja til umhugsunar. Ekkert annað rit hefur eins mikiö af því efni i sögulegum búningi við hæfi barna. 1 það hafa einnig ritað sögur margir af kunnustu barnabókahöfundum þjóðar- innar. Vorblómið hefur veriö Unglingareglunni styrkur I félagsstarfi og auk þess hefur það verið henni töluverður fjárhagslegur styrkur þar sem sala þess hefur gengið mjögvel. Meðan það seldist bezt var það gefið út i 4000 eintökum, en siöan barnastúkum fækkaði hef- ur þessi tala lækkað allmikið. Eigi að siður kemst það enn inn á mörg heimili. Segja má að meö þessu 15. hefti Vorblómsins séu nokkur timamót i sögu þess. En vonandi verður Unglingareglan svo gæfusöm að geta gefið það út áfram, þótt sennilega verði skipti á mönnum í ritnefndinni. Með Vorblóminu hefur verið reyntaðgefa islenzkum börnum hoilt lesefni og er þess þörf I öllu því moldviðri sem nú gengur yfir i rituðu máli. Það þarf eitthvert mótvægi gegn öllum þeim ómerkilegu myndabókum sem nú eru gef nar Ut og taka frá börnunum alla umhugsun um bókarefnið. Ég vil flytja ritnefnd Vorblómsins beztu þakkir fyrir vel unnin störf i 15 ár og óska Vorblóminu heilla i framtiðinni. Eirikur Sigurðsson. BILASALAN Fhstargeróir bHntöa OpHfhádegk* Sénar29330og29331 m VITATORGI I

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.