Tíminn - 10.06.1978, Blaðsíða 2

Tíminn - 10.06.1978, Blaðsíða 2
2 Laugardagur 10. júnf 1978 Bandarikjamenn selja Kin verj um f ullkomnar 1j ósmyndavélar Washington, 9. júni, Reuter. — Bandarikjastjórn hefur fallizt á að selja Kinverjum tæki til að taka ljósmyndir Ur loftd með infra-rauðum geislum. Tæki þessigetahafthernaðarlega þýð- ingu, og má t.d. ekki selja þau til Sovétrik janna. Þau kosta 2,8 milljónir dollara. Formælandi Bandarikjastjórn- ar sagði i dag, að ekki mætti selja þessitækitil Sovétrikjanna vegna þess, að Sovétmenn ættu fáguð rafeindatæki, sem gerðu þeim kleift að nota þessarmyndavélar'i hernaðartilgangi. Kínverjar ættu ekki slik tæki og þar af leiöandi mætti selja þau til Kina. Neitað var að svara þeirri spurningu hvaða hernaöarþýðingu þetta gæti haft fyrir Kinverja, en sagt er, að nota megi þessi tæki til að fygjast með hræringum Rauða hersins að nóttu til i grennd við landamærin að Kina. Samstarfsnefnd NATO og Japan, sem samþykkja veröur sölu á tæknibúnaði til kommúnistarikjanna, á eftir að leggja blessun sína yfir þessa sölu. Er búizt við, að erfitt geti orðið að fá samþykki.nefndarinn- þar eð hér sé um aö ræða ögrun við Sovétrikin. Bandarikjastjórn gekk frá þessum málum er Brzezinski ráð gjafi Carters Bandarikjaforseta í öryggismálum kom frá Peking fyrir skömmu. Lagt til að Orlov fái að úr flytjast landi Genf, 9. júní, Reuter. —Fjögur hundrað og fimmtiu visinda- menn hafa lagt tij, að Yuri Or- lov verði boðið starf við Evrópskukjarnorkustofnunina i Genf, eða þá viö rannsóknastöð i einhverju hinna 12 aöildarrlkja stofnunarinnar. Þessi fregn kemur frá Amnesty Inter- national. Visindamennirnir báru fram þessa tillögu I bréfi til forstjóra kjarnorkustofnun- arinnar. t bréfinu er skoraö á forstjórana, dr. John Adams og prófessor Leon van Hove, að beita sér fyrir þvi, að Orlov verði sleppt úr haldi. Hann var nýlega dæmdur i sjö ára fang- elsisvist fyrir and-sovézkan áróður og æsingaskrif. Evrópska kjarnorkustofnunin (CERN) er rétt við landamæri Frakklands og Sviss. Visinda- menn þar vinna að rannsóknum á grunn-gerð efnisins. Aðildar- riki hennar eru: Austurriki, Belgia, Danmörk, Frakkland, Grikkland, Holland, ítalía, Noregur, Sviþjóð, Sviss, Stóra- -Bretland og Vestur-Þýzkaland. Engir geislar i heimsmeistarakeppninni . * Hess fær ekki náðun Bonn, 9. júni, Reuter. — Leonid Brésnjef, leiðtogi Sovétrikjanna hafnaði beiðni Walters Scheels, forseta Vestur-Þýzkalands, þess efnis, að Rudolf Hess yrði sléppt úr haldi. Hess er nú 84 ára að aldri og hefur setið i Spandau-fangelsinu i Berlin siðan 1946. Siðustu 10 ár hefur hann verið eini fanginn þar. Hann var dæmdur i llfstiðar- fangelsi i striðsglæparéttar- höldunum i Núrnberg en hann og þeir forystumenn Þjóð- verja, sem dæmdir voru til fangelsisvistar sátu i Span- dau. Samkvæmt heimildum i Bonn ræddi Scheel þetta mál við Brésnjef er hinn siöar- nefndi kom i opinbera heimsókn til Vestur-Þýzka- lands i mai sl. Bar Scheel fyrir sig m annúðarástæður. Brésnjef svaraöi þvi til að sovézka þjóðin gæti aldrei sætt sig við að Hess yrði sleppt, en hann var á sinum tima stað- gengill Hitlers. - Manila, 9. júni, Reuter. — Varnarmálaráðuneyti Filipps- eyja hefur verið faliö að annast öryggisráðstafanir er þeir Karpov og Kortschnoi keppa um heimsmeistaratitilinn i skák i næsta mánuði. Einkum er lögð áherzla á að koma i veg fyrir all- anorðróm um örbylgjugeisla sem talið er að ruglaö geti hugsun Nýja Delhi, 9. júnl, Reuter. — Aðsúgur var gerður aö Indiru Gandhi og fylgdarliði hennar er hún ók um götur Bhubaneswar i Orissa-fylki i dag. Grjótiog flösk- um var kastað ibifreiðina. Indira bar