Tíminn - 07.06.1978, Qupperneq 17

Tíminn - 07.06.1978, Qupperneq 17
Miövikudagur 7. júni 1978 17 veiðihornið Góð veiði í Þverá. Laxveiði hófst i neðri hluta Þverár i Borgarfiröi á laugar- dag (3. júni). Þrjá fyrstu dagana veiddust 37 laxar mest, allir á bilinu frá 10-15 pund að þyngd. Veitt er á 7 stangir i neðri hluta Þverár. veim i elri hluta Þverár Kjarrá öðru nafni hefst á fimmtudag. Vel hefur gengið að selja veiðileyfi i Þverá og má segja að þau séu að mestu leyti uppseld. Um 10. júni fer laxveiðin að hefjast i hverri ánni á fætur annarri i Borgarfirði og reyndar um allt land. Þá hefst veiði i Gljúfurá, Reykjadalsá og Flókadalsá, en veiði i Grimsá hefst ekki fyrr en þann 24. júni. — Það er mesta furða hvað veiðzt hefur i Norðurá og Þverá, en vatn i ánum er nú mjög kalt. Þeir veiddu t.d. 20 laxa á fyrsta degi i Norðurá, en vatnið var aðeins 4 gráðu heitt, sagði Þórður Kristjánsson, formaður Veiðifélags Borgarfjarðar, i samtali við blaðið. Stærstu laxar á islandi. Veiðihorninu barst i gær nýjasta tölublað Veiðimanns- ins, málgagni stangveiði- manna. Þar er margar athyglisverðar greinar að finna, þó að hér verði aðeins minnzt á eina, en það er grein Magnúsar ólafssonar formanns Stangveiöifélags Reykjavikur um stærstu laxa sem veiðzt hafa á Islandi, sannkallaða stórlaxa. Magnús skýrir svo frá, að þegar talað er. um stórlax sé átt viö 30 punda lax eða meira. Stærsti iaxinn, sem veiðzt hefur á tslandi, var ekki veiddur á stöng heldur i net á sjó úti, nánar tiltekið við Grimsey árið 1957, og hann vó hvorki meira né minna en 49 pund. Skipverjar á Goða frá Keflavik veiddu næststærsta laxinn i þorskanet 1975 út af Eldeyjarboða. Þetta var 42 punda hængur.Stærsta laxinn, sem veiðzt hefur á stöng hér á landi, veiddi Kristinn heitinn Sveinsson húsasmiðameistari á Iðu i Hvitá i Árnessýslu. Laxinn var 38,5 pund, og það tók Kristin aðeins 20 minútur að ná honum á land. I Veiðimanninum er greint frá fleiri stórlöxum, af þeirri stærð sem alla veiðimenn dreymir um að fá. Þar sem stórlaxar minna á veiðisögur, vill Veiðihornið beina þeim tilmælum til laxveiðimanna að skýra Veiðihorninu frá skemmtilegum veiðisögum i sumar. GV. Grimseyjarlaxinn, stærsti lax sem veiðzt hefur við tsland. Árekstrar og ölvun á Akureyri i gær SJ — Harður árekstur varð á Furuvöllum á Akureyri um kl. eitt igærdag fyrirutan hús númer 5 þar sem prentsmiðja Odds Björnssonar er til húsa. Þarna voru tvær fólksbifreiðar með A-númerum á ferð og var annarri sveigt i' veg fyrir hina. Bifreiðirn- ar, nýleg Mazda og Mercedes Benz, eru báðar mjög mikið skemmdar. Slysurðu ekki á fólki. Fleiri árekstrar urðu i bænum i gær. Nokkru áður hafði kviknað i sendiferðabifreið skammt frá Sólborg. ökumaður komst út og varð ekki meint af, en billinn skemmdist töluvert. Nokkur ölvun var á Akureyri i gærdag og þurfti að taka menn úr umferð um hábjartan daginn, sem er óvenjulegt þar i bæ. Grafa til sölu! Ford 5000 árgerö 1967 til sölu. Fjölhæf grafa með heilsnúning á bakkói. Getum tekið bíl eða bát upp í greiðslu. Uppl. í símum 75143 og 32101/ i dag og næstu daga. Ú tflutningur Færeyinga minnkaði um fimmtung — fyrstu fjóra mánuði ársins samanborið við sama árstima 1977 Það er viðar en hér sem Utflutn- ingur á sjávarafurðum er sveifl- um háður. Ifrétt i færeyska blaö- inu 14. september segir, að á fjór- um fyrstu mánuðum þessa árs hafi útflutningur á sjávaraf- urðum i Færeyjum minnkað um 20% samanborið við sama árs- tima 1977. Einnig hafi útflutn- ingur i aprilmánuði verið rúmum 16 milljónum færeyskra króna minni en i marzmánuði. Helztu útflutningsvörur Færey- inga eru ýmiss konar tegundir sjávarafurða og i samburðartöflu með fréttinni sést, að útflutningur hefur dregizt saman á nálega flestum úttlutningstegundum frá þvi i marz, og er munurinn mest- ur á frystum ýsu- og þorskflök- um. I marzmánuði fluttu Færey- ingar út fryst þorskflök fyrir 8.7 milljónir, en aðeins 2.7 milljónir i aprll. I marzmánuði fluttu Færeying- ar út fryst ýsuflök fyrir 16.4 millj- ónir en aðeins 4.4 i april. Veruleg aukning varð aðeins i útflutningi á einni fisktegund, saltfiski. 1 marz fluttu Færeyingar út saltfisk fýrir 6.7 milljónir en 19 milljónir i april. Helztu þjóðir, sem kaupa fisk af Færeyjum eru Bandarikjamenn, Danir, Frakkar og Spánverjar. Suðurlandskjördæmi Frambjóðendur til Alþingis hafa ákveðið sameiginlega framboðsfundi á eftirtöld- um stöðum: Kirkjubæjarklaustri, sunnudaginn 11. júni kl. 14. Hvoli, Hvolshreppi, fimmtudaginn, 15. júni kl. 21. Flúðum, Hrunamannahreppi, mánudag- inn 19. júni kl. 21. Selfossbiói, Selfossi, þriðjudaginn 20. júni kl. 21. Samkomuhúsi Vestmannaeyja, fimmtudaginn 22. júni kl. 21. tJtvarpað verður frá fundinum að Hvoli, Selfossi og Vestmannaeyjum. Frambjóðendur. „Þaðgrær sem girt er BEKAERX GIRÐINGAREFNI Byggingavörur Sambandsins Suðurlandsbraut 32 ■ Simar 82033 ■ 82180

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.