Tíminn - 10.06.1978, Qupperneq 7

Tíminn - 10.06.1978, Qupperneq 7
Laugardagur 10. júní 1978 7 Ctgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvœmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm). og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulitriii: Jón Sigurösson, Auglýsingastjóri: Steingrfmur Gislason, Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöimiila 15. Sfmi 86300. Kvöldsimár blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 100.00. Áskriftargjaid kr. 2.000 2' mánuöi. Blaöaprent h.f. Ójafnaðar- stefnan Sameiginlegt stefnumál stjórnarandstöðuflokk- anna nú er vaxandi tekjumisrétti i þjóðfélaginu. Enda þótt þeir láti sem þeir séu ósammála um flestalla hluti eru þeir þó sammála um ójafnaðar- stefnuna sem þeir boða og hafa att ýmsum flokks- bræðrum sinum i verkalýðshreyfingunni út á það torleiði. Alþýðuflokkurinn leggur áherzlu á að leggja niður tekjuskattinn, en hann er sem kunnugt er eitt helzta tekjujöfnunartæki rikisins. Hins vegar berst Alþýðuflokkurinn fyrir þvi að hátekjumenn njóti fullra visitölubóta samkvæmt kjarasamningunum frá siðast liðnu ári. Alþýðubandalagið, er þykist allra flokka mestur vinur launþega, hefur einnig letrað launamisréttið á skörðóttan skjöld sinn. Undir áróðurskjörorði sinu, „samningana i gildi”, hyggst það koma i veg fyrir efnahagsaðgerðir sem hafa atvinnuöryggi og launajöfnun að meginmarkmiði. Þetta eru þau baráttumál sem stjórnarand- stöðuflokkarnir ganga með fram til kosninganna nú i lok júnimánaðar. Og svo ætlast Alþýðuflokks- menn sumir til þess að fólkið trúi þvi að ekki vaki fyrir þeim nýtt „viðreisnarævintýri”! Og Alþýðu- bandalagsmenn ætlast til þess að einhver trúi þvi að þeir hafi áhuga á vinstristjórnarsamstarfi eftir kosningar! Nú er fólkið i landinu farið að spyrja hvað það sé sem i raun og veru vakir fyrir stjórnarandstöðu- flokkunum. Fólk trúir ekki lengur örvæntingar- hrópum Morgunblaðsins sem nú rekur daglega upp óskiljanlega skræki i stjómlausri Rússa- hræðslu og móðursýki yfir ósigrinum i Reykjavik á dögunum. Fólkið i landinu er farið að spyrja stjórnarand- stæðinga i alvöru: — Er það meginstefnumái þeirra að stórbæta kjör hátekjufólks? — Er það ásetningur þeirra að taka aftur upp óheft visitölukerfi á öll laun alveg upp úr launa- stiganum? — Er þeim það mesta keppikefli að brjóta niður þann árangur sem náðst hefur i launajöfnunarátt? — Gera þeir sér það ekki ljóst með neinu móti hvilik áhrif slikar aðgerðir hefðu á hagsmuni og kjör láglaunafólksins? — Gera þeir sér það ekki ljóst hvilik stórkostleg röskunaráhrif slikar aðgerðir hefðu fyrir atvinnu- öryggið i landinu? — Skiptir þá engu máli að fullt atvinnuöryggi og uppbygging haldist i byggðunum úti um land? — Hvernig hyggjast þessir töframeistarar ná nokkrum minnsta árangri i baráttunni við óða- verðbólguna samtimis þvi að öllum öflum i efna- hagslifinu er sleppt lausum og fyrst og fremst hátekjufólkinu? — Hvernig ætla þeir að haga fjármálum rikis- ins, framlögum þess til heilbrigðismála, trygginga og mennta við slikar aðstæður? — Halda stjórnarandstöðúpostularnir virkilega að fólk láti glepjast af þessum ósköpum þeirra? JS ERLENT YFIRLIT Stjórn Scmidts veikist í sessi Verða aðeins tveir flokkar i Vestur- Þýzkalandi? FYLKISKOSNINGAR, sem fóru fram i Hamborg og Neðra-Saxlandi á sunnudaginn var, hafa vakið sérstaka athygli, þvi að þær gætu bent til að svokallað tveggja flokka kerfi sé i uppsiglingu i Vestur-Þýzkalandi Annar stjórnarflokkurinn, Frjáls- lyndi flokkurinn, tapaði öllum sætum sinum á viðkomandi fylkisþingum, þvi að hann náði ekki þvi að fá 5% greiddra atkvæða, en það at- kvæðamagn þarf flokkur að fá til að öðlast uppbótarsæti. 1 siðustu fylkiskosningum fékk Frjálslyndi flokkurinn 7% greiddra atkvæða, en fékk nii aðeins 4.2%. t Hamborg fékk flokkurinn nú 4.7% greiddra atkvæöa, en fékk 11% i siðustu kosningum. Tap flokksins stafaði þó ekki af þvi að stóru flokkarnir, sósfaldemókratar og kristileg- ir demókratar, hefðu aukið fylgi sitt. 1 Neðra-Saxlandi stóðu kristilegir demókratar naumlega i stað, eða fengu 48.7% i stað 48.8% áður. Þetta nægði þeim til að fá meirihluta á þinginu, en Frjálslyndi flokkurinn hafði haft þar úr- slitastöðu áður. 1 Hamborg töpuðu kristilegir demókratar verulega eða fengu ekki nema 37.6% i stað 40.6% áður. Þar unnu sósialdemókratar veru- lega á, en þeir fengu nú 51.5% greiddra atkvæða, en höfðu 44.9% áður. Hamborg er heimaborg Schmidts kanslara og þykir þetta þvi góður sigur fyrir hann. I Neðra-Saxiandi töpuðu sósialdemókratar litil- lega, en þar lækkaði atkvæða- tala þeirra úr 43.1% i 42.2%. Það, sem gerði mest strik i reikninginn i þessum kosning- um, var framboð Græna flokksins svonefnda eða um- hverfisvemdunarmanna. Græni fiokkurinn fékk 4.5% greiddra atkvæða i Hamborg og 3.9% greiddra atkvæða i Neðra-Saxlandi. SÓS1ALDEM ÓKRATA R og frjálslyndir demókratar hafa nú stjórnarsamstarf i Vestur-Þýzkalandi. Meirihluti þeirra er tæpur á þinginu. Þeir hafa samanlagt aðeins 10 þingsætum fleiri en kristilegir demókratar. Tap Frjálslynda flokksins mun áreiðanlega verða til þess að veikja stjórn- ina i sessi og gæti stuðlað að þvi, að hún sæti ekki út kjör- timabilið. Innan Frjálslynda flokksins hefur gætt nokkurr- Helmut Schmidt ar óánægju með stjórnarsam- starfið, þvi að hlutur hans i rikisstjórninni hefur verið álitinn of litill og Helmut Schmidt drægi að sér mesta athyglina. Hætt er við, að tap flokksins geti ýtt undir þetta sjónarmið og gert flokkinn órólegrii stjórninni. Þó getur þaðeitthvað vegið gegn þessu, að ekki virðist álitlegt fyrir flokkinn að sinni að rjúfa stjórnarsamstarfiö og láta koma til kosninga, þvi aö úr- slit umræddra fylkiskosninga gætu bent til þess, að hann þurrkaðistalvegútúr þinginu. Meðal sósialdemókrata getur tap frjálslyndra demókrata einnig haft þau áhrif, að það veiki stjórnarsamstarfið. Vinstri armur flokksins er óánægður með stjórnarsam- starfið og vill helzt, aö flokkurinn stefni að hreinum meirihluta. Meðalannars hafa ýmsir þingmenn hans haldiö uppi árásum á stjórn frjáls- lyndra demókrata á innan- rikisráðuneytið, en undir það heyra lögreglumál, sem mjög hafa verið i sviðsljósinu að Werner Maihofer undanförnu vegna skæruliöa- hópanna. TAP Frjálslynda flokksins hefur þegar haft þær afleið- ingar, að innanrikisráðherr- ann, Werner Maihofer, hefur beðizt lausnar, en hann hefur sætt mikilli gagnrýni undan- farna mánuði. Lögreglan hef- ur oftþótthaga sér klaufalega ieltingarleiksinum við skæru- liöana. M.a. er nú upplýst, aö hún fékk upplýsingar um felu- stað, þar sem skæruliðar höfðu Hanns-Martin Schleyer i haldi og hefði ef til vill veriö hægt að bjarga lifi hans, ef lögreglan hefði farið eftir upp- lýsingunum i tæka tiö. Þá hef- ur veriö upplýst, að lögreglan hefur stundað simanjósnir, án þess að Maihofer væri kunn- ugt um það. Af hálfu ýmissa þingmanna sósialdemókrata hefur Maihofer veriö harölega gagnrýndur. Sagt er, að hann hafi ekki verið látinn vikja nú vegna kosningaúrslitanna, heldur hafi það verið afráðið áðurogliggi allt aðrar ástæð- ur til brottfarar hans. I staö hans hefur Gerhart Baum verið skipaður innanrikisráð- herra, en hann var áöur nán- asti samstarfsmaður Maihof- ers i innanrikisráðuneytinu og hefur sætt svipaðri gagnrýni og Maihofer. Það er þvi talið vafasamt, að þessi ráðherra- skipti bæti stöðu Frjálslynda flokksins. Þaö hefur verið óhapp Frjálslynda flokksins, að hann hefur haft lögreglumálin á hendi meira en nokkur annar flokkur að undanförnu, þvi að innanrikisráðherrar i ýmsum fylkjum hafa einnig verið úr hópi hans. Þaö hefur þvi að ósekju lent á flokknum að hann bæri ábyrgð á óskel- eggri framgöngu lögreglunn- ar. Margir fréttaskýrendur telja, aö tap hans nú reki ræt- ur til þessara ástæðna. Fari svo, að Frjálslyndi flokkurinn missi alveg fótfest- una i næstu kosningum, verða aðeins tveir flokkar eftir á þinginu i Bonn. Margir hafa óttazt, að slikt. gæti leitt til harðari stjórnmálaátaka, og gæti það reynzt Frjálslynda flokknum nokkur hjálp i næstu kosningum og komið I veg íyrir fullan ósigur hans. þ.þ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.