fyrir sig púða og meiddist ekki. Nokkrir I fylgdarliöi hennar slösuöust og eins lögreglumenn, alls um þrjátiu manns. Indira Ghandi sagði, er búið var að stilla til friöar, aö nú sæist hvað forystumenn Janata-banda- lagsins ættu við er þeir segðust keppendanna. Orðrómur um notkun slikra geisla hefur nokkr- um sinnum gosið upp á skákmót- um. Fyrst er Fischer og Spassky kepptu i Reykjavik sumarið 1972. í vetur var talsvert um þetta rætt er Kortchnoi og Spassky kepptu um réttinn til að skora á Karpov heimsmeistara. þjóna málstað lýðræðisins. Það voru stuðningsmenn Janata— bandalagsins, sem stóðu að óeirð- unum.l siöustu þingkosningum á indlandi tapaði flokkur Indiru meirihlutanum, en Janata-bandalagið vann stór- sigur. Fyrr i dag sagði Indira i ræðu i Kalkútta, að margir meðlimir Kongressflokksins, hennar eigin flokks, hefðu að undanförnu verið myrtir i Bengal. Aðsúgur gerður að Indiru Gandhi Tveir öruggir — jeppinn þrjátlu ára og Einar á Fossi, sem ekiö hefur honum slysalaust frá upphafi. — Timamynd: SGÞO Jeppinn er 30 ára — og honum hefur verið ekið slysalaust frá upphafi SG-Vik i Mýrdal — Klúbburinn Oruggur akstur I Vestur- Skaftafellssýslu hélt aðalfund sinn að Kirkjuhvoli fyrir nokkru. A hann komu Baldvin Þ. Kristjánsson og Þorsteinn Bjarnason frá Samvinnu- tryggingum og veittu viður- kenningu fyrir slysalausan akstur i fimm, tiu, tuttugu og þrjátiu ár. Þaö vakti athygli, að einn þeirra, sem fékk 'viöurkenn- ingu fyrir slysalausan akstur i þrjátiu ár, hefur átt einn og sama bilinn frá upphafi, og engan annan. Þetta var Einar Einarsson á Suður-Fossi i Mýrdal. Hann fékk sér Willysjeppa áriö 1947 og hefur ekið honum siðan. Fystu árin var jeppinn notaöur mikiö við bústörf eins og titt var á meðan litiö var um dráttarvélar. Þrátt fyrir aldur sinn er jeppinn svo vel á sig kominn, að enginn efi er á að hann muni enn geta þjónað eiganda sinum i mörg ár. Stjórn samtakanna öruggur akstur I Vestur-Skaftafells- sýslu skipa nú Simon Gunn- arsson i Vik, formaöur, Karl Fr. Ragnarsson og Oskar Jó- hannesson. Þróttmikil starfssemi Iceland Products Aðalfundur sölufyrirtækisins Iceland Products Inc. var haldinn i Reykjavik 25. mai, en það er eins og kunnugt er i eigu Sam- bands Islenzkra samvinnufélaga og þeirra frystihúsa og fisk- vinnslustööva, sem Sjávaraf- uröadeild er söluaöili fyrir. A fundinum fluttu þeir Erlendur Einarsson stjórnarformaður og Guðjón B. Olafsson frkvstj. skýrslur um starfrækslu fyrir- tækisins á liðnu ári. 1 skýrslum þeirra kom m.a. fram, aö áfram hefur verið haldiö þeim margvislegu endurbótum á öllum vélbúnaöi og byggingum verksmiðjunnar, sem unnið hefur verið aö siöustu árin. Hefur það nú skilað þeim árangri, aö fyr- irtækið hefur getað bætt fram- leiöslu sina verulega, sem kemur m.a. fram I þvi, að meira er þar nú framleitt af verömætari teg-. undum en áöur. Heildarvelta fyr- irtækisins á árinu 1977 varð 61.7 milljónir Bandarikjadala, og er þaö 27.1% aukning frá árinu áður. Miklar umræður urðu á fundin- um, og kom þar fram mikil ánægja fulltrúa frystihúsanna meö rekstur og þjónustu fyrir- tækisins. Þá gerði stjórnarformaöur einnig ýtarlega grein fyrir hinu svo nefnda Mrs. Paul’s Kitchen- máli á fundinum, en þvi er nú ný- lega lokið meö fullum sigri Sam- bandsins og Iceland Products. 1 stjórn Iceland Products voru kjörnir þeir Erlendur Einarsson forstjóri, sem er formaður, Guð- jón B. Olafsson frkvstj., Sigurður Markússon frkvstj. William D. Boswell lögfræðingur i Banda- rikjunum, Marteinn Friðriksson frkvstj. á Sauöárkróki og Þor- steinn Sveinsson kfstj. á Egils- stöðum; ...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.