Tíminn - 07.06.1978, Qupperneq 19

Tíminn - 07.06.1978, Qupperneq 19
MiOvikudagur 7. júni 1978 19 „Við fáum alltaf pillur ilám OOO0OOOO Stórskotahríð hjá V-Þjóðverjum. . . . — þegar þeir sýndu Mexikönum hverjir væru heimsmeistarar og unnu stórsigur — 6:0 i Gardoba i gærkvöldi Heimsmeistararnir frá V- Þýzkalandi eru heldur betur komnir á skotskóna — þeir héldu uppi stórskotahriö að marki Mexikana i Cardoba i gærkvöldi, þar sem þeir unnu stórsigur — 6:0. V-Þjóðverjar léku eins og heimsmeisturum sæmir — þeir tættu hvað eftir annað i sundur varnarvegg Mexikana, með skemmtilegum samleik, eða þá einleik, þegar þaö átti viö. Eftir leik þeirra gegn Mexikó hafa þeir náð góðu jafnvægi — og óneitan- lega hafa þeir tekið stefnuna á heimsmeistaratitilinn. V-Þjóöverjar mættu til leiks, gráðugir sem úlfar og þeir voru svo sannarlega i vigahug. Helmut Schön, landsliöseinvaldurinn snjalli, fyrirskipaði sóknarleik og dagsskipunin hjá honum var — mörk og aftur mörk. Schön setti markaskorarann mikla frá 1. FC Köln, Diter Muller, inn I liöið og einnig útherjann sterka hjá Bayer Munchen — Karl—Heinz Rummenigge. Þaö var Diter Muller sem opn- aöi markareikning. V-Þjóðverja á 14. min. með góðu skoti frá vita- teig, sem Jose Pilar Reyes átti ekki möguleika á aö verja. Siöan skoraði hinn ungi Hans Muller, sem er sagður arftaki Franz Beckenbauer — á 30. min. eftir sendingu frá Heinz Flohe. Stuttu siðar einlék Karl-Heinz Rummenigge i gegnum vörn Mexikana og bætti þriðja mark- inu við og sfðan kom eitt mark til viðbótar frá V-Þjóðverjum fyrir leikhlé - það var Heinz Flohe sem skoraði það, með einu af sinum frægu skotum — hann fékk knött- inn frá H. Muller, og afgreiddi knöttinn i netiö frá vítateig. Rummenigge bætti sinu ööru marki við á 71. min. leiksins, með viðstöðulausu skoti, eftir aö hinn 20 ára stórefnilegi leikmaöur Hans Muller haföi sent snilldar- lega sendingu til hans. Heinz Flohe gulltryggði siöan stórsigur V-Þjóðverja stuttu fyrir leikslok. V-Þýzka liðið var skipað þess- um leikmönnum i gærkvöldi: Maier, Vogts, Deitz, Russ- mann, Kaltz, Bonhof, Fischer, Flohe, Rummenigge, Dieter Mueller og Hans Mueller. —SOS Schön ánægður Helmut Schön, landsliðsein- valdur V-Þýzkaland, gekk út á völlinn eftir sigur V-Þjóðverja og var honum fagnað ákaft. — Ég vissi að strákarnir gátu ekki ieik- ið aftur illa og gegn Pólverjum. Nú erum við tilbúnir að vinna HM-titilinn aftur — það verður erfitt að stöðva okkur eftir þetta, þvi við höfum öðlast sjálfstraust- ið á ný — ég vil þakka Mexikönum, sagði Schön. KARL-Heinz Rummenigge . . .skoraði 2 mörk fyrir V-Þýzkalandi gegn Mexikó. ALAN ROUGH. Vaknað upp við vondan draum.. Alan Rough, landsliðsmark- vörður Skota, vaknaði upp einn morguninn, með mikinn kláða i andliti — þegar hann leit i spegii, sá hann að hann var aliur rauður og stokkbólginn. Rough hafði haft opinn gluggann á herbergi sinu og komust skordýr inn f herbergið og héldu veizlu, með þvi að drekka skozka bióðið úr Rough. Félagar hans i skozka landsliðinu kalia hann nú „Moskito-Face”, eða manninn með „Moskito-andlit- ið” —SOS. Allt í röð og reglu ... — fyrir léki i Englandi v sagði Johnstone — Pillurnar, sem ég tók inn fyrir leikinn gegn Perú, fSumviðalltaf fyrir leiki i Englandi, sagði Willie Johnston, þegar hann yfirgaf Argentinu i gær og hélt til Englands. Þessi yfirlýsing Johnston hefur vakið mikinn úlfaþyt og má búast við að málin verði rannsökuð nánar i Englandi og þá kannað hvort þetta sé rétt — ef það er svo, er þaö mjög alvar- legt mál. Johnston sagöi að landsliðsein- valdur Skota, Ally McLeod, hefði aldrei sagt leikmönnum sínum, að þeir mættu ekki taka lyf fyrir leiki. — Það var heppilegt að þetta komst upp núna, því að tapiðgegnPerú fellur i skuggann fyrir þessu máli, sagði þessi 31 árs W.B.A.-leikmaður og bætti þvi við aðMcLeod heföi ekki rætt um notkun lyfja, fyrr en eftir lyfjaprufuna, eftir leikinn gegn Perú. —SOS. Dansað á götum I Buenos Aires | — eftir sigur Argentínu 2:1 yfir Frakklandi i nótt. • Argentina og Ítalía í 8-liða úrslit Geysileg fagnaðarlæti brutust út i Buenos Aires laust eftir miðnætti, þegar Argentfnumen höfðu lagt Frakka að velli (2:1) i geysilega spennandi leik I HM-keppninni. Það var sungiö og dansað á göt- um höfuðborgar Argentfnu, þegar Timinn fór i prentun I nótt. Arg- entinumenn skoruðu sigurmark sitt 27 min. fyrir leikslok og var það hinn marksækni Luque, sem skoraði markið. Argentinumenn skoruöu fyrra mark sitt rétt fyrir leikshlé —45 min. úr vitaspyrnu og skoraði Daniel Passarella markiö, Jean Debach, dómari frá Sviss, var á báöum áttum hvort hann ætti aö dæma vitaspyrnu, er Marius Tresor, fyrirliði Frakka handlék knöttinn — hann hljóp 30 m og ræddi við annan linuvörðinn og eftir að 'hann var búinn aö ræöa við hann, gekk hann aö vitapunkt- inum við geysilegan fögnuö hinna 80 þús. áhorfenda á River Plate. Frakkar jöfnuðu á 66 min. þeg- ar Baratelli átti gott skot að marki Argentinumanna — Udaldo Fillol, sló knöttinn i stöng- ina og þaðan hrökk knötturinn til Michel Platini, sem skoraöi auð- vellega. Leikur liðanna var geysilega skemmtilegur og skiptust þau á aö sækja og oft munaði mjóu við bæði mörkin — þaö glumdi viö stangarskot og markverðir þjóð- anna björguðu oft meistaralega. Argentina og Italia hafa nú tryggt sér rétt til aö leika i 8-liða úrslitunum. —sos Það er allt I röö og reglu i herbúð- um Argentfnumanna i Buenos Aires og gegna leikmenn landsliðs Argentinu ýmsum hlut- verkum i búðunum. Hinn snjaili sóknarleikmaöur þeirra, Rene Houseman, er t.d. bókavörður, miðvallarspilarinn Gallego er gjaldkeri, miðvörðurinn Pasa- rella hefur umsjón með tónlist og skemmtunum og miövallarspil- arinn Ardiges sér um að svara bréfum frá aödáendum leik- manna. „ítalar léku vel” — sagöi Baroti — Sigur okkar var aldrei f hættu — án Torocski og Nyilasi gátu Ungverjar ekki leikið vel, sagði Enzo Bearzot, iandsliðseinvaldur ttala, eftir hinn sæta sigur þeirra 3:1 yfir Ungverjum. Fyrir utan mörkin þrjú, áttu ítalar þrjú stangar- og sláarskot. — Það var slæmt að leika án fjögurra lykilihanna. Varnarmenn Itala léku mjög vel — þeir voru fljótari á knöttinn og fengum við litið viö þá ráðið, sagði Lajos Baroti, þjálfari Ungverja, sem eru nú úr leik. WILLIE JOHNSTON. Lato hetja Pólverja. . — sem mörðu sigur 1:0 yfir Túnisbúum i gærkvöldi Pólverjar rétt mörðu sigur (1:0) yfir Túnis i Rosario I gærkvöldi, þar sem þjóðirnar mættust i HM-keppninni. Þaö var marka- kóngur HM-keppninnar i V-Þýzkalandi — Lato, sem skoraði sigurmark Pólverja rétt fyrir leikhlé. Það var sannkallaöur afmælis- leikur í Rosario — Chetali, landsliðseinvaldur Túnis, varð 39 ára i gær og Zmuda, varnarmaður Póllands varð þá 24 ára. Þessi dagur — 6. júni, er einnig eftirminnilegur fyrir Lubanski, hinn snjalla leikmann Póllands — þaö voru liðin 5 ár siöan hann meiddist alvarlega i landsleik gegn Englendingum, og þá lék hann sinn 75. landsleik. Túnisbúar og Pólverjar skiptust á aö sækja og fengu leikmenn Túnis fyrsta tækifæri leiksins — Adam Nawalka þrumaði knettinum rétt yfir þverslá á 7. mln. Pólverjar skoruðu mark — Lubanski, sem var dæmtaf, vegna rangstæðu, og þaö var ekki fyrr en á 43. min. að Pólverjar skoruðu sigurmark sitt. — Lubanski „vippaði” þá knettinum yfir höfuðiö á varnarmanninum Ali Kaabi, og fór knötturinn til Lato, sem skoraði með lausu skoti. —SOS. 2. RIÐILL: V-Þýzkaland —Mexikó 6:0 Pólland — Túnis 1:0 V-Þýzkal. 2 1 1 0 6:0 3 Pólland 2 1 1 0 1:0 3 Túnis 2 1 0 1 3:2 2 Mexikó 2 0 0 2 1:10 0 Markhæstu menn: Rummenigge, V-Þýzkaland 2 Flohe, V-Þýzkaland 2

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